Dagur - 29.07.2000, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2000 - 19
IXyptr.
Menningarnótt
í höfuðhorginni
Formaður stjórnar Menningarnætur,
Elísabet B. Þórisdóttir afhenti Sylvíu
Kristjánsdóttur verðlaun fyrir hugmynd
að veggspjaldi Menningarnætur í Ráð-
húsi Reykjavíkur föstudaginn 7. júlí sl.
Efnt verður til Menningarnæt-
ur í miðborg Reykjavíkur í
fimmta sinn laugardaginn 19.
ágúst næstkomandi. Markmið
Menningarnætur er nú sem
endranær að beina kastljósinu
að því sem borgin hefur upp á
að bjóða og að kveikja áhuga á
menningarviðburðum hjá fólki
á öllum aldri.
Menningarnóttin byggist á
framlagi fjölda aðila sem alla
jafna standa að blómlegu
menningarlífi í borginni og
einnig framlagi annarra sem
nota þetta tækifæri til að setja
svip sinn á borgarlífið. Ymsar
menningarstofnanir, kirkjur,
gallerí, kaffihús, veitinga-
hús,verslanir og fleiri hafa opið
fram á nótt og bjóða gestum
upp á fjölbreytta menningar-
viðburði. Glæsileg flugeldasýn-
ing í boði Orkuveitu Reykjavík-
ur verður við höfnina eftir sól-
setur.
Samkeppni
um veggspjald
I tilefni Menningarnætur var
efnt var til samkeppni um
veggspjald meðal nemenda
Listaháskóla Islands í grafískri
hönnun og er það í annað sinn
sem Menningarnótt efnir til
slíkrar samkeppni. Höfundur
verðlauntillögunnar í ár er
Sylvía Kristjánsdóttir, nemandi
á 2. ári í grafískri hönnun. For-
maður stjórnar Menningarnæt-
ur, Elísabet B. Þórisdóttir af-
henti Sylvíu verðlaunin í Ráð-
húsi Reykjavíkur föstudaginn
7. júlí.
Reykjavíkurmaraþon
sama dag
Að þessu sinni verður Reykja-
víkurmaraþonið sama dag og
Menningarnótt, en ekki daginn
eftir eins og hingað til, og mun
borgarstjóri setja dagskrá
Menningarnætur formlega á
hádegi þann 19. ágúst um leið
og hún ræsir fyrstu hlaupara í
Maraþoninu. Dagskrá Menn-
ingarnætur mun svo að venju
standa allan daginn og fram á
nótt.
EríUarí óskast,
Má hafa með sér kjöt.
Kola- og gasgrill í úrvali og auðvitaö gas, kol, grillvökvi, áhöld
og ýmislegt til að gera grillveisluna enn skemmtilegri.
Renndu inn á næstu ESSO-stöb! Olíufélagiðhf
www.esso.is
Greiðir götu þátttakenda
Sérstök verkefnisstjórn á veg-
um Reykjavíkurborgar sam-
ræmir atriði, kynnir dagskrá og
greiðir götu þeirra sem vilja
taka þátt í Menningarnóttinni.
Framkvæmdastjóri er Hrefna
Haraldsdóttir. Upplýsingar um
viðburði á Menningarnótt, sem
birtast eiga í prentaðri dagskrá
og á heimasíðu skal senda í
tölvupósti (hrefnah@rvk.is) eða
í pósthólf Menningarnætur,
Ráðhúsi Reykjavíkur, 101
Reykjavík. Allar nánari
upplýsingar veitir Hrefna
Haraldsdóttir í sfma 898 4930.
www.reykjavik.is/menningarnott
Þeir fiska sem roa... Þeir íiska sem róa... Þeir fiska
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
AUK k15d21-1595 sia.is