Vísir - 24.06.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 24.06.1968, Blaðsíða 12
12 saa VISIR . Mánudagur 24. jura r»e». ANNE LORRAINE Nú heyrðist gjallandi hringing frá símanum og hún fleygöi kjóln- um frá sér eins og hún skammaðist sin ,og hljóp til og svaraði. Eftir dálitla stund hengdi hún kjólinn inn í klæðaskápinn og fór í hvita sloppinn. Og svo fór hún niður í skurðlækningadeildina til vinnu sinnar. KONU BREGÐUR FYRIR. Dagur leið eftir dag, og einn daginn slðdegis hitti Mary frú Man- son í mötuneytinu. Hún hafði ekki séð hana síöan daginn sem þær rifust sem mest. Frú Manson heils- aði henni glaðlega og bað hana um að sitja hjá sér. Þær töluðu nokkra stund um bókasafnið og sjúklingana — svo beygði Mary sig fram á borðið og brosti, hálf kindarlega. — Get- uröu vísað mér á góða hárgreiðslu stofu niðri i bænum spurði hún. Frú Manson glápti á hana. — Ætlar þú á hárgreiðslustofu? Mary hló feimnislegg. — Já, mér datt það í hug, sagði hún dræmt. — Finnst þér það skrýtið? Ég hef keypt mér fallegan kjól, og datt i hug aö láta leggja á mér hárið. Frú Manson reyndi aö láta ekki á því bera hve hissa hún var. — Það finnst mér ágæt hugmynd, sagði hún áköf. — Segðu mér frá kjólnum þínum! Hvers konar kjóll er það? Ætlarðu að nota hann við eitthvert sérstakt tækifæri? — Já, á hátíðina, sagði Mary. — Kannski sjáumst við þar? Frú Manson hristi höfuðið for- viða. — Jæja, öld kraftaverkanna er ekki liöin, sagði hún loksins. Þetta gleður mig innilega, Mary. Hvernig stóö á þvi aö þér snerist hugur? Ég meina — þú hefur aldrei verið á hátíðunum okkar, eða er það? Ég er viss um að þú skemmtir þér! Hvernig er litur- inn á kjólnum þínum — og hvar keyptirðu hann? Ef ég hefði vitað að þú varst aö hugsa um að kaupa kjól, mundi ég hafa komiö meö þér og hjálpaö þér til að velja hann. Þær eru svo margar þessar afgreiðslustúlkur, sem pranga öll- um fjáranum upp á fólk, sérstak- lega ef þær finna að maður er ekki... Hún þagnaði vandræöaleg því að hún fann að hún hafði hlaupið á sig, en Mary brosti bara. — .... sérstaklega ef þær finna aö maður er ekki samkvæmum van- ur, sagði hún góðlátlega. — Það lá líka við að svo færi fyrir mér, en svo gerðist dálítiö skrýtið. Ég fann allt í einu hvers konar kjóll færi mér vel. Það kann aö þykja ÝMISLEGT ÝMISLEGT 2 Bat«í TfJ /1 ->-• 30435 rökum að okkur hvers konai tnúrbro' og sprengivinnu 1 húsgrunnum og ræs um. Leigjum út loftpressur og vfbra sleða Vélaieiga Steindórs Sighvats ,onai A.Ifabrekku við Suðurlands braut. simt 10435 I fáránlegt, en ég er hárviss um ! að þér lízt vel á kjólinn sem ég , keypti. Og hvað hátíðina snertir þá er ég ekki neitt sólgin i þess háttar samkomur, en nú fannst mér kominn tími til að ég láti sjá mig, — ef þú skilur hvað ég meina. Frú Manson hleypti brúnum en sagði ekki neitt. Mary saup á te- inu. — Hefuröu heyrt um nýja lækn- inn, sem kemur hingað í dag? spurði Mary loksins til þess aö rjúfa þögnina. — Það er líklega ekki á almanna vitorði ennþá, en þú veizt hvernig fiskisagan flýgur hérna í stofnuninni. — Nýr læknir, já! Það eru