Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 7
I V ÍS IR . Fostudagur 14. júní 1968. morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd Málaliðar bjuggu um sig í Sorbonne-háskóla — Harbir bardagar / Paris Snemma í morgun tókst frönsk- um stúdentum að hrekja burt leigu- hermenn, sem höfðu búið um sig í Sorbonne-hásköla. Bardaginn var stuttur en harður og notuðu stúd- entamir „Mólotov-kokteila“ en málaliðarnir handsprengjur. Málaliðamir hótuðu því, að E&nskur stúdent búinn til bardaga með hjálm, grímu og hanzka. Stjómarkreppa í Úrúguay sprengja háskólann í loft upp, ef reynt væri að leggja til atlögu við þá. Ekki er ennþá vitað, hversu margir þeirra voru í háskólabygg- ingunni, en gizkað er á, að þeir hafi verið um 30 og ef til vill allt upp í 150. Stúdentarnir voru vopnaðir kylf- um og jámstöngum og þeir Iögðu ótrauðir til atiiigu við málaliðana og um sexleytið í morgun tókst þeim að hrekja þá út á Rue St. Jacques. Eftir þetta lögðu málalið- arnir undir sig Odeon-leikhúsiö, sem hefur verið ein af aðalbæki- stöðvum stúdentaóeirðanna i Par- ís. Meðan barizt var um háskólann brauzt víða út eldur í byggingun- um en slökkviliðið kom fljótt á vettvang og tókst að ráða niður- lögum eldsins. S-víetnamskur rúðherru rekinn úr embætti Suður-víetnamska stjórnin hefur rekið ráöherra einn úr embætti, en hann átti sæti í stjórninni án ráðuneytis. Ráðherrann heitir Phan-Quang Dan, og hann lét nýlega hafa þaö eftir sér í yiðtali í Wasþington, gð stjórnin í Saigon ætti að reyna að semja við þjóðfrelsishreyfinguna, Víetcong. Mikið var deilt um þessi um- mæli ráðherrans í Saigon og mikill hluti þingmanna á þjóðþinginu krafðist þess, að hann yrði kall- aður heim frá Bandaríkjunum og rekinn úr embætti. Forseti Úrúguay, Jorge Paoheo Areco, átti í gær við alvarlega “stjórnarkreppu að etja, eftir að tveir stjórnarmeðlimir höföu sagt af sér í mótmælaskyni, þegar stjórnin sendi út haröorðar áminn ingar tii stúdenta og verkamanna sem staðið hafa að óeirðum að undanförnu. Meira en 250 manns voru hand- teknir í Montevideo f gær, eftir að götubardagar höfðu geisað þar. Stúdentar hlóðu vígi með því aö draga saman bekki og rífa upp götu steina á torgum og götum. Ráðherrarnir, sem sögöu af sér voru menntamálaráöherrann Carl- os Queralto og heilbrigðismálaráö- herrann. Einnig voru gerðar miklar ráð- stafanir í Argentínu til þess aö komast hjá óeiröum, en þar ríkir mikil óánægja meðal stúdenta. Philip Blaiberg á batavegi Franskir stúdentar voru óánægöir með skrif „Francc Soir“ um óeirð- imar, svo að þeir veltu einum af bílum blaðsins, og hér sjást blöð- in fjúka. AUGLÝSIÐ í vási U Thant vill, að herlið S.Þ. verði kyrrt á Kýpur U Thant, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, lagöi til í gær, að hersveitir S.Þ. verði á Kýpur í sex mánuði til þess að viöræður milli grískra og tyrkneskra Kýpurbúa geti fariö fram í friði. I skýrslu, sem U Thant gaf S.Þ., segir, að hið beina samband sem nú er milli deiluaðilanna sé mjög mikilvægt, og hann mælti eindregið með þvi aö samtökin hefðu her- afla sinn þar enn um hríð, en í herliðinu eru 4.629 menn. Viöræöur deiluaðila hófust í Beir ut 2. júní og þær verða hafnar að nýju í Nikósíu 24. júní. Dr. Philip Blaiberg er á batavegi, eftir að hafa veikzt alvarlega af lifrarbólgu. í frétt frá Groote Schuur sjúkra- húsinu segir, aö Blaiberg Iíði vel eftir atvikum. Hann hefur rætt við konu sína og hefur mikinn áhuga á bví, sem skrifað er um hann í blöð. Hann neytti hádegisverðar, sem samanstóð af kjúklingi og 'mkkuðu buffi, segir í fréttinni. Hinn fimmtíu og níu ára gamli hjartasjúklingur var rannsakaður í gær af dr. Christian