Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 1
J VÍÐÁTTUMESTU KAL- SKEMMDIR FRÁ 1918 58. árg. — Þriðjudagur 2. júlí 1968. - 143. tbl. — segir dr. Halldór Pálsson i viðtali við Visi ■ Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að ekki hafi verið jafnvíðáttumiklar kalskemmd ir hér á landi frá 1918, sagði búnaðarmálastjóri, dr. Hall- dór Pálsson, í viðtali við VÍSI í morgun. „Kals virðist gæta í hverju einasta héraði lands- ins, en einna verst hefur Hrútafjarðarsvæðið verið leik ið,“ sagði hann ennfremur. „Bændur reyna nú að afla sér heyja hvar sem möguleiki er á, á óræktuðu landi og á eyði- býlum, sagði dr. Halldór. Aöspurður sagði búnaðarmála- stjóri, að margar ástæður lægju til kalsins, en þó fyrst og fremst tiðarfarið. Þá sagði búnaðarmála stjóri og, að röng áburðarnotk- un gæti orsakað kal. Ef notað- ur væri of mikili köfnunarefnis- áburður í hlutfalli við aðrar á- burðartegundir, gæti það orsak- að kal, þar sem það hefur áhrif á rótarkerfi grassins. Þetta er ekki fullsannað, en menn hafa hugmvnd um það. Dr. Halldór, sagði, að á litl- um svæðum á landinu hefðu orð ið miklar kalskemmdir árið 1965 en i ár væru þær miklu meiri og víðar um landið, og eins og áður segir, hefðu þær ekki verið jafnmiklar frá 1918. Þær eru miklu meiri nú en 1952, sagði hann. Verstu svæðin eru V-Húna- vatnssýsla, og i.inanverð Strandasýsla, Hrútafjar'irsvæð- ið svokallaða, en þar eru 10. sfða Fór inn um opinn glugga STAL 40 ÞÚS. ÚR SKRIFBORÐI Á næstunni fer vígsla Norræna hússins í Rvík fram. Ekki hefur þó endanlega verið ákveðið hvenær, en þá verður væntanlega mikið um dýrðir. Gera má ráð fyrir, að margir gestir frá hinum Norður- löndunum verði við vígsluathöfnina, svo og margir skemmtikraftar. — Nú standa þar yfir miklar framkvæmdir við gerð tjarnar, sem verður í námunda við húsið. Olli garnaveiki hreinJ/ra- Fjörutíu þúsund krónum fátæk- ari varð hann, íbúi einn að Heið- arvegi í Keflavik, sem skildi eftir opinn glugga á ibúð sinni aðfara- nótt sunnudagsins. Inn um þenn- an glugga komst þjófur i ibúð- ina og stal úr skrifborðl mannsins 40 þúsund krónum í beinhöröum peningum. Skrifborðið var læst, en þjófur- inn fann lykilinn og lét greipar sópa um innlhald skúffunnar. Þetta hefur gerzt einhvem tfma eftir kl. eitt um nóttina og biður lögreglan hvem þann, sem orðið hefur var við mannaferðir þama á Heiðarveginum þessa nótt, að gera sér viövart. dauðanum í vetur? Rannsóknir tilraunastofu Háskólans benda til jbess ■ 1 vetur bar nokkuð á því á Austurlandi, að hreindýr fynd- ust dauð á víðavangi, og veltu menn vöngum yfir því, h.vort einhver pest eða drepsótt væri að leggja stofninn að velli. - Vegna þessa voru send innyfla- sýnishorn suður til tilraunastöðv ar Háskólans. Vísir átti í morgun tal við Hall- dór Vigfússon og spuröi hann um niðurstöður rannsóknanna. Hann sagði, að erfitt væri að segja nokk- j uð endanlegt í því efni, því að j rannsóknarsýnishornin, sem send j hefðu verið væru mjög ófullkom-) in. Veski með 20 búsund Helzt er þó að gera ráð fyrir því, að þarna sé um að ræða „enterotoxemyu" eða garnaveiki, sem einkum grasserar í sauðfé, og stingur sér þá niður í einni og einni kind. Halldór sagði, að ekki væri frá- leitt aö ætla, að þessi sjúkdómur í hreindýrum stæði í einhverju sam bandi við það, hversu haglaust var hjá þeim í vetur, svo að þau urðu að leita heim til bæja og í sauðfjárhaga. Aftur á móti kvaðst hann telja mjög