Vísir - 07.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 07.05.1968, Blaðsíða 1
Umferðarslysum fækkar SNJÓR YFIR ÖLLU í MORGUN Hafísinn að gliðna hjá ■ SNJÓBREIÐA hvíldi yfir öllu í morgun, þegar menn fóru til vinnu í Reykjavík og nágrenni. Úrkoma í nótt var 5 millimetrar að sögn Páls Bergþórssonar, veður- Dalatanga og Grimsey fræðings en í morgun kvað hann hægviðri og léttskýjað um mestallt land, utan að frá Eyja- fjöllum og yfir Reykja- vík var skýjað og úr- koma var á allbreiðu belti. Sennilegt var tal- ið að þennan maísnjó mundi taka upp þegar á daginn liði, enda voru götur orðnar auðar snemma. Nýjustu fréttir af hafísnum eru frá Dalatanga, en f frétt- inm' hoXon PQrrir oA fcÍttH Vinfl gliðnað sundur i norðri að Glett inganesi og auð renna sé f mynni Seyðisfjarðar. Frá Grímsey bárust einnig þau tíðindi, að nokkuð hafi greiðzt úr ísbreiðunni. Fréttamaður blaðsins átti einn ig tal í morgun við oddvitann og hafnarvörðinn á Djúpavogi. sagði hann, að höfnin þar væri full af fs og úr landi sæist 10. sfða. Islenzkir ökumenn varkárir — segja Danir, og vilja ekki varúðarráðstafanir vegnQ götuvinnu • Slys á bömum í umferðinni á þrem .'"yrslu mánuðum þessa árs hafa orðið mun færri en í fyrra, og umferðarslys almennt í Reykjavík verið færri. //■ rÉg er forvitin-gul bönnuð í Bundu- ■ár 18 börn slösuðust á götum Reykajvíkur í ianúar, febrúar og marz f fyrra, en 7 böm á þessum sama tíma í ár. 70 slösuðust í allt á þessum tfma í fvrra, en 49 nú í ár. Samt hefur árekstrum fjölgað á þessum tíma frá því sem var í fyrra. Þá urðu 200 árekstrar í jan., en 246 árekstrar í jan. 1968. 200 árekstrar urðu einnig í febr. í fyrra, en 222 f febr. íár. Hins vegar urðu mun færri á- rekstrar í marz vegna verkfallsins, því þá dró mikið úr allri umferð. 218 árekstrar urðu nú í marz, en 310 í fyrra. „Það var mjög slæm færð þessa mánuði í ár. Hálka mikil og margir árekstrar þess vegna,“ sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn, Vísis. „Það er hins vegar erfiðara að segja til um, hver sé skýringin á því, að slysum hafi fækkað. Það var ekkert dauðaslys þessa þrjá fyrstu mánuði þessa árs, en á sama tfma í fyrra urðu fjögur dauðaslys. Það er kannski vegna aukinnar tillitssemi ökumanna í umferðinni í ár. Mönnum virðist almennt eins og ökumenn sýni meira tillit nú, en áður. Danirnir, sem að undanförnu hafa unnið hér við að merkja ak- reinamar á götunum og vakið hafa nokkra athygli vegna gulu bún- inganna, segja, að íslenzkir öku- menn séu tillitssamari en ökumenn, sem þeir hafa kynnst annars staðar. Þeir kæra sig ekkert um aö göt- um sé lokað, meðan þeir eru að vinna f þeim og segja það hreinn óþarfa, því íslenzkii; ökumenn séu það varkárir." ríkjunum Thomas Murphy, dómari í sam- bandsrétti í Bandarfkjunum, hefir fellt þann úrskurfi, afi ekki skuli leyföar sýningar á kvikmynd Vilgots Sjömans „Ég er forvltin — gul“. Vilgot Sjöman var viðstaddur, er verjandi og sækjandi fluttu ræður sfnar. Þegar dómarinn kvað upp úr- skurð sinn kvaðst hann hafa séð myndina 10. þ. m., og teldi hann að sýning myndarinnar væri móðg- un við almenning og hún heföi ekkert félagslegt gildi. Hann við- hafði einnig þau ummæli, að hún væri „andstyggileg". í Eins og getið var hér í blaðinu á sfnum tíma var bannaö að sýna ^ myndina bæði í Noregi og Finn- landi. Mjóikin hækknr um 20 uuru Frá deginum í dag kostar < > mjólkurlitrinn 20 aurum meira, en hækkunin á