Vísir - 01.04.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 01.04.1968, Blaðsíða 10
ro visir . manuaagur i. apm igtre. Minning Helga Yaltýsdóttir Kveðja frá Félagi íslenzkra leikara. að eru óefað margir, sem sakna Helgu Valtýsdóttur af heilum hug. Ekki einverðungu ættingjar hennar, starfsfélagar og vinir, held- ur og allir þeir fjölmörgu aðdá- endur hennar, sem kynntust henni af fjölunum og gegnum útvarp. En sem leikkona og upplesari og þá ekki sízt fyrir barnatíma sína, var Helga fádæma vinsæl. Leikkonan Helga Valtýsdóttir var "rábærum hæfileikum gædd. Aldrei ðrást þaö, að henni tókst að blása ’eikpersónum sínum sérstæðu lífi í brjóst. Persónur þær, sem hún skap tði voru allar raunveruíegar, og 'innst manni, að þær lifi ennþá, bótt Iangt sé um liðið, að hún lék 'umar þeirra, og svo ólíkar voru '•>ær hver annarri, að næsta ótrúlegt -r, að sarrn leikkona hafi verið þar að verki. Helgu var það líka ljóst, ’ð til þess að ná góðum árangri á iksviði, varð að vinna og það gerði ■ ">n. Starfsfélagar hennar minnast þess ósjaldan, hvílíka alúð og vandvirkni hún lagöi i starf sitt, n-ia varð árangurinn eftir því. Hennar verður minnzt af þeim, ■em og öðrum aödáendum hennar, sem þeirrar leikkonu frá síðari ár- um, er fjölhæfust var og hafði fært leiklistinni marga sigra og var þess ilbúin að vinna þá fleiri. — Þeim mun meiri er söknuöur okkar nú. En Helga Valtýsdóttir hafði líka fleira til að bera, en að vera af- burða leikkona og vinsæl meðal að- dáenda sinna. Hún haföi persónu- leika, sem engum gleymist, er hef- ur haft nánari kynni af. Heiga var ekki framhleypin, hún var lítillát, hlédræg og allt að því feimin í einkalífi. Á hinn bóginn geisiaði frá henni svo mikil hlýja og mannkær- leikur, viijaþrek og kjarkur, aö öll- um sem í návist hennal voru duld- ist ekki, að þar bjó að baki mikil persóna. Ekki lét hún heldur hinn leikkona hræðiiega sjúkdóm sinn hafa áhrif á starfsþrek sitt og framkomu, og aldrei gaf hún neinum færi á áð særa stolt sitt með meðaumkun. Hún var stolt, fögur, blíðlynd og hjartahrein, enda var henni gott til vina. Þau sterku andlegu bönd, sem hún tengdist sumum af vinum sín- um, að ógleymdu því fagra sam- bandi, er hún hafði við systur sína, Huldu, vakti aðdáun allra. — Mörg um mun þykja sem þeir hafi misst meira en vin og starfsfélaga. Helga er tekin snemma frá okkur. og það syrgjum við öll heilshugar, en samt er arfur sá, sem hún læt- ur starfsfélögum sínum eftir svo mikill, að skylt er að geta hans. — Auk þeirra stórbrotnu persóna, sem hún skapaði á leiksviði, hefur hún sýnt okkur, að starf okkar verður bezt unnið og mestum árangri náð með einlægni, án hroka, meö gleði, án öfundar, með elju, án sérhlífni. Hún kenndi okkur, að viö megum aldrei þreytast eða gefast upp við aö finna rétta leið. Og í lífinu sýndi hún okkur, að hrein lund, skilningur, hjálpfýsi og öfgalaus framganga eru okkar beztu vinir. Við þökkum öll Helgu vináttuna og samstarfið þann tíma, sem hún dvaldi með okkur. — Og ástvinum hennar færum viö hjartanlegustu samúðarkveðjur. Gísli Alfreðsson. hefur skaðvænleg áhrif á heila- frumurnar og heilavefinn. Það hef ur skaðvænleg áhrif á miðtauga- kerfið og getur jafnvel oröiö lífs- hættulegt. Dæmi er til þess í Sví- þjóð, að unglingur, sem hafði and- að að sér þynni aö staðaldri í eitt ár, beið af því slíkt tjón á and- legri heilsu sinni, að læknar töldu þess enga von, aö hann næði nokk- urntíma aftur fullri heilsu. Bæði lögregla og fulltrúar barna verndarnefndar hafa margoft rætt við drengina og foreldra þeirra, en árangur þeirra viðræðna viröist hafa orðiö næsta lítill, því að þeir hafa flestir sótt alltaf í sama far- ið aftur. Orræði eru næsta fá, því að heimili fyrir svona drengi er ekkert, nema ef vera skyldi vist- heimili drengja í Breiöuvík, sem á- vallt