Vísir - 13.06.1968, Blaðsíða 1
EF'
"f
VISIR
ísl. karlmenn fá ekki að
sýsla með kvenréttindi
—
Fljótlega munu fram-
58. árg. — Fimmtudagur 13. júnf 1968. - 128. tbl.
U ir'l
8IHÉfP
— en norræn kvenréttindafélög eru jafnt fyrir
karla og konur — einn karlmaður situr
norræna kvenréttindafundinn á Þingvóllum
• Fundur norrænna kvenrétt-
indafélaga fer fram á Þingvöll-
um um þessar mundir og sitja
hann auk ísienzku fulltrúanna
23 konur frá Noröurlöndunum
og einn sænskur heimspeking-
ur, dr. Steen Berg. Tveir aðrir
karlmenn komu hingað til lands
ins í tilefni þessa fundar, og
eru þeir báðir f samtökum nor-
ræna kvenréttindafélaga, en
þeir sitja fundinn ekki formlega.
íslenzka kvenréttindafélagið
er eina kvenréttindafélagið á
Norðurlöndum, sem ekki leyfir
inngöngu karlmanna, en á lands
fundi Kvenréttindafélags Is-
lands, sem haldinn var f Reykja
vík nýlega, var borin fram til-
laga um inngöngu karlmanna í
félagið, en tillagan var felld.
samkvæmt upplýsingum frú
Láru Sigurbjörnsdóttir, for-
manns félagsins.
Fjölmörg erindi verða flutt á
þessum norræna þingi, m. a. um
endurskoðun sifjalagabálkanna,
fjölskylduáætlanir, fæðingaror-
lof og fleira. Fundinum lýkiy
16. júní.
Flest dauiaslysin á drátt-
arvélum verSa á börn
»kvæmdir hefjast við að rífa
[ gömlu sundlaugarnar og
► fylla þær upp. Áætlað er að
[breikka Sundlaugaveginn og
»verður þessi gamla Iaug að
[ víkja og leysir hin glæsilega
* sundlaug f Laugardal hana
|af hólmi. Þeir eru ófáir sem
i sakna lr.ugarinnar og minnast
[gamalla tíma þaðan og þeirr
>ar dýrðar að geta legið dá-
' lítinn tíma í heita karinu
i þar. En laugin er Iöngu oröin
1 mjög fúin og gamaldags og
i fullnægði vart kröfum tím-
| ans. En gömlu laugina á sem
, sagt að rífa og blessuð sé
’ minning hennar og undir það
i taka umhugsunarlaust eflaust
| flestir Reykvíkingar, þó sér-
, staklega eldri kynslóðin.
• Helmingur af þeim dauða-
slysum, sem hafa orðið við land-
búnaðarvélar undanfarin 10 ár,
hafa orðið á undanförnum rúm-
lega tveimur árum. Dauðaslys-
in síðan 1958 eru 25, en 1966,
1967 og það sem af er þessu
ári hafa þau orðið 12, sem sýn-
ir að þeim fer uggvænlega fjölg-
andi.
15 af þessum dauðaslysum hafa
orðið á börnum og unglingum und
ir 20 ára aldri. Þetta sýnir að
börnum er miklu hættara við að
slasast en fullorðnum, þegar þess-
ar vélar eru annars vegar. Þarf
það varla að koma neinum á
óvart.
Það er ekki einungis að þroski
barna og unglinga er minni, held-
ur hafa flest börn undir 14 ára
aldri og jafnvel eldri, ekki líkam-
legt afl til að stjórna dráttarvél-
um. Þetta kemur fram í viðtali við
Sigurð Ágústsson, framkvæmda-
m->- 10. síða.
Island í 9. sæti
— eftir 6:14 tap gegn Hollandi
íslenzka sveitin á olympíumót-
inu í bridge vann stóra sigra i gær,
en hún vann Mexíkó 20: -r-4 og
Belgíu 20:0. Hins vegar tapaði
hún fyrir HoIIandi 6: 14. Eftir það
er staða efstu Ilða þessi: 1. ítalfa
273, 2. Kanada 262, 3. HoIIand 260,
4. Sviss 258, 5. Bandarikin 248. 6.
Frakkland 237, 7. Sviþjóð 235, 8.
Ástralía 234, 9. island 233, 10.
Venezúela 208. i kvennaflokki hef-
ur Suöur-Afríka forystu með 156
stig. Svfþjóð hefur 148 og Banda-
rfkin 128.
i dag spila islendingar við Berm
uda, ísrael og Danmörku.
