Vísir - 04.04.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 04.04.1968, Blaðsíða 1
I Skemmta sér við að horfa Randolph Scott Engin leið að komast austur úr isnum, sagði skipstjórinn á Haferninum v/ð Visi i morgun Síldarfutningaskipið Haförn- in, sem lagöi upp frá Siglufiröi í fyrradag áleiðis til Englands, til þess aö sækja »líu fyrir Norö urlandshafnimar, er nú fastur í ísnum norður af Melrakka- sléttu. Skipiö er þar í stórri vök, en ísinn er mjög þéttur austur með landinu og algjör- lega ófær skipum eins og er. Vísir ræddi í morgun við Sig- urö Þorkelsson, skipstjóra á Haf eminum og sagði hann að ís- inn ' virtist heldur hafa þétzt austur með. Þeir biðu þarna í 15 km langri og 5 km breiðri vök, sem Tryggvi Helgason, flugmaður hefði vísað þeim á í gærkvöldi, þegar hann flaug yf ir á vél sinni. Er hún heldur stærri en sú vök, er þeir biðu í allan daginn í gær. Sigurður kvað þaö mjög baga iegt að skipið kæmist ekki á- fram til Englands, þar eö beð- ið væri eftir þessum olíufarmi á höfnum norðanlands, en þar er víða olíulaust að verða. — Við erum hérna, sagði Sig urður ,og getum ekki annað. Það er ógjörningur að komast neitt austur á bóginn, ísinn virð ist vera miklu þéttari en hann var. Hins vegar er hann heldur gisnari vestan við vökina. — Þessi vök er skammt undan Melrakkasléttu og nær austur fyrir Rauðunúpa og talsvert vestur fyrir þá. Okkur líður svo sem ágæt- lega hérna. Við erum með kvik myndavél um borð og sýnum bíó okkur til dundurs. Það eru gamlar myndir, sem Aanni þótti Sementi landað í morgun viö Ártúnshöföa. Afgreiðsla sements frá Ártúnshöfða Laust eftir miðjan janúar sl. var byrjað að flytja sement frá Hún fékk 1000 kr. j fundarlaun. Skilvís stúlka Það er ekki hversdagslegur viö- buröur, aö menn finni á vegi sín- um þúsundir króna og labbi sig meö þær inn á lögreglustöðina, eins og 13 ára stúlka gerði i gær- morgun. „Hún kom inn úr dyrunum meö 7734 krónur og 50 aura f veski, sem hún kvaöst hafa fundið, sagð- ist heita Guölaug Ingólfsdóttir og eiga heima i Bogahlíð 16“, sagði vakthafandi varöstjóri Vísi. „Eigandinn gaf sig fram og hún fékk 1000 krónur í fundarlaun. — Þetta gerist ekki mjög oft, en þó .. Það er talsvert um fólk, sem cr skiivíst að þessu leytl.“ Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi til hinna nýju geyma í Ár- túnshöfða. Það er gamla flat- botnaða ferjan, (innrásarpramm inn), sem flytur sementið, eins og verið hefur undanfarin ár. Afgreiðsla Sementsverksmiðj- unnar flutti að Ártúnshöfða litlu síðar, eða 3. febrúar sl. Ferjan flytur bæði laust og pakk að sement. Lausa sementinu er blásið upp í hina stóru, sívölu geyma ,en hvor þeirrá tekur 4000 tonn af sementi. Verðmunur á pökkuðu og lausu sementi er eng- inn eins og er, að öðru leyti en því að Sementsverksmiðjan sér um flutning á lausa sementinu til hinna stærri fyrir tækja, svo sem Búrfells, Straumsvíkur óg steypu- stöðvanna. Ferjan tekur 240 tonn af lausu sementi í ferð, en um 100 tonn af pökkuðu sementi. 