Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 3
OGREIDDIR f REIKNINGAR' LATIÐ OKXUR INNHEIMTA... Það sparar ydur t'ima og óþægindi INNHEIMTUSKRIFSTOFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæð — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3l'mur) Krakkar á traktor *• \ Orfirisey Uti í Orfirisey, þar sem börnin reyndu traktorana, höfðu Slysavarnafélagsmenn komið upp bjarglínu með bjargstól, nokkuð, sem vakti mikla forvitni strákanna. „TTeyrðu manni! Hvenær för- Aum við út í eyju á traktor- ana?“ Fjöldi barnsandlita horfði spurnaraugum á Jón Pálsson frá Æskulýðsráði, sem allir krakkar þekkja úr Tómstunda- tíma barna í útvarpinu. Hann stóð inni f miðri þvögu barna í húsi Slysavarnafélags- ins vestur á Grandagaröi og streittist við að hafa hemil á allri kösinni, sem ólm og upp- væg vildi byrja strax á trakt- orunum. „Fyrst skulum við horfa á bíómynd, krakkar. Langar ykk ur ekki til þess?“ sagði þá Sig urður Ágústsson, framkvæmda stjóri Varúðar á vegum, sem þama var kominn Jóni til hjálp ar. Jú, þau tóku vel í það og allur skarinn hélt inn í sýning arsaiinn, þar sem þeim var sýnd áhrifamikil kvikmynd um hjálp í viðlögum og kona út- skýrði fyrir þeim munn-við- munn blástursaöferðina. Myndsjáin skrapp út á Grandagarð í fyrradag, þar sem Sigurður og Jón, ásamt Jóhannesi Eiríkssyni, ráðu- naut frá Búnaðarfélagi íslands, og nokkrum félögum úr Siysa varnafélaginu, voru með hóp barna á Búvinnunámskeiði, sem haldið er á vegum Æskulýðs- ráðs borgarinnar og Búnaðarfé lags íslands. Náskeiðið hafði byrjað á mánudag í Gamla. bíói, þar sem börnunum voru sýndar kvik- myndir úr sveitinni, en þennan miðvikudag var á dagskránni hjá þeim öryggi í akstri drátt- arvéla, slysahjálp og öryggi við sjó og vötn. „Það var svo mikil aðsókn að þessu hjá börnunum, að viö erum bara i vandræðum. Þau eru 200 núna og höfum við þó sleppt einum árgangi, sem við höfðum í fyrra“, sagði Jón Pálsson Myndsjánni. „Já og gátum ekki tekiö önnur börn, en úr Reykjavík.“ Þetta voru börn á aldrinum 11 til 14 ára, sem komu í flokk um þennan dag. 11 ára kl. 9 um morguninn, 10 ára kl. 10 o. s.frv. Það voru 13 ára börn, sem við horfðum á eftir inn í sýning arsalinn. Meðan þau horfðu á myndir af barni, sem fallið hafði i sundlaug, en var bjargað á síðustu stundu með munn-við- mtmnaðf.erðinni ,og á mynd af kappsiglingu hraðbáta, skýrði Jón Myndsjánni undan og ofan af námskeiðinu. Á þriðjudag höfðu þau heim sótt Skógræktarstöðina í Foss vogi og á fimmtudag (í gær) skyldu þau hlýða á fyrirlestra og sjá myndir um garðyrkju og þeim skyldi sýnd hún verk- lega. En í dag ætluðu þau á skeiðvöll Fáks til þess að bregða sér á bak. Þegar börnin komu út af sýningunni og eftir aö þeim höfðu verið sýnd bjargtæki Slysavarnafélagsmanna, hélt allur skarinn út í eyju. Hver og einn fékk að' reyna sig á traktor — stelpurnar líka, sem voru í engu áhugaminni, en strákarnir. „Hvernig finnst þér?“ spurði Myndsjáin einn, sem sagðist heita Ásgeir Gunnarsson, 11 ára, og átti heima í Sólheim- um 27. „Það var ágætt.“ „Gaman?“ Já, já. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég keyrði traktor." Hann lét vel yfir tegundinni Nú er að bakka inn og á meðan horfa hin á, sem bíða í röðinni. Asgeir Gunnarscon, 11 ára, fær hér Ieiðsögn hjá Sigurði Ágústssyni. og sagðist kunna prýðilega við gripinn. Honum hafði líka fund izt gaman að bíómyndunum og hinum þáttum námskeiðsins, og var alveg sannfærður um það, að hann kynni núna munn- við munn-aðferðina. • Myndsjáin skildi við þau, þar sem þau „bökkuðu" og beygðu framhjá þúfum og torfærum á splunkunýjum vélum frá „Þór hf.“, „Glóbusi" og SlS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.