Vísir - 06.06.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 06.06.1968, Blaðsíða 2
Bættu metíð um húlfu mínútu! F'fógur met sett á sundmótinu i gærkvöldi ■ Nú byrja sundmetin fyrir alvöru aö hrynja eitt af öðru. Það gerir tvennt, - gífurlegar framfarir margra beztu sund- manna og kvenna okkar og að nú er keppt í 50 metra braut og metin þar „ónumið land“, ef svo mætti segja. Sigrún Siggeirsd. og Hrafnhildur Kristjánsd. á sundmótinu i gær Ellen Ingvadóttir, aðeins 16 ára gömul stúlka úr Ármanni, tók metið í 200 metra bringu- sundinu af Hrafnhildi Guðmunds dóttur, synti á 3.01.6 og vann öruggan sigur í sundinu, en Hrafnhildur var ekki með i þessari grein. Hins vegar tókst Leikni Jónss. ekki að bæta met Haröar B. Finnssonar í þessu sundi i karlaflokknum, Hann fékk tímann 2.45.7, en metið er 2.42.1, sett 1964. Leiknir lenti nýlega í bilslysi og hefur enn ekki náð sér fyllilega, en metið í þessu sundi ætti ekki að standa lengi í veginum. Hrafnhildur Kristjánsdóttir setti ágætt met í 100 metra flugsundinu, bætti eigið met um 2.1 sek, synti á 1.17.6. Hin met- in voru sett í 4x100 metra skriðsundunum, Ármannssveitir voru f bæði skiptin að verki. Stúlkurnar (Hrafnhildur — Ellen — Sigrún og Matthildur) syntu á 4.48.0 sem er mjög góður tími, og bættu met Selfossstúlknanna um heila sekúndu. í karlasundi setti Ármannssveitin glæsilegt met, bætti fyrra metið frá í fyrra um nærri hálfa mínútu, eða úr 4.41.1 í 4.12.9 mín. Þrjár fyrstu sveitirnar voru allar undir gamla metinu, Ármann-b á 4.30.5 og Ægir á 4.33.7 min. ■ I gærkvöldi v«ru 4 íslandsmet slegin í Laugardalslaug- inni, þrátt fyrir allt of míkinn klór í lauginni, sem gerði mönn- um erfitt fyrir, því að klórinn fer illa í augun, og að auki var vatnið mjög skítugt, sem sundfólki finnst mjög bagalegt í kappsundi. Skemmtilegasta keppnin í gærkvöldi var þó milli þeirra Hrafnhildar Guömundsdóttur og hinnar kornungu Sigrúnar Sig- geirsdóttur í 100 metra feak- sundinu. Að vísu mistókst met- tilraun þeirra, en hnifjafnar komu þær í markið á 1.18.6 sem er 4 sekúndubrotum lakara en met Sigrúnar. Eflaust eiga þær báðar eftir að fara langt niður fyrir þann tima á næstunni. Sigrún var dæmd á undan í þessu sundi. Hrafnhildur varin hins vegar 100 metra skriösundið á 1.06.0 en 200 metra skriðsund vann Guðmundur Gíslason á 2.14.0 og 100 metra flugsund vann Guðmundur, jafnaði þar met sitt, synti á 1.03.6. Loks vann Gunnar Kristjánsson, Ármanni, 100 metra baksund á 1.15.4. Guðmundi Gislasyni var af- hentur bikar í gærkvöldi i heið- ursskyni fyrir það afrek að hafa sett 100 Islandsmet í sundi. Voru það Sundsamband íslands og Sundráð Reykjavíkur, sem gáfu bikarinn. Hrafnhildur Guðmunds dóttir á án efa eftir að ná þess- um áfanga, en met hennar eru orðin 70 talsins, — þriðji í röð- inni er lærifaðir þeirra Jónas Halldórsson, hann setti 54 met á sínum tíma, og þótti talsvert þá. Námskeið í frúarleikfimi I dag hefst námskeið í frúarleik- fimi á vegum Judofélags Reykja- vikur, á 5. hæð í húsi Júpiter & Marz á Kirkjusandi og verða æf- ingar á mánudögum og fimmtudög- um kl. 8.30—9.30 á kvöldin. Áherzla verður lögð á alhliða þjálfun, en einnig verða