Dagur - 07.11.1997, Blaðsíða 12

Dagur - 07.11.1997, Blaðsíða 12
12- FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997 ÍÞRÓTTIR Haukasig- ur í KeHa- vík Fjórir íyrstu leikirnir í 6. umferð Urvalsdeildarinnar í körfuknatt- leik voru háðir í gærkvöld. Hauk- ar héldu sigurgöngu sinni áfram með því að Ieggja Keflvíkinga að velli í Keflavík, 86:87, og þá sigr- aði Tindastóll KR í hörkuleik á Seltjarnarnesi, 66:67. IA lagði Þór á Akranesi, 98:81, og þá lauk viðureign botnliðanna, ÍR og Vals, með sigri Valsmanna, 79:83. Haukar eru nú efstir í deild- inni með 12 stig og Grindavík og TindastóII hafa 10 stig, en Grindvíkingar eiga leik til góða. Umferðinni lýkur í kvöld með leikjum KFI og Skallagríms og Njarðvíkur og Grindavíkur og hefjast báðir ld. 20.00. íkvöld KARFA Urvalsdeild: KFÍ-Skallagr. kl. 20:00 Njarðvík-Grindavík kl. 20:00 HANDBOLTI 1. deild kvenna: ÍBV-Víkingur kl. 20:00 2. deild karla: Fylkir-Hörður kl. 20:00 Þór-Ármann kl. 20:30 Selfoss-Grótta/KR kl. 20:00 D ómarali omid Það er ekki alltaf draumur að vera dómari. Dómarar eiga bæði góða og slæma daga rétt eins leikmeimim- ir sem þeir eiga að viima með. Stuudum eru Jjeir sakaðir um heimadómgæslu og stundum annarskonar hlutdrægni. Stundum hreinlega klúðra þeir án þess að það hitni meira á öðru liðinu en hinu. Við þessu er ekkert að gera. Þetta er hluti leiksins. En þegar dómarar koma í gervi jólasveinsins í hyrjun nóvemher, eins og gerðist í leik HK og Hauka á miðvikudag- inn, er tími tU kom- inn að þeir hugsi sinn gang. Leikur HK og Hauka verður seint talinn til skemmtilegri handboltaleikja sögunnar þó spennandi væri. Bæði lið áttu góða og, inn á milli, arfaslaka spretti. Eins var um einstaka leikmenn liðanna. Sumir þeirra vilja sjálfsagt gleyma þessum leik sem allra fyrst. Á engan er þó hallað þó fullyrt sé að slökustu menn vallarins voru dómararnir, Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Ekki að þeir hafi dæmt illa allan Ieikinn. Hinsveg- ar brugðust þeir þegar mest á reyndi. Þeir höfðu ekki úthald í þennan „hörku- leik“ vegna þess að þeir tóku ekki í taumana fyrr en ákafi og harka leik- manna var orðin þeim óviðráðanleg. Það sauð einfaldlega upp úr sem ekki hefði þurft að ger- ast hefðu þeir félagar tekið leildnn föstum tök- um frá upphafi og kæft hörkuna í fæðingu. „Góðmennska“ Gisla og Hafsteins var alger- lega misskilin af leik- mönnum beggja liða þetta sinn. Þeir gengu einfaldlega á lagið og því lengra sem á Ieikinn leið urðu kærleikar minni með mönnum. Menn komust upp með fáránlegar bak- hrindingar og stimpingar án þess að fá svo mikíð sem tiltal. Sömu menn voru svo spjaldaðir, og jafnvel sendir í tveggja mfnútna hvíld, fyrir smábrot. Sagan end- urtekur sig víða, „smákrimmar" eru gómaðir meðan þeir stóru sleppa. Dómarar þurfa að vera samkvæmir sjálfum sér, ef ekki allt keppnistímabilið, þá að minnsta kosti í hverjum Ieik fyr- ir sig. Vilji Guðs Drottinn sjálfur,, hefur oft bland- að sér í íþrót'taleiki. Hver man ekki eftir „hendi Guðs“ úr HM í knattspyrnu forðutn. Má vera að það hafi verið vilji Guðs að Gísli og Hafsteinn gáfu Haukunum aukakastið á lokasekúndunum, eftir að Rúnar skaut yfir markið. Alla vega bjóst enginn í húsinu við öðru en HK menn hefðu unnið boltann og tryggt sér jafn- teflið. Þá komu „jólasveinarnir" til sögunnar. Haukar fengu bolt- ann, reyndar óinnpakkaðan, sem leiddi af sér réttmætt vítakast er aðeins fimm sekúndur lifðu af leik. Sigur Haukanna var í höfn. Eins og staðan var, gáfu Gísli og Hafsteinn Hafnarfjarðarliðinu stigin tvö. Auðvitað er það stór fullyrðing þegar blaðamaður segir að dóm- arar hafi gefið