Vísir - 29.04.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 29.04.1968, Blaðsíða 2
V1 SIR . Mánudagr- 29. apríl 1968. Landsleikurmn í handknaftleik: Sigtryggur Sigurðsson. Yfirburðasigur SPANVERJA 29:17 íslenzka vörnin mjög léleg ■ f gærdag léku fslendingar fyrri landsleik sinn við Spánverja. Leikurinn fór fram í borginni Alicante á Suður-Spáni og fór hann fram á steinsteyptum úti- velli í 25 stiga hita, eða vel það. Blaðið hafði i gær samband við Einar Mathiesen einn af farar- stjórum liðsins og var heldur dauft f honum hljóðiö, þegar við náðum loks tali af honum. „Þetta var mikil og erfið þrekraun fyrir strákana, hitinn var óskaplegur, 25 stig í forsælu, en við lékum i steikjandi sól og veit ég ekki hvað hitinn hefur verið mikill þar. Spánverjamir höfðu veriö á æfingum hér á þessum steinsteypta útivelli í 5 daga, og kunnu sýni- lega betur vlð sig, en okkar menn. tókust hjá þvi. Við mótmæltum við þá, þegar við vissum, að leikurinn ætti að fara fram úti en það hafði enga þýö- ingu, og því reyndum við þetta, en árangurinn var ekki góður.“ Spánverjarnir eru snöggir og fljótir leikmenn, og skoruöu þeir flest sín mörk úr hraðupphlaupum, og með að komast inn í sendingar Islendinganna, sem voru þungir og seinir miöað viö þá. Vörn íslenzka liðsins var léleg, en markvarzlan sæmileg, þó ekki góð. Sóknarlotur íslenzka liðsins voru margar og enduðu flestar með mistökum, sem mörg komu af þreytu í þessum hita, og að birtan var ofsaleg I þessu glampandi sól- skini. íslenzka liðið átti fjöldann allan af stangarskotum í þessum leik, og ekki færri en 3 vítaköst mis- Sigtryggur SigurBson KR Glímukóngur Islands 1968 58. Íslandsglíman var háð að Hálogalandi f gær að viðstöddum mörgum áhorfendum, sem sýni- lega skemmtu sér vel, hvöttu piltana af miklum áhuga og var spenningur mikill í flestum glímunum. Og mikið var þrefað og þjarkað um hverja glímu að henni loklnni. Er gaman til þess að vita að þessi þjóðaríþrótt okkar er aö ná upp sinum fyrri vinsældum hér, þótt enn vanti nokkuð á að svo sé. Eitt atvik skyggöi þó á þessa góðu keppni, en það var að hinn skemmtilegi glímumaður Steindór Steindórsson, yfirgaf keppnina áður en henni var lokið, í mótmæla- skyni við hlutdræga dóma, að hann taldi. Sigtryggur Sigurðsson, KR, varð glímukóngur íslands 1968, hlaut hann 8 vinninga og felldi alla keppinauta sína. Sigtryggur er stór og þungur glímumaður, og átti hann misjafnar glímur í þetta sinn. Þetta er í fyrsta sinn að hann vinn- ur þennan eftirsótta titil, en Ár- mann J. Lárusson, sem nú var á- horfandi, hefur verið ósigrandi i Íslandsglímunni til þessa, og hætti hann keppni nú, eins og sannur meistari, ósigraður í 14 ár í röö. Úrslit Íslandsglímunnar uröu sem hér segir: Vinningar: 1 Sigtryggur Sigurðssson, KR 8 2. Sveinn Guðmundsson, HSH 6 3. Guðm. Jónsson, UMSE 5 + 1 4. ívar H. Jónsson, UBK 5 5. Hannes Þorkelsson, Víkv. 4 6. Ingvi Guðmundsson, Víkv. 4 7. Ómar Úlfarsson, KR 3 8. Elías Árnason, KR 1 9. Rögnvaldur Ólafsson, KR 0 Leikurinn var jafn framan af, og skildi ekki nema eitt mark á milli eftir 20 mín. leik, 6—5, en síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik byrjuðu Spánverjarnir á snöggum skiptingum og hröðum leik og þeir voru heldur ekki seinir að breyta töflunni sér í hag, því aö á þessum 10 mín. skoruðu þeir 5 mörk á móti 1. 