Vísir - 08.06.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 08.06.1968, Blaðsíða 1
\ Varizt hraðan akstur 58. áí*g. - Laugardagur 8.> júní 1968. - 124. tbl. Lögreglan er um allt, á hjólum, meó radar eða skeiðklukkur — Lögbrot ; af þessu tagi geta kostað talsvert fé — 560 sektaðir á tveim vikum Það er furðuleg staðreynd að 560 ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur frá því H-umferð var tekin hér upp fyrir nær tveim vik- um. Flestir ökumannanna hafa orðið að greiða sektir, allt frá 400 og upp í 1500 Frá fundi Gunnars Thoroddsen í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld, en þar var fullt hús stuöningsmanna og mikill einhugur rikjandi. MEIRI UMSVIF AÐ FÆRAST í KOSNINGAUNDIRBÚNINGINN Stuðningsmenn beggja frambjóðenda bjartsýnir — Dr. Gunnar Thoroddsen tekur upp óformlegat kosningaaðferðir — Stuðningsmenn dr. Kristjáns E*!djárns leggja að honum að fara / kosningaferð Nú fer ööum að styttast í forsetakosningarnar, sem verða haldnar sunnudaginn 30. júni næstkomandi. Nokkur hiti er að færast í kosningarnar, en búast má við og vonazt til að meiri hiti eigi eftir að færast í þær eftir þvi sem líður á mánuðinn. — Skoðanir manna eru mjög skiptar um það, hvor frambjóð- endanna sé líklegri til að hljóta kosningu. Stuðningsmenn dr. Gunnars Thoroddsens, sendi- herra, eru sifellt að verða bjart- sýnni og stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjáms, þjóðminja- varðar eru einnig mjög sigur- vissir. Dr. Gunnar Thoroddsen hefur nú haldið 3 kynningarfundi úti um landsbyggðina, er þykja hafa tekizt mjög vel. Mikill fjöldi manna hefur sótt fundina í Stykkishólmi, Hellissandi og í Vestmannaeyjum. Þá vakti það mikla hrifningu í Vestmannaeyj um í fyrradag, þegar dr. Gunn- ar Thoroddsen heimsótti fjórar fiskvinnslustöðvar og gaf sig á tal við fólk þar. Þóttu þetta skemmtileg nýmæli í íslenzkri kosningabaráttu. Stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns hafa lagt mjög að hon- um að fa'ra í svipaða kynningar- ferð og andstæðingur hans í kosningunum. Er ekki enn af- ráðið hvað úr verður, þó frek- ar sé búizt við að hann slái til. Vísir sneri sér til skrifstofa stuðningsmanna beggja fram- bjóðendanna til að heyra hljóð- ið í báðum aðilum. Fara stult viðtöl hér á eftir við Ragnar Jónsson i Smára, sem stjórnar slcrifstofu jwúrra Kristjáns- manna og Val Valsson, stud. oecon, sem ásamt Pétri Sæmund | sen stjórnar skrifstofu Gunnars- j manna. Valur Valsson: Allt bendir til jbess að Gunnar vinni glæsilega Kynningarferðin og undirtekt- ir þær, sem Gunnar "hefur hvar vetna hlotið sýna ótvírætt. það geysilega fylgi, sem hann á aö fagna. Undirtektir á' fundunum hafa verið afbragðsgóðar og and- rúmsloftið létt og skemmtilegt á þeim. Það eru þó ekki aðeins fundirn ir, sem gefa ástæðu til bjartsýni, heldur einnig þær viðtökur, sem hann hefur fengið á götum úti þar sem hann hefur komið. — Það má alltaf. búast við því, að meira sé um fólk, sem er fyrirfram hlynnt Gunnari, sem sækir fundina. Viðtökur fólks á stöðunum hafa v'erið mjög jákvæðar. Gunnar gekk t.d. inn f fjórar fiskvinnslustöðvar í Vestmannaeyjum í gær og ræddi við fólk. Þaö ýar greinilegt að fólk kunni þvi vel og fagnaði það Gunnari. Það er nú orðið einsýnt ,að Gunn ar hefur verið að vinna á allan tímann síðan kosningabaráttan h»fst. — Allt bendir nú til þess að hann muni vinna glæsilega. Ragnar Jónsson: Kristján hefur s/emmn-J inguna með sér Það hefur verið lagt mjög hart að Kristjáni frá fólki úr öllum hér uðum landsins, að hann fari i kosn- ingar — og kynningarferð um land ið. Við stuðningsmenn hans erum nú að reyna að pressa hann að fara, en ekki hefur verið afráðið enn, hvað úr þessu verður. Það er svo margt annað, sem gera þarf í kosningaundirbúningnum, t.d. undirbúa sjónvarpsþætti o.fl. Kristján verður einnig upptekinn 10. síða. krónur. Lögreglustjórinn í