Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 2
VÍSIR . Þriðjudagur 30. maí 1967. Vikingur- Vestmanna- eyjar jafutefí, / gegn / Okkur varð heldur betur á i messunni hér á síðunnl í gær, þegar við sögðum þau tiðindi að Vestmannaeyingar hefðu gjör- sigrað Viking í 2. deildarleikn- um í knattspyrnu með 4:0. Vegna forfalla fréttamanns sem átti að færa tiðindi af leikn- um freistuðumst við til aö taka ríkisútvarpið, þá háæruverðugu stofnun góða og gilda, enda ekki rekiö okkur á'annað en hlutleysi og hógværan fréttaflutning þar um slóðir. Nú leiðrétti útvarpið fregnina í matartímanum í gær með þeim afleiðingum að trosið var nær búið að kæfa undirritaðan, þeg- ar hann uppgötvaði hvers kyns var um þennan fréttaflutning. Þaö er því meö sérstakri á- nægju að við leiðréttum fyrri frétt og skýrum frá jafntefli Víkings og Vestmannaeyja og að sögn voru Víkingarnir síður en svo lakari aðilinn í barátt- unni. Eru allir hlutaðeigandi beönir velviröingar á mistökun- um um leiö og við fullvissum um að í framtíðinni mun frétta- flutningurinn verða betri frá Eýjum, sem og annars staðar frá og engum treyst nema okkur sjálfum og okkar liðsmönnum um landsbyggðina. Fram vann Þrótt 3:1 Fram vann Þrótt i þófkenndum og heldur tilþrifalitl um leik á laug- ardag. Fyrir leikinn var talið að Fram mundi eiga auðvélt meö sigur, en sú varö þó ekki raunin. Þegar 10 mín. voru til leiksloka var staöan jöfn, 1:1 og alit útlit fyrir að leikurinn mundi enda þannig, en þá kom Elmar Geirspon til skjalanna og hljóp af sér vörn Þróttar og gaf vel fyrir markið, en Ásgeir Sigurðsson spyrnti við- stöðulaust í netiö. Þefta hafjSi þau áhrif að Erlendur Magnússon skor- aði 3:1 áður en leik lauk. KR — Valur 3:2 Á föstudaginn vann KR Val með 3:2 og var boðiö upp á beztu knatt spyrnu Reykjavíkurmótsins, hraða, góðan samleik og spennandi augna- blik . Reynir Jónsson skoraöi eftir 3 mín., en Eyleifur seint í hálfleikn- um með lausu skoti. Strax í síðari hálfleik var gert út um leikinn, KR skoraöi tvö mörk á fyrstu 5 mín., fyrst Gunnar Felixson og svo Baldvin. Úrslit í knatt- spymu drengja Á lawgardagtan hélt drengja- mótið í knattspymu áfram á knatt- spymavöUunum f Kópavogl, Hafn- arfiröi og f Keflavík og fóru sfðari leikfr 1. umferðar fram, en llðin leika heima og heiman f 4. og 5. flokki, en f 3. flokki er stigakeppni. Úrslit urðu þessi: Á Kópavogsvejli vann lið Hauka Stjömuna í 5. flokki meö 3:0 og haida Haukar áfram í keppninni. Þá vann Grótta UMFK 2:0 og heldur áfram í keppninni. í 4. fl. vann FH Breiðablik með 1:0 og heidur áfram. Á vellinum í Hafnarfirði léku FH og Breiðablik í 5. flokki og vann FH 5:0 og heldur áfram í keppninni, en í 4. flokki vann KFK Hauka með 2:0 og heldur KFK áfram með betri samanlagöa markatölu. Aðalfundur ÍR Aðalfundur ÍR veröur haldinn föstudaginn 2. júlí n.k. í Tjarnar- kaffi og hefst kl. 21. Venjuleg aö- alfundarstörf fara fram, en meöal umræðuefna verður nýr íþrótta- þjálfari fyrir ÍR og hið nýja svæði ÍR, sem nýlega var úthlutaö í Fossvogi. Á Keflavíkurvelli unnu UMFK- piltarnir Gróttu með 10:0 og halda áfram keppninni. 1 undanúrslitum verða þessi lið: 4. flokkur: KFK—FH, Stjaman—UMFK. 5. flokkur: FH—KFK, Grótta—Haukar. Þessum leikjum á að ljúka fyrir föstudagskvöld, en sigurvegararnir fara í úrsiit j fjokkunum. Það vek- ur athygli, að hin ungu félög, Stjarnan, í Garöahreppi og Grótta af Seltjarnarnesi eru bæði með lið í undanúrslitum. í 3. flokki kepptu á laugardaginn FH og KFK í Hafnarfirði og vann FH meö 2:1, UMFK vann Stjöm- una 5:1 í Keflavík og Breiðablik vann Hauka 6:0 í Kópavogi. Staðan í 3. flokki er þessi: Breiðabiik ! UMFK | FH KFK Haukar Stjarnan 3 2 2 2 2 3 0 15:2 0 7:1 3:1 2:4 0:8 2:13 0 Næstu leikir eru í kvöld milli FH og Breiðabliks í Hafnarfirði kl. 20 og á miövikudag Haukar og j Stjarnan í Hafnarfirði kl. 19. AÐALFUNDUR Stjórnunarfélags íslarids verður haldinn laug- ardaginn S. júní kl. 14:00 í Átthagasal Hótel Sögu. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Karl H. Masters rekstrarhag- fræðingur flytur erindi á ensku, er nefnist: / STJÓRNANDINN SEM LEIÐTOGI. Stjórnin. Þróttur geriu jafntefí 1 gegn / Leik Þróttar og Breiðabliks í gærkvöldi í 2. deild í knatt- spyrnu lauk svo að jafntefli varð 1:1 í allspennandi leik en tilþrifalitlum af beggja hálfu. Breiöabliksliðið I nýjum vín- rauöum búningum eins og þeim, sem Hearts-liðið lék í, virtist alls ósmeykir við Þróttara og skoraði mark á undan og jöfn- uðu Þróttarar fyrst í seinni hálf- leik úr vítaspyrnu. Þróttur átti öllu meira í seinni hálfleik og oft munaði mjóu við mark Breiðabliks. Ekki tókst þó að skora og lauk leiknum með jafntefli. - GUMMERSBACH SIGRAÐI Fyrir nokkru sigraði vestur-þýzka handknattleiksiiðið Vfl Gummersbach í Evrópubik- J arkeppninni í handknattleik. LJrslitaleikurinn var gegn Dukla Prag (andstæðingum FH í keppninni) og unnu V-Þjóðverjarnir með 17:13, en í hálfleik var staðan 7:6 fyrir Dukla. I Á myndinni er Hansi Schmidt að skora eitt marka liðs sfns, en hann skoraði 7 mörk. (

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.