Vísir - 29.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 29.05.1968, Blaðsíða 1
V VISI 58. árg. — Miðvikudagur 29. maí 1968. — 116. tbl. Húnvetningar nota dulmál í H-umferð — 1‘öggæzlan þar tók upp sérstakan dulmálslykil fyrir talstóðvarbila sina á H-dag ■ „Við noturn hér húnvetnskan dulmálslykil," sagði Hjálmar Eyþórsson lögreglumaður, á Blönduósi, þegar Visir ræddi við hann í morgun. „Við tókum upp þennan hátt strax að morgni H-dagsins. M Það er að sjálfsögðu lögreglan ein, sem býr y|ir leyndardómi lykilsins. Við munum reyna að flýta ákvörðun síldarverðsins segir lónas Haralz, sem er oddamaður yfirnefnar Verðlagsráðs sjávarútv. □ Ákvörðun síldar- verðsins fyrir sumarsíld- veiðarnar út af Austur- og Norðurlandi var í fyrradag vísað til yfir- nefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins, en ekki náðist samkomulag um sílda^verðið í Verðlags- ráðinu, sem er orðin föst venja. Jónas Haralz, forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar, sem er oddamaður yfirnefndarinnar, sagði í viðtali við Vísi i morgun, að veröákvörðuninni hefði verið vísað óvenjulega seint til yfir- nefndarinnar. Hann sagði, að all ur undirbúningur fyrir ákvörð- unina í yfirnefndinni væri langt kominn svo sem úrvinnsla gagna. Við munurn reyna að flýta á- kvörðuninni eins og kostur verð- ur á, sagði Jónas. Fyrsti fund- /✓ ur yfirnefndarinnar var haldinn i gær. Eftirtaldir menn eiga sasti í yfirnefndinni. Af hálfu sfldar- kaupenda: Sigurður Jónsson, forstjóri Síldarverksmiðja ríkis- ins á Siglufirði, og Valgarð Ól- afsson, sem er fulltrúi einka- verksmiðjanna á Noröur- og Austurlandi. Af hálfu síldarselj- enda: Jón Sigurðsson, sem er fulltrúi sjómanna og Guðmund- m Jörundsson, sem er fulltrúi útg?rðarmanna, Jónas Haralz er óddamaður. Þessi húnvetnski galdur er aðal lega fólgin í þvi að vegunum er skipt niður í kafla, sem hver ber sitt merki í dulmálskerfinu. Þann- ig þarf lögreglubill ekki að gei'a upp annað en þetta merki og þá veit lögregian hvar hann er stadd ur. — Skeikar þar varla meiru en 1 km. Hjálmar sagði að þetta dulmál hefði verið tekið upp af ýmsum ástæðum. Lögreglan þar notar sömu bylgjulengd og langferöabílar og aðrir þeir sem talstöövar hafa á vegunum. Þannig fylgiast þeir með umferðinni „í ioftinu“ jafnframt þvi sem þeir sjá til með henni á vegunum. — Á þessari bylgju er mikið þvarg oft á tíðum og getur þetta kerfi komið sér vel fyrir eftirlitsbila löggæzlunnar, þegar þeir þurfa að koma áríöandi skila hoðum til höfuðstöðvanna. Sagði Hjálmar að kerfið hefði komiö að góðu haldi við H-breytinguna þar nyrðra. Annars iét Hjálmar vel yfir breytingunni. — Menn kunna vel við sig á hægri kantinum og halda sig á honum úr þvi þeir eru komnir þang að á annað borð, sagði hann. Ann- ars eykst vandinn eftir því sem frá liður. Menn eru farnir að auka hraðann og sumir kannski full fljótt. Það virðist sem brosið sé dottiö at' sumum ökumönnum nú þegar og þeir þykiast ekki vera neinir byrj- endur í H-umferð lengur. Feguröardrottning islands ‘68 giftir sig og| afsalar sér rétti til keppni um Miss Universe á Langasandi — Sjá bls. 10 I vikulokin 44 Ráðizt hefur verið í að endur prenta átta tölublöö af ,,Vísi í vikulokin“, sem lengi hafa verið uppseld. Er ætlunin, að áskrif- endur geti fengið ókeypis blöð úr þessari endurprenfun, ef þá vantar blöðin í safnið si^t- Verð- ur nánar auglýst sið.ar, hvenær þessi blöð vérða'afhen^. Engir aðrir en áskrifendur geta fengiö þessi blöð og þau verða ekki lii sölu sérstaklega. Athugið einnig, að ný tölublöð eru aðeins