kennd ýmiss brögö, sem komið geta að notum í vöm gegn likamsárás. En því ber ekki að neita, að sá sem er þjálfaður og hefur lært sérstak- lega sjálfsvarnaraðferðir, stendur mun betur að vígi en þeir, sem aldrei hafa reynt slikt, ef til átaka kemur. Hátt gráðaöur judoþjálfari mun kenna á námskeiðinu. Nú er einnig að hefjast judo- námskeið fj'rir skólafólk, drengl frá 12 ára aldri, og eru æfingar þeirra á sama stað og á sömu dög- um kl. 6—8 á kvöldin. Þjúlfaranámskeið í Danmörku Borizt hefur boð frá danska handknattleikssambandinu um að senda 2 þjálfara á námskeið 1. stigs, sem fram fara f Vejle á tímabilinu 3.—7. júlí eða 23.-27. júlí. Geta þátttakendur valið um, hvort tímabilið þeir kjósa fremur. Þeir þjálfarar, sem hug hafa á að sækja riámskeið þessi tilkynni það stjórn H.S.Í. fyrir 11. júní n.k. FENGU 0 •I GERÐU ÞO HEIÐARLEGA TILRAUN Vestmannaeyingar fengu „eldskírnina#/ í gærkvöldi B Vestmannaeyingar gerðu heiðarlegar tilraun- ir til að halda uppi léttum og skemmtilegum samleik í gærkvöldi í sínum fyrsta „stórleik“, þegar þeir léku í Keflavík við atvinnu- mennina frá Essen. Að vísu • England, heimsmeistararn- ir 1 knattspyrnu voru í gær siegnir út i undanúrslitunum i Evrópubikarkeppni landsliða. Það voru Júgóslavar, sem unnu þá með 1:0 í Flórens á ítalíu. • Leikurinn virðist hafa veriö mjög jafn, því sigurmarkið lauk leiknum með léttum sigri Þjóðverjanna 4:0, en enjgu að síður voru tilraun- ir Eyjamanna ekki sem verstar oft á tíðum. Framlinan hjá ÍBV-liðinu átti sannarlega skilið að skora a.m.k. eitt mark í ieiknum, en það vantaði þetta afgerandi, skotin, það var var ekki skorað fyrr en á 43. mínútu í siðari hálfleik af Dzajlc. • ítalir og Júgóslavar leika til úrslita í keppninni. Úr- slitin fara fram í Róm á laugar- daginn. engu líkara en framlínumenn væru dauðfeimnir. Vamarmennim- ir voru hins vegar lítt feimnir og í varnarmálunum var það Viktor Helgason, sem hafði öll tök í höndum. 1 byrjun ieiks skoruðu Vest- mannaeyingar að vísu mark, en markið var réttilega dæmt af. Hannes Þ. Sigurðsson sá það sjálf- ur, enda þótt línuvarðar nyti ekki við, þeir höfðu báðir tekið að sér syðri helming vallarins í ógáti,- • Eftir 18 mínútur skorar Wirsching útherji 1:0 eftir iagiég- an leik Þjóðverjanna og goða'serid- ingu miðherjans. • 2:0 7 mfn. siðar. Sumum fannst ólöglega sótt að Páli mark- verði, sem var á undan að ná i boltann, en Vollmer miðherji krækti boltanum til sín og skoraði. • Á 38. min. skorar Bauer- kámpfer með marki, sem allir vilja sjá í kappleik, jafnvei frá and- stæðingum, þrumuskot af 15 metra færi, gjörsamlega óverjandi. • Þegar 2 min. voru eftir skor- ar varamaður, sem kom inn 4:0 upp úr þvögu innan vítateigs. Um 1000 áhorfendur komu til að sjá þennan leik þrátt fyrir kulda- | gjóstur af norðri. Hálf er það nú | óviðkunnanlegt að heyra stálpaða pilta og jafnvel fullorðna menn I hrópa „heil Hitler“ í háðungarskyni eftir þessum þýzku gestum okkar. Heimsmeistararniri voru slegnir út ! Italia og Júgoslavia leika til úrslita i Evrópukeppni landsliða Vestmannaeyingar sækja þarna aö þýzka markinu, en án árangurs.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.