Vísir - 06.08.1966, Blaðsíða 7

Vísir - 06.08.1966, Blaðsíða 7
visik . lAugaraagin i. ;.;jí DR. STURLA FRIÐRIKSSON: Hér vantar þolbetrí grastegamfír Vomdamál í viðhaldi uppskeru á íslenzkum fánum Á fundi norrænna búvísindamanna, sem haldinn er þessa dagana í Háskólanum, flutti dr. Sturla Friðriksson erindi um vandamál í viðhaldi uppskeru af íslenzkum túnum. Vísir hefur fengið leyfi til að birta hér erindi dr. Sturlu: VTandamál í viðhaldi uppskeru ’ á túnum hefur sérstaka þýðingu fyrir norðlæg lönd, þat sem erfiðleikar grasræktarinnar eru fyrst og fremst fólgnir í því að fá fjölært gras til þess að spretta. Þau lönd, sem njóta lengri vaxtartíma og meiri sum- arhita, geta sáð til einærra fóð- urgrasa og uppskorið þau að hausti án þess að hafa áhyggj- ur af vetrarþoli gróðursins. I norðlægum löndum, þar sem uppskeran byggist á því, hvem- ig gróðri hefur reitt af eftir marga, misjafna vetur, er vanda mál grasræktarinnar umönnun hins fjölæra grasgróðurs. Rækt- un grasa á íslenzkum túnum hef ur verið og er þjóðinni lífs- nauðsyn. Á íslandi þekkist varia ræktun einærra grasteg- unda. Undantekning er, þegar einært rýgresi er notað til sán- ingar og fyllingar með fóður- káTi. Enda þótt fsland megi teljast nakið land, er það þó tiltölu- lega gott grasræktarland. Enda byggist landbúnaöur íslendinga að verulegu leyti á grasrækt. Flatarmál íslands eru rúmir 100.000 ferkm. og um 2.000.000 hektarar eru huldir því, sem f víðustu merkingu má telja beiti- land. En aðeins lítill hluti þess er raunverulega vaxinn grasi. Veðurfarið er kaldtemprað út hafsloftslag. Meðalhiti í Reykja- vík er v0.6 C” í janúar og + 11.3 C° í júní. Ársúrkoma mæl- ist 900 mm í Reykjavík, 2256 mm í Vík í Mýrdal og 465 mm á Akureyri. Veðrið er umhleyp- ingasamt með tíðum umskipt- um á snjó og auðri jörð, frosti og þíðu, regni og þurrviðri. Styrkleiki vinds er oft mikill og vindátt breytileg. Og eins og staða landsins ber vitni um, er sólargangi þannig háttað, að landið nýtur 24 tíma birtu um mitt sumar. Þessi veðurskilyrði valda því, að á íslandi vaxa svalviðrisgrös allvel. Af um 450 tegundum hinn ar íslenzku flóru teljast um 40 tegundir til grasaættar (Grami- neae), en um 47 tegundir eru af hálfgrasaætt (Cyperaceae). Af svalviðrisgrösum má hér eink- um nefna tegundir af vinglum, sveifgrösum og lingresi, en önn- ur fóðurgrös, svo sem vallarfox- gras og háliðagras eru innflutt, enda þótt þau finnist nú víða í ræktun. Sömuleiðis eru faxgrös, rýgresi og axhnoðapuntur ekki til nema sem aðfluttir slæðing- ar. Á uppskeru þessa grasa og hálfgrasa hefur íslenzkur land- búnaður byggt afkomu sína, þar sem hann hefur verið notaður ýmist til slægna eða beitar fvr- ir búsmalann. Það er að segja fyrir um 800 þús. fjár, 60 þús. kýr og 30 þús. hross. Hið rækt- aða graslendi er aðeins um 4.5% af yfirborði hins gróna lands eða vtm 90.000 hektarar. TúTrin eru þvi eins og strjSlir b'tettir í landslaginu Á íslandi ko/ha má tala um varanlegan grasvöxt í fyllstu merkingu þess orðs, því mikill hluti íslenzkra túna hef- ur verið í stöðugri ræktun frá upphafi Islands byggðar. Meiri- hluti íslenzkra túna er vaxinn innlendum grösum. Graslendi kom í stað birkikjarrsins, sem þakti landið við landnám, við það, að skógar voru ruddir eða var eytt á annan hátt. Víða hef- ur aðeins verið borið á hið nátt- úrlega graslendi, á öðrum stöð- um hefúr landi verið bylt og gróður verið aðfluttur. Eitt af þeim vandamálum, sem íslenzk túnræktun átti við að stríða frá upphafi voru þúfurn- ar. Þúfur eru ójöfnur í gróður- lendi, myndaðar fyrir áhrif frosts, en þúfumyndun í túnum olli því, að illmögulegt var að beita vélum við slátt. Eitt fyrsta skref, sem stigið var til bóta á íslenzkri túnræktun var jöfnun yfirborðsins. Túnsléttun var lengi framan af handavinna, en þegar plægingin kom til sögunn- ar skapaðist nýtt viðhorf í fs- lenzkri túnræktun. Plæging Iandsins olli því, að gamli svörð urinn var skertur svo mjög, að nauðsynlegt reyndist að sá í flögin. Tilraunir með sáningu hófust í byrjun 19. aldar, en ekki komst skriöur á ræktun sáð- sléttna fyrr en á fyrsta fjórð- ungi 20. aldar. Fram að því haföi lítið aukizt við túnastærðina og heyfengur landsmanna að miklu leyti verið fenginn af út- engi. Sáning grasfræs og áburð- arnotkunin ásamt bættri tækni viö jarðvinnslu og hirðingu ollu hinni miklu aukningu á töðu síðustu ára. Heyfengur alls landsins hefur váxið úr 1.5 milljónum hkg upp í 3.7 