borin til áskrifenda, en ekki seld í lausasölu. Þeir, sem verið hafa áskrif- endur Vísis undanfarið rúmt ár, hafa smám saman eignazt safn af „Visi í vikulokin", sem er yfir 500 króna virði. Það borg ar sig að gerast áskrifandi að Vfsi. Seint flýgur fiskisaga: af Vestmannaeyjum 6. maí — Fréttin barst fiskifræðingum i gær ■ Undantekningarnar sanna regluna, segir mál- tækið. Það er því ekki allt- af^ sem fiskisaga flýgur fljótt“. Að minnsta kosti finnst Jakobi Jakobssyni, síldarsérfræðingi það ekki. Hann frétti það fyrst í gær, að 6. mai síðastliðinn sigldi erlent saltflutningaskip í Hef staðið nokkuð jafnt // gegn Friðriki hingað til 44 — segir ungverski stórmeistarinn Szabo Friðrik Ólafsson gengur til prófs i lögfræði klukkan hálf ellefu í morgun. ■ í gær kom hingað til lands stór- meistarinn Laszlo Szabo frá Ung- verjalandi, og mun hann tefla hér á aiþjóðlegu skákmóti eftir nokkra daga, þar sem t'jölmargir erlendir stórmeistarar og innlendir meist- arar munu leiöa saman hesta sína. Þeirra á meöal er fslenzki stór- meistarinn Friðrik Ólafsson. Óhætt mun að fullyrða, að öll þjóöin mun fylgjast með áhuga með þessu skák- móti, sem er eitthvert hið sterk- asta, sem hér hefur veriö haidið. VÍSIR náði tali at' Szabo í'morgun á Ilótel Sögu, þar sem Iiann hal'ði nýlokið við að snæöa morgunverð. — Þér hafið ekki komið áður til Islands? — Nei, þetta er i fyrstá sinn. Mér hefur verið boðið hingað áður, en ekki átt kost á að taka því. Mótið, sem hér verður haldið, er mjög sterkt, og ekki unnt að fullyrða lim úrslit, l’yrr en því er lokið.. — Hvernig haldið þér, að Friðrik standi sig? — Þaö er undir ýmsu komið. Ég hef heyrt, að hann hyggist ljúka námi. Skákin þarf að eiga hug manns allan. Eftir 2—3ja ára náms- ástundun má búast við, að Friðrik sé ekki í fullri æfingu, en vissu- lega er hann einhver alira sterkasti skákmaður heims, þegar hann er upp á sitt bezta. Árangur hans á mótunum í Dublin og hér á íslandi lofar góðu. — Hvaö um hina ungu tslend- inga, er nú koppa? — Þeir eru auðvitaö, enn sem komiö er, lítt kunnir í skákheim- inum. Þeir þurfa að láta til sín taka á stórmótum erlendis. Margir þeirra lofa góðu. — Teljið þér sjálfan yður í góðri æfingu? — Um það verður aldrei fullyrt, 10. síða. ■ gegnum 5 rnílur af vaðandi síld suður af Vestmanna- eyjum. Skipverjar saltskipsins sögðu frá vaðandi síldinni, þegar þeir komu til Keflavíkur. Keflvikingar reyndu að ná sambandi við rannsóknaskip ið Árna Friðriksson til að skýra frá fregninni, en árangurslaust, þar sem skipið iá í höfn á þeim tfma. Þeim hugkvæmdist ekki að hringja í Jakob eða aðra á Hafrarwi sóknastofnuninni og því gleymdist fiskisagan aftur. Það er sárgrætilegt, að þeir skyldu ekki hafa samband við okk ur sagði Jakob, þegar Visir talaði við hann í morgun. Hafþór fór til síldarleitar daginn eftir að salt- skipið' varð vart við síldina. Þrem- ■ > 10. síða. Ungverski stórmeistarinn á Hótel Sögu í morgun. Atfa ára drengur drukknar Átta ára gamall drengur fannst drukknaður í hyl í Tunguá. skammt neðan við bæinn Iðunnarstaði í Lundarreykjadal, í ' fyrrakvöld. Drengsins hafði verið saknað, þeg- ar heimkoma hans þótti dragast á langinn. en hann hafði farið að huga að lanrbám um kvöldið. Drengsins var leitað all lengi, áður en lík hans fannst í hvlnum, en eftir öllum sólarmerkjum aö dæma hefur hann hnotið, eða með einhverjum hætti dottið í ána. Nafn hans verður ekki birt að sinni vegna aðstandenda, sem enn hafa ekki fengið vitneskju um frá fall hans.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.