Dagur - 28.10.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 28.10.2000, Blaðsíða 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 28. október -40. tölublað Kvennaskólinn viö Austurvöll á fyrsta áratug aldarinnar. Nemendur og kennarar eru framan við húsið. Þóra Melsted, stofnandi skólans og skólastjóri situr fyrir miðri mynd. Við suðurgaflinn með svölunum er nú skúrbygging sem tengir húsið við Landsímahúsið og er veglegur minnisvarði um hvernig smekkleysan getur tekið sér bólfestu í byggingalrist höfuðborgarinnar. Árið 1846 keypti Páll Melsteð, sýslumaður og ritstjóri, hús það sem Hannes St. Johnsen kaupmaður byggði á nyrðri hluta lóðar Weil og Gerson verslunarfélagsins. Húsið var grindarhús sem snéri framhlið að Austurvelli. Páll Melsteð var fæddur á Möðru- völlum í Hörgárdal, 13. nóvember 1812. Foreldrar hans voru Páll Þórðarson Melsteð og Anna Sigríð- ur Stefánsdóttir amtmanns. Páll var elsta barn foreldra sinna, fæddur áður en þau gengu í hjónaband. Á fyrstu árum ævi sinnar var honum komið í fóstur, en kom síðan aftur til foreldra sinna nokkurra ára gam- all. Faðir hans var sýslumaður á nokkrum stöðum á landinu t.d. í Suður - Múlasýslu. Haustið 1828 fór frumburður sýslumannshjón- anna, Páll Melsteð, í Bessastaða- skóla og útskrifaðist þaðan með góðum vitnisburði vorið 1834. Um haustið sigldi Páll til Kaupmanna- hafnar í framhaldsnám en lauk ekki námi vegna heilsubrests. Páll kvæntist þann 30. desember 1840, Jórunni Isleifsdóttur. Isleifur Ein- arsson faðir hennar var um tíma for- seti yfirdóms. Jórunn og Páll eign- uðust átta börn en aðeins tvö þeir- ra komust til fullorðins ára. Jórunn lést í ágústmánuði 1858, tólf árum eftir að þau fluttu í húsið við Aust- urvöll. Árið síðar giftist Páll Melsteð Þóru Grímsdóttur en hún var dóttir Gríms Jónssonar amtmanns. Þóra var ein af nokkrum konum sem gengust fyrir því að Kvennaskólinn í Reykjavík var stofnaður árið 1874 og var hún skólastjóri skólans, sem var á heimili þeirra hjóna. Þóra hafði áður rekið í Reykjavík skóla f)'rir stúlkur ásamt systur sinni Ágústu. THORVALD SEN STRÆ TI2 KVENNASKÓLINN Svona lítur gamli Kvennaskólinn út í dag eftir gagngerðar breytingar en húsið er að utan í upprunalegu horfi. Sjá framhald bls.2 og 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.