Vísir - 09.01.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 09.01.1967, Blaðsíða 16
 VISIR Mánudagur 9. janúar 1967. Þorvaldur Ari Arason, óhappa maöurinn, sem myrti konu sina. Kunnur lögfræðingur myrðir fyrrverundi eiginkonu sína mmmmammmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmm Úrskurðaður í gæzluvurðhuld og geðrunnsókn — Hefur verið drukkinn ú þriðju ntúnuð —r Sjúkleg frumkoma nóttinu fyrir morðið Þorvaldur Ari Arason, 38 ára gamall, kunnur lögfr. hér í borg, viðurkenndi við yfirheyrslu sl. laugardag, að hafa þá fyrr um morguninn 1,agt til fyrrverandi eiginkonu sinnar, Hjördísar LHIu Vil- hjálmsdóttur (38 ára), með þeim afleiðingum að hún lézt. — Hefur Þorvaldur Ari verið úrskurðað- ur í 90 daga gæzluvarðhald meðan dómsrannsókn fer fram, en þar að auki hefur honum verið gert að sæta geðheilbrigðisrannsókn. VvwO ★ Þetta skrifaði Þorvaldur Ari á nýárskort ÚI vina sinna og kunningja nokkrum tfmum áður en morðið var framið, í „partýi" 1 húsi nokkru nálægt miðborginni. Á kortinu er mynd af Útlögum Ein ars Jónssonar, myndhöggvara. Textin er úr Ljósvíkingi Kiljans. Klukkan rúmlega 9 s.l. laug- ardagsmorgun, hringdi kona búsett á efri hæð hússins við Kvisthaga 25 á lögregluvarð- stofuna og tilkynnti að eitthvað hroðalegt væri að gerast á neðri hæð hússins. Tveir lögregluþjónar voru þegar sendir á staðinn, en þeg- ar þeir komu þangað hittu þeir Þorvald Ara fyrir á útitröpp- um hússins. — Hann virtist vera drukkinn en rólegur, og þegar þeir snurðu hann hvað um væri að vera, sagði hann, að það væri eiginlega ekkert, — öllu væri lokiö. — Lögreglu- þjónarnir, sem þekktu lögmann- inn vegna fyrri afskipta, báðu hann að hinkra við meðan þeir athuguðu málið frekar, og félist hann fúslega á það. Lögmaður- inn var blóðugur, aðallega á höndum. Við augum lögregluþjónanna blasti hroðaleg sjón. BlóðferiII var svo að segja um alla íbúð- ina, en mest í fremri og innri forstofu, þar sem átökin milli lögmannsins og fyrrverandi eig- inkonu hans áttu sér aðallega stað. í baökcrinu í baðherberginu fundu lögregluþjónamir Iík Hjördísar Ullu. — Var líkið með mörg svöðusár á andliti, brjósti og kvið auk annarra staða. Viðstaddar í íbúðinni voru, þegar morðið var framið, frænka Þorvalds Ara utan af landi, rúmlega tvítug dóttir hennar og 6 ára dóttir lögmanns ins og fyrrv. eiginkonu hans. — Hafði frænka lögmannsins særzt á fæti viö átökin og var þegar send á Slysavarðstofuna, þó að sár hennar væri ekki talið al- varlegt. Við yfirheyrslu hefur komið i ljós, að Þorvaldur Ari kom að Kvisthaga 25 um kl. 8 um morg- uninn, en fyrrv. eiginkona hans vildi ekki hleypa honum inn í íbúöina. Braut Þorvaldur Ari þá rúðu í útihurðinni eftir nokk urt þóf og gat teygt höndina að smekklásnuin og opnað hurðina innan frá. Lenti hann í harkalegri orða- sennu við fyrrv. eiginkonu sina, sem endaði með því að hann dró upp 25—30 cm. langa eldhús- sveðju, sem talið er að hann hafi komið með á sér, þó að ekki sé það fullsannað. Lagði hann til konunnar oftsinnis með sveðjunni og elti hana, þar til hún hneig niður við símaborö í innri forstofu. Bar hann síöan Hjördísi inn í baðherbergið og lagöi hana þar í baökerið. — Frænka lögmannsins reyndi að ganga i milli, en var stungin við það í fótinn, eins og að ofan er Konan á efri hæð hússins, sem hringdi til lögreglunnar, sagðist hafa heyrt mikinn háv- aða á neðri hæðinni og farið niður til að athuga hverju sætti. — Þegar hún var að koma niður var kallað til hennar og hún beðin aö hringja til lögreglunn- ar, sem hún geröi. Þorvaldur og Hjördís áttu fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur. Synirnir þrír eru alllr á skólaskyldualdri og voru að fara í skólann um þá mund, sem Þorvaldur kom á Kvisthag- ann. Dóttirin, 6 ára varð aftur á móti vitni að þessum hroða- lega atburði. — Hjónin skildu fyrir 2—3 mánuðum og var þá íbúðin keypt fyrir