Vísir - 13.06.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 13.06.1966, Blaðsíða 2
ÞEGAR TILRAUNALIÐIÐ BARÐ- IST TÓKST AÐ HAMLA Á MÚTI Hermann Gunnarsson vinnur ein- vígi við einn af ensku leikmönn- unum. Á miðri myndinni fyigist Matthias Hallgrímsson spenntur með viðureigninni. Ljósm. Bj. Bj. \f’órn tilraunalibsins átti einkum góÓan leik gegn Norwich á Akranesi i gær, Norwich vann \*ó 2:1 íslenzka tilraunalandsliðið kom ekki sem verst frá viðureign sinni við Norwich City í gærdag á renn- blautum grasvellinum á Skipaskaga á Akranesi. Það var einkum aftasta vömin, sem kom vel frá leik sínum við erfið skilyrði, en framlínan náði ekki miklu úr leik sínum. Fyrri hálfleikur var jafn, en þá sóttu landsliðsmenn undan allsnörpum vindinum, sem þeir þó kunnu ekki að notfæra sér með því að skjóta að enska markinu. Fyrsta markið kom eftir hálftíma og skoraði Bryceland innherji þetta fyrsta mark Norwich. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Eftir 12 mín. leik í seinni hálflejk skor- aði Curran útherji Englendinga 2:0 með fallegu skoti frá vítateigshorn- inu. Guttormur Ólafsson hefði að öllum líkindum varið við eðlileg skilyrði, en fataðist nú vömin í leðjunni á marklínunni. Mark íslendinganna kom eftir ágæta sókn og skoraði Hermann miðherji laglega 2:1 og vom þá ör- fáar mfnútur eftir til leiksloka. Islenzka tilraunalandsliðið barð- ist vel í þessum leik, og það reið baggamuninn. Að vfsu sóttu Eng- lendingar mun meira í seinni hálf- leik þegar farið var að minnka út- hald okkar manna, en vömin og markvörðurinn stóðu vel fyrir sínu og björguðu oft vel. Áttu allir vamarmennimir Ámi, Ársæll og Þorsteinn góðan leik og Guttormur í markinu sannaði að hann átti fyllilega skilið að vera valinn I þá stöðu. Jón Leósson, sem kom inn fyrir Ellert Schram stóð líka fyrir sínu, enda ekki vanur að bregðast f leik. ‘ .-mlínan lék hins vegar nokkuð sundurlaust og í vftateign- um náðist enginn árangur, ef und- an er skilið þetta eina mark, sem skorað var. Aðstæðumar til að leika knatt- s^ymu á Akranesi í gær vom ekki upp á marga fiskana, enda gat hvomgt liðið náð sínu bezta. Áhorfendur vom þó ekki á því aö láta leikinn fara fram hjá sér og vom vallargestir um 1000 talsins. Næsti leikur Norwich, sem einn- ig er sfðasti leikur liðsins hér á landi f þessari heimsókn, er gegn Keflavfk n. k. miðvikudag og fer hann fram á grasvellinum f Njarð- vfk. // TVÍVEGIS HOLA í HÖGGI 44 Hin árlega firmakeppni G.R. hófst á velli félagsins við Graf- arholt laugardaginn 4. júnf og lauk eigi fyrr en sfðdegis næsta dag. 181 flrma tók þátt f keppn- inni. Á laugardaginn var keppn- in mjög tvfsýn og fór svo að eftirtalin flrmu urðu efst og jöfn að lokmim 18 holum: Blóm og Ávextir (kylfingur Hans Isebam), Kristján Skagfjörð (kylfihgur Tómas Ámason), Verzlunin Þingholt (kylfing- ur Jón Þór Ólafsson), Bifreiðastöð Steindórs (kylf- ingur Þorvarður Ámason), Gufubaðstofan Kvisthagi 29 (kylfingur Sveinn Snorra- son). Þennan dag kom skemmtileg- ur atburður fyrir. Páll Ásgeir Tryggvason, sem lék fyrir Voga- ver, lék sfðustu holuna f um- ferðinni f höggi (hole in one). Þetta skeði á 2. holu, sem er 145 m löng. Auk þess cr þetta f fyrst, sinn, er Páll leikur „holu f höggi", þó að hann hafi stundum verið sjónarvottur að slfku. Nokkrum dögum áður en firmakeppnin hófst lék frú Ólöf Geirsdóttir sömuleiðis „holu f höggi“, þ. e. a. s. 11. holuna, sem hlýtur að teljast mjög vel gert. Enda hefur frúin notið ágætrar leiðsagnar golfkennara félagsins, Magnúsar Guðmunds- sonar frá Akureyri. Frú Ólöf er nýliði í golfíþróttinni og leikur mjög sæmilega, miðað við svo skamman tíma. Þessi 5 firmu léku sföan til úrslita sunnudaginn 5. júní. Leiknar voru 18 holur (högg- leikur). Eftir harða og tvísýna keppni fengust úrslit í firma- keppni G. R. 1966. Úrslit urðu sem hér segir: Sigurvegari varð Verzlunin Þingholt (kylfingur Jón Þór Ól- afsson) á 89—29 = 60 högg. 2. Kristján Ó. Skagfjörð (kylf- ingur Tómas Ámason) á 81—19 = 62 högg. 3. —4. Blóm og Ávextir (kylf- ingur Hans Isebarn) á 88—22 = 66 högg. 3.