Vísir - 26.04.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 26.04.1968, Blaðsíða 1
gufuaflstcð Poul Reumert jarðsettur / gær Poul Reujnert leikari, var iarð- settur í gær í Kaupmannahöfn, eft- ir hátíölega minningarathöfn í Holmens kirke. Kirk.ian, sem var skreytt blómum 02 nýútsprungnu birkilaufi, var þéttskipuð og meö- al viöstaddra voru konungsfjöl- skyldan, fulltrúar úr borgarráði Kaupmannahafnar og fuiltrúar rík- isstjórnarinnar. Dr. theol Börge Ör jarðsöng og sagði hann m.a. Poul Reumert stóð á svið- inu fengu orðin sérstakt vald, það var eins og hann talaði beint til rnanns sjálfs, og þá varð maður oftlega að viðurkenna, að manns góða samvizka, var hreint ekki svo góð.“ Poul Reumert var talinn einn mesti leikari á Noröurlöndum á þessari öld, en hann lézt 19. apríl Jsl., þá 85 ára gamall. Hann var kvæntur Önnu Borg Ieikkonu, sem lézt fyrir nokkrum, hau áttu tvo syni, Torsten og Stefán, sem býr á íslandi og starfar hjá Flug- félagi íslands. Bargestirnir á myndinni til vinstri létu sér hvergi bregða, þótt á barnum birtist slökkviliðsmaður í fullum skrúða, og barþjónn- inn hélt áfram störfum, eins og ekkert hefði i skorizt. Til hægri sést ofan af þaki og niður á götu, en slökkviliðið þurfti að tengja saman tvær rúllur, svo að slangan næði upp — hvor rúlla er um 100 m. 58. árg. - innan skamms • Nú standa yfir Iokaundir- búningsrannsóknir á því að reisa gufustöð til rafmagns- vinnslu við Námafjall. í því til- efni ræddi blaðið við Jakob Björnsson hjá Orkustofnuninni, og sagði hann, að bygging slíkr- ar stöðvar hefði lengi verið á döfinni, og verið gerðar rann- sóknir í því skyni í Hveragerði fyrir nokkrum árum. Þó var af ýmsum ástæðum fail- ið frá því að reisa slíka stöð f Hveragerði, þar sem væntanleg stóriðja krafðist mikill raforku og byrjað var á Búrfellsvirkjun. Orku stofnunin og nefnd skipuð af ráð- herra athugaði möguleika á raf- orkustöðvum fyrir Norður- og Aust urland, og kannaðar voru aðstæð ur fyrir virkjun Laxár og Lagar- foss. Við Námafjall eru allt aðrar að- stæður til byggingar gufuaflsstöðv- ar en í Hveragerði, og þar er hægt að reisa slíka stöö af mót- þrýstigerð, sem vart kæmi til greina í Hveragerði, vegna þess að þar er þéttbýli og erfitt um vik að koma burt 100 stiga heitu vatni, sem verður til er gufan þétt ist. Við Námafjall fylgja þessu aft- ur á móti engin vandræði, því að þar er hægt að leiða vatnið út í hraun, þar sem það hverfur í jörðina. Verkfræðingafyrirtækið Vermir M~>- 10. síða. Afli íslenzku togaranna hefur verið mjög góður undanfarið og togararnir selt vel i erlendum höfn- um. Bezt er þó sala Júpíters, en hann seldi í gær í Hull 212 tonn fyrir 20348 sterlingspund, sem er mjög góð sala. Aflinn var mest megnis ýsa og þorskur. Skipstjóri á Júpíter er Markús Guðmunds- son. Fjórir íslenzkir togarar hafa selt afla sinn í þessari viku erlend- is. Togararnir eru þessir: Egill Skallagrímsson seldi í Grimsby á þriðjudaginn 172 lestir fyrir 12431 sterlingspund, Rööull í Grimsby sama dag 189 lestir