Vísir - 12.06.1968, Blaðsíða 2
V í S IR . Miðvikudagur 12. júni 1968,
LITLI-OTTO!
Hann fer frá Siglufirbi til Alpe d'Huez
Otto Tschude, norski skíðakappinn sem sigraði
svo glæsílega á Skarðsmótinu á dögunum stoppaði
ekki lengi í Noregi eftir heimkomuna. Norskir
skíðamenn virðast hafa góðan tíma til að stunda
íþrótt sína, enda næst árangur á alþjóðamótum
ekki öðru vísi.
Otto, eöa Litli-Ottó, eins og
hann er kallaður fór eftir heim-
komuna til Norefjell, þar sem
skíðaþing Norðmanna var hald-
iö, en að því búnu heldur hann
aftur til Osló og þaöan fljúgandi
til Mið-Evrópu þar sem hann
verður í mánuð við skíðaiðkun,
m.a. í Alpe d’Huez. Undir lok
júlí verður Ottó heima, — og
þá koma skíðamenn Norömanna
í alpagreinum saman i Stavern
tilæfinga og síðan á Stryn. Loks
hefst skólinn, en reiknað er með
feröalögum til Mið-Evrópu bæði
fyrir og eftir jól.
Jon Terje Överland, félagi
Tshude, sem varð að þola tap
fyrir Tshude bæði í svigi
og stórsvigi á Skarðsmótinu
hélt til Bandaríkjanna, — hann
mun stunda stunda þar nám í
Denver í Colorado, sem reynd-
ar býður líka upp á stórkostleg
tækifæri til að stunda skíða-
sport. Tchude hyggur reyndar
einnig á nám í Denver að loknu
stúdentsprófi.
Tshude lét mjög vel af gest-
risni Islendinga. Honum fannst
mikið koma til áhugans hér á
landi fyrir skíðaíþróttinni og að
85 þátttakendur skyldu vera
með. Hann talaði um lengstu
stórsvigsbraut í heimi og var
undrandi á að ekki skyldi vera
Litli-Ottó, 19 ára gamall og efnilegasti Norðmaðurinn í Alpa-
greinum í dag. - Hér ræðir hann við Helga Sveinsson,
íþróttaleiðtoga á Siglufirði (Mynd: Hafliði Guðmundsson).
þar skíðalvfta. Skíðamennirnir
þurftu aö „klifra“ ekki minna
en 3 kílómetra upp i brekkuna.
Siglfirðingar voru heppnir aö
fá þessa tvo c. fræknustu alpa-
greinamönnum Noregs til sín og
satt að segja fór ferðaiag þeirra
furöu hljótt Einhvern tíma hefur
ómerkilegri íþróttamenn borið
að garði, og hærra heyrzt frá
fjölmiðlunartækjunum.
jbp.
Keppnin í 2. deild heldur á-
fram í kvöld á Hafnarfjarðarvelli.
Þar eigast við lið Hauka og Þrðtt
ar. Leikurinn hefst kl. 20.30.
18ára stúlka stökk
1.87 í hástökkí
ÁTJÁN ára gömul a-þýzk stúlka,
Rita Schmidt virðist vera líkleg til
að hnekkja meti rússnesku stúlk-
unnar Jolanda Balas í hástökki.
Rita stökk á dögunum 1.87 m, sem
er landsmet. en heimsmet Balas
er 1.91 metri
Náði Rita Schmidt þessum ár-
angri í Sofía. Balas mun hætt að
æfa frjálsar íþróttir. Hún var á
tímabili ein þeirra sem grunuð var
um að vera ekki rétt kynjuð, en
eins og menn muna reis mikið mál
út af læknisskoðunum á Evrópu-
meistaramótinu. Balas er hins veg
ar nýgift og hyggur ekki á frekari
keppni, enda méiddist hún illa á
fæti og hefur ekki náð sér að fuilu.
Iþróttablaðið með yfir/itsgreinum:
Ekki ástæða til að geta
um handboltann?
að um handknattleik í íþróttablaðiö verði gerð grein fyrir handknattleik
fyrr í vetur að ekki ætti að þurfa ! síðari hluta siðasta vetrar í næsta
neinu þar við aö bæta. Hins vegar blaði!
Skákkeppni UMFÍ
Vítaspyrnan þrítekin
en alltaf „brennt af"
— Vitaspyrnu„kómedia" i Kópavogi, þegar
Breiðablik og Selfoss gerðu jafntefli
O Iþróttablaðið, fyrsta hefti þess
árgangs (nokkuð síðbúiö), er nú
komið út. Reyndar er fremur haegt
aö tala um bók cn blað, því að
hér er um að ræða 116 síðna rit-
verk, talsvert samanþjappað, því
að enda þótt margar myndir fylgi
eru þær fremur litlar og „ræna“
litlu plássi frá textanum.
O Eins og venjulega er fyrsta
blað ársins helgað yfirlitsgreinum
um fþróttastarf síðasta árs ásamt
afrekaskrám í frjálsum fþróttum
og sundi.
O Það hlýtur að vekja talsverða
athygli lesenda að af þesum 116
síðum er frjálsum íþróttum helg-
aðar a.m.k. 35 blaðsíður. Knatt-
spyrnuíþróttinni er úthlutað 10
síðum, en þjóðaríþróttinni, glímu,
er komiö fyrir á einum 16 sfðum.