1 ráði er að reisa fleiri sementsgeyma á Ár- túnshöfða. BEÐIÐ EFTIR PÁSKAHR0TU • Gæftir eru nú góöar hjá ver- tíðarbátum og allir á sjó, en afli hefur veriö næsta tregur. Engin veruleg aflahrota hefur komiö á þessari vertíö, hvorki hér sunn- anlands, né vestur á Breiöafiröi, eins og venjulega um þetta ieyti. Á Rifi eru komnar um 2300 lest- ir á land í vetur og er þaö 800 lestum minna en í fyrra. Aflahæsta skipið á Rifi er Skarös vík með 520 tonn (um síðustu mán aöamót) — næsthæsti báturinn er Hamar með 270. Afli Breiðarfjarðarbáta hefur al- mennt verið þetta 5 —11 tonn að undanfömu, nema hvað stöku bát- ur hefur fengið 16—20 tonn. Mestan afla af Reykjavíkurbát- um í gær hafði Helga II. 20 tonn af tveggja nátta fiski. Engey var með 17 tonn, einnig tveggja nátta. Togveiðar ganga sæmilega á köfl um, en loönuveiði er saina og eng- in núna. Tvö skip komu þó ipn í morgun til Reykjavíkur Fylkir með 110 tonn og Örfirisey með 90 tonn. Loðnubátarnir eru nú að bíða eftir því að dreifin, sem fundizt hefur við suðurströndina þéttist og búast þeir jafnvel við loðnuveiði þar í nótt. Sjómenn vonast nú eftir því að BJARNDÝRANNA LEITAÐ Tveir menn leituðu á vélsleða i morgun Tveir menn lögðu af staö í morgun á vélsleöa frá Þórshöfn aö leita bjarndýranna, sem taliö er hugsanlegt aö hafi gengiö á land skammt frá bænum Gunnarsstööum viö Þórshöfn í gær. Fundust spor eftir 2 dýr um 2 km noröur af bænum og voru þau rakin um 2 km leiö og beygöu þau þá til sjávar. Fóru allmargir menn í gær að leita dýr- anna, gangandi, á snjóbil og á vélsleöum, en harðfcnni var mikiö ogekki tókst aö finna dýrin. Blaðið hafði samband við Óla Haraldsson, bónda á Gunnars- stöðum í morgun og sagði hann að Þórshafnarbúum kæmi ekki saman um hvort hér væri um bjarndýr að ræða. Að vísu hefði ekki annað verið sjáanlegt, en sporin væru eftir dýr með stór- ar klær, en margir teldu að hér væri um t.d. refi að ræða, þar sem ólíklegt sé talið að bjarndýr komi með svo þunnum fs. Sagði ÓIi að ísinn á Þistil- firði væri nú alveg vakalaus með öllu, og Iiggur þunnur fs svo langt út sem augað eygir. gaman að sjá í gamla daga. — I gær sáum við gamla mynd meö kúrekanum Randolph Scott Við eigum einar fjórar slíkar. Sigurður sagði að lítið hefði sézt af lífi í vökinni þá, aöeins nokkr ar hnísur og einn selur í vök þar skammt undan. Nokkrir piltanna fóru út á ísinn í gær, nokkur hundruö metra frá skip inu, en annars sagði Sigurður að engar ferðir yrðu farnar út á ís inn, nema þá spölkorn frá skip inu. Veöur er nú hvasst þar nyrðra NNV 5—6 vindstig. aflahrota komi fyrif vertíðar- lokin — páskahrota. / Féll útbyrðis — lézt á leið i sjúkra- hús i Reykjavik Ungur sjómaður á vélbátnum Sól ey frá Fiateyri lézt i sjúkraflutn- ingi af völdum slyss, sem varð, þeg ar báturinn var á netaveiöum á Breiöafjarðarmiöum aðfaranótt 3. apríl. Hann haföi lent i lykkju á færi, þegar skipveriar voru aö leggja netin, og kipptist út fyrir með því, þegar færiö rann út. Vegna snöggra viðbragða skip- verja náðist maðurinn um borö aft ur eftir aöeins örfáar mínútur, en hann var þá mikiö slasaöur og hafði sopið mikinn sjó. Sigldi bát- urinn meö manninn beint til Ólafs- víkur, en þar tók læknir staöarins viö honum og var hann fluttur í sjúkrabifreið á flugvöllinn á Hell- issandi, en lézt á leiðinni. Pilturinn hét Ólafur Sigurðsson og var tvítugur að aldri. Slökkviliðið á æfingu I Miklar æfingar eiga sér stað | þessa dagana hjá slökkviliöinu L í Reykjavík, og í gær má segja >að allt liðið hafi verið aö störf- |um annað hvort á vöktum eöa [ þá á æfingum. Myndin var tekin ► úti á Reykjavíkurflugvelli, þar [sem slökkviliðsmenn áttu í [höggi við mikinn olíueld.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.