Vísir - 05.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 05.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR 57. árg. — Föstudagur 5. mal 1967. — 100. tbl. FURÐUSKEPNA VEIÐIST VIÐ VESTMANNAEYJAR Ekki óliklegt að um sé að ræða svo- kallaðan Blámann Óvenjumikil fannkoma var í nágrenni borgarinnar í gær og lentu bifreiðaeigendur í vandræðum af þeim sökum. En eins og myndin gefur tíl kynna voru það fleiri sem f vandræðum lentu og hér sjáum við veghefil draga nafna sinn upp á veg, eftir að sá síðamefndi hafði lent útfyrir, vegna þess hve erfitt var að greina vegarkantinn. Stórvirkjun í Laxá í ASaldal 48 þúsund kilóv'ótt, eða fjórum sinnum stærri en st'óðvarnar sem nú veita Norðurlandi eystra rafmagn — Fá Austfirðingar rafmagn úr þessari nýju stóð ? Á fundi stjómar Laxárvirkjunar í gær var birt bréf frá raforkumála- ráðherra, þar sem heimiluð er við- bótarvirkjun við Laxá I S-Þingeyj- arsýslu, sem veröur 48 þús. kw. fullgerð, en það er nærri fjórum sinnum stærri virkjun en þær tvær virkjanir sem fyrir eru í Laxá, 17 hundruð kw. stöðin frá 1939 og 12 þúsund og fimmhundruð kw. stöö, sem lokið var við 1944, en frá þess um stöðvum hefur Norðurland eystra, Eyjafjarðar- og S-Þing- eyjarsýsla fengið allt sitt rafmagn til þessa. Laxárnefnd sem skipuð var f fyrra til þess að athuga hvort hent- ugt sé að Austurland fái rafmagn frá Laxárvirkjun og Norðurlands- svæðið verði sameinað Austfjarða- svæðinu, iýkur störfum næstu daga, en niðurstöður nefndarinnar munu trúlega sk:pta miklu máli, varðandi allan gang virkjunarinnar og hversu framkvæmdum verður hraðað. Svo sem kunnugt er skortir Austurland mjög rafmagn, einkum yfir sumar- tímann, þegar síldarvinnsla er í full um gangi og hefur þetta skapað vandræðaástand á Austfjörðum und anfarin sumur. Undanfarin tvö ár .hafa farið fram mjög ýtarlegar athuganir á fyrirhuguðum virkjunarstað, en hann verður í Laxárgljúfrum milli Framhald á bls. 10. Sannkölluð furðuskepna veiddist við Vestmannaeyjar í gær. Dró áhöfn vélbátsins Heim is skepnuna á fimmtíu faðma dýpi vestan Eyja. Talaði blaðið í morgun við Friðrik Jesson forstöðumann sjófiskasafnsins í Eyjum, sem sagði m. a. „Fiskur er þetta varla, ábyggilega risamarglytta, og er nú búið að koma henni í geymslu í frystihúsi“. Lýsti hann skepnunni á þann veg, að hún væri hringlaga, flöt eða eins og diskur í laginu. Niður úr henni gengju fjórir langir arm- ar, sem Friðrik taldi að myndu mælast 5 — 6 metrar að lepgd. Neðan á skepnunni voru fjögur hringlaga göt, sem voru reglu- lega á kvið skepnunnar. Fyrst Framhald á bls 10 Forsefi íslands komfnn heim ; „Hciisan er góð. Þetta gekk / | allt samkvæmt beztu vonum og >1 i óskum. Þó segja læknarnir, að J þetta taki alltaf sinn tíma og því 4 mun nokkur tími líða enn áður J en ég hef náð mér aö fullu. En ,| ég er á góðum batavegi“, sagði ’ forseti fslands, hr. Ásgeir Ás- geirsson, þegar fréttamaður Vis- is innti hann eftir heilsu hans við komu hans hingað heim í fyrrakvöld. Fjöldi manns var viðstaddur ( til bess að taka á móti forset- J anum, begar hann kom með 4 flugvél F.f. frá Kaupmannahöfn, J að lokinni dvöl simii á sjúkra- húsi þar. Flugvélin lenti rétt fyrir miðnætti. Auk nánustu vina og ættingja, sem þarna voru mættir, voru þarna staddir handhafar forsetavaldsins í fjar- . veru forseta, Bjami Benedikts- j son, forsætisráðherra, Birgir' Finnsson, forseti sameinaðs f þings ,0" Gizur Bergsteinsson, 5 forseti Hæstaréttar. Aftur byrjaður á Islend- ingasogunum segir ambassador Bandaríkjanna, Kari Fritjof Rolvaag »Með norskum framburöi, — Rolvaag“ — Ég kynntist íslend- ingasögunum og Eddun- um þegar á barnsaldri á heimili föður míns, Ole Rolvaag, sem var pró- fessor í norsku og norsk- um bókmenntum í North field í Minnesota. Það er orðið nokkuð langt síð- an, en nú er ég að byrja að rifja þær upp aftur. Ég er búinn að fá mér þýðingar af tveimur bók um og hef gluggað í þær undanfarið. Blaðamaður Vísis átti í morg- un tal við Karl Fritjof Rolvaag, hinn nýja ambassador Banda- ríkjanna á fslandi. Talið sner- ist í upphafi að kynnum hans af íslandi. Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.