Reykjavik segir f bréfi tfl blaðanna í gær að dæmi séu þess að ökumenn hafi verið stöðvaðir á 80-90 km hraða á götum íbúðahverfa. Ætti hver heilvita maður að sjá að slíkur akstursmáti í umferð þar sem allir eru fákunnandi, er hreint glaþræði. Þess vegna ættu menn að minnast þess, að hafa i heiðri jafnframt, að 35 km hámarks- hraði gildir alls staðar t þétt- býli, og einmitt þetta atriði er grundvöllur þess að umferðar- breytingin gangi vel. Lögregluþjónar eru nú óvenju víða um borgina eins og menn hafa tekið eftir, 40 lögreglu- menn frá umferðardeildinni eru á vakt allan daginn og til mið- nættis. Um götumar bruna 10 bifhjól útbúin talstöðvum og að auki 3 bilar. Viða eru lögreglu- menn með skeiðklukkumæling ar og radarmælingar eru gerðar vfða um borgina á hverjum degi. „Því miður verðum við að vera harðir gagnvart brotum á ökúhraða", sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn umferðardeild arinnar í gærkvöldi, „en verðum við varir við brot, sem stafa af vankunnáttu, munu okkar menn ekki sekta ökumenn, heldnr leiðbeina þeim og hjálpa ems og hægt er." Það er því heldur dýrt sport eins og stendur að stunda hrað akstur i Reykjavík, áhættan er mikil, mjög sennilega vérður ökumaður stöðvaður og þá verð ur hann fljött 400-1500 krönum fátækari, — og e.t.v. verður ökutækið kyrrsett um tima, ef sérstök ástæða þykir tfl. Þýxk skapvónzka á Laugardalsvelli í gærkvöldi sjá bls. 2 Þúsundir manna vottuðu í gær Robert Kennedy hinztu virðingu | lóndum rómversk kaþólskra til þess að ménn geti komið j>ar og beðizt fyrir. — Astvinir stóðu heiðursv'órð við kistuna Yfir 4000 manns á klukku- stundu hverri vottuðu í gær Robert Kennedy öld- ungadeildarþingmanni hinztu virðingu með því að ganga fram hjá viðhafn- arbörunum, sem lík hans hvílir á, í dómkirkju heil- ags Patreks í New York. Nánustu ástvinir hins látna og embættismenn sem störfuðu með honum í dómsmálaráðuneytirtu. er hann var dómúnálaráðherra. skipt ust á að standa vörð við kistuna. Bróðir hans Edward Kennedy öld- ungadeildarþingmaður, stóð vörð við kistuna í nótt. Þegar hinar þungu dvr dómkirkjunnar opnuö- ust til að hleypa skara syrgienda inn, vottuðu 25.000 hinum látna hinztu virðingu. Margir urðu að bíða klukkustundum saman og margir grétu án þess að reyna að dylja það. Fólkið var allra stétta - blakkt og hvítt, ungir og aldnir, á öllum aldri. Kistan var skrautlaus, úr mahogny viði og logaði á sex gulum kertum við hana. Meðal heiðursvarða við kistuna voru tveir elztu synir hins látna; Joseph 15 ára og Robert yngri 14 ára. Edward Kennedy stóð heiðurs- vörð viö kistuna mestan hluta næt ur í fyrrinótt. Þegar ættingjarnir voru farnir á fimmtudagskvöld varð hann eftir | og stóð milli kistunnar og altaris- j ins með rósasveig og bænabók i j höndum. John Lindsay borgarstjóri New York kom í kirkjuna í gær vafði frú Etbel, ekkju hins látna örmum og bað henni guðs blessunar. I þrönginni fyrir utan leið yfir 15 manns. I dag verður sungin sálumessa í klrkju heilags Patreks yfir hinum látna og síðan veröur kistan flutt til Washington, þar sem hún verð ur jarðsett.í Arlington kirkjugarði sem fyrr var greint. Starfsmenn Kenpedy flugvallar lögðu niður vinnu i dag til þess að geta vottað hinum látna hinztu virðingu. Úr ýmsum löndum berast fregn- ir um rika samúð almennings. — Kirkjur eru hafðar opnar víða i Vonh* um að ísinis hverfi í þessum mnnudi segir Páll Bergbórsson veðurfræðingur „Ástandið hefur breytzt mjög til batnaðar undanfarna daga“ — sagði Páll Bergþórsson veðurfræð- ingur er við sjiurðum hann um haf- isinn í gær. „Vonandi hverfur hann að mestu nú i þessum mán- uöi. ísinn hefur fjarlægzt og gisn- að mjög mikið við Norðausturland og við Austfirði er nú mjög lítill ís. Ég hcld að ísinn ætti ekki að verða til trafala úr þessu“, sagði Páll ennfrcmur. 10. síða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.