Bókasafnið - 01.12.1983, Blaðsíða 31

Bókasafnið - 01.12.1983, Blaðsíða 31
Hópvinna í lesstofu bókasafnsfræöinema. Sitt af hverju um Félag bókasafnsfræðinema Nemar í bókasafnsfræðum við Háskóla íslands / tilefni af 10 ára afmœli Félags bókasafnsfrœðinga varfarið þess á leit við nema í bókasafnsfræðum við Háskóla íslands að þeir gerðu grein fyrir sögufélagssíns oghelstu starfsemi í gegnum árin ogfylgirsú samantekt hér á eftir. Félag bókasafnsfræðinema var stofnað þann 12. mars 1976 en það sama ár var þókasafnsfræðin færð úr heimspekideild í nýstofnaða félags- vísindadeild. Samkvæmt lögum fé- lagsins geta félagar allir þeir orðið sem skráðir eru til náms í bókasafns- fræðum enda greiði þeir tilskilið fé- lagsgjald. Hlutverk félagsins er að hafa forgöngu í félagslífí, gæta hags- muna félagsmanna í hvívetna og vera fulltrúi þeirra innan Háskólans sem utan. Einnig er starfsemi félagsins fólgin í að halda sambandi við aðra bókavarðaskóla á Norðurlöndum með bréfaskriftum og þátttöku í ráð- stefnum, efna til skoðunar- og kynn- isferða í bókasöfn innanlands og efla kynni og samstöðu nemenda eins vel og kosturerá. Árlega eru haldnar samnorrænar ráðstefnur bókasafnsfræðinema á Norðurlöndum. Hafa nú verið haldnar 7 ráðstefnur og höfum við ís- lensku nemarnir tekið þátt í ijórum þeirra. Á þessum ráðstefnum eru tek- in fyrir ýmis málefni sem tengjast bókasafnsfræðum og bókasöfnum al- mennt. Til að fullt gagn geti orðið af ráðstefnum sem þessum er nauðsyn- legt að sem flestir taki þátt í undir- búningi og kynni sér niðurstöður. Hver skóli velur sér aðalefni til að fjalla um en ályktar einnig lauslega um hin tvö. Undirbúningsvinna hjá okkur hefur farið fram í umræðuhóp- um þar sem málin hafa verið rædd og hafa fulltrúar okkar síðan kynnt nið- urstöðumar á ráðstefnunum. Sem dæmi um þau margvíslegu málefni sem tekin hafa verið fyrir má nefna: hlutverk bókasafnsins í þjóðfélaginu, námsskipulag, upplýsingamiðlun, ókeypis reglan og margt fleira í þess- umdúr. Starfsemi félagsins hefur ekki ein- göngu snúist um þessar ráðstefnur því margt hefur verið gert hér heima. BÓKASAFNIÐ 31

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.