Vísir - 20.05.1968, Blaðsíða 1
'V
„ Við erum bjartsýnir"
segja menn á Austfj'órbum þrátt fyrir hafis og snjóa — Vöruskortur
ekki mikili, en oliubirgðir fara mjnnkandi
58. árg. - Mánuda
20. maí 1968
109. tbl
„Við erum nú orðnir bjart-
sýnir hér á Raufarhöfn eftir
þessa tvo síðustu sólardaga“
— sagði verzlunarstjórinn i
Kaupfélagi Raufarhafnar,
Ágúst Magnússon, þegar við
spurðum hann um ástandið á
Raufarhöfn. „Snjóa hefur
Ieyst mikið þessa frostlausu
daga og nú er sauðburður
um það bil að byrja.
Færð er sæmileg á landi og
höfum við getað fengið allar
nauðsynjavörur þá leiðina, en
hins vegar mun olía vera farin
að minnka nokkuð. Einhverjar
heybirgðir eiga bændur ennþá,
og ef við fáum sól eitthvað á-
fram, þá ætti að vera hægt að
beita kindum út fljótlega. Við
vorum orðnir mjög svartsýnir á
tímabili, en eins og stendur virð
ist þetta ætla að bjargast betur
en á horfðist", sagði Ágúst ehn-
fremur.
Því næst töluðum við við
verzlunarstjórann í verzluninni
Dvergasteini á Seyðisfirði, Krist-
ján Kristjánsson, og sagði hann
að þar væri nokkuð farið að
bera á vöruskorti, en allar vör-
ur verður nú að fá flugleiðis
til Egilsstaða. Þaðan'er þeim svo
ekið niður á firðina og er færð
nú ágæt.
„Það er nokkuð farið að bera
á skorti á ýmsum þungavörum,
sem erfitt er að flytja flugleiðis,
en hins vegar mun vera nóg til
að öllum nauðsvnjavörum, svo
og olíu og bensíni. Hér er nú
mjög kuldalegt umhorfs, en hef
ur þó hlýnað mikið síðustu dag-
ana,“ sagði Kristján.
Blikur kom á Stöðvarfjörð í
gær, og samkvæmt upplýsingum
sem Guðjón Friðgeirsson hjá
Kaupfélagi Fáskrúðsfjaröar gaf
blaðinu f morgun fengu Fá-
skrúðsfirðingar mikið af vörum
með skipinu. Ekki er farið að
bera á neinum vöruskorti þar
enn þá, en fjörðurinn er nú full-
ur af fs og algerlega ófært að
höfninni.
6 dagar eftir:
í V-umferð
Milli 5 og 600 manns hafaj
gerzt umferðarverðir í sambandi <
við H-breytinguna. Og á föstu- J
dagskvöidið komu fyrstu hóp-1
amir tii þjálfunar í nýju lög- <
reglustöðinni við Hlemmtorg.
Þar sér lögreglan í Reykjavík j
um þjálfun fólksins og á iaug-1
ardag var haldið áfram og í J
þessari viku, síðustu V-vikunni <
f umferðinni, mun þjálfunin J
halda áfram.
Ljósmyndari Vísis tók þessa <
mynd af þjáifun varðanna. Ung- J
ur umferðarvöröur stjómar hér J
umferö gangandi fólks yfir <
götu.
SAUÐBURÐUR
LANGT KOMINN
— fé yfirleift á fóÖrum — geysilega dýrt
fyrir bændur
# Sauöburður er nú fyrir nokkru
byrjaður hér á Suður- og Vestur-
landi og gengur ágætiega, eftir því
sem Gísli Kristjánsson hjá Búriaö-
arfélaginu sagöi blaöinu i morgun.
„Sauðburður er nú um það bil að
byrja á Norð-austurlandi og virð-
ist ganga vel það sem af er, en þó
þurfa bændur yfirleitt að hafa
féð á fóðrum. Fóðurbirgðir eru
sæmilegar ennþá, en þetta er vit-
anlega ákaflega dýrt fyrir bændur.
Flestir bændur eiga nægar fóður-
birgðir út þennan mánuð, og von-
andi verður spretta þá orðin það
góö að hægt verði að setja skepnur
út.“
„Gróðurleysið er það versta, því
að þrátt fyrir hlýindi undanfarið,
þá er jörðin svo ákaflega þurr, að
gróður á mjög erfitt uppdráttar.
Hins vegar er þurrviðrið mjög gott
fyrir lambféð, og engin afföll er
um að ræða ennþá, efdr því sem
ég bezt veit,“ sagði Gísli að lokum.
Bensínsjálfsalar
væntanlegir?
■ Ekki hefur verið endanlega^-
ákveðið, hvort leyft verður að
ráða bót á vandamálinu með
næturafgreiðslu á bensini, með
því að setja upp sjálfsala, þar
sem menn gætu keypt bensín
að næturlagi.