marg- ir dagar síðan ég frétti um hann. Ein þvottakonan var að tala um hann og ein deildarsystirin minnt- ist á hann, og maðurinn sem ber blöðin hingað sagði, að Simon Carey læknir hefði beðið um að fá morgunblöðin inn til sín klukk- an átta stundvíslega á morgnana. Mary hló. — Ég hefði átt að vita það, sagöi hún. — Yfirhjúkr- unarkonan sagði að það ætti að halda því leyndu, en það er ó- hugsandi. Og úr því að þú veizt allt um þennan mann, ættir þú eiginlega að segja mér betur frá honum. Ég veit auðvitað hvað hann heitir. Og ég las nýlega grein eftir hann í læknatímariti, og hún var sérlega fróðleg. Hann virðist allur i sérgreininni sinni, viðvíkj- andi ýmsum veilum á sálarlífinu. Hann sagði í greininni frá at- hugunum, sem hann hafði gert ný- lega. Ég hef áhuga á þessu líka, eins og þú veizt. Þetta er nýtt rannsóknarefni og getur orðið stór- merkilegt, svo að mig langar til að setja mig sem bezt inn í það. Frú Manson hristi höfuöiö og kveikti sér í vindlingi. — Nú ertu I komin að þessu heygaröshorninu ! aftur, sagði hún. — Mér datt ''seni' snöggvast í hug, aö nú hefði ég fundið þá réttu Mary — unga stúlku, sem hefði keypt ,sér nýj- an kjól og ætlaði að láta laga á sér hárið — en ég hefði átt aö vita, aö læknirinn var ekki langt undan! En áöur en þú ferð lengra út í þessa sálma, ætla ég aö minna þig á, aö þú ert að tala við manneskju sem ekki hefur hundsvit á sálargrúski, og að ég hef engan áhuga á því heldur. Þú verður að finna fróöan lækni, sem þú getur talaö um þess konar GÍSLl JÓNSSON Akurgerði 31 Simi 35199 Fjölhæf jarðvinnsluvél, annast lóðastandsetningar, gret hús- grunna. holræsj o.fl. mál við. Ég skal gjaman gefa þér heilræði viðvíkjandi kjólum og hár greiðslu, en ég vil helzt ekki þurfa að tala um flókin læknamálefni. Bíddu þangað til þessi Simon Car- ey kemur, þá getur þú talað við hann þangað til þú ert orðin blá I í framan, ef hann nennir þá aö I hlusta á þig. Nú hvarf Mary móðurinn og hún varð dauf í dálkinn aftur. Frú Manson klappaði henni á handar- bakiö. — Æ, nú hef ég gert þig angur- væra aftur, sagöi hún. — Fyrir- gefðu mér, góða mín. Mér þótti svo gaman að sjá snöggvast stúlk- unni bregða fyrir í þér — til tilbreytingar frá lækninum. — Já, ég skil það, sagði Mary þurrlega. — Þér leiðist ég þegar ég er aðeins læknir, er það ekki. Það gerir öllum. Nei, ég er ekki reið við þig. Þú hugsar bara eins og allir hinir, að ég sé leiðinleg þegar ég tala um áhugamál mín. Ég get ekki vanizt því, að þó aö flestar konur þyki hundleiðinleg- ar þegar þær eru að gorta af börnunum sínum, þurfi ég að þykja leiðinleg þegar ég tala um starfið mitt. En ég skil að það kunni að vera þungmeltanlegt efni fyrir kunningja mína. Hún gretti sig. — Það er kannski þess vegna, sem ég á svo fáa kunningja. — Hvaða vitleysa, sagöi frú Man son, sem fann að hún haföi ver- ið ónærgætin. Þú veizt hvernig ég er Mary. Láttu mig taka hjóla- borð fullt af bókum, og þá get ég oröið svo þreytandi, að jafnvel þolinmóðustu sjúklingar flýja upp úr rúminu til þess að komast und- an mér! Ég þekki bækur, en að