KALSKEMMDIR EKKI EINS ÚT-
BREIDDAR SÍÐAf! 1952
— Fregnir berast um alvarlegar kalskemmdir hvaðanæva að af
landinu. — llla horfir fyrir fjóldamórgum bændum
□ Búnaðarfélaginu eru
nú óðum að berast fleiri
fréttir um kalskemmdir
um land allt. Á þessu stigi
málsins er ekki hægt að
fullyrða um hversu miklar
skemmdirnar hafa orðið,
en óhætt mun þó að full-
yrða, að kalskemmdir hafa
ekki verið eins útbreiddar
Veðurguðir óhagstæðir
forsetaefnum
9 Veðurguðirnir hafa verið
lieldur betur andsnúnir forseta-
efnunum þessa dagana, en stuðn
ingsmenn beggja frambjóðend-
anna hafa þurft að aflýsa áður
auglýstum fundum vegna þess
að frambjóðendurnir hafa orðið
veðurtepptir fjarri þeim stöðum
sem framboðsfundina átti að
halda.
Þetta gerist á versta tíma,
því að nú rtendur undirbúningur
forsetakosninganna sem hæst
og báðir frambjóðendurnir
leggja höfuðáherzlu á dreifbýlið.
Seinna í mánuðinum munu þeir
halda fund' i þéttbýli.
Valur Valsson á skrifstofu stuðn
ingsmanna dr. Gunnars Thorodd-
sen skýrði frá því, að dr. Gunnar
hefði nú ferðazt víða og haldið
fundi, og hefði aðsókn og undirtekt
; ir verið eins og bezt er á kosið.
: í gær ætlaði dr. Gunnar Thor-
oddsen að halda fund á Horna-
i firði, en þeim fundi varð að aflýsa,
! þvi að ekki var unnt að komast
hangað vegna veðurs. 1 kvöld mun
dr. Gunnar Thoroddsen koma á
almennan fund á Akranesi svo og á
, Siiðurnesjuni og um Suöurland.
Þjóðkjör kemur út á morgun, og
ungir stuðningsmenn dr. Gunnars
halda fund í Háskólabíói í næstu
vikq. Valur nefndi til marks um
mótttökur þær, sem dr. Gunnar
hefur hlotið, að fundurinn á Akur-
eyri hefði verið einn sá fjölmenn-
10. síða.
síðan 1952, sagði Jónas
Jónsson, jarðræktarráðu-
nautur Búnaðarfélagsins í
viðtali við Vísi í morgun.
— Okkur eru nú sífellt að
berast fregnir af stöðum,
sem við höfðum litlar á-
hyggjur haft af áður. Allar
nýjar fregnir, sem berast
eru slæmar fregnir.
Kalskemmdir í austanverðri N-
; Þingeyjarsýslu eru miklu verri en
búizt var við. Sömu sögu er að
segja um margar sveitir í Suður-
Þingeyjarsýslu. 1 utanverðum Eyja-
firði eru miklar skemmdir, en bænd
ur þar eru orðnir svo vanir þeim
að þeir eru hættir að kippa sér
upp við það. I innanverðum Eyja-
firði, fyrir innan Akureyri eru
j hins vegar miklar skemmdir, sem
ekki hafa verið áður.
i Þá eru töluverðar kalskemmdir
j i Skagafirði og A-Húnavatnssýslu.
í V-Húnavatnssýslu hafa allir
hrepjiar orðið mjög illa úti vegna
I Kalskemmda, nema á austanverðu
Vatnsnesi, sem hefur sloppið til-
tölulega vel.
Strandasýsla er mjög illa útleik
in, en engar fregnir hafa borizt
úr Barðastrandarsýslu og ísafajarð
arsýslu. í Dalasýslu er ástandið
víða mjög slæmt, sömuleiðis á Snæ
fellsnesi, sérstaklega á sunnan-
verðu nesinu.
1 uppsveitum Borgarfjarðarsýslu
er ástandið víða slæmt sérstaklega
í ofanverðum Norðurárdal.
í mörgum sveitum sunnanlands
hafa bændur orðið fyrir miklum
búsifjum, t.d. í Þingvallasveit
Ölfusi o.. uppsveitum sunnanlands.
Fregnir hafa borizt af þvf að
10. síða.
Ók á vinstra kanti
og lenti í árekstri
Fyrsti áreksturinn, sem beinlínis
j stafaði af vinstri villu 1 hægri um
ferðinni á Akureyri, varð í gær,
þegar splunkunýjum bíl var ekið
á röngum vegarhelmingi. Skemmd
ir urðu ekki miklar, því að sá sem
á móti kom, nam staðar og beið,
en líklega hefur hinn ökumaðurinn
verið blindaður af sterku sólarljós-
inu, því að hann ók samt beint á
hann.
Síðustu viku hafa aðeins orðið
þrír árekstrar, en sex ökumenn
hafa verið stöðvaðir á of miklum
hraða. Flestir voru þeir á 50 til 60
km hraða, en einn, sem stöðvaður
var innan við bæinn, ók á 80 km
á klukkustund.