Vísir - 04.07.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 04.07.1966, Blaðsíða 2
V í S IR . Mánudagur 4. júlí 1966. Danska liöiö við komuna til Reykjavíkur. Myndin var tekin á Austurvelli. Rætist ImgþráSur draumur? ViÓ höfum lengi beðið eftir sigri gegn Dönum og nú er eitt tækifærið enn % Danska landsliðið í knattspymu (leikmenn yngri en 24 ára) kom flugleiðis til Reykjavík- ur í gærkvöldi og lenti um ellefu-leytið á Reykjavíkurflugvelli í fallegu kvöldveðri. í kvöld er enn einn „Dana slagur,“ — og enn einu sinni vonum við að ÍS- LAND VINNI. Og ísland getur unnið. Leik- ur ungu leikmannanna okkar gegn biaðaliðinu, blaðaliði, sem loks sýndi baráttuviija og góða samleikskafla, iofar öllu góðu um áframhaldið. Landsiiðsnefnd gerði vonandi það rétta, að breyta ekki liðinu frá þeim leik. Dönsku leikmennimir voru fullir af fróðleiksfýsn, þegar þeir lentu í Reykjavik. Þeir spurðu ekki svo mikiö um hve margir íbúar byggju þetta kvöld roðaða land, heldur hvemig leik ur félaga sinna gegn Englend- ingum skömmu áður hefði far- ið. Og svarið fékkst von bráðar, Danir höfðu staðið sig vel, tap að „aðeins“ 0:2 og átt góðan leik. í þeim leik vom tveir félag ar piltanna, sem raunar áttu að koma hingað, en vom kvaddir til þessa leiks á síðustu stundu. Vom það miðvörðurinn Henn- ing Boel frá Ikast og Schmidt frá Horsens, en hann leikur á hægri kanti. Islenzku leikmennimir hafa haft náðuga daga um helgina, hvílt sig og reynt að safna þeim krafti, sem nægir til að vinna loks erfðafjenduma Dani, en sá draumur hefur lengi verið að rætast. En hver veit nema hann rætist í kvöld á Laugardalsvelli. Þaö hefur oft verið haft á orði hve orðlatir áhorfendur væm þegar fsland léki lands- leiki. Það hefur stundum farið öðm visi, fólkið hefur drifið liðin áfram með hvatningarorð- um. Og það er raunar ekki þörf á að láta þess getið hér að aðaluppistaðan í kallkómum í kvöld ætti að vera „ÁFRAM ÍS- LAND!“ -jbp.- ÍSÍ-ÞING Á ÍSAFIRÐI í HAUST íþróttaþing, ÍSf, verður haldið á ísafirði næsta haust. Var frá þessu skýrt á þingi ÍBf á ísafirði I gær- dag, og er þetta gert í tilefni af 100 ára afmæli fsafjarðarkaupstað- ar, sem er um þessar mundir. FH í VAND- RÆÐUM FH horfir fram á mikla erfiðleika. Liðið tapaði enn einum leik f 2. deildinni í knattspymu og er í falihættu í 2. deildinni. Siglfirðing ar unnu FH í leik liðanna í gær á Siglufirði í geysihörðum og spenn andi leik. Lauk leiknum með 2 : 1 sigri Sigl firðinga og var staðan í hálfleik 1:0 fyrir Siglufjörð, en í seinni hálfleik skoruðu báðir aðilar úr vftaspymum. ÖLFUSINGAR UNNU 1:0 Ölfusingar unnu fyrsta leik 3. deildar, sem fram fór f gær á Sauð árkróki. Leiknum lauk svo að aðkomu- menn unnu heimamenn með einu marki gegn engu og hlutu þar með fyrstu stigin f þessari nýstofnuðu deild. m V'Já&ÍÆM Tveir landsliösfélagar bera á mflli sín körfuna meö landsliösbún- ingunum. ENGINN ÍSL DOMARIA HM / HANDKNA TTLEIK Kópavogur í úrslit 2 deildar Á fsafirði urðu heimamenn að horfa á eftir tveim stigum til Kópa vogs f 2. deildarkeppninni. Þessi tvö stig fyrir 3:1 sigur Kópavog þýða það að Breiðablik lendir í úr- slitum í deildinni, líklega gegn Fram, á Laugardalsvellinum í Reykjavík. Þetta þýðir jafnframt að fsfirðingar eru í fallhættu f 3. deild. Yrði það mikið áfall fyrir ísfirðinga, sem fyrir nokkrum ár- um léku f 1. deild. