Vísir - 24.06.1968, Blaðsíða 5
Þögulir utanríkisráðherrar
Niels Sigurðsson:
Víetnam til umræðu
Níels P. Sigurösson, ambassa-
dor íslands, og fastafulltrúi ís-
lands hjá Atlantshafsbandalag-
inu kom einnig með Boeing þot-
unni frá Brussel. Vísir náöi
stuttu viðtali viö hann á Kefla-
víkurflugvelli:
Á fundum sem þessum er
einn fastur dagskrárliöur til um
ræöu, og er þar fjallað um á-
standið innan bandalagsins. Þá
geri ég ráö fyrir, að rætt veröi
um Víetnam-málið og horfur á
friði þar. Berlínarmálið verður
eflaust rætt, svo og skýrsla
Harmels, belgíska utanríkisráð-
herrans, um framtíðarvérkefni
Atlantshafsbandalagsins.
Níels sagði sér ekki vera kunn
ugt um. að íslenzka sendinefnd
in myndi bera neitt mál upp á
fundinum, sem mundi verða of-
arlega á baugi. Þð væri það op-
ið. Sagði Níels að íslendingar
myndu að sjálfsögðu fylgjast
nákvæmlega með öllu er fram
færi og taka þátt í umræðum
eftir því sem tilefni gæfi til
og ástæöur þættu.
Hvernig líður þér, Rusk?
Hvernig líður þér, Rusk,
spurði Brandt, starfsbróöur sinn
þegar þeir hittust fyrir utan bú-
Dean Rusk utanríkisráðherra Bandaríkjanna : æðir við frétta-
menn við komuna til Keflavíkurflugvallar á laugardag.
staö Rolvaags, sendiherra Banda
ríkjanna kl. 1 í gær. Þeir héldu
þar sérstakan fund vegna tak
markana þeirra, sem ríkisstjórn
A-Þýzkalands hefur sett á ferða-
frelsi V-Þjóöverja milli milli V-
Berlín og V-Þýzkalands. — Mér
Iíður bærilega, svaraði Rusk, en
hann er nýkominn af sjúkrahúsi
þar sem hann lá þar til rétt
áður en hann hélt til íslands.
— Og þú, Brandt, hefur ver-
iö önnum kafinn upp á síðkast-
iö, sagði Rusk.
— Já, heldur betur, svaraöi
Brandt. Síðan gengu þeir inn
eftir að hafa heilsað nokkrum
mönnum. — Meira fengu blaöa-
menn ekki út úr því, aö fylgjast
meö þeim, þegar þeir hittust,
nema hvað Rusk skiptist á
nokkrum orðum „um veðrið“
meðan beöið var eftir Brandt
fyrir utan sendiherrabústaöinn.
Luns hinn
vingjamlegasti
. Viöbrögð ráðherranna gagn-
vart fréttamönnum voru sömu-
leiöis ærið misjöfn. Sumir þeirra
settu undir sig hausinn, staö-
ráðnir í því að komast sem
fyrst í gegnum þvöguna án þess
að segja mikið. Aðrir voru vin
gjamlegri, eins og t. d. Luns
frá Hollandi, sem var hinn elsku
legasti. Hann kom með útrétta
höndina aö fréttamanni Visis
(hefur sjálfsagt haldið að hann
væri í móttökunni), en lét sér
hvergi bregða, þó að hann kæm-
ist að raun um að þama var
á feröinni „andstvggilegur og
útsmoginn blaðarefur", sem ætl-
aði að tæla út úr honum leyndar
málin. — Hann hafði þó lítið
að seg|a eins og aörir. Hann
taldi þaö setja nokkurt strik í
reikninginn, aö utanríkisráð-
herrar Italíu, Frakklands og
Kanada, gætu ekki komiö á
fundinn. Um störf fundarins
vildi hann ekkert fullyrða.
Framtíðarskipulag Atlantshafs-
bandalagsins og önnur innri mál
efni bandalagsins yrðu þó mik-
ið til umræðu. Þegar hann var
spurður hvort að hömlur þær
á ferðafrelsi, sem A-Þjóðverjar
hefðu sett á milli V-Berlínar og
V-Þýzkalands, yrðu ekki rædd-
ar, hló hann mjög að svo fávís-
Iegri spurningu, svaraði aö
sjálfsögðu, kvaddi með handa-
bandi og ók á brott.
Brosio: Varla hættu-
ástand í Berlín
Fyrstur ráöamanna, sem til
ráöherrafundar Atlantshafs-
bandalagsins komu, var Manlío
Brosio, framkvæmdastjóri
bandalagsins. Kom hann ásamt
öðrum háttsettum starfsmönn-
um bandalagsins með Boeing
þotu Flugfélagsins, sem fengin
hafði verið sérstaklega til aö
sækja starfslið bandalagsins til
Brussel, þar sem aðalstöövar
þess eru.