öðru leyti er ég kjáni. Nei, nú verðurðu víst aö fara. Hefurðu tek- | ið eftir að Merritt í Charles-deild ! inni er oröinn miklu betri? — Já, það hef ég, byrjaði Mary áköf, en þagnaði svo og brosti. —-*Nei, ég vil ekki tala um hann, sggði hún. einbeitt. — Faröu nú í bókasafniö þitt, og svo skal ég tala við sjálfa mig um Merritt. Mary sá að frú Manson styggð- ist við ertnistóninn í röddinni og hélt áfram alvarlegri: Nei, sannast að segja sé ég vel aö Merritt hefur batnað, og að batinn er að nokkru leyti þér aö þakka, hvort sem þú vilt meðganga það eða ekki. Ég leit á nokkrar af bókunum, sem þú hefur látiö hann fá, og sann- ast að segja dáist ég að hve glögg þú ert. Það er auðséð að hann hressist af áhuganum, sem þú sýnir, og ráðleggingunum þín- um — og svo auðvitað bókunum sjálfum. Hann er sjúklingur sem mig langar til að tala um við Carey lækni. Ég er sannfærð um að þetta bága ástand stafar af geðsýki en ekki líkamlegum kvill- um. Og ég hugsa að Carey læknir verði mér sammála um það. — Þá skaltu tala við hann um Merritt, sagði frú Manson, sem vildi reyna að bæta fyrir það, sem hún hafði talað af sér áður. Modelmyndir — Ekta Ijósmyndir ■r l. /•> ' - i Fallcgar og smekklegar úrvals modelmyndir, teJcnar sénstak- íega fyrir MODELMYNDIR. Mánaðarraodel Úrvals modclmyndir Modelmyndir 111 Modelmyndir 12 Original Allar handunnar af sérfræSingom Sv nishorn o. fl. Kr. 25,oo. MODELMYNDIR. F.O.Box \i2, Kafnarfjörður. Tt£KUR ALLS KONAR KLÆÐNING AR ' FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA • l'JRVAL.AF ÁKLÆÐUM LAUGAVEG 62 - SlMI 10825 HEIMASlMl 83634 SátKK f? BÖLSTRUN BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ! Bónsföð, bifreiðaþjónusta LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstíg). Veitir yður aðstöðu til að þvo og bóna bif- reið yðar, einnig tökum við að okkur þvott, hreinsun á sætum, toppum, hurðarspjöldum (leðurlíki). Bónum og'ryksugum. SÍMI 21145. | ky gDGAJí RlCS SURROUCHS NOW, 1 CA —UAM? \ A PfECE OF O5! JANE'S SKIRT.'J^) Tréð, Það hjálpar mér til 'að komast undan sjávarskrímslinu, ef ég aðeins ... Þar hef ég það! Nú get ég — hluti af piisi Jane! Róðið hifanum sjólf með ... Með BRAUKMANN hitastilli á hverjum ofni getið þér sjálf ákveð- ið hitastig hvers herbergis —- BRAUKMANN sjálfvirkan hitastilli er hægt að setja beint á ofninn eða hvar sem er á vegg í 2ja m. fjarlægð frá ofni Sparið hitakostnað og aukið vel* líðan yðar BRAUKMANN er sérstaklega hent- ugur á hitaveitusvæði SIGHVATUR EINARSSON&CO SÍMI 24133 SKIPHOLT 15 ■mmn Knattsnvrnrdplld Víkings Æfingatafla frá 20. mal til 30 ssnt 1968: 1 fl- ig meistaraflokkun Mánud op þriðiud. ki. 7,30—9 miðvikud os fimmtud. 9—10.15 2. lokkur: Mánud op 'rrðjiid. 9—10.15. Miðvikud op fimmtud 7.30—9 3. flokkur: Mánud 3,—10,15, þriðiud. 7.30— 9 og fimmtud 9 — 10,15 4. f'okkur Mánud og oriðiud 7—8 Mið víkud. op fimmtud 8—9 5 Flokkur A. og B.: Mánud op þriðiud 6—7. Mu" vikud op fimmtud 6.15—7.15 5 flokkur C. og Du Þriðiud og fimmtud 5,30—6.30 Stjémin >«'■ te‘

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.