Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 16

Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 16
16- ÞRIDJUDAGV R 2 1. NÓVF.MBER 2000 V&íýir (ANPlWM Englar alheimsins sópaði til sín verðlaunum á Edduhátíð- inni sl sunnudagskvöldþar sem hin íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaun voru ofhent. Englamirvoru líka valdirsem framlag íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. „Ég er mjög ánægður með hátíðina í heild og þótti hún takast enn betur en í fyrra. Auðvitað erum við að stíga okkar fyrstu skref í þessu og alltaf er eitthvað sem má bæta.“ segir Ásgrímur Sverrisson sem var meðal þeirra sem skipulagði Edduhátíð- ina. Hann kveðst mjög ánægður með um- gjörð verðlaunaafhendingarinnar nú og stemmninguna í salnum. Um niðurstöður atkvæðagreiðslna kveðst Ásgrímur lítið vilja tjá sig opinber- lega enda sé hann of nátengdur hátíðinni til að taka afstöðu með ákveðnum verkum. „Það var svo mikið stress að koma þessu á koppinn að ég hafði engan tíma til að hugsa um hvernig þetta mundi fara. En þetta var dómur kjósenda og úrslitin voru ágæt.“ - Telur þú Edduverðlaunin hafa mikið gildi erlendis fyrir íslenska kvikmyndun? Aðallega að því leyti sem snýr að Óskarnum. En það er alltaf gott fyrir framleiðendur að hafa einhver verðlaun, tengd myndunum. Pau eru samt einkum hugsuð sem hvatning til framleiðenda til að gera enn betur og ekki síður til að sýna þjóðinni framá hversu öflugt starf fer fram í þessari grein. Það er ágætt að fá það svo- lítið „súmerað upp“ á einu kvöldi. Það er nefnilega mikill hasar í þessum bísniss." Ásgrímur kveðst ekki búinn að kynna sér nógu vel hvaða myndir Englarnir komi til með að keppa við í flokki kvikmynda á Friðrik Þór með verðlaunagripina. Óskarsverðlaunahátíðinni með annað tungumál en ensku til að geta metið möguleikana á verðlaunum þar en hann telur Björk sigurstranglega sem bestu leikkonuna fyrir hlutverk sitt í Dansað í myrkri. En býst hann við áframhaldandi grósku í íslenskri kvikmyndagerð? „Já, ég veit af að minnsta kosti sjö ís- lenskum bíómyndum á næsta „Edduári" sem stendur frá 1. nóv. 2000 til 31. okt. 2001 svo það er ekkert lát á þeim krafti sem einkennir íslenska kvikmyndun." GUN. Ásgrímur Sverrisson er ánægður með