Vísir - 27.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 27.05.1967, Blaðsíða 1
 6. tölublaðið Matargerð: Reynið nýj> vikulokin fylgir Vísi í dag ábætisrétfi — Tizkan: Fjör i Skólanemendur flykkjast til útlanda: 700 nemendur fara að afloknum prófum í vika-hálfsmánaðar fz~ðir Mjög mikill áhugi er með- al skólanemenda landsins á aö fara til útlanda að lokn- um prófum. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vísir afl- aði sér í gær hjá ferðaskrif- stofum borgarinnar hafa um 700 skólanemendur Iátið ferðaskrifstofumar í borg- inni skipuleggja hópferðir fyr ir sig til útlanda. Eru sumir hóparnir þegar komnir heim að aflokinni ferð, aðrir eru á ferðalagi nú sem stendur, og enn aðrir munu Ieggja af staö á næstunni. Þeir siðustu um 20. júní. Hér er um að ræða Mennta- skólana á Akureyri, Reykjavík og á Laugarvatni, Kennaraskól- ann, Verzlunarskólann, Hús- mæðraskóla Suðurlands (2 hóp- ar), Vélstjóraskólann og gagn- fræðaskóla, bæði hér í Reykja- vik og út um allt land. Flest- ar þessara . ða eru um 10 daga langar, en einstaka allt upp í rúmlega hálfan mánuð. Þaö sem einkum einkennir þessar ferðir er að mikill áhugi virðist vera á að fara til írlands og fara flest- ir þessara nemenda þangað. Um hópferðir til írlands hefur ekki verið að ræða héðan frá Islandi til þessa, svo nokkru næmi, en eins og fyrr segir hefur á þessu orðið mikil breyting. Lengsta ferðin er að öllum lík indum ferð nemenda Vélstjóra- skólans, en þeir nemendur eru nú sem stendur á Spáni, en þeir ætla að bregða sér yfir til N- Afríku, til Marokkó. Þá má og geta þess, að 54 nýstúdentar frá Menntaskó'anum i Reykjavík munu fara 18. júní til Ítalíu og tekur ferð þeirra um hálfan mánuð. 20 nýstúdentar frá Laugarvatni munu fara til Spán ar á sama tíma. Stærstu hóparnir fara á veg- um Ferðaskrifstofunnar Sögu. SI. mánudag fór 102ja manna hópur frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri í vikuferð til Skot- lands í leiguvél frá Loftleiðum (RR 400 vél) og hinn 29. maí n.k. fer stærsti hópurinn sem Saga hefur nokkum tíma skipu- lagt hópterð fvrir, í vikuferð til Irlands. Er þarna um að ræða 160 manna hóp frá Gagnfræða- skólanum á Akureyri og Mennta skólanum á Akureyri (4 bekkur) Smygl fannst / Goðafossi: karton af sígarettum fundin Geysimikið magn af sígarett- um fannst í gærdag við tolleit í Goðafossi, alls 1200 karton, eða 240 þús. sígarettur í kössum kirfilega merktum Landssíma íslands. Ólafur Jónsson, yfimiaður tollgæzlunnar, sendi mállö þeg- ar til sakadóms, og fyrir dómi viðurkenndi einn skipverja að hafa átt sígarettumar. Tollþjónar halda áfram lett í skipinu að smyglvamlngi. Er þetta eitthvert mesta magn af smygluðum sfgarettum, sem fundizt hefur í skipl hér. „Gufuaflstöðvar allt að helmingi ódýrari — segir Sveinn Einarsson verkfræðingur Sveinn Einarsson, verkfræðingur birti í gærkvöldl stórathyglisverðar upplýsingar um nýiar aðferðir við virkjun gufuorku til rafmagnsfram lelðslu f þættinum „í brennidepli" 2000 konur á kuffikvöldum Myndin er tekin í fyrrakvöld á þriðja kaffikvöldi Sjálfstæöis- kvenna í Reykjavík. Aðsóknin var bá meiri en nokkru sinni fyrr, var Súlnasalurinn á Hótel Sögu troð- fullur og sömuleiðis hliðarsalirnir, en margar konur urðu að sitja niðri vegna þessara þrengsla. Alls hafa nokkuð yfir 2000 konur sótt sem Haraldur Hamar stjómar. Sagði Sveinn Einarsson í þætt- inum að nýiar aðferðir sem ítalir eru farnir að nota geri framkvæmd ir við byggingu gufuaflstöðva allt að helmingi ódýrari en samsvar- andi vatnsaflsstöðva. Rafmagn frá stöðvum þessum er sambærilegt hvað viðvikur verði og stundum ódýrara. Sveinn sagði í stuttu símtali við Vísi í gærkvöldi að 6 stöðvar sem þessar hefðu verið reistar á Italiu s..I 7 — 8 ár og hefðu gefizt mjög vel. Skoðaöi Sveinn slíka stöð fyr- ir nokkru á Italíu, þegar hann var 4 ferð þar. Kvaðst Sveinn álíta að Islend- ingar ættu hiklaust að gera hið ar, ekki sízt áður en ráðizt verður í aðra.stórvirkjun, enda gæti reynsl an orðið dýrmæt og sparað tug- milljónir eða hundruð milljóna króna. fyrsta tilraunir með slíkar stöðv-1 KR vonn Vnl 3:1 KR sigraðl Val í gærkvöldi i Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu með 3 mörkum gegn einu. í hálf- leik var staðan 1:1 en í seinni hálfleik tók KR forystuna og skor- aði loks briðja markið. 1 dag hefst fslandsmótlö í knattspyrnu í Kefla- vík. Enginn friður fyrir byssumönnum Lögreglan var kvödd í fyrra- kvöld inn að Korpúlfsstööum til þess að hirða þar tvo menn, sem verið höfðu á skyttirii þar í land- inu. Ráðsmaður staðarins hafði staðiö þá að verki f árósnum og þeir fylgt honum ótilneyddir og beðiö komu lögreglunnar. Lög- reglan kom svo og fékk skotvopn- in afhent, tók mennina í sína vörzlu og fékk hjá þeim skýrslu. Sfðan var mönnunum sleppt. Ráðsmaðurinn tjáði blaðinu að- spurður, að þarna upp frá hjá sér væri orðinn enginn friður fyr- ir byssumönnum. „Þeir ættu í basli við þessa menn, sem kæmu þarna og hleyptu af byssum sín- um í allar áttir“. Hann og nágrannar hans eru að reyna að koma upp varplandi þarna, en stöðugar innrásir skot- mannanna I land þeirra geröu þeim erfitt um vik. Það er orðtnn dag- legur viðburður, að skothvellir sí- fellir kveði við þarna. Mest er þó ágengnin um helgar. Þá vffl bera við, að stanzlausri skothrið sé hald ’ð uopi frá morgni til kvölds. Á þessum slöðum er mikið um Framh. á bte. M Islendingur r í Isroel 0 Vegna fréttar sem birtlst hér í blaðinu á fimmtudag- inn um aö enginn íslendingur væri í ísrael, er rétt að taka það fram, aö íslendingur, Björg- úlfur Gunnarsson loftskeytamað ur, giftur israelskri konu, hefur Framhald á bls. 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.