O Enn meiri athygli vekur að á
handbolta, íþróttina, sem við stönd
um oggur skást í er ekki minnzt.
Hins vegar gefur ritstjóri þá skýr-
ingu að svo mikið hafi verið skrif
Hafin er sveitakeppni i skák á
vegum Ungmcnnafélags íslands og
taka 10 héraðssambönd þátt í
keppninni. Keppt er í fjögurra
manna sveitum.
í forkeppni er kcppt í þrcmur
riðlum, og fer efsta sveitin úr hverj
um riðli i úrslitakeppnina, sem háð
verður að Eiðum um leið og lands
möt UMFÍ fer þar fram í næsta
mánuði,
Um síðustu helgi fór fram keppni
í tveimur riðlum forkeppnínnar
Á Akureyri kcpptu Ungmenna- og
iþróttasamband Austurlands,
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
og Ungmennasamband Eyjafjarðar
Fóru leikar þannig: UÍA vann HSÞ
3'/2—Vá, UMSE vann UÍA 2V2—
V/2 og UMSE vann HSÞ V/2-
y2 .Ungmennasamband Eyjafjarðar
hlaut þvi samanlagt 6 vinninga,
UÍA 5 vinninga og HSÞ 1 vinning.
UMSE sá u:n mótið,
Þá kepptu á sama tima i Kópa
vogi lið Héraðssambands Snæfells
ness- og Hnappadalssýslu, Héraðs-
sambandsins Skarphéðins og Ung-
mennasambands Kjararnessþings.
Leikar fóru þannig að UMSK
vann HSH 4—0, HSK og HSH
gerðu jafntefli 2—2 og UMSK vann
HSK 2l/2—iy2- Samtals hlaut
UMSK þvi 61/2 vinning, HSK 3>/2
vinning og HSH 2. vlnnirtga. Skák-
stjóri var Gísli Pétursson. UMSK
sá um mótið.
í sigursveít Ungmennasambands
Eyjafjarðar voru þessir menn: Guö
mundur Eiösson, Ármann Búason,
Hjörleifur Halldórsson og Hreinn
Hrafnsson.
í sigursveit UMSK voru: Lárus
Johnsen, Jónas Þorvaldsson, Bjórg-
vin Guðmundsson og Ari Guð-
mundsson.
Keppni í þriðja riðlinum fer fram
á Blönduósi dagana 22. og 23. júni.
Þar keppa: Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga, Ungmenna-
samband Skagafjarðar, Ungménna-
samband Dalamanna Og Héraðssam
band Strandamanna.
Breiðablik í Kópavogi og Sel-
foss gerðu jafntefli um helgina í
2. deild í knattspyrnu. Lauk
leiknum með 1:1, en í hálfleik
hafði Selfoss eitt mark yfir.
Heldur voru Breiðabliksmenn
betri aðilinn, — en það er ekki
nóg að láta boltann ganga frá
manni til manns, það verðUr að
skora líka, það ætlaði að ganga
erfiðlega.
Um miðjan seinni hálfleik var
Breiðabliki dæmd vítaspyrna. Guð-
mundur Þórðarsjn framkvæmdi
spyrnuna, en „brenndi af“. Dómar-
inn lét endurtake spyrnuna þar eð
markvörður hafði hreyft sig á lín-
unni. Enn gerst það sama þegar
Jón Ingi revnir sig. En markvörð-
urinn kemur enn til bjargar. Hins
vegar hreyfði markvörðurinn sig
ekki í þriðju tilraun, sem Jón Ingi,
hin mesta skytta, gerði. Þá fór
boltinn langt yfir markið!
Það er svo furðulegt, að Breiða-
blik jafnaði nokkru síðar, á víta-
spyrnu! Þá var það Daði Jónsson,
sem kom til skjalanna og skoraði
örugglega. En hvað gerist? Dómar
inn vill að spyrnan sé endurtekin.
Nú hafði' hann ekki verið búinn að
flauta. Daði reynir enn, — og enn
liggur boltinn í netinu.
VÍKINGUR - FH
1:1 í 2. DEILD
Víkingar og FH léku í gærkvöldi
í 2. de, j í knattspyrnu á Mela-
vélli og fóru léikar svo að liðm
skoruöu sitt hvort markið f fyrri
hálfleik, og lauk leiknum svo að
jafntefli varð 1:1.
Kemur þetta nokkuð á óvart
því að FH kom úr 3. deild ,en
Víkingar hafa staðið sig vel til
þessa og í 2. deild unnu ?eir Þrótt
nýlega meö 3:2 og telja margir
Víkinga lfklega til að fara upp í
1. deild í sumar.
Auglýsið í Vísi
Benfica
tapaði enn
— nú heima i Portúgal
Það á ekki af Benfica að ganga.
Liðið tapaði í úrsiitum Evrópu-
keppninnar fyrir Manchester Un-
ited, og um hclgina tapaði Iiðið i
undanúrslitum í bikarkeppni Portú
gals fýrir Porto, með 2:5 saman-
lagt, en seinni hálfleikinn vann
Porto 3:0 og mætir Setubal i úrslit