mjólkurlítranum I < eri liður í aimennri hækkun á mjólkurvörum. Framleiðsluráð Iandbúnaðarins tilkynnti um hækkunin í gær, en bað er sex ma’-’a nefndin, sem tekur á- kvörð um söluverð á mjólkuraf- urðuni eins og á öðrum landbún i ) aðarafurðum. Mjólkin kostar nú 8.90 kr. lítrinn í hyrnum, rjóminn 93,55 kr. lítrinn (var 92,25 kr. smjör kílóiö 111.60 kr. (108.20 kr.) 45% ostur 142,40 kr. (140.45 kr.). Hækkunin stafar af auknum rekstrar og dreifingarkostnaði mjólkurbúanna. ^NAAAA/WWWVAAAA/VW 58. árg. — Þriftjudagnr 7. mal 1968. — 98. tbl. Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra (situr við mitt borðið) ávarpar ráðstefnuna í morgun. VISIR Fylgzt verður af athygli með störfum nefndarinnar sagði Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegs- málaráðherra við upphaf ráðstefnu NA- Atlantshafsnefndarinnar • Ekkert land, þar sem þið hafið haldið fundi ykkar, er jafn háð fiskveiðum og land mitt og það er ekki sízt fyrir þá sök, sem það er mér sérstök ánægja að bjóða NA-Atlantshafsnefnd- ina velkomna til fundarins hér, sagði Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra, þeg- ar hann ávarpaði ráðstefnu NA- Atlantshafsnefndarianar um fiskveiðar, við upphaf ráð- stefnunnar á Hótel Sögu í morg- un. — Af þessari ástæðu get ég fullvissað ykkur um, að fólk f landi mínu mun fylgjast með mikili; athygli með því sem fram fer á ráðstefnunni, og að hvaða niðurstöðum þið komizt. Fiskveiðar eru bæði 'Iþjóðlegar og bundnar við einstakar þjóðir, sagði ráðherrann. Þær eru alþjóð- legar, þegar þær miðast að fisk- tegundum, sem ganga árstíðabund- ið um höfin og eru stundum veidd- ar á úthafinu. — Þær eru bundnar við einstakar þjóðir þegar veiðam- ar fara fram við strendur landanna. Afleiðingin er sú, að vernd fisk- stofnanna verður að vera jafn al- þjóðleg sem og bundin við einstak- ar þjóðir eins og reynsla undan- farinna ára hefur sýnt og eins og framtíðin mun sýna enn betur, að minni hyggju. Fundur Norðaustur-Atlantshafs fiskiveiðinefndarinnar er 6. fundur nefndarinnar frá upphafi og í fyrsta skipti, sem nefndin heldur fund sinn á Islandi. — Um 80 fulltrúar frá öllum 14 löndunum, sem aðild eiga að nefndinni sitja ráðstefnuna, en flestir fulltrúarnir eru yfirmenn fiskimála aðildarríkjanna og sér- fræðingar í fiskifræðum. Formaður nefndarinnar, Davíö Ólafsson, bankastjóri Seðlabankans setti ráðstefnuna í morgun, en hann var kjörinn formaður á síðasta fundi til 3ja ára. Islenzku fulltrúarnir á fundi þess um eru Már Elísson fiskifálastjóri, sem er formaður islenzku nefndar- innar, Jón Jónsson, forstöðumaður 10. síða. EFNILEGIR UNGIR ÍSLENDINGAR í USA Unga stúlkan til hægri sigraði á miklu sundmóti í Kaliforniu nýlega og heitir Lísa Ronson, dóttir Péturs Rögnvaldssonar og konu hans. Henni er spáð bjartri framtíð sem tilvonandi sunddrottningu. Frá þessu er sagt í fréttabréfi frá Guðmundi Þ. Harðarsyni á íþróttasiðu í dag. ... og íslenzkt fólk, eöa af is- lenzku bergi brotið sigrar ekki aðeins á íþróttasviðinu, þvi að unga stúlkan til vinstri, sem heitir Roslyn Storry og er is- lenzk í móðurætt, dóttir Sylvíu Guttormsson, en foreldrar henn ar voru Björn heitinn Guttorms son og Helga Guttormsson. Ros- lyn sigraöi f tónlistarkeppni í Manitoba, þar sem saman voru komnir efnilegir hljóðfæraleik- arar víða að. Roslyn leikur á pfanó og er aðeins 17 ára göm- ul ; ':****“ :

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.