er fullskipaö og tekur ekki nema 16-17 pilta. lohnsdn — 1. síðu. mestan hluta Norður-Víetnam. Opinber talsmaður í París sagði árdegis í dag: Þetta er mjög mikilvæg þróun en það er enn of snemmt að segja neitt um hver árangurinn verður. Vitaö er aö franska stjórnin hefir stöðugt samband við Mai Van Bo fulltrúa N.V. í París, og menningarmálaráðherra N.V. Hoang Minh Giam, sem er í París um þessar mundir. Sknk — m-y 16. síöu. inni, en þó því aðeins að Spán- verjar haldi þar eftir sem áð- ur fullum.rétti á við íslendinga um hótelrekstur og móttöku ferðamanna. Veruleg hreyfing mun hafa komið á málið í haust, en þá dvaldist meðal annars hópur ís- lenzkra fasteignasala á Mallorca og munu nokkrir íslenzkir aðil ar þegar hafa tryggt sér að stöðu þar. Milljónir ferðamanna sækja árlega til eyjarinnar og mun í ráði að íslendingum verði leyft að bvggia tíu hótel á lands svæði sínu í fyrsta áfanga. Verða þessar hótellóðir væntan lega auglýstar bráðlega. — Þeir, sem hlióta leyfin verða jafn- framt að fullgera baðströnd, en um fimm hundruð metra strand lengja fylgir hverju hóteli. — Búizt er við aö dæla þurfi tals- verðu af sandi upp á strönd- ina á þessu svæði, bar sem fjar- an er nokkuð grýtt. Ekki hefur blaðið fengið upp- gefið, hvað íslendingar skuli greiða háa upphæð fyrir lands svæðið, en það á að borgast upp á mörgum árum og mun fvrsta upphæðin nema um fimmtíu milljónum. Viðskiptajöfnuöur- inn við Spán hefur verið Islend ingum mjög hagstæður, en ís- lendingar hafa selt mjög mik- ið af saltfiski til Snánar undan- farin ár og flýtir það mjög fyrir þessum samningum að stjórn Spánar hefur ekki getað staöið skil á greiðslum fyrir síð astliðið ár og eiga íslendingar því allmikið fé þar útistandandi. Islenzkir verzlunarfulltrúar hafa ennfremur leitað eftir því, hvort ekki væri möguleiki á skreiðarsölu til Spánar og mun það koma sterklega til greina, að seld verði þangað stór „partí“ af malaðri skreiö í plast umbúðum, sem Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins hefur að undanförnu gert víötækar til- raunir með. — Skreiðin yrði væntanlega seld á niöursettu verði, en eigi að síður yrði það mikill fengur fyrir sjávarútveg- inn að losna þannig við þá skreið sem skreiðarframleiðend ur víða um land sitja uppi meö. Pietro Lopez, verzlunarfull- trúi Spánar, sem kom hingað um helgina varðandi þessi við- skipti landanna tjáði blaðinu að hann bvggist við að skreiðar- framleiðsla ísiendinga næstu 30 árin myndi renna til þessara kaupa, mikið til, ef af slíkum samningum yrði. Verzlunarfull trúinn vildi annars lítið um kaupin segja, en kvaðst hins vegar vænta góðs samstarfs við fslendinga um rekstur þessarar evíar sem ferðamannalands. Fréttir frá Palma herma að það hafi vakið talsverða ólgu, þegar þessi kaup voru opinber- uð nú um helgina og er haft eftir hóteleiganda nokkrum í borginni Porto Cristo á Mall- orca, í spænska blaömu Sa Calopra í gær að þaö væri nær að selja fslendingum vin, en láta þá verzla með það sjálfa. Ferðamannastraumnum héðan verður væntanlega beint til Mallorcu, eins og áöur segir og hefur samgöngumálaráðu- neytið í bígerð reglugerö, sem bannar ferðalög fslendinga til baðstranda ' í öðrum löndum, eða aðrar skemmtiferðir, nema sannað sé aö þær séu farnar í EIRÍKUR SIGURBERGSSON viðskiptafræðingur Sigluvogi 5, andaðist 30. marz. Aðstandendur. viðskiptaerindum eða í menn- ingarlegu tilliti. Forstjórar ferðaskrifstofanna eru nú á förum utan til þess að undirbúa möttöku sumargest og munu íslendingar trúlega leigja sex eöa sjö hótel í sumar til þess að taka á móti íslenzk um ferðamálum. — Hafa þeir Ingólfur Blöndal og Guðni Þórð arson verið ráðnir sérstakir fulltrúar Feröamálaráðs fslands til bess að annast þessi mál. Landssvæði það sem íslend- ingar kaupa er mjög fagurt og er þar mikið