liði sigur í Ieik. Sem betur fer er lfka oftast um oftúlkun að ræða. Það má vel vera að svo sé í þessu tilviki. Bæði liðin gerðu aragrúa mis- taka. Það liðið, sem hefði fækk- að mistökum sínum um 20%, hefði unnið þennan leik með fimm mörkum. En eins og stað- an var orðin voru það mistök dómaranna sem réðu úrslitum í lokin. Því var reiði Gísla Óskars- sonar, liðsstjóra HK, réttlát þó svo að það réttlæti ekki skammir og svívirðingar í garð dómaranna sem hafa ekkert sér annað til varnar en rauða spjaldið. - GÞÖ Þorvaldur í Stoke City? Þorvaldur Makan Sig- björnsson, hinn efnilegi framherji Leiftursmanna sem varð þriðji marka- hæsti leilonaður Islands- mótsins í sumar, er nú til reynslu hjá enska 1. deildarliðinu Stoke City og mun æfa og leika með varaliði félagsins á næstu dögum. Nokkur leynd hefur hvílt yfir ferðalagi Þor- valdar í Englandi. Hann æfði um tíma með Sheffield United, en fór sfðan til Stoke með skömmum fyrirvara, eftir stutta viðdvöl hér á landi. Hann verður til reynslu hjá félaginu, fram að Iokum næstu viku og mun leika með varaliði félagsins. Eftir þann tíma munu for- ráðamenn enska félags- ins gera það upp við sig hvort þeir vilji fá hann í sínar raðir. Gangi samningar ekki eftir mun hann koma heim til viðræðna við íslensk félög en bæði Leiftur og IBV hafa lagt kapp á að fá hann í þjónustu sína. Hörður til FH? Knattspyrnumaðurin Hörður Magnússon kann að vera á leið til sinna gömlu félaga í FH eftir ársdvöl að Hlíðar- enda, þar sem hann lék með úrvalsdeildarliði Vals á síðasta sumri. Knattspyrnudeildir fé- Iaganna hafa hins vegar ekki enn komist að sam- komulagi og framtíð Harðar virðist nokkuð óráðin, þar sem Valsmenn vilja halda í Hörð, sem enn á eftir eitt Hörður Magnússon. ár af samningi sínum við félagið. „Það eina sem ég er nokkuð viss um, er að annað hvort leik ég með Val eða FH á næsta keppnistímabili. Meira get ég ekki sagt á þess- ari stundu, en málin skýrast vonandi á næstu dögum,“ sagði Hörður þegar rætt var við hann í gærdag. Knattspyrnumaðurinn Heimir Guðjónsson, sem KR-ingar virtust ekki hafa not fyrir, gæti verið á Ieiðinni til nýliða Þróttar í úrvalsdeildinni. Willum Þór Þórsson, sem misst hefur tvo sterka Ieikmenn frá sl. sumri, vill fá þennan fyrr- um landsliðsmann til sín og aðilarnir hafa ræðst við að undanförnu. Hvort leið Heimis liggur í Laugardalinn á hins vegar eftir að koma í ljós, en knattspyrnudeild KR hefur beitt sér fyrir því að hann komist á samning erlend- is. Erlingur Kristjánsson, hinn gamalkunni fyrirliði íslands- meistara KA í handknattleik, er farinn að æfa með félag- inu að nýju, en segir sjálfur að það sé einungis gert til að halda sér í formí. Af einhverjum dularfullum ástæðum rataði nafn Erlings þó á Ieikmannalista þann sem KA- menn gáfu út fyrir Evrópukeppnina. Það er greinilegt að KA-menn þekkja sinn mann, sem oftar en einu sinni hef- ur tilkynnt að hann væri hættur að spila handknattleik. Það skyldi þó aldrei vera ... Vinir Lúkasar Kostic, nýráðins Víkingsþjálfara í knatt- spyrnu, munu hafa áhyggjur af símareikningi þjálfarins, eldd síst eftir hækkunina á innanbæjarsímtölunum. Einn knattspyrnumaður fullyrti að Lúkas hefði hringt í tugi leikmanna að undanförnu til að kanna hvort þeir vildu ganga til liðs við gamla Fossvogsstórveldið sem ekki hefur verið í vígahug á undanförnum árum. Arangurinn kemur vonandi í Ijós á næstu dögum og vikum, en heyrst hefur að Hólmsteinn Jónasson, sem lék bæði með Fram og Val í fyrra, sé á leiðinni í Fossvoginn. Hólmsteinn varð Is- landsmeistari með Víkingi árið 1991. V

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.