Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 16
— Allir bátar eru nú á sjó — Togarinn Vikingur landar á Akranesi O Á Suðurnesjum barst sára- lítill afli á land um helgina, enda var helgarfrí hjá sjómönn- um á Suðurnesjabátum. Veður- far á miðunum var slæmt, þó kom Gígjan með um 70 tonn inn til Sandgerðis, Jón Valgeir ' kom einnig inn með lítinn afla. I morgun heyrði Keflavíkur- radíó það til nótabátá, að þeir hefðu oröið varið við eitthvaö af þorski, en ekki var um fiskirí að ræða enn sem komið var. Lítið var um að vera í Vest- mannaeyjum. Nokkrir nótabátar komu inn með upp í 10 tonna afla, þó kom einn með 17 tonn. í morg un voru bátar að halda á miðin, þótt veiðiveður væri ekki sem á- kjósanlegast. Akranéssbátar komu inn á laug ardagskvöld og fram undir morgun á sunnudag. Afli þeirra samtals — var 380 tonn af sæmilegum þorski en afli einstakra báta var mjög mismunandi frá 15 tonnum og upp í 70 tonn. í gærkvöldi og nótt héldu allir Akranessbátar aftur á miðin. Togarinn Víkingur landar nú á Akranesi og er meö um 200 tonna afla eftir rúmlega viku útivist. — Nóg er nú að gera á Akranesi, en þó voru menn áhyggjufullir, vegna þess að farið var aö ganga á salt birgöir, en þó er von til þess að úr því rætist á morgun. ÞAU SIGRUÐU D Þessir fríðu flokkar urðu sigurvegarar í Islandsmótum í handknattleik, sem lauk í/gærkvöldi. Stúlkurnar eru úr Val og hafa að baki óslitna sigurgöng- í 5 ár. Framararnir við hliðina eru íslandsmeistarar í 1. deild með yfirburðum og er sigurganga þeirra einnig orðin löng, þó að hún sé erf- iðari en stúlknanna. Nánar er sagt frá handboltanum á bls. 2 « kln Aimh * Wnnr L 0FTL EIÐIR hætta fíugi tiiAmsterdam og Helsinki í 8 ár hafa Loftleiðir haldið uppi samgöngum við Finnland og Holland. Frá 1. maí falla niður samgöngur við þessi lönd. „Því miður samræmist það ekki áætlun okkar lengur að fljúga til Amsterdam og Helsingfors,“ sagði Sigurður Magnússon blaða fulltrúi Loftleiða í viðtal’ í morgun. Hann sagði að með hinum nýju Arent Clnssen látinn ». Arent Claessen, fyrrv. aðalræðis- maður, lézt í gær að heimili sínu í Reykjavík. Ilann var fæddur 31. jan. 1887 á Sauöárkróki. Hann flutt ist til Reykjavíkur 1904 og var deildarstjóri hjá verzl. Edinborg og »->• 10. síöu. samningum, sem náðst hafa við Norðurlöndin og Bretland um flug á RR-400, yrðu Loftleiðir að hætta flugi til þessara staða. Hins vegar mundi félagið hafa umboðsmenn sína áfram á þessum stöðum og héldi sölustarfsemi þar því áfram. Loftleiðir hófu að fljúga til Amsterdam í maí 1959 og til Hels- ingfors í apríl árið eftir. Þrír ungir listamenn senda verk til Helsinki Fyrir skömmu voru valin verk eftir þrjá myndlistarmenn, þá Kristján Guðmundsson, Gunn- laug Stefán Gíslason. og Jens Kristleifsson, sem send verða á Ungdomsbiennalinn, sem hald- inn er í Helsinki í september n.k. Aðeins 7 myndlistarmenn sendu dómnefndinni verk aö þessu sinni og var afráðið aö senda 11 myndir •eftir 3 þeirra, en skilyröi er aö þeir sem senda myndir séu undir þrjátíu ára að aldri. Dómnefndina skipuðu að þessu sinni þeir Einar