Vísir - 16.04.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 16.04.1968, Blaðsíða 1
58. éag. — Þriðjudagur VARLA HÆGT AÐ TALA UM „PÁSKAHROTU" Aflinn á hinum ýmsu verstöðvum mjóg misjafn um hátiBarnar Þrjú þús. manns! dag hvern í Hlíð-1 arfjalli um púskana Skíðamót íslands 1968 var' -aldið um páskana í Hlíðarfjalli i Ivið Akureyri. Þvi er skemmstj frá aö segja, aö sjaldan og lík-, lega aldrei áður hefur Skíðamót1 íslands farið svo vel fram og j verið svo fiölsótt og nú. Lagð-1 ist þar allt á eitt: Hin ágætu1 mannvirki í Hlíöarfjalli, vel 't skipulagt mót, blíðviðri og yfir-, leitt gott færi, auk snurðulausr-1 ar samvinnu allra hlutaðeigandi. j Talið er að um og yfir 31 þúsund manns hafi verið í1 Fjallinu dag hvern á meðan j mótið stóð yfir. Þá var sam-i komu- og skemmtanahaldi í' sambandi við mótið einnig mjög j vel sótt, svo að ekki komusti fleiri að. Mörg hundruð manns komu j að til mótsins, bæði sem kepp-1 endur og áhorfendur. Setti aö-' komufólkið svip á bæjarlífið á| Akureyri þessa daga og höfðu i báðir sóma af, gestir og heima-' menn. 't Það lætur aö líkum, að allt, þetta fólk hefur átt ánægjplega' daga. Og verður þar naiimast j einum þakkað öðrum fremur. En , til gamans má geta þess, að' varla hefur hinn vinsæli sólar-1 litur á hörundið verið auðsótt- ( ari til Mallorka en í Hlíðarfjall' þessa daga. Það var hraustlegt ] fólk, sem kvaddist í Sjálfstæðis- < húsinu á Akureyri f gærkvöld.' ) < — Gullfaxi með nýstárlegan farm Tahverður afli hefur borizt á land f sumum verstöðvum hér sunnanlands, en bátar hafa flest ir dregið netin eftir tveggja daga lögn. Að sjálfsögðu er fisk- urinn ekki jafngóð vara og ella eftir svo langan tíma og varla er hægt að tala um páskahrotu. Frá Keflavík bárust þær fréttir í morgun, aö góður reytingur hefði verið hjá bátum þar í gær, en þar var um tveggja nátta fisk að ræða hjá flestum bátum Aflinn var frá 10 upp 1 30 tonn og aðeins einn eða tveir bátar voru með minna en 15 tonn. Línubátar frá Keflavík lönduðu flestir í Grindavík og mun afli þeirra hafa verið um 6 til 8 tonn. Sjómenn í Keflavík misstu af ballinu á „annan“, þar eð þeir réru aðfaranótt annars páskadags. Nú er verið aö losa saltskip í Keflavík, hið þriðja í röðinni á skömmum tíma, en saltleysi vofir nú yfir á Suðurnesjum og mun þessi farmur skammgóður vermir, þar sem mikið er nú notað af salti í verstöðvunum og kemur þar margt til, t. d. skreiðarmarkaðs- leysið m.m. Prýðisgott veður hefur verið í Keflavík um hátíðarnar, iogn og blíða og hlýviðri. Sandgerðisbátar hafa flestir land aö í Grindavík eða Keflavík og hefur því lítill afli borizt á land þar síðan fyrir páskana. í gær lönd uðu þó 11 bátar í Sandgerði og var aflinn lélegur, eða frá einu og hálfu tonni í sex og hálft tonn. Fyr ir páska var ágæt reytingsveiði i Sandgerði, en síðan tók fiskinn undan, en línubátar hafa ekki róið síöan á skírdag, enda hefur verið illfært á sjó fyrir þá, vegna sunn- anstrekkings, eða jafnvel roks þar syðra. I Vestmannaeyjum var ekki um neina páskahrotu að ræða, én bát- ar þar voru með 15 til 40 tonn af tveggja nátta fiski. Reykjavikurbátarnir voru með frá fjórum tonnum upp f sextíu tonn, en þann afla hafði Stéinunn og var hún langhæst netabáta. Mest var um tveggja nátta fisk að ræða og sumt af honum jafnvel eldra og mátti sjá það á fiskinum, þó ekki væri það gert með augum „ragarans." Afli Reykjavíkurbát- anna er að mestu fiskaður „út meö ' m->- 10. síða. ■ Þota Flugfélags íslands annað- ist nú fyrir' skömmu nýstárlega fiutninga. Nú eru ekki lengur vand ræði því samfara að flytia bifreið- ir millilanda. Liggi mönnum á slikum flutningum er vandinn ekki annar en að hafa samband við Flug- félagiö og að fáum klukkustundum liðnum er bíllinn kominn i fjarlægt land. Þetta gerðist nýlega. Bíll í eigu brezks ríkisborgara var fluttur héð- an til London með Gullfaxa, þotu Flugfélagsins. Eins og kunnugt er af fréttum er þotan útbúin stórum vörudyrum, og eins og sjá má á 10. síða. xjiiiiuiu ðiujidu uiu uui u i puiuua. HASTARLEGUR INFLÚENZUFAR- ALDUR HERJAR Á BORGARBÚA Heilu fjólskyldurnar leggjast — Hugsanlega Asiuinflúenzan, segir borgarlæknir Mjög hastarleg inflú- son gaf blaðinu í morg- enza hefur stungið sér niður í borginni yfir páskana og samkvæmt upplýsingum sem borg- arlæknir, Jón Sigurðs- un, er talið hugsanlegt að hér sé um að ræða Asíuinflúenzuna, en hún hefur gengið í Reykja- vík um nokkuð langan tíma án þess að hafa nokkurn tíma orðið veru lega skæð. Bragi Ólafsson, aðstoðar- borgarlæknir, haföi haft sam- band við læknana sem voru á vakt um helgina og kom í ljós, að farið hafði að bera á óvana- lega mörgum veikindatilfellum strax um miðja vikuna, sem síðan höfðu aukizt stöðugt og frá því á páskadagsmorgun til morguns annars í páskum, fóru læknar í 92 hús Voru þá þrír læknar á vakt og urðu þeir að kalla á þann fjórða. í sumum tilfellum hafði veik- in lagzt á alla fjölskylduna en hún virðist leggjast jafnt á fullorðna sem börn. Fylgir veik- inni hár hiti, beinverkir og stundum hálsbólga og kvef. Verður hafizt handa þegar í stað um að rannsaka hvort hér er um að ræða Asíuinflúenzu- veiruna, en sé svo eru að sjálf- sögðu allir sem voru bólusettir fyrir henni í vetur, ónæmir fyr- ir veikinni. / ' Bifreið til London I á tveim tímum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.