—4. Gufubaðstofan Kvist- haga 29 (kylfingur Sveinn Snorrason) á 88—22 = 66 högg. 5. Bifreiðastöð Steindórs (kylfingur Þorvarðnr Árnason) Mæta ekki á Norðurlanda- þing í mótmælaskyni? Frjálsibróttamenn hafa fengið sig full- sadda á svokallaðri „norrænni samvinnu" „Við erum þreyttir á því sem kallað hefur verið norræn sam- vinna, frjálsfþróttamenn", sagði Ingi Þorsteinsson, formaður FRÍ nýlega í viðtali við blaðamenn, en eins og sagt var frá á íþrótta- síðunni hlupu Norðmenn frá samningi um heimsókn fsl. lands liðs til Burkjelo f Noregi. Er þetta í annað sinn, sem norska frjálsíþróttasambandið svfkur gerða samninga við íslenzka frjálsíþróttamenn. Ingi sagði eftirfarandi af sam- skiptum íslenzkra frjálsíþrótta- menn við „frændurna" á Norð- urlöndunum: „Stjóm FRl hefur reynt á s.l. árum að standa að eflingu nor- rænnar samvinnu á sviöi frjáls- íþrótta og hefur þetta meðal annars komið fram f því að FRÍ átti uppástungu að keppninni V-Noregur—Island, sem hófst 1963 eins og áður segir. Tveggja ára samkomulag var gert við Dani um landskeppni. Kepptu Danir hér árið 1964 og buðu til keppni 1965 Island—Danmörk— Spánn, en aldrei varð af þeirri framkvæmd af hálfu Dana. FRl kom á 3 landa landskeppni f tugþraut 1964 milli Islands, Sví- þj., Noregs. Forystumönnum NFIF og sænska frjálsfþrótta- sambandsins þótti þessi tug- þrautarlandskeppni mjög æski- leg fyrir tugþra'utarmenn land- anna, þar sem skortur væri á keppnum fyrir tugþrautarmenn. Var ákveöið að halda þessari keppni áfram, en FRl hefur ekk- ert heyrt meira hvorki frá Norð- mönnum né Svíum varðandi framhaldskeppnina. Island hefur verið áka"ur stuðningsmaður Norðurlandameistaramóts, en bæði Svfar og Finnar hafa haft hug á því að fella þetta mót nið- ur, enda þótt slíkt hefði ekki tekizt á norræna fundinum í Reykjavík s.l. haust. Er því fram tíö Norðurlandameistaramótsins mjög ótrygg. Stjóm FRl finnst haldlítið að sitja ráðstefnur með fulltrúum hinna Norðurlandanna um sam- eiginleg mál og norr. samvinnu á sviði frjálsíþrótta, sem frænd- ur okkar virðast alls engan á- huga hafa á. Er þvf f athugun hjá stjóm FRl að senda ekki full trúa á norræna þingið, sem fram fer f Osló f haust“. Norska frjálsíþróttasamband- ið býður FRÍ upp á ámátlegt yfirklór f bréfi sínu varðandi mál þetta, sem barst stjóm FRl fyrir nokkmm dögum. Segir þar að ekki hafi tekizt að afla 10 þús. króna norskra, sem fyrir- tæki eiti hafði ætlað að greiða sem auglýsingu. Heimsóknin átti að kosta 40.000 norskar krónur, þannig að lftið virðist vanta upp á. NFIF frestar f bréfi sfnu heim sókninni með öllu, en gefur FRÍ enga möguleika á að hlaupa und ir bagga. Verður það ekki skil- ið öðru vfsi en svo, að ekki sé áhugi lengur á „norrænu sam- vinnunni". 2. deild: ísfirðingar unnu, — og ísfirðingar léku tvo leiki í 2. deild um helgina, annan f Kópavogi og hinn í Hafnarfirði. í Kópavogi fóm leikar sv„ að Breiðablik vann með 2:1 í spenn- andi leik, og voru ísfirðingar held- ur óheppnir með úrslitin í leiknum. Hafa Breiðabliksmenn nú unnið báða leiki sína í deildinni, fyrri leikinn gegn FH. t Hafnarfirði léku ísfirðingar við FH og fóru leikar svo eftir 1:0 fyr- ir ísafjörð í hálfleik, að ísfirðingar unnu 4:2, skoraði Þröstur Guðjóns- son 2 markanna, en Hafþór Sigur- geirssoi eitt og eitt varð sjálfs- mark. Höfðu Isfirðingar allnokkra yfirburði og verðskulduðu sigurinn fyllilega. Hafa þeir nú 4 stig í riðl- inum, en hafa leikið einum leik fleiri en Kópavogsmenn. Fyrr unnu ísfirðingar Siglfirðinga með 2:1. Fram átti að leika sinn fyrsta leik í 2. deild um helgina. Ófært var til Vestmannaeyja, en þar átti leikurinn að fara fram, og varð af þeim sökum ekki af keppninni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.