fvrir 14529 sterlingspund, Marz seldi í Aberdeen á miövikudag 127 tonn fyrir 9176 sterlingspund, og svo var það hin ágæta sala Júpi- ters í Hull í gær. Allar eru sölur þessar mjög góðar, enda var fisk- urinn góð vara, nýveiddur á mið- um togaranna. Surprise selur afla sinn í Grims- by í dag, en á mánudag eða þriðju- dag selur Úranus um 200 lestir í brezkri höfn. Mjög góður afíi togaranna! — Júpiter seldi 212 tonn fyrir rúm 20 t>úsund pund Flateyingar komnii aftur út í eyna Verða t>ar i sumar og leggja aflann jbar á land 17 karlmenn og 3 stúlkur fluttu um miðjan þennan mánuð út í Flatey á Skjálfanda og hyggj ast dveljast þar yfir sumarið. Flest þetta fólk eru Flateyingar, sem setzt hafa að á Húsavík, en eins og kunnugt er flutti allt fólk úr eyjunni í fyrra, og lagð- ist hún þá í eyði. Mennirnir róa úr eyjunni á 5 vélbátum, 6 — 10 tonna stórum, en auk þess eru í Flatey 13 trillubát- land í Flatey og verka hann en að undanförnu hafa þeir eingöngu stundað hrognkel.saveið- ar. Aflaverðmæti þeirra í heild nemur nú um 400 til 500 þús. um. Töluverður ís er nú á sundinu og gamla höfnin full af fs, en Flatey- ingar rða og leggja upp í nýju höfninni, sem var gerð í fyrra og hitteðfyrra. Þeir urðu fyrir nokkru netatjóni af völdum ísreks í síð- ustu viku. Ákvörðun um STORSKEMMDIR SÖGU BRANN í ÞEGAR „GRI/LIÐ" / GÆRDA G ■ Áttatíu manns varð af hádegismatnum sínurn í gær, þegar eldur kom upp í Grillinu á Hótel Sögu um kl. 13.30, eða einmitt um það leyti, sem fólkið ætlaði að setjast til borðs. ■ Þilið á bak við „griIl“-ofninn í eldhúsinu þar uppi á 8. hæð hótelsins var alelda, þegar slökkvi- liðið kom á vettvang, en eldurinn barst eftir loft- ræstingargöngum upp í loft og þaðan upp í þak. „Við sáum reykinn úr þakinu, áður en okkur barst kallið.“ sagði Gústaf Guðjónssón, varð stjóri hiá slökkviliðinu. „Við vorum allir komnir út í bíla og reiöubúnir, þegar bað barst, og vorum við með fjölmenn- asta móti, því að heil vakt var hjá okkur á reykköfunaræf- ingu, cinmitt þegar þetta gerðist.“ Öllu starfsfólki hótelsins og öðrum nærstöddum bar saman um það, að það hefði verið að þakka snörum viðbrögðum slökkviliðsins, hve skemmdir uröu litlar af völdum eldsins, sem þykir að Iíkindum hafa stafað út frá hitunartækjunum í eldhúsinu, en það hefur þó ekki verið rannsakað aö fullu ennþá. Þaðan barst eldurinn eftir loftventlum í gegnum tvö timb urloft ,en innréttingin er þarna öll úr timbri, og síðan upp f lóftræstingargat á þakinu. Uppi á loftinu eru rafmótorar og loft „kanalar" .og urðu nokkrar skemmdir á „könulunum", en mótorarnir sluppu að mestu, en þeir knýja lyftur hússins og fleira. 55 slökkviliðsmenn unnu aö slökkvistarfinu með 3 dælubíla og einn stigabíl og þurftu þeir að draga slöngur og útbúnað upp á 8. hæð. „Tók tiltölulega stuttan tíma að koma tækjunum fyrir og tengja slöngurnar, vegna þess hve mannmargir við vorum.“ sagði Gústaf, er frétamaður Visis injiti hann eft ir gangi slökkvistarfsins. 10. sfða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.