Alþýðublaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 1
Sunnudagur 17. apríl 1966 - 46. árg. - 86. tbl. - VERÐ 5 KR. Hvað verður um bjór, mink og hægri akstur? ALÞINGI hefur haft hátt á annað hundrað mál til með ferðar í vetur. Eru mörg þeirra stórmál, sem geta valdið veru legum breytingum á högum þjóðarinnar. Þó hafa þrjú mál vakið meii-i athygli og meiri deilur í landinu en nokkur önn ur, en það eru hægri akstur áfengur bjór og minkur. Er fullkomin óvissa, hvort nokk urt þessara mála verður gert að lögum áður en þingið lýkur störfum eftir tvær vikur. Þar eð ýmis stórmál eru óafgreidd eins og álbræðslan og landbún aðarmálin, verða með hverjum degi minni líkur á að sérstæðu málin þrjú nái fram að ganga. Það er sameiginlegt þessum þremur málum, að flokkarnir láta þau afskiptalaus, og verð ur hver þingmaður að gera upp við sig hvaða -afstöðu liann tekur. Þess vegna er erf itt að sjá fyrir, hver örlög þessara mála verða. Minkurinn er kominn lengst hinna þriggja mála. Hann var samþykktur í neðri deild og er kominn til nefndar í efri deild. Ef nefndin skilar áliti næstu daga, er hugsanlegt að málið verði afgreitt. Liklegt er það þó ekki, því örlítið mál þóf getur riðið því að fullu síðustu daga þingsins. Hægri akstur er um það bil a<J komast 'í gegnlum neðri deild. Er þriðju umræðu lok ið, en atkvæðagreiðsla verður væntanlega á morgun. Verður varla breyting á því, að mikill meirihluti deildarmanna er með hægri handar akstri, enda þótt Framliald á 15. síðu Borgarstjórinn i Grimsby heimsækir Reykjavíkurborg wwwv Niðurgreiðslum hætt á fiski og M I / I ■ í SAMBANDI við sam- komulag fiskkaupenda og fiskseljenda í yfimefnd verð lagsráðs sjávarútvegsins um fiskverð á árinu 1966 féllst rikisstjórnín á að beita sér fyrir sérstökum fjárframlög um úr ríkissjóði. Þar sem í fjáriögum fyrir árið 1966 er ekki gert ráð fyrir nein um fjárveitingum í þessu skyni, er óumflýjanlegt að gera sérstakar ráðstafanir til að gera ríkissjóði kleift að veita sjávarútveginum um rædda aðstoð. Ríkisstjórnin Framhald á 15. síðu swwwwwwwwwww Sendinefnd frá Grimsby kemur í heimsókn til Reykjavikur annað kvöld í boði borgarstjórnar. Gest irnir sem koma eru borgarstjór inn í Grimsby Denys Petchell og kona hans frú Kristin Petchell sem er af íslenzkum ættum, borgarrit ari og varaborgarstjóri, fjórir borg arfulltrúar og þrír útgerðarmenn Boð þetta er endurgjald á boði borgarfulltrúa og fulltrúa útgerð arinnar til Grimsby sl. sumar. Gestirnir munu dvelja hér til föstudags. Dagskrárliðir heimsóknarinnar eru ekki endanlega ákveðnir, en þeir verða í stórum dráttum þann ig, að á mánudag skoða gestirnir borgina og borgarstofnanir. Á þriðjudag skoða ' gestirnir fiskvinnslustöðvar og stofnanir tengdar útgerðarmálum. Á mið- vikudag verður farið útsýnisflug með flugvél Landhelgisgæzlunnar. Á fimmtudag verður síðan farið að Reykjum og til Þingvalla og Hveragerðis. Fermingin mín Hundruð barna í Reykjavík ogr nágrenni verða fermd í dag og í tilefni af því höfum við fengið fjóra presta í Reykjavík til þess að segja frá því þegar þeir fermdust. Prestarnir eru séra Árelius Nieisson, séra Grímur Grimsson, dr. Jakob Jónsson og séra Jón Thorarensen. OPNAN í DAG Smith slitur öll tengsli við Breta Salisbury, 16. apríl. (nab-afp). Ian Smith, forsætisráðherra Rhodesíu sagði í útvarpsræðu í morgun, að Rhodesíustjórn hefði ákveðið að dæla ekki olíu frá gríska skipinu „Ioanna V.” sem liggur við bryggju í Beira í portú- gölsku nýlendunni Mozambique tii að koma ekki vinum sínum í vanda. Frá Beira liggur oliuleiðsl- an til Feruka skammt frá Umtali í Rhodesíu. Smith sagði ennfremur, að stjórn hans hefði ákveðið að loka Rhodesíuhúsinu í London og kalla starfsfólk hússins heim til Rhodesíu. Hann sagði, að stjórn hans mundi fara þess á leit við brezku stjórnina, að hún lokaði byggingu brezka stjórnarfulltrú- ans í Salisbury. Smith kvaðst telja, að flestir Rhodesíumenn væru eins hneyksl- aðir og hann sjálfur á þeirri á- kvörðun Breta að fá umboð hjá Öryggisráði SÞ til að beita valdi til að koma í veg fyrir að olía berist til Rhodesíu um Beira. — Wilson hefði oft heitið því að valdi yrði ekki beitt í Rhodesíu- málinu og að hafnbann yrði ekM sett á Mozambique. Einnig hefði Wilson lofað að bera Rhodesíu- málið ekki upp á vettvangi SÞ. í Beira er fjölmennt herlið & verði og hermenn hafa grafiff skotgrafir við flugvöll bæjarins. Framhald á 15. siðu Góður afli Stykkishólmur ÁÁ — GbG. Vertíðin hefur gengið sæmilega. í Stykkishólmi til þessa. Þaðan. róa nú 8 bátar. Atvinna er næg £ plássinu. Auk þeirra, er að fisk vinnslu starfa, hafa 60—70 manns atvinnu sína af iðnaði, því starf andi eru tvær trésmiðjur, vél- arfulltrúar og þrír útgerðarmenn. í vor verður hafin bygging fé lagsheimilis í Stykkishólmi. Eru, miklar vonir bundnar við ær framkvæmdir. íþróttalif hefur jaftt an staðið með nokkrum blóma og er svo enn, þótt badminton sé ekki iðkað af eins miklu kappí og áður fyrr.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.