um fornar rústir og byggingar, til dæmis í hinni fomu borg Santan, en þar er friðaður þióðgarður. Margir fs- lendingar hafa þegar tryggt sér lóðir á þeim slóðum undir sum- arbústaði. »->- 16. síöu. kvænid. Síðan er haldið áfram dag lega, samkvæmt upplýsingum frá Bifreiðaeftirlitinu, og verða 150 bifreiðar skoðaðar daglega. Bifreiðaeigendum ber að sýna ökuskírteini og skilríki fyrir greidd um gjöldum af bifreiðinni. Nánar | vísast til auglýsingar á bls. 6 í ■ hiaðinu í dag. I S*yíflOT ------------ i6. siðu. lyfjasjúklingar, og hafa Svíar oröiö | að koma upp heimilum, þar sem ! beir settu þessa sjúklinga til þess | að koma þeim til góðrar heilsu i aftur, því þynnisgufa er mjög skað! 'eg. i Varanleg öndun þessarar gufu >- 9. síðu. gegn Gligoric, sem þekkir spánska leikinn flestum betur. 6. .. . exd 7. e5 Re4 8. Rxd Rc5 8. ... RxR 9. DxR gefur hvít- um betri sóknarfæri. 9. Rf5 0-0 Ekki 9. ... RxB? 10. Rxg + Kf8 11. Bh6 Kg8 12. Dg4 og hvítur vinnur. 10. Dg4 g6 11. BxR dxB 12. RxB+ DxR 13. Dg3 He8 14. f4? Lokar inni biskupinn. Betra hefði verið 14. Rc3 Bf5 15. Hel Bxc 16. Bg5 og hvítur hefur sóknarfæri. 14. .. . Bif5 15. Ra3 f6! 16. Hel Had8 17. Dc3 Hd5! 18. b4? Hvítur varö að reyna 18. Rc4 Re4 19. Db3 Hb5 20. De3 18. ... Re4 19. exf Dd8! 20. Db 3? Betra var 20. Df3, þó svartur hafi betra tafl eftir 20. Dxf 21. Hbl Dd5 + 20. ... Rc5! 21. HxHf DxH 22. Df3 Ef 22. De3 Hd8+ 23. Kf2 Re4+ með unnu tafli. •22. .. Bg4! Gefið. Hvítur er algjörlega varnarlaus. Jóhann Öm Sigurjónsson. ÍILKYNNINGAR Aðalfundi Kvenfélags Hallgríms ! kirkju er frestaö. Nánar auglýst ::ðar. Kvenfélag Háteigssóknar, held ur fund f Sjómannaskólanum. fimmtudaginn 4. apríl kl. 8.30. — Stjórnin. LQKAÐ Aðalskrifstofa Loftleiða verður lokuð á morgun frá kl. 1 e. h. vegna jarðarfarar Elíasar Dagfinnssonar. BELLA „Ég átti að segja yður að Bella verði tilbúin eftir tvær mínútur eigum við ekki að skreppa i bíó á meðan?“ Flugslys — 8. síðu. í stýrisútbúnaði annarrar skrúf- unnar og vann hún á móti sem hemill og snerist flugvélin niöur og kom á sama stað og flugvélin sem fórst á dögunum, með þeim afleiðingum að tveir menn létu lífið. Flugstjóranum á tékknesku flugvélinni tókst að draga lending- arhjólin upp áður en vélin snerti jöröina og lenti því svokallaðri magalendingu og mun það hafa átt sinn þátt í að ekki fór verr. Flug- vélin er mikið skemmd, en ekki hafa þó skemmdirnar verið ful'l- kannaðar, enn sem komið er. Bþröttir — 2. síðu. á tilraunastofu hans í kjallara í austurhluta Keflavíkur. Við óskuð um honum til hamingju meö unn- in afrek og inntum hann nánar eftir ýmsu varðandi tækið. Hann virtist ekki sérlega uppveðraður að ræða urri þaö í bili, heldur kink- aði kolli við áleitnum spumingum um smíöina og kvað hana leyndar- mál — ákveðið erlent framleiðslu- fyrirtæki hefði hins vegar látið áhuga sinn í ljós um að koma ,,línuverðinum“ á markað. Aðskurður um hvort hann myndi efnast á uppfinningunni sagðist hann verða ánægöur, fengi hann kostnaðinn greiddan. Hitt væri þyngra á metunum að koma í veg fyrir ógild mörk, sem lið ynnu kannski meistaratitla á, eins og gerðist fyrir 2 árum í íslands- möti 1. deildar. Það atvik kvað Jón hafa oröið til þess að hann hóf smíði „gerfilínuvarðarins" strax daginn eftir, og sú smíði hafði tekiö alla hans frítíma síðan. Skólamenntunar í meðferð rafeinda tækja hefði hann ekki notið. Hann væri algerlega sjálfmenntaður í þeim efnum úr ýmsum tæknirit- um en þar sem allt hefði gengið eins og bezt varð á kosið með „gerfilínuvörðinn" myndi hann inn an tíðar fara að vinna að smíði ..gerfidómara". Aö fullgera hann ætti hann samt enn langt í land, svo að okkar framgjörnu dómarar þyrftu ekki að gráta það strax að fá ekki að sýna sig frammi fyrir fjöldanum. emm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.