Bamard og dr. Marthinius Botha. Dr. Blaiberg, sem er tannlæknir að atvinnu, hef- ur Iifaö lengur en nokkur annar maður, sem skipt hefur verið um hjarta í. í gær var nýuppfundið franskt lyf hraðsent til Höfðaborgar, en það á aö nota til að reyna að koma Blaiberg til fullrar heilsu. Læknar vaka yfir honum allan sólarhring- , inn, og kona hans og dóttif komu T heimsókn til hans í gær. Þær fengu þó ekki aö koma inn fyrirt glervegginn, sem er umhverfis ; siúklin.ginn. Brezki verkamannaflokk- urinn tapar þingsæti í gær taþaði brezki Vcrka- mannaflokkurinn þingsæti til í- haldsmanna í aukakosningum til neðri-deildarinnar, sem fram fóru í Norðvestur-Englandi. — Flokkurinn hélt öðru þingsæti, en þó með miklu minni atkvæða fjölda en í síðustu kosningum. Urslitin sýndu, að Verka- mannaflokkurinn hefur að meö- altali misst 17,4% af fylgi sínu miðaö við kosningar í marz 1966. Þ'ó er þetta ekki versta áfallið fyrir Verkamannaflokkinn í seinni tíð, því aö i síðustu aukakosningum tapaöi hann 18% atkvæðá. KENNEDYHÖFBI. — Bandaríkja- menn skutu í gær á loft átta fjar- skiptahnöttum til hernaðarnota. Þeir eiga að vera til að endurbæta fjarskiptin milli varnarmálaráðsins í Washington og hershöfðingjanna í Víetnam. Bretland hefur einnig fengiö leyfi til að hagnýta sér þá hagkvæmni, sem hnettirnir hafa í för með sér. HONGKONG. — Noröur-Víetnamar báru í gær í bætifláka fyrir stór- skotaliðsárás sína í Saígon og sögðu aö það væri ekki annað en hroki Bandaríkjamanna að halda þvf fram að þær hernaðaraðgerðir geti haft nokkur áhrif á samningaviðræðurn- ar f París. BRUSSEL. — Franska stjórnin hef- ur fariö þess á leit viö Efnahags- bandalagsnefndina í Brussel að fá að gera vissar vemdarráðstafanir i viöskiptamálum, vegna áhrifa hinna langvarandi verkfalla, sem verið hafa í landinu. Verndarráðstafanirn ar snúast aðallega um innflutnins frá öðrum löndum Efnahagsbanda lagsins á rafmagnsvélum til heim ilisnota. Nefndin vinnur nú að at- hugunum á því, hvernig bezt verði að koma Frakklandi til hjálpar eft- ir erfiðleikatímana. STOKKHÓLMSBORG. — Forsætis ráðherra Svíþjóðar, Tage Erlander, var í gær einróma endurkjörinn for maður sænska sósíal-demókrata- flokksins, sem heldur ráðstefnu þessa dagana í Stokkhólmi. KAUPMANNAHÖFN. — I gær lauk hinni opinberu heimsókn, Jozet Cyrankiewicz forsætisráðherra Pól lands. Hin opinbera heimsókn stóð í þrjá daga, og aö henni lokinn' flaug forsætisráðherrann ásamr fylgdarliði sínu til Varsjár. Hann ræddi viö Baunsgaard forsætisráð- herra Danmerkur og aðra áhrifa menn þar um aðferðir til að reyna að draga úr spennu í Evrópu. HELSINKI. — Urho Kekkonen for seti Finnlands fór í gær af stað tU Moskvu, en hann mun verða gest ur í Sovétríkiunum í næstum þvt tvær vikur. Heimsóknin er ekki op inber, en engu að síöur mun Kekk onen væntanlega ræða við marea af sovézku valdhöfunum, m. a Nikolai Podgorní forseta. Kekkonen mun koma aftur til Helsinki 24 júní. NEW YORK. — Band.aríkin, Bret land og Sovétríkin fóru I gær fram á það að boöaö yrði i skyndi ti> fundar í öryggisráðinu, til þess af þar verði gefið loforð um að veita þeim þjóðum aðstoð, sem kunna a* verða fyrir árás kjarnorkuvopna Þetta er eitt af þeim atriðum. sem samstaöa verður að nást um, áðm en samningurinn um heftingu A frekari útbreiðslu kjarnorkuvopn-r' verður undirritaður. Arthur Gold terg fulltrúi U.S.A. hjá S.Þ., sem et formaður ráðsins í júní, hefur ræt* þetta mál við aöra meðlimi þess ti' þess að fljótt verði hægt aö ná sam komulagi, en Indland og Alsír, sem gagnrýnt hafa hinn nýja sáttmála munu hafa beðið um frest til frek- ari íhugunar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.