1 hálfleik var staðan 11—6 Spánverjum í vil. í byrjun síðari hálfleiks komust þeir enn betur upp á lagið, og með hraðupphlaupum og ,,húkki“ (kom- ust inn í sendingar íslendinga), breyttu þeir stöðunni enn betur sér í hag. Leikurinn endaði með yfirburða- sigri þeirra, 29—17, og það voru sárir og þreyttir landsliðsmenn sem yfirgáfu brennandi heitan völlinn, sem var það heitur að vel hefði mátt steikja egg á honum. íslenzka liðið var lélegt í þess- um leik, og léku allir leikmenn liðsins, langt undir getu. Allir leikmenn liðsins 12 aö tölu, léku meö í þetta sinn, og veitti ekki af, því að hver maöur var ánægöur, þegar honum var skipt útaf. Hiti er óþekkt fyrirbrigði í handknattleik hér á landi, og úti- handknattleikur ekki æfður svo neinu nemi, enda er mikill munur á úti- og innihandknattleik. Þaö er því furðulegt, að ráðamenn liðs- ins skuli hafa samþykkt að leika þennan landsleik úti, þar sem HSl hafði samiö við Spánverja um 2 innilandsleiki, og hlýtur að vera til betri afsökun en sú, aö ekki hafi veriö til salur til aö leika í. Spánska liðið er mikið breytt frá því, að það lék hér fyrir 5 árum og tapaði stórt báðum lands- leikjum sínum á Keflavíkurvelli. Með liðinu leikur nú einn Norð- urlandabúi, en þaö er Svíi, sem nýlega hefur fengið spænskan ríkisborgararétt, og var hann einn bezti maður liðsins, og kunni hann sýnilega vel við sig £ þessum hita allan leikinn, mun betur en kolleg- ar hans frá fslandi I íslenzka liðinu eru nær allir leikmennirnir þungir og svifa- seinir, en sterkir. Gefur það því augljósa mynd af leiknum, hvernig hinir þungu leikmenn hafa verið í höndunum á léttum og liprum Spánverjunum, sem hreinlega sner- ust í kringum þá. Enginn íslendinganna átti betri leik en annar, allir voru um og fyrir neðan meðalmennskuna. — Mörkin geröu: Sigurður Einarsson 5, Gísli Blöndal og Ingólfur Ósk- arsson 3, Jón Hjaltalín 2 og Guð- jón, Gunnlaugur, Ágúst og Ásgeir eitt hver. Ekkí er annað hægt að segja en að þessi úrslit hafi komið yfir handknattleiksunnendur sem reið- arslag, eftir hin frábæru úrslit í leiknum við Dani á dögunum, bjuggust menn við góðum sigri yf- I ir Spáni. En heldur betur léku þeir okkur grátt þar og ber þar fyrst að nefna, að þeim skuli takast að fá forráðamenn liðsins til að láta það leika úti, og það í svona hita. .Hræddu' er ég um, að þeir hefðu neitað ef við hefðum boðið þeim að koma hér á síðastliðnum vetri, og að leika svo einhvers staðar fyrir norðan, eða á Hveravöllum, þar sem frostið var um 20 stig, og okkar menn hefðu verið búnir að æfa þar og venja sig við hitann eins og þeir í Alicante. Þeirra svar hefði örugglega verið blákalt NEl, en viö látum t /ma okkur á asna- eyrunum út í hvað sem er, og segjum aldrei neitt, fyrr en á eftir. Vonandi tekst okkar mönnum betur upp n.k. þriðjudag, en þá fer síöari leikurinn fram í Madrid og verður leikinn innanhúss í þetta sinn. Tvö félagslið kepptu við ÍBK í litlu bikarkeppninni Á laugardaginn léku í Litlu bik- | nema tvö stig, se’m ÍBK fékk verð- arkeppninni á þungum og blautum | skuldaö fyrir þennan leik. velli í Keflavík lið I'BK og IBH. Leiö indaveður var, þegar leikurinn fór fram, rok og rigning, og hafði það sýnileg áhrif á leikinn, til hins verra, og þó var knattspyrnan ekki mikil í þetta sinn. Leikurinn var leiðinlegur á að horfa, og skildi ekkert eftir sig, Akumesingar í erfiðleikum itieð að sigra Kópavog 2:1 Litla bikarkeppnin hélt áfram sl. laugardag . I Kópavogi léku Akur- nesingar við Breiðablik, en í Kefla vík léku heimamenn við Hafnfirð- inga. Á báðum vfgvöllum gat að Iíta hina albekktu íslenzku „vor- knattspyrnu“ af lélegri gerðinni. Akurnesingar með Hrein Elliðason fyrrverandi leikmann í Fram i broddi fylkingar áttu í talsverðum erfiðleikum með hið unga lið Kópa- vogs. Veður var ekki hagstætt og varð völlurinn fljótlega illur yfirferöar vegna mikillar rigningar og háði það leikmönnum mikið. Samleikur var ekki reyndur í leik þessum held ur réðu langspörk og hrindingar öliu um gang leiksins. Þó brá fyrir dugnaði og knattmeðferö