Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 1
Krefur FBA um 48 milljóna bætur Fjárfestingarbankinn stendur nú frammi fyrir háum skaðabótakröfum. Var látinn hætta vegna meintra kostnaðar- samra mistaka, sem hann með fulltingi Fiskveiðasjóðs neitar að hafi átt sér stað. Segir forráðamenn FBA hafa hreitt út sög- ur um hin meintu mis- tök og valdið sér skaða og miska. Ásbjörn Þorleifsson, fyrrum starfsmaður viðskiptastofu Fjár- festingarbanka atvinnulífsins (FBA) og þar áður forstöðumaður fjárreiðu- og alþjóðasviðs Fisk- veiðasjóðs, hefur stefnt FBA til greiðslu alls 48 milljóna króna skaða- og miskabóta. Ásbjörn heldur því fram að Bjarni Ár- mannsson, forstjóri FBA, hafi þröngvað sér til að undirrita starfslokasamning og borið upp á hann alvarleg mistök. Ásbjörn neitar því að áburður um mistök eigi við rök að styðjast og nýtur í 26 kærðir á Akureyri Játningar 17 manns liggja fyrir hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri í kjölfar þess að ungur maður var tekinn til yfirheyrslu eftir ábendingar um að hann stæði að dreifingu á hassi. Eftir fíkniefnamálin sem komu upp um helgina hefur rannsóknarlögregl- anáAkureyri því kært 26 manns vegna dreifingar eða neyslu á fíkniefnum á síðustu dögum. Að sögn Daníels Snorrasonar yfirlög- regluþjóns hlýtur það að teljast gott innlegg í forvarnastarfið gegn fíkniefnum. Við leit í bíl í gær, sem tengdist ofangreindu máli, fannst þýfi úr innbroti á bókamarkaðinn á Akur- eyri. I bílnum fannst töluvert af geisladiskum, hljómflutningstæki og þráðlaus sími sem er megnið af þýfinu, en þjófarnir sáu ekki ástæðu til að stela einni einustu bók á markaðinum. - GG þeim efnum stuðnings stjórnar og endurskoðanda Fiskveiðasjóðs. Spummg um að auka hagn- að? FBA varð til fyrir rúmu ári þegar fyrirtækið yfirtók rekstur, réttindi og skuldbindingar Fiskveiðasjóðs og fleiri lánasjóða. Ásbjörn hóf störf hjá FBA og naut góðs orðstírs frá fyrra starfi. Sam- kvæmt stefnu kallaði Bjarni Ár- mannsson Ásbjörn á sinn fund 24. febrúar 1998 og honum til- kynnt að til stæði að segja honum upp störfum. Voru Ásbirni gefnir tveir kostir, að gera starfsloka- samning eða verða sagt upp. For- ráðamenn FBA héldu því fram að Ásbjörn hefði gefið rangar upplýs- ingar um gjaldeyrisjöfnuð Fisk- veiðisjóðs og vegna þessa hafi bankinn tapað tugum milljóna króna. Ásbjörn hefur frá upphafi haldið því fram að ásakanir um ranga upplýsingagjöf séu ekki á rökum reistar, en taldi sig til- neyddan að skrifa undir starfs- lokasamning. „Bæði stjórnendur og endur- skoðandi Fiskveiðasjóðs halda því fram að ásakanir þessar séu rang- ar. Er jafnvel leitt að því líkum að ásakanirnar hafi eingöngu verið settar fram í því skyni að auka hagnað bankans," segir í stefnu Ásbjörns, en lögmaður hans er Jón Magnússon. Þess má geta að starfskjör æðstu stjórnenda FBA taka mið af afkomu bankans. Leyndu ekki ásökiiiiuiiiim Ásbjörn ber í stefnu sinni að for- ráðamenn FBA hafi ekki farið Ieynt með ásakanir sínar í hans garð og að það hefði skaðað orðstír hans. Hafi honum ekki auðnast að fá sambærilegt starf á Ijármálamarkaðnum eða við íjár- umsýslu. Hann telur að með gjörðum sínum hafi FBA vegið að æru og starfsheiðri sínum. Ljóst er af stuðningi Fiskveiða- sjóðsmanna við Ásbörn að enn hefur ekki gróið um heilt eftir sameiningu sjóðanna í FBA, en við þá sameiningu þótti Fisk- veiðasjóðsmönnum verulega halla á sinn sjóð. Ekki náðist í Bjarna Ármannsson í gær. - FÞG Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær og smiðir undir þakskeggjum iéku við hvern sinn fingur. - mynd: hilmar Sjálfstæðismenn vilja fá ráðherra- stól Finns Ingólfssonar. Vilja bæöi heilbrigðis- og orkiunál „Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins telur rétt að flokkurinn tald orkumálin að sér í næstu ríkis- stjórn," segir í drögum að álykt- un fundarins í orkumálum. I ályktunardrögum má einnig finna kröfu um að Sjálfstæðis- flokkurinn fái líka heilbrigðis- málin í næsta ríkisstjórnarsam- starfi. I núverandi stjómarsam- starfi fer Finnur Ingólfsson, Framsóknarflokki, með þann málaflokk. „Vinnsla, meginflutningur, dreifing og sala raforku verði að- skilin eins fljótt og aðstæður frekast Ieyfa,“ segir m.a. í drög- unum. Sjálfstætt fyrirtæki um meginflutning orkunnar (vinnu- heiti: Landsnet) verði stofnað á næsta kjörtímabili. Áhersla verði lögð á að orkufyrirtækin verði gerð að hlutafélögum og al- menningur hvattur til eignarað- ildar. Líka heilbrigðismál „Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins hvetur til þess að flokkurinn auki verulega áherslu sína á heil- brigðismál og stefni að þvf að taka að sér ráðuneyti heilbrigðis- og tryggingamála í næstu ríkis- stjórn,“ segir í drögum að álykt- un landsfundarins, en hann hefst í næstu viku. Samtímis skuli stefnt að þ\4 að aðskilja ráðuneyti heilbrigðis- og trygg- ingamála. í drögunum er lýst andstöðu við „sameiningu stóru sjúkrahús- anna í Reykjavík í einn ríkisrek- inn spítala" og hvatt til einka- væðingar í rekstri heilsugæslu. Fullyrt er að efling einkarekinn- ar Iæknisþjónustu sé „rökrétt andsvar við biðlistum.“ ■ wam Afgreiddir samdægurs Venjulegir og demantsskomir frúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 WORUJWtDE EXPRESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.