Þotan lenti á Keflavíkurflug-
velli kl. 14.10.
Brosio ræddi stundarkorn við
fréttamenn, og aöspurður um,
hvaöa málefni yrðu rædd á fund
inum sagði hann:
— Helztu vandamál, sem nú
er við að etja í heiminum,
verða að sjálfsögðu rædd á fund
inum. -Við munum sérstaklega
ræða þróun heimsmála frá því
að síðasti utanríkisráðherrafund
ur var haldinn en það var á síö-
astliðnu hausti. Ræddar yrðu
skýrslur um ýmis mál, sem af-
greidd hefðu verið frá síðasta
hausti.
Brosio sagði, að Harmel-
skýrslan yröi rædd, en hún
fjallaði um framtíðarverkefni
bandalagsins.
Brosio sagðist ekki vilja segja,
að hættuástand hefði myndazt
vegna takmarkana austur-
þýzkra vfirvalda á ferðum Vest-
ur-Þjóðverja til Austur-Þýzka-
bandalagsins ætti þar hlut aö
máli, og á fundum sem þessum
væri aöaláherzlan lögð á mál,
sem snertu fleiri aðildarríki
bandalagsins.
Þá var Roberts spurður um,
James Roberts.
hvort hann teldi að einhver
breyting yröi á afstöðu aðildar-
ríkja bandalagsins til þess.
Hann sagðist ekki telja það
og það væri bjargföst sannfær-
ing sín. Sama væri hvaöa stjóm
tæki við völdum í Frakklandi
eftir þær kosningar, sem þar
stæöu fyrir dyrum.
lands. Að sjálfsögðu væri vel
fylgzt með þróun málsins í öll-
um aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins, sérstaklega þó af
yfirvöldum fjórveldanna, Banda
ríkjanna, Bretlands, V-Þýzka-
lands og Frakklands.
Brosio sagði og aö fleiri mál
yrðu til umræðu, svo sem á-
standiö við Miðjarðarhaf, af-
vopnunarmálin og fleiri mál.
Enginn úr banaalaginu
1969
Á Hótel Sögu náðu frétta-
menn VÍSIS stuttu viðtali við
James Roberts, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda
lagsins.
Aöspuröur um, hvort ráða-
menn Atlantshafsbandalagsins
hefðu ekki áhyggjur af því, að
Austur-Evrópuþjóðirnar væru
að efla herstyrk sinn, sagði
Roberts, aö herstyrkur Evrópu-
ríkjanna væri í jafnvægi. Er
þá raunverulegt jafnvægi þar
á? spurðu fréttamenn.
Roberts svaraði þá, að jafn-
vægið væri eflaust Atlantshafs-
bandalaginu í hag.
Roberts sagði, að Grikklands-
málið yrði aðeins stuttlega rætt,
og Víetnam-málið liklega ekk-
ert. Aðeins eitt aöildarrikja
— Mikil hlaup hjá á arrnab hundrað frétta-
manna um helgina, en litil uppskera — Smá-
spjall við nokkra fundarmannanna
■ „No comments.“ „I have no statements." „I have nothing
to say.“ (Ég hef ekkert að segja). Þetta eru algengustu
setningarnar, sem blaðamenn, innlendir og erlendir, hafa
heyrt um helgina, þegar þeir hafa ætt milli Reykjavíkurflug-
vallar, Keflavikurflugvallar og þeirra staða, þar sem utan-
ríkisráðherrar aðildarlanda Atlantshafslandanna hafa látið
sjá sig. í bezta falli hafa ráðherramir og forsvarsmenn Atl-
antshafsbandalagsins látið hafa eftir sér upplýsingar, sem
allir vissu áður um, eða það sem sáralítið gildi hefur í
sjálfu sér.
Ég hefði aldrei getað ímyndað
mér að svona mikiö umstang
væri í kringum það, þó að 15
menn ætluðu að faittast og ræða
málin tvo daga, sagði einn blaða
maðurinn þegar hann hafði
kynnzt undirbúningnum á vor-
fundi utanríkisráðherranna og
séð þegar þeir voru að tínast
til landsins á laugardag og I gær
ásamt fylgdarliöi sínu.
Það var ekki sama umstang-
ið í kringum alla utanríkisráð-
herrana. Mest var um að vera
þegar Rusk, Brandt og Manlio
Brosio, framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins komu á
laugardaginn með sinni hverri
flugvélinni og sömuleiðis þegar
Stewart frá Bretlandi og Pipin-
ellis frá Grikklandi komu sam-
tímis með sinni hvorri flugvél-
inni á Reykjavíkurflugvöll í
gær.
Manlio Brosio, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins,
við komuna á laugardag.