millj- ón hkg frá 1900 til 1963 og á sama tíma hefur útheysmagn Tækkað úr 1 milljón í 300 þús- und hkg. Veðurfar I Ijósi þess, sem áður hefur verið sagt um íslenzkt veðurfar, sést að Island hefur sérstöðu í grasrækt hvað veðurfari við- víkur miðað við önnur Norður- lönd. Til viðbótar við þau áhrif, sem veðráttan hefur á nýtingu uppskerunnar, hefur hita- og úr- komumagn sérhvers sumars eðlj lega mikil áhrif á uppskerumagn og sprettutíma. Þessi mismunur kemur að nokkru leyti fram í sveiflum á heildarmagni heys yfir allt landið. Árferði er mis- jafnt eftir landshlutum og eru suður- og norðurhluti landsins oft gagnstæðir um veðurfar. Ekki er þó að jafnaði teljandi uppskerumunur á túnum eftir landshlutum nema á annnesjum norðanlands. Vorar þar oft svo seint, að tún ná lítilli sprettu og verða oft aðeins einslegin. Tún, sem liggja mishátt yfir sjó, ættu að sýna svipaðan sprettumis- mun. Þó hafa tilraunir sýnt, aö uppskera af sáðreitum túnving- ng/ha Þessi þrjú línurit sýna daglegan vöxt þriggja algengra grastegunda, sem ræktaöar eru á íslenzk- um túnum. Gefa línuritin glöggt til kynna hvaða vikur sprettan er mest. uls er furðu svipuð að magni til allt að 600 m hæð, en þegar hærra dregur í landið fer upp- skeran ört minnkandi. Enda þótt uppskera sé lítið minni á fyrrgreindum tilraunareitum í 600 m hæð miðað við láglendi, er þroskun jurta mun seinni til þar efra. Meðaluppskera heys af hektara eru rúmir 40 hkg yf- ir allt landið. Borið saman við önnur Norðurlönd er meðalupp- skeran á íslenzkum túnum því mun minni og veldur því skilj- anlega kaldari veðrátta hér á landi. Enda þótt vor- og sumar- veðráttan hafi mikil áhrif á upp skeruna hefur vetrarveðráttan þó ennþá varanlegri áhrif. Mikl- ir snjóar með eftirfarandi mynd un ísa, sem liggja þétt yfir svörðinn á útmánuðum, valda köfnun og varanlegu kali. Kalið er einn veigamesti skaðvaldur íslenzkrar grasræktunar. Heild- artöðufengur landsins er minnst ur eftir mikla ísa- og kalvetur. Kals hefur orðið vart í öllum landshlutum. Þó hefur norðaust- urhluti landsins orðið einna harðast úti. I kalárum hefur orð ið þriðjungs eða helmings tjón á uppskeru sumra byggðarlaga og kalið er það varanlegt, að uppskerurýmunar gætir á nokkrum eftirfarandi árum. Á ýtarlegri rannsókn, sem gerð var á kali áranna 1951 og 1952 er getið ýmissa aðstæðna, sem hafa áhrif á kal. Árlegt uppskerutjón á þeim árum sem og nú á síðustu árum er metið á milljónir króna yfir allt land- ið. Jarðvegur Um áhrif jarðvegs, jarð- vinnslu og áburðar á gróöurfarið. skal ekki fjölyrt í þessu erindi. Þó skal á það minnzt, að sé jarðvegur mjög fínt unninn, eink um ef um mýrarjarðveg er að ræða, virðist eðlisgerð hans breytast svo, að gróðri, sem þar vex, er mjög kalhætt. Þannig ej- háttað vinnslu mikils hluta hinna nýframræstu mýra,' og eru affölí á sáðgresi, sem ræktað er á því landi tilfinnanlega mikið, einkum sé þess ekki gætt nægi- lega vel, að yfirborðsvatn hafi öruggt frárennsli. Þess skal og getið, að of einhliða notkun köfnunarefnisáburðar eða skort ur á fosfóráburöi stuðlar að kali og rýrir þannig óbeinlínis upp- skeruna. Eins og léleg ræsing og van- eða misnotkun áburðar rýrir uppskeru séðsléttu, eins má með réttri meðhöndlun breyta gróðurfari mýrar í „varanlegt tún“ og þó einkum í beitilönd eins og víða hefur verið gert á síðustu árum. Þannig má sam k æmt athugun gerðri á Hjarð- arfelli með þurrkun og alhliða áburði auka hlutdeild grasa úr 5% í 80% á sex árum og upp- skeruna úr 10 hkg á hektara í 40—50 hkg án þess að hreyfa við sverðinu eða sá í landið. Grastegundir Hér að framan var stuttlega minnzt á upphaf grassáningar á íslandi. 'Fyrstu tegundirnar, sem notaðar voru reyndust illa. Þrotlaus leit af hálfu tilrauna- stöðvanna að hentugu erlendu fræi hefur aðeins að nokkru greitt úr þeim vanda. Aðalat- riðið í þeirri leit hefur ekki endi lega verið að finna uppskeru- miklar tegundir, heldur harð- gerð grös, sem gefa árvissa upp skeru. Þau erlendu grös, sem notuð hafa verið til ræktunar, eru langt frá því, að vera þolin. Hlutdeild vallarfoxgrass verður minni í gróðri túna, eftir þvl sem frá líður sáningu, og hins vegar ná íslenzk grös t. d. skrið- língresi jafnframt yfirhöndinni á túnum, sem lengi hafa verið í ræktun. Þetta þýðir ekki endi- lega minnkun uppskerú, heldur oft hið gagnstæða, þar sem sáð- sléttur með eriendum grösum Framh. á bls. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.