Vísir - 10.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 10.05.1968, Blaðsíða 1
• Gunnar Frederiksen, sem handtekinn var í gær vegna morðsins á Jóhanni Gíslasyni, hefur nú verið úrskurðaður í allt að 10 vikna gæzluvarð- hald og situr nú 1 haldi í fangahúsinu við Skólavörðu- stíg. Við yfirheyrslur í gær játaöi hann verknaðinn á sig, eins og hann reyndar haföi gert fyrir lögreglumönnunum, sem hand- tóku hann í affereiöslu F.í. úti á flugvelli i gærmorgun. Eins og fram kom í fréttum Visis í gærdag lágu flest atriði málsins ljós fyrir strax fyrir hádegi í gær. Persónulegt hatur Gunnars í garö Jóhanns heitins réöi gerðum hans þessa nótt, en á þvi hefur hann aliö frá því að hann hætti flugstjórnarstörf- um hjá Flugféiaginu. Heilt ár var liöiö frá því Gunn ar haföi flogið síðast og var flugstjórnarskírteini hans fallið úr gildi fyrir einum sex mán- uðum. Nú hefur verið hafizt handa af fullum krafti að endurbæta götumar í Reykjavík eftir lang an vetur og strangan. Svo- nefnd „teppi“ eöa slitlög hafa veriö lögð á Aðalstræti, og einnig á Fríkirkjuveg og Sól- eyjargötu. Þama sést hvar ver- iö er aö vinna aö „teppalagn- ingu“ á Hringbrautinni, og í bak sýn gnæfa Háskólinn og Bænda höllin. VISIR m BRÁÐABIRGÐALÖG UM FLUTNING SALT- jT jt jr ráðs sjávarútvegsins skiptast til helminga milli útgeröarmanna og sjómanna annars vegar og síldarsaltenda hins vegar. Reynist kostnaðurinn viö flutninganna minni en áætlun Sfldarútvegsnefndar gerir ráð fyrir, skal sú inneign geymd á sérstökum reikningi til næsta árs. Reynist kostnaðurinn meiri, skal sá viðbótarkostnaður greiddur af útflutningsandviröi saltsíldarframleiðslunnar á Norð ur- og Austurlandi á árinu 1969. Sjávf’-'útvegsmálaráðherra get ur sett reglugerö um nánari framkvæmd laga þessara, þar á meðal um löndunarstaði, kaup, yfirtöku og skoðun síld- arinnar, sem flutt er samkvæmt ákvæöum laganna. Forsetinn gerir þá grein fyrir setningu bráðabirgðalaganna, 'að sjávarútvegsmálaráðherra hafi tjáð sér, að brýna nauðsyn 10 síða SILDAR GEFIN UT I MORGUN Handtekinn með fulla tösku af nýju 10-króna myntinni Gert ráð fyrir oð allt oð 5 skip verði leigð til lán i þvi skyni — Einnig lagt til að skipum til ■ Forseti íslands gaf í morgun út bráðabirgðalög um ráðstafanir vegna flutnings sjósaltaðrar síldar flutninganna og oð tekið verði 15 milljón kr. flutninga bræðslusildar verði fjölgað af fjarlægum miðum á sumri komanda. — Ríkis- stjóminni er heimilað í bráðabirgðalögum þessum að taka lán eða takast á hendur sjálfsskuldarábyrgð á láni, sem Síldarútvegsnefnd tæki, að fjárhæð allt að 15 milljónir króna, til greiðslu kostnaðar við flutning sjósaltaðrar síldar til íslenzkra hafna. Síldarútvegsnefnd er ætlað aö hafa forgöngu um framkvæmd flutninganna og er henni heim- ilt að taka á leigu allt að fimm flutningaskip f þessu skyni og gera aðrar ráðstafanir, sem nauðsynlegar reynast til trygg- ingar framgangi flutninganna Ennfremur er henni heimilað að veita öðrum aöilum fjárhagslegan stuðning eöa aðra fyrirgreiðslu til flutninga sam- kvæmt reglugerö, sem sjávar- útvegsmálaráöherra setur. Áætlaður heiídarkostnaður skal við verðákvörðun Verðlags Þúsundir þessarar nýju myntar voru í töskunni og útlendingurinn gat enga grein gert fyrir því, hvern ig hann hafði komizt yfir þá, eða þá vildi ekki svara spurningum lög regluþjónanna. Lögreglan haföi verið kvödd út að Hótel Vík i gærkvöldi vegna manns, sem ællaði að stinga at úr hótelinu, án þess aö greiða hótel reikninginn. Þegar lögregluþjónarnir komu ’ hótelið var maðurinn á bak og burt, en þjónustufólkið gat gefið þeim lýsingu á honum og stuttu seinna gengu þeir fram á mann- inn. sem er útlendingur, þar sem hann gekk eftir Austurvelli með ferðatösku í hendi. Var maðurinn tekinn til yfir- heyrslu og ferðataskan opnuð til þess að kanna innihald hennar. »-> 10. síða Heill fjársjóður af 10 króna pen ingunum nýju blasti við lögreglu- þjónum f gærkvöldi, þegar þeir opn uðu ferðatösku, sem þeir höfðu tekið af grunsamlegum útlendingi á Austurvelli. ypönsk vika hafin í Reykjavik Hópur spánskra dansara og tízkusýningarstúlkna kom hingaö til lands í gær á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu, Hótel Sögu og Ferðamálaráðs Mallorca, cn þessir aðilar efna til spánskrar viku sem hefst í dag. Skemmtnnir verða á Hótel Sögu á laugardags- og sunnudagskvöid og einnig munu Spánverjarnir fara norður til Akur- eyrar og skemmta þar. í næstu viku verða skemmtanirnar endur- teknar, en aóalskcmmtiatriðin eru spánskir dansar og tizkusýning á ýmsum leður- og skinnavörum, svo og skartgripum. Myndin var tekin er hópurinn kom til P.eykjavíkur í gærkvöldi. f i i I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.