Vísir - 11.06.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 11.06.1968, Blaðsíða 4
Kvikmyndaleikári nokkur í Bandaríkjunum heitir Leif Eric- son í höfuðiö á allfrægum manni. Hann hefur lengi léikið smærri hlutverk í kvikmyndum, en eins og svo margir óánægðir kvik- myndaleikarar leitaði hann é náð ir sjónvarpsins og hefur nú slegið í gegn f sjónvarpsþáttunum ,,High Chaparral." Frægðinni fylg ir nokkurt oflæti, því að nú hefur Leifur kært nágrannakonu sína fvrir atvinnuróg og fer ekki fram á minna en litlar 100 milljónir fyr ir æruna. Kona nokkur sem býr í nágrenni hans er ákærð fyrir að hafa dreift óhróðri um Leif og dóttur hans 16 ára gamla. (Leifur vill fá fimm milljónir fyrir æru dótturinnar). Konan heldur því fram, að Leifur sé „sffullur" og dóttirin, 16 ára, í meira lagi laus Iát. Rolling Stonesi gerast kvikmyndaleikarar * Þaö er nú meira hvað dægurlagahljómsveitir eru orönar listelskar. « Nú hefur þaö spurzt út, aö pop-hijómsveitin „The Rolling Stones“j • hafi í hyggju aö gera kvikmynd — auövitað stórmynd í litum — og J leikstjórinn er ekki valinn af verra. taginu. Það er enginn annar en, J franski leikstjórinn Jean-Luc Godard, sem á aö stjórna myndinni. • Hann er mjög umdeildur meöal listunnenda fyrir skoðanir sínar á • ýmsum málum og framlag sitt til kvikmyndalistarinnar, sem er gífur-a legt aö vöxtum, en misjafnt af gæöum. Ein mynda Godards hefurj sézt hér í sjónvarpinu „Á öndinni", en í henni léku Jean Paui Belm- J ondo og Jean Seberg. Önnur mynd hans „Alphaville" með EddieJ Lemmy Constantine var sýnd í Nýja Bíói. Sem sé: Roilingarnir virð-j ast ekki síður listrænir en t. d. Bítlarnir. Oheppinn unglingspiltur i Danmörku Vard bezta vini sinum ab bana o »■•- vim Það atvik gerðist í Danmörku fyrir skömmu, að 18 ára gamall unglingur Bjarne Hansen varð bezta vini sínum að bana í um- ferðarslysi. Bjarne var á hvíta- sunnumorgun á leiö til dansleiks , með sex kunningjum sínum, í bif- reið föður síns. Þeim hafði öll- um verið boðið til mikillar hátfð- ar og skyldi þar dans upphafinn, er þeir kæmu. Ekki tókst betur Sammy Davis fullur öryæntingar eftir skilnaðinn við May Britt smum til, er þeir óku eftir þjóðveginum, að hann ók á tvo „skellinööru“ ökumenn, þá Ebbe Jensen og Al- ex Petersen, 15 og 16 ára gamla. Þeir höfðu verið á hátíðinni og drukkið um 30 bjóra og hálfa flösku hvor af sterku víni. Á- kváðu þeir að reyna „skellinöðr- ur‘‘ sínar í því ástandi og lentu þeir fyrir bifreið Bjarne Hansen. Hentust unglingarnir verulega langan spöl frá þjóðveginum og lágu þar hreyfingarlausir. Stukku þá drengimir sem í bílnum voru þeim til aðstoðar, en þá var Ebbe Jensen látinn. Alex stórslasaðist, en Ebbe var bezti vinur öku- mannsins eins og fyrr greinir. „Ég mun aldrei framar verða ástfanginn", sagði Sammy Davis jr. í Lundúnum nýléga, en þar vérður hann næstu þrjá mánuði og léikur í söngleiknum Goldén Boy, sem sló i gegn á Broadway, 20. júní kémur barn hans til hans til að vera hjá honum í átta vik- ur, en Sammy Davis kvéðst vera niðurbrotinn maður éftir skilnað- inn við Mav-Britt, hina sænsku eiginkonu sína. „Tvisvar hef ég verið reglu- lega ástfanginn", feegir hann, „en í bæði skiptin fór þaö út um þúf- ur. Kærleikurinn hvarf út f veður og vind. í hinum undarlega leik- húsheimi, sem ég lifi og hrærist í, segir önnur hver stúlka við mig „T love you“ án þess að meina nokkurn skapaðan hlut með þvf. í staðinn vildi ég heldur að þeim þætti vænt um mig. Það væri mér miklu mkilivægara." Um hið misheppnaða hjóna- band þeirra May-Britt segif hann: „Það er mannlegt að skjátlast. Það er mjög erfitt að segja: „Ég vil vera hjá þér til æviloka" — og standa síöan við það. En það erfiðasta af öllu er að vera hrein- skilinn. Síðustu tvö árin hef ég verið þreyttur, dauðþreyttur. Ég vann alltof mikið. En ég veit aö þrátt fyrir allt verð ég að halda áfram. Það er hugsunin gm það, sem knýr mig áfram.