hjá ein- staka leikmanni. Fvrsta mark leiksins kom seint i fyrri hálfleik og skoraði það Guðjón Guðmundsson eftir skemmtilegan einleik. I hálfleik var því staðan í 1:0 Akurnesingum í vil. I síðari hálfieik sóttu Breiðabliks- menn talsvert í sig veðrið og voru oft nærri því að skora. Þó voru það Akurnesingar sem skoruðu og var þar Hreinn Eiliðason að verki eftir fyrirgjöf frá Birni Lárussyni. — Skömmu síðar skorar Guðmundur Þóröarson fyrsta mark Kópavogs. Komst hann einn inn fyrir vörn Akurnesinga, áberandi rangstæður og ýtti boltanum til markmanns sem með ólýsanlegum hætti tókst að koma knettinum í markið. Síð- hærður unglingspiltur var linu- vörður og var að ræða við kunn- ingja sína og virtist Óla Oisen dómara í þessum leik, allt með feildu og úrskurður hans var mark. Leiknum lyktaði því með sigri Ak- urnesinga og voru þeir skárri að- ilinn í þessari viðureign. Áreiðan- legt er, að bæði þessi lið geta gert mun betur og hefur völlurinn og veðrið eflaust haft sín áhrif þar á. Dómarinn Óli Olsen virðist al- gjörlega æfingarlaus sem knatt- spyrnudómari, en með sæmilegri æfingu ætti hann að geta gert vel. ® 2:0. Var sögulegt mark, það er fyrsta markiö, sem dæmt er á Liðiö hefur mun meiri leikreynslu I markvörð fvrir aö taka of mörg en Hafnfirðingarnir, og eitt ann-1 skref samkvæmt alþjóðareglunni að, sem ekki var í þetta sinn að j öér á landi. En hið svokallaða finna í liðum Hafnfirðinga, er þaö ! „fjögurra skrefa regla' var samvinna og góður félagsandi, og aö lokum veigamesta atriðið, engan félagsríg aö sjá eða heyra á meða’n á leiknum stóö. En þaö vakti þegar furðu áhorf- enda að þessum leik, að þegar lið ÍBH kom inn á leikvöllinn komu leikmennirnir ekki saman. „Nei“ heldur komu þeir í tveimur hópum, og til að kóróna þaö, í búningum frá sitthvoru félaginu FH og Hauk um, en ekki í búningi íþróttabanda lagsins, eða þá allir í svart-hvít- um búningi FH, eða í hinum rauöa og hvíta . þúningi Haukanna. Það er alltaf slæmt, þegar rígur er á milli- félaga, <en þessi rígúr Hafnfirðinganna er að eyðiíeggja alla samvinnu á milli þeirra, og það sem verra er,að á leikvellinum er hann það mikill, að útiokað er, aö útkoman verði jákvæð knatt- spyrna. Lið ÍBK var vel að þessum sigri komið, og var sigur þess, 5:0, sízt of mikill. Mörkin í leiknum komu bannig: © 1:0. Hinn ungi og efnilegi nýliði ÍBK, Gunnar Sigtryggsson, skaut lausu skoti í átt að marki, bolt- inn lenti í stórum polli, sem var fyrir framan markið. og úr honum baut hann með auknum hraða fram hjá þrumulostnum markverði ÍBH. var nú not- uð í fyrsta sinn og það án vitund- ar leikmanna, og líklega án vitund ar dómarans Sveins Kristjánsson- ar, sem fann sig knúinn til að dæma eftir þessum nýju reglum, sem hann þó hafði ekki gert fyrr í leiknum. „Fjögurra skrefa reglum- ar“ hafa ekki enn verið kynntar fyrir ísl. markvörðum og held- ur ekki gefnar út af KSl til dómara og enginn veit enn hvort eftir þess um reglum verðúr leikið í Reykja- víkur- eða íslandsmótinu í ár. En nóg um það, Magnús Torfason tók þessa fyrstu spyrnu og notfærði sér hana vel, skaut þrumuskoti í hornið niðri. © 3:0. Magnús Torfasoh var enn að verki stuttu síðar, þegar hann fékk góða sendingu frá Friðriki Ragnarssyni og hann renndi bolt- anum í netið af stuttu færi. © 4:0. Gunnar Sigtryggsson gaf góðan bolta fyrir markið sem annar efnilegur nýliði, Ástráðu' Gunnarsson, skallaði mjög glæsi- lega og alveg óverjandi i markhorn ið. ® 5:0. Síöasta mark leiksins, skc.i aði Gunnar Sigtryggsson svo í seinni hálfleik, þrátt fyrir að ÍBK léki móti vindi, og var það gott mark, sem hann átti allan heiður- inn af sjálfur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.