Hákonarson, Jó- hann Eyfells og Bragi Ásgeirsson. Veitt verða verðíaun á sýning unni, 30 þús. danskar krónur og er heimilt að skipta upphæöinni.; — Ungdomsbiennalinn er haldinn ann að hvert ár. — vegna ræðu um stöðvun innflutnings hörundsdókkra ■ Edwarr' . Heath, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Bret landi, tilkynnti í gærkvöldi, að Enoch Powell, elnum helzta leið- toga flokksins og málsvara um landvarnir, hefði verið vikið úr flokksforustunni („skuggastjörn inni“) vegna ræðu þeirrar, sem hann flutti í vikulok síðustu, en þar hélt hann því fram að stöðva bæri innflutning hörundsdökks fólks að mestu — annað væri brjálæði — og hanr. vildi einnig hvetja þá, sem komnir væru, til að fara heim til sinna landa. Heath kvaö ræöuna ekki í samræmi við skyldur og ábyrgð þá, sem krefjast yrði af helztu leiðtogum flokksins, en Powell sagði í sjónvarpsræðu í gær- Enoch Powell. kvöldi sér til varnar, aö hann hefði valið orð sín vandlega og kvað hann skoðanir sínar vera í samræmi við þá stefnu sem Heath hefði markað, en íhalds- flokkurinn hefir sem kunnugt er lýst sig mótfallinn frumvarpi stjórnarinnar, sem miðar að af námi alls misréttis er þeir hör- undsdökku í landinu eiga við að búa. Andspyrnan gegn frumvarp inu var rökstudd með þvf, að það mundi hafa önnur áhrif en ætlazt væri til og því ekki til neinna bóta að lögleiða það. Meðal þingmanna Ihalds- flokksins hefir ræða Powells fengið misjafnar undirtektir, en í stjómarherbúðunum var henni tekið með harðri gagnrýni og var þess krafizt þegar, aö stjórn in léti málið til sfn taka. Ofannefnt frumvarp verður tekið til umræðu í neðri mál- stofunni á morgun. VISIR Mánudagur 22. aprfl 1968. | Eldur á ;| | Akureyri ;• ]» Slökkviliðiö á Akureyrl var (] kvatt á laugardagsmorgun að húsi nr. 42 viö Norðurgötu, sem,» Jer tveggia hæöa íbúðarhús úr <] ísteini, en frá því lagði þykkan', ^ reykjarmökk, enda var kominn /upp eldur i kjallara þess. <] J Var brugðið við skjótt og náði ]> Jeldurinn ekki að breiðast út og(> c gekk greiðlega að slökkva hánn. \ Litlar skemmdir urðu af völdumji 5 eldsins, sem kviknað hafðl út <] í frá kyndingu í þvottahúsinu, en s miklar skemmdir urðu af völd- ]' 5 um reyksins. ( Oddvitar á námskeiði Fræðsiunámskeið Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga um sveitar- stjórnarmál var sett í morgun í Tjarnarbúð, en námskeiöið sækja milii 40 og 50 oddvitar, hrepps- nefndarmenn og sveitarstjórar víðs vegar af landinu. Pormaður sambandsins, Páll Lín dal, borgarlögmaöur, set.ti' -nám- skeiðið, og síðan flutti Ingólfur Jónsson landbúnaðarráöherra á- va’rp. Þá töluðu Hjálmar Vilhjálms son ráðuneytisstlóri, Ölvir Karls- son oddviti og Unnar Stefánsson, ritstjóri. Eftir hádegið taka til máls m. a. Sigurbjörn Þorbjörns- son ríkisskattstjóri og Aðalsteinn Eiríksson námsstjóri. Fundinum lýkur miðvikudaginn 24. aprfl, að afloknum umræðu- fundi þátttakenda um efni og ár- angur námskeiðsins. WWV\AAAAA>W\AAAAAA REYTINGSAFLI UM HELGINA ENOCH P0WELL VÍSAÐ ÚR FL0KKSF0RYSTUNNI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.