Hjördísi og börnin, að Kvisthaga, en áður bjuggu þau á Sólvallagötu 63. Síðan í byrjun nóvember hef ur Þorvaldur Ari veriö meira eða minna drukkinn. — Hann er það, sem kallað er „túra- rnaður", en mun aldrei hafa ver ið jafnlengi drukkinn áður í elnu. Varðstjórinn, sem var á vakt þegar morðið var framið og sem kom á staðinn fljótlega eft Ir að það átti sér stað, segir að ýmis verksummerki bendi til þess, að lögmanninum hafi komið til hugar að leyna morð- inu. Bentu verksummerki til þess að hann hafi verið byrj- aður að þurrka upp blóð, sem var aðallega í innri forstofu með viskustykki, en einnig fannst blóðugur umbúöapappír í ruslafötu i eldhúsi. Rannsókn þessa máis er enn hvergi nærri lokið. T. d. hefur rannsóknarlögreglunnl ekki tek izt að sanna, að Þorvaldur hafi komið með morðvopnið með sér, sem gætl bent til þess hvort hann hafj skipulagt morð ið fyrirfram. Ýmislegt bendir þó til að svo hafi veriö eins og áramótakveðjur, sem hann útbýtti nóttina áður en morðlð var framiö og er getið um hér á eftir. Kvöldið áður en Þorvaldur Ari myrti eiginkonu sina, frú Framhald á bls. 6. ALLT FLUG STOÐVAST FJÓRÐA ÞOKUDAGINN — útlit fyrir að jbokunni létti síðdegis, 14 stiga hiti á Dalatanga i morgun SÍLD VIÐ VEST- MANNAEYJAR Dúgóð veiði eystru Flug lagðlst alveg niður á | ■.aykjavíkurflugvelli í gær vegna okunnar. Var einni millilandavél ’ 1. snúið til Akureyrar þar sem iastuði sér út um glugga ú 1. hæð -V Gleöskap í húsi einu í Reykja 'ík lauk þannig að maður stökk it um glugga og lenti á stein- steyptri stétt fyrir utan. Gæfa nannsins lá í því að hann skyldi vera í gleðskap á fyrstu hæð af hæðum hússins, því enda þótt inn skaddaöist nokkuð á höfði kom í ljós við athugun á Slysa- ■ aröstofunni, að áverkar hans voru ~ tkl alvarlegs eðlis. I hún var í nótt. Lenti vélin sem var í ferð frá Khöfn og Glasgow, f Rvík í morgun. Loftleiðavél á leið frá Kaupmannahöfn, Gauta- borg og Osló varð að lenda í Prestwick á laugardag vegna þok- unnar á Keflavikurflugvelli. Lenti hún fyrst á Keflavikurvelli kl. 4 í morgun. Þegar blaðið haföi samband við ReykjavíkurflugvöH í morgun var allt flug stöðvað vegna þokunn- ar á vellinum og hvassviðris á Norðurlandi. Útlit er þó fyrir að upp létti seinnipartinn eftir því sem Jónas Jakobsson veðurfræð- ingur tjáði blaöinu í morgun. Kl. 8 í morgun var vestanátt og þíðviðri um allt land. Mesta rok var á Homi, 10 vindstig en suðvestanlands var þokusúld. 14 stiga hiti var á Dalatanga og 10 stig á Staðarhóli á Kambanesi. Orsakir þokunnar munu vera þær að hlýtt ioft berst suðvestan frá, langt að hingað inn flóann og munu vera áraskipti að því hversu oft það gerist að vetrar- lagi hér í Reykjavík að hver þoku dagurinn reki annan. Tvær fótbrotna ú skíðum í gær Tvær konur fótbrotnuðu á skíð um i gærdag. Kall kom um tal- stöðvarbíl sem var viö Vífilsfell um að sendur yrði sjúkrabíll til aö ná i konu, sem dottið haföi á skíðum og fótbrotnað. Hún haföi legið hreyfingarlaus í klukkutíma hjálparlaus áður en talstöðvarbíl- inn bar aö. Önnur kona fótbrotnaðí I Hvera dölum og var hún einnig sótt á sjúkrabíl. Klukkan 9 í morgun höfðu 17 skip tilkynnt um afla á Austfjaröa miðum, samtals um 2500 mál og var þá búizt við aö nokkur skip ættu eftir að „melda sig“. Síld- in er nú 90 til rúmar 100 mílur SA af Skrúð og hefur heldur þokazt nær landi aftur. Að undanfömu hefur verið dá- góð síldveiði við Vestmannaeyjar, út af Dröngunum (Þrídröngum). 1 gær tók Flskimjölsverksmiðjan í Vestniannaeyjum á móti 6—7 þúsund tunnum. Síidin er sæmi- lega stór miðað við Suðurlands- síld. I vikunni, sem leið fór nokk- uð af Vestmannaeyja-síldinni tll vinnslu í frystihúsum í Eyjum og var nýtingln allt að 70% til frystingar, sem þykir gott miðað við það sem verið hefur. í nótt var kul við Vestmanna- eyjar, en gott veður fyrlr austan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.