Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 7
Vt S'xR . Þriðgadagttr 38. maí 1887.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd i raorgun
útlönd
Bandaríkin og ísrael
Koma
Öryggisráðið kom saman til fund
ar í gærkvöldi til þess að ræða ó-
friðarhættuna f löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs og þegar þetta
er ritað verður engu spáð um hvað
ofan á verður í ráðinu.
Það virðist þó vafalítið, að komm
únistalöndin, Asíu- og Afríkuríki,
sem fulltrúa eiga í ráðinu, hafi sam
stöðu um aö greiða atkvæði aðeins
með lausn, sem Nasser getur fallizt
á. Enn má spyrja: Sættir hann
sig við einhverja friösamlega lausn?
Það er nú haft eftir honum, að
hann geti fallizt á tMlögur U Thants
um endurskipulagt gæzlulið, ef viss
um skilyrðum yrði fullnægt. En
hvaða skilyrði þetta eru veit enginn
enn sem komið er. Og Nasser seg-
ist ekki vilja verða til þess, aö
Bandaríkin og Sovétríkin lendi í
styrjöld, þvf að það leiddi til heims-
styrjaldar. Fleira mætti nefna sem
sýnir, að þótt Nasser sé „kaldur
karl“, kann hann enn að slá úr og í.
Á hinn bóginn er augljóst, að
Vesturveldin hafa fengið ísrael til
að fara sem gætilegast (sbr. frétt
í gær), svo að Nasser fái ekki tæki
færi til þess að kenna ísrael um,
ef til styrjaldar kemur.
Það reynir nú á þaö, hvers Ör-
yggisráöið er megnugt til úrræða,
þegar mikið er í 'húfi, styrjöld á
mikilvægu hnattsvæði yfirvofandi,
styrjöild, sem næstum óhjákvæmi-
lega myndi Jeióa til heimsstyrjald-
ar.
Þvf er ekki að neita, að víða gæt-
ir vantrúar á, að Sameinuðu þjóð-
irnar reynist þess megnugar að láta
til sfn taka út af þessutn málum
svo að dugi.
Höfuðatriðið nú virðist vera sigl-
ingamar um Akabaflóa. — Nasser
neitar því, að nokkur alþjóðasamn-
ingur hafi verið gerður fyrr eða
síðar um frjálsar alþjóðasiglingar
um flóann og segir Tiranasund og
ein Israel til hjáipar:
flóann innan marka Egyptalands,
en hann gengur fram hjá þeirri stað
reynd, að ísrael á litla ræmu við
botn þessa flóa og að þar stendur
hafnarbærinn Eilath, en ísrael er
það lífsnauðsyn, að siglingar séu
frjálsar um flóann, vegna viðskipt-
anna við lönd Asíu og Afríku.
Fréttaritari Politiken í Khöfn
sfmar blaði sínu frá New York, að
þar sé litið svo á, að Nesser hafi
girt þegar fyrir allar leiðir til sam-
komulags um að aflétta hafnbann-
inu á Eilath — og þaö virðist nú
aðalatriðið í Washington
hvenær og við hvaða aðstæð-
ur bein íhlutun til þess að
tryggja frjálsar siglingar um
Akabaflóa sé nauðsynleg eöa
réttlætanleg.
En I fyrsta lagi verði beðið eftir
hvað gerist í Öryggisráði. Gera
verður ráð fyrir, að fundi kunni að
veröa frestað, til þess að fulltrúarn
ir geti „ráðgazt við ríkisstjórnir sín-
ar“ — og svo verði nýr fundur.
Sovétmenn munu ekki þurfa að
beita neitunarvaldi til þess að
hindra samþykkt, þar sem Asíu- og
Afríkuríkin í ráðinu eru einhuga
með Arabaríkjunum.
Fréttaritari Politiken telur, að
í Washington byggi menn ekki á
neinni virkri þátttöku einnar eða
neinnar þjóðar, ef Bandaríkin
hjálpa ísrael hernaðarlega, — þau
ein yrðu að koma ísrael til hjálpar.
Margir efast nú um réttmæti
þeirrar skoöunar, að ísrael geti
eins auðveldlega sigrað Egypta
og fyrr, því að á landamærunum
gegnt Sýrlandi yrði sameinuðum
her Sýrlands og fraks að mæta, en
her íraka er þriöji öflugasti her
Arabaríkja.
Engar samkomulagshorfur
í Öryggisráði. - Nýr fundur
í kvöld.
Ekkert miðaöi á fundi Öryggis-
ráðs i gær að samkomulagi til þess
að draga úr styrjaldarhættunni í
Austurlöndum nær Fundurinn stóð
í 4 klst. Nýr fundur verður í kvöld.