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og allvel leikinn. Lauk hon um svo að ísfirðingar skoruðu eina markið. í seinni hálfleik tóku Kópa vogsmenn völdin í sínar hendur og skorðu 3 mörk en fsfirðingar ekk ert, eitt markanna var skorað úr vítaspyrnu. Enginn íslenzkur dómari var útnefndur til aö dæma leiki heimsmeistarakeppninnar i hand knattlelk f Sviþjóð í janúar næsta ár. Það var tækninefnd alþjóðasambandsins, sem út- nefndi 14 dómara, sem dæma eiga leikina i aðalkeppnlnnl og þrátt fyrir það að fslendingar hafi lagt á það ríka áherzlu aö fá a.m.k. einn dómara f þennan hóp hefur tækninefndln ekki getað orðiö viö þeim tilmælum og verður að segja eins og er, aö þetta eru mikil vonbrlgðl fyr ir þá fslenzku dómara, sem fremstir eru, enda standast þeir „kollegum“ sfnum f Evrópu fyllllega samanburö. Dómaramir, sem uröu fyrir valinu em þessir: Knud Knudsen, Danmörku, Gavrilo Gojnic, Júgóslavfu, Vas ile Sidea, Rúmeniu, C. Akhund- ov, Sovétríkjunum, Thorild Jan- erstam, Svfþjóö, G. Fulöp, Ung- verjalandi, Horst Giinter Sch- nelder, V.-Þýzkalandl, Claude Martin, Frakklandi, Knut NIls- son, Noregi, Bruno Freivogel, Sviss, Hans Carlsson, Svfþjóö, Jan Dolezal, Tékkóslóvakíu, Hans Romaniath, V.-Þýzkalandi Kurt Schoof, A.-Þýzkalandi. Margir þessara dómaafc em fs lendingum kunnir. Knudsen, Nilsson og Karlsson hafa allir dæmt hér og vakiö athygli fyrir góða dóma sfna. Hans Carlsson er einnig frægur knattspymu- dómari og í ísknattleik má oft sjá hann í dómarabúningi. Fyr- ir nokkrum dögum dæmdi hann landsleik Englendinga og Norð- manna í knattspymu. SELFOSS VANN BORGARNES Selfyssingar unnu leik sinn gegn Borgnesingum f 3. deild í gærdag. Fjöldi manns hafði safnazt saman við nýja og fallega grasvöllinn á Selfossi til að sjá heimaliðið í sín um fyrsta deildaleik, — og hinir ungu liðsmenn sviku áhorfendur ekki, því að lið þeirra hefur mörg um efnileguni leikmönnum á að skipa. í liði Borgnesinga voru tveir gamlir Iandsliðsmenn, Sveinn Teits son og Skúli Hákonarson, af Akra nesi, en gömul kempa, þjálfari Sel fyssinga, Guðmundur Guðmunds- son keppti með Selfyssingum og átti drýgstan þátt í sigurmarkinu. í hálfleik var staðan 1:0 fyrir Borgnesinga, en það mark var sjálfsmark. Selfyssingar jöfnuðu snemma en Borgnesingar skora 2:1 og enn jafna Selfyssingar, þá úr vítaspyrnu. Síðasta markið kom úr fyrirgjöf Guðmundar Guðmunds- sonar utan af kanti laglegt mark. Unnu Selfyssingar því þennan leik og unnu á betra úthaldi. Míkla at- hygli vakti markvörður Borgnes- inga, efni, sem ætti áð Iáta meira að sér kveða í framtíðinni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.