Önundur Ásgeirsson, forstjóri
Olíuverzlunar Islands, sagði, að
öll olíufélögin hefðu áhuga á aö fá
slíka sjálfsala leyfða, en undirtekt-
irnar væru daufar, þar sem ekki
heíöi enn borizt svar frá slökkvi-
liösstjóra við bréfi, sem sent var
í maí í fyrra, í sambandi við hugs-
anlega eldhættu af slíkum sjálf-
sölum.
Önundur sagði, aö þessir sjálfsal-
ar væru algengir og framleiddir í
mörgum löndum, svo sem Svíþjóð,
Bandaríkjunum og Bretlandi. Þeir
taka við seðlum og afreiða bensín
síðan fyrir upphæðina, sem um er
áð ræða.
Lík litla
drengsins
fundið
Uppreisnin gegn „Fimmta lýðveldinu
44
Þátttakendur i verkf'óllum verðá i kv'óld orönir 6 milljónir
í dag verður gervallt
Frakkland næstum alger
lega Iamað af völdum
verkfalla, og framtíð
landsins hangir á blá-
þræði vegna hinnar sí-
vaxandi öldu óánægju
með stjóm de Gaull-
es forseta. Tvær milljón-
ir Frakka eru þegar í
verkfalli og búizt er við,
að milljónir í viðbót fari
í verkfall í dag.
Frönsk og kannski evrópsk
framtíðarsaga virðist vera und-
ir því komin, hvernig de Gaulle
mun bregðast við þessu ástandi,
sem nú ríkir. Þeir, sem fylgjast
með málunum eru sammála um,
að tilraun til að finna lausn
með valdbeitingu muni enda með
því, að kommúnistar taki völd
eða herstjórn komist að — eöa
þá að algert stjórnleysi verði
ríkjandi.
De Gaulle forseti, sem batt
enda á heimsókn sína til Rúm-
enfu og hélt heim á laugardag.
gaf 1 gær út aðvörun þess efnis.
að hann mundi ekki sætta sig
við ringulreiðina. F.n hann bætti
þvf við. að hann mundi sam-
þykkja sanngjarnar breytingar
til að eðlilegt ástand kæmist
aftur á. Við ráðherra sína,
kvaðst hann vera fylgjandi end-
urbótum, en mótfallinn óreiðu,
þegar þeir sátu fund til að ræða
hvaða skref verða tekin vegna
undangenginna atburða.
Næstum því allar samgöngur
Iiggja niðri með flugvélum,
járnbrautum og bifreiðum,
vegna verkfallsins og stórar
greinar þungaiðnaðarins hafa
lamazt. Kolanámur, stálbræðsl-
ur, hafnir og póststofur hafa
orðið fyrir barðinu á verkfall-
inu, og afgreiðslumenn á bensín
stöðvum ógna einnig með verk-
falli, og niun það leiða til enn
frekara ófremdarástands.
Hið ríkisrekna útvarp, sem
einnig má búast jvið að verði að
loka vegna verkfallanna, skýrði
frá því í nótt, að allar þær at-
vinnugreinar, sem ekki hafa enn
lamazt algerlega megi gera ráð
fyrir, að svo fari á næstu dög-
um.
í framhaldsfréttum frá París
segir, að de Gaulle hafi tekiö
skýrt fram í gær, að hann væri
hlynntur umbótum f franska
þjóðfélaginu, en jafnframt tók
hann skýrt fram, að hann myndi
ekki sætta sig við, að haldið
væri áfram að stofna til óeirða.
Ekki er enn vitað til hvaða að-
gerða verður gripið til af stjórn-
arinnar hálfu, en örvggisliðið er
haft tiltækt. tss-y to sfða
■ N."r öruggt er talið, að lík
lítils dr ngs, sem fannst i gær-
dag rekið upp á rif, sem liggur
austur af Akurey, sé af Haraldi
litla Bjarnasyni, þriggja ára, sem
týndist héðan úr Reykjavík 25.
marz.
Tveir menn, sem fóru sér til
gamans á gúmmíbát út á Sundin
f góða veðrinu í gær, fundu líkið
á rifinu skömmu fyrir hádegi.
Gerðu þeir yfirvöldum viðvart,
þegar þeir komu í land, og var
gerður út leiðangur til þess að
sækja það.
Haraldar litla var saknað, þegar
hann fór að heiman frá sér að leika
sér á hádegi 25. marz. Síðast var
talið, að hann hefði verið að leik
með börnum í Laugarnesinu, en
síðustu sporin, sem hann lét eftir
sig voru stígvél hans, sem fundust
f fjörunni á Laugarnestanga.
Mikil leit var gerð að honum,
sem nær flestir Reykvíkingar tóku
að einhverju leyti þátt í, en sú leit
bar aldrei árangur.
Blaðið í dag