ólíklegt, að hrein- dýrastofninum í heild væri nokkur hætta búin vegna þessa. Á Egilsstöðum höföu menn þæf fréttir af hreindýrunum að segja, að svo virtist sem þau hefðu nóg beitiland, og upp á síðkastið hefði ekki orðið vart við, að nein veik- indi herjuðu á dýrin. Fluglærðir Keflvíking- ar stofna flugfélag ■ Nýlega hefur veriö siofnað flugfélag í Keflavik. Nefnist það Þór, og eru hluthafar 10, en hluta- fé að upphæð 300 þúsund krónur, sem skiptist í 60 híuta, 5 þús. kr. hver. Samkvæmt frásögn hluthafa er ætiunin að fljúga aðallega miili Keflavíkur og Austurlands, einkum með sjómenn af Suöumesjum til starfa þar fyrir austan. Þegar hef- ur verið fengin flugvél til þessa, og er það / fjögurra manna Airo Commander Starter. Stofnendur •eru allir skólaöir flugmenn og ættu þvi að eiga auðvelt með að sinna ætlunarverki félagsins. týndist Þetta er eini mánuður ársins, sem maður fær kaupið sitt heilt og óskipt, engin opinber gjöld, og einmitt núna þurfti ég að týna því, sagði Jóhann Guðmundsson starfsmaður á Heilariti Landspital- ans, þegar hann hafði samband við Vtsi í morgun eftir svefnlausa nótt. Jóhann týndi veski sínu með 20 þúsund krónum einhvers staðar í Reykjavík í gær. Heitir hann fund- arlaunum þeim, sem finna kynni veskið, og biður þann að hafa sam- band við sig á Landspítalanum. Geysileg fiskgengd fyrir Norðurlandi Norðlendingar setja hana i samband við isinn. — Frysfihúsin hafa ekki undan. — bátar komnir méð 1000 tonn siðan i vor. — Siglt með aflann i aðra landshluta ■ Fólk mátti naumast vera að því að kjósa á Dalvík, þar sem svo mikil vinna var í frystihúsinu. Þannig hefur ástandið verið víðast í verstöðvunum norðanlands. Mikil afli hefur borizt á land og unnið jafnt helga daga sem virka. Hafa skip orðið að hverfa frá heimahöfnum, þar sem frystihúsin gátu ekki tekið á móti meiru og sigla með aflann austur og suður fyrir land til Neskaupstaðar og jafnvel alla leið til Vestmannaeyja. Fiskgengd hefur verið mikil ræöa. úti fyrir öllu Norðurlandi og Að því er Tryggvi Jónsson, virðist þar bera mest á smærri verkstjóri á Dalvík tjáði Visi í fiski 4-5 ára þorski, en þar virð morgun, freistast menn til þess ist um mjög sterkan árgang að að setja þessa óvenjulegu fisk Hæstu gengd í samband við ísinn. Fisk urinn virtist í vetur halda sig mikið undir ísbrúninni og nú þegar ísinn er horfinn norður í haf morar allt í fiski þar nyrðra. Sjór er óvenju kaldur á þess um slóðum, að því er Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur upplýsti í morgun, en hann er við hafrannsóknir um borð í Árna Friðrikssyni fyrir Norður- landi. Sagði Tryggvi að mikil vinna hefði verið í frystihúsinu á Dal- vík. Þar vinna um 40 manns og hafa ekki undan að verka fisk inn, sem berst á land. Afli bát- ana mun vera mjög jafn, þetta 20 til 30 tonn eftir tvo sólar- hringa. Tveir trollbátar, sem gerðir eru út_frá Dalvík, austur þýzku tappatogararnir, svo- nefndu, Björgvin og Björgúlfur, eru komnir með um 1000 tonn hvor frá því þeir byrjuðu veið- arnar í febrúar. — Nokkrir sunn anbáta eru nú komnir á togveið ar nyrðra og auk þeirra Aust- fjarðabátar. Einn þeirra Börkur Neskaupstað kom inn til heima hafnar I gær með 100 tonn eftir viku útivist og systurskip hans, Birtingur NK er einnig kominn á þessar veiðar. Hér er um mjög óvenjulega fiskgengd að ræða, en þarna hef ur varla fengizt. bein úr sjó í mörg sumur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.