“ Marama, má ekki skjóta mann? Þétta var spuming f jögurra ára ganials snáða, sem varð áheyr- andi að samtali fullorðins fólks, sém harmaði morðiö á Robert Kennedy. Mamman sussaöi harkalega niöur í snáðanum, en spurningin varö Sfðar hinum fullorönu æriö umhugsunar- og umræðuefni, þvf margur hefur einmitt haidið þvf fram, aö jarð vegurinn, sem börn og ungling- ar vaxa upp í, fordæmi ekki nóg misþyrmingar og morö. í nálega öllum löndum hefur fariö ört vaxandi dýrkun á Dýrlingum og Haröjöxlum, sem eru eins konar ofurmenni f barsmfðum og mis- þyrmingum í nafni réttlætisins. Þó þeir séu ekki látnir myröa eigin hendi, þá leikur dauöinn sér allt í kringum þá og hittir fyrir þá, sem málefninu eru ekki þóknanlegir. Sú saga er aldrei sögð, þegar málefnin, sem bar- izt er fyrir, eru á báða bóga talin réttlætanleg, því Dýrlingur inn berst nefnilega aldrei viö Haröjaxlinn. Skoðanirnar eru svo skiptar, að1 allir telja sig berjast fyrir hinum rétta mál- staö, sem réttlætir dauöa hins, sem stendur f vegi. Þegar svo skoöanimar eru skiptar, þá er stutt f hiö óréttlætaniega of- beldi. Allt f einu virðast auga fólks vera aö opnast , fyrir einmitt þessu, að meðan fariö sé með ofbeldi sem gamanmál á kvik- myndatjaldinu, og eftirlíkingar vopna eru helztu leikföngin og þau vinsælustu, þá er vafalaust hægt aö búast viö að ýmislegt geti hlotizt af því uppeldi ef upp eldið er taliö hafa hin minnstu áhrif. Oft er talað um að skólarnir þurfi aö kenna betta og kenna hitt. En er ekki sama, þó kennd ur sé aukinn kristindómur og ná ungakærleikur f skólunum, ef bömin mega svo leika sér að skammbyssum, þegar þau koma heim úr skóla? Það eru nefni- lega svo miklar andstæöur i okkur öllum og einnig verkum okkar og það hlýtur Iika að koma fram í uppeldisaðferðun- um. En hvað sem uppeldinu viðvík ur, þá hlýtur alltaf aö vera hætta á ofbeldi, á meðan órétt- læti og hatur geta gróið meðal fólksins, en hitt getur oltiö á siöferðisþroskanum, hvemig ein staklingurinn læknar hatrið eöa heldur þvf i skefjum. Siðfræðin og uppeldið kann meöal við því, hvernig menn eiga að taka of- beldi eöa óréttlæti, sem þeir telja sig verða beittir. En meö- an þaö eru talin vera til slik réttlætanleg atvik, þar sem hinn „vondi“ fær makleg málalok, þá veröur aldrei til nægjanleg lækning. En samfara þessum uppeldis lcga þætti fólks, sem svo oft er talað um, þá verður aö taka það einnig með í reikninginn, að nútímanum fylgja auknir and legir sjúkdómar, en moröum og misþyrmingum er einmitt oft fullnægt á valdi geðveiki eða of drykkju. Hvort andlegir sjúk- dómar verða læknaöir eingöngu með þvi aö taka þá einstakl., sem þegar hafa sýnt sjúkdóms- einkennin meö afglönum sínum, þaö hef ég ekki þekkingu á, en eru ekki líkur fyrir því, að ein- staklingarnir séu uppsprottnir eins og jarðvegurinn og and- rúmsloftið gefur tilefni til. Einhvers staðar las ég það, að þar eö holdsveiki og berkla- veiki hefði veriö að mestu brot- in á bak aftur, og krabbamein og hjartasjúkdómar mundu veröa sigraðir innan fárra ára, þá mundi bráðlega veröa hægt aö snúa sér aö andlegum sjúk- dómum, það ei að segja geö- veikl, og alls konar taugasjúk- dómum, sem hafa farið hlut- fallslcga ört vaxandi og munu gera það á næstunni. En annars ætla ég ekki aö fara aö gefa ný uppeldisheilræði ég leyfi mér aðeins aö velta vöngum í tilefni hörmulegra at- burða, þvi slíkt er mjög á dag- skrá manna á meðal um þessar mundir. En eitt langar mig til aö minn ast á, í tilefni þess, aö lögregl- an gerir mikla herferð og kallar inn ólögleg skotvopn. Því ekki að banna sölu á leikfangavopn- um fyrir böm? Er ekki hægt aö gefa bömum eitthvað holl- ara en skammbyssu í afmælis- gjöf eöa skriðdreká í jólagjöf? Það þarf ekki aö taka slík leik- föng úr umferö þannig að kaup menn fái skaða af, þegar slíkt yröi gert, -'n baö mætti banna innflutning á slíkum leikföng- um, og ennfremur banna fram- leiðslu á sliku í landinu. Slfkar reglur ætti aö vera auðvelt að halda því sem betur fer hafa leik fangaframleiöendur verið svo hugmyndar'-ir, aö af nægu er að taka, þó eftirlíkingum morð- vopna sleppi. Ennfremur ætti að vera auð- velt að draga skýrari línur um hvaða kvikmyr-Hr hæfa böm- um og hverjar ekki. Til dæmis ætti að vera auðvelt að vanda betur val kvik -iynda á bama- sýningum kvikmyndahúsa. Til dæmis ætti ekki að sýna sem bamamyndir kúrekamyndir þar sem byssur eru látnar þjóna réttlætinu, enda hlýtur að vera af nógu að taka, sem betur hentar. Þrándur í Götu. UmimGöm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.