Artihur Goldberg fulltrúi Banda-
ríkjanna hvatti til þess að ráðið að-
hylltist tillögur U Thants um hlé,
sem notað verði aðallega til þess að
ná samkomulagi þess efnis, ag Eg-
yptaland aflétti banninu viö sigl-
inum um Akabaflóa, en Federenko
fulltrúi Sovétríkjanna kenndi ísra-
el um hversu komið væri. — Til
hvassra orðaskipta kom milli full-
trúa ísraels og Arabaríkjanna.
Eins og getið var í fréttum í gær
lýsti Nasser forseti Egyptalands yf-
ir, að hann hefði fengið orðsend-
ingu frá Kosygin forsætisráðherra
Soyétríkjanna þess efnis, að Sovét-
ríkin myndu veita Egyptalandi full-
an stuðning, ef til-fhlutunar ann-
arra kæmi í styrjöld, en Eshkol
forsætisráðherra fsraels að Bret-
land og USA hefðu fullvissað hann
um, að mjög bráðlega yrði gripið
til aðgerða til þess aö aflétta sigl-
ingabanninu á Akabaflóa, og þess
vegna hefðu ísraelsmenn haldið að
sér höndum.
Nasser fær sériega heimild
til undirbúnmgs styrialdar
Til
áreksturs
kom á landamærum ísraels
gær. í fréttum frá fsrael segir, að
Egyptar hafi skotið á bændur að
störfum og einn ísraelskur hermað
ur hafi særzt, en í fréttum frá Ka
iro, að 2 ísraelskir skriðdrekar haf
farið yfir landamæralínuna os ve-
ið skotið á þá.
Blaðið A1 Ahram i Kairo segv
að egypzkt herskip hafi skotið að
vörunarskotum til þess að snúa af*
ur olíuskipi, sem ætlaði að sig'
inn í Akabaflóa.
Kanadisku
hermennirnir
sem voru í gæzluliði Sameinuði
þjóðanna á Gazasvæðinu eru 4
heimleið.
Lester Pearson forsætisráðherrr
segir, að þeir hafi verið kvaddir
heim að beiðni U Thants, — ekki
aö kröfu egypzku stjórnarinnar.
Útvarpið
í Bagdad
skýrir frá því, að stjórnin í frak
hafi boðað til fundar Egyptalands
og sjö arabískra olíuianda í Bag-
dad á sunnudaginn kemur til þess
að ræða bann við olíuflutningum
til þeirra landa, sem veita ísrael
að' ð, ef til styrjaldar kemur.
Egypzka þjóöþingiö veitti í gær
Nasser forseta sérlega heimild til'
nauðsynlegs undirbúnings vegna
hættunnar á styrjöld viö ísrael.
Samtfmis var dreift áróðursmiö-
um um Kairo og allir sannir Mú-;
hameöstrúarmenn hvattir til að
búa sig undir þátttöku í heilagri ’
styrjöld".
Hefir Nasser nú fulla heimild I
til þess að stjóma með tilskipun-
um.
Sovétstjórnin
bíður átekta.
í Moskvublaðinu Pravda hefir
ekkert verið sagt enn um hvaða
afstöðu sovétstjórnin muni taka
til tillagna de Gaulle um fjórvelda-
fund, — og I gær var ekki orö í
blaðinu um árangur af viðræðum
egypzka landvarnaráðherrans við
sovézka leiðtoga. f kjölfar hans
komu svo 3 sýrlenzkir ráðherrar.
f NTB-frétt frá Moskvu er það haft
eftir vestrænum sendimönnum þar,
að það sé útbreidd skoðun, að so-
vétstjórnin muni bíða átekta um
sinn og forðast það, sem aukið, gæti
þensluna.
i
SPARIfl TÍMA
OG FYWRHÖFN
RAUDARARSTlG 31 SlMI 22022
*' * -:p':
Fiskurinn sem þér veiðið er aldrei langt
frá heimahöfn yðar.
Þetta stóra fiskvinnslufrystiskip er sérstaklega
byggt til að taka á móti og frysta nýveiddan fisk
frá veiðiskipum og flytja hann til hafnar.
Lengd
Breidd
Dýpt miðskipa
Særými, fulllestað
Djúprista fulllestaö
Burðarmagn
Rúmmál lesta
Ganghraði
Úthaldstími
Úthaldsvegalengd
Fiskvinnslan er sjálfvirk, fiskurinn frystur í blokkir,
pakkaður og komlð fyrir í Iestum skipsins.
Upplýsingar:
BORGAREY H. F.
Símar 81020, 34757
MOSCOW G-200 - USSR
v/o
99,4 m.
14,0 m.
7.2 m.
5.060 t.
5.3 m.
2500 t.
3.270 rúmm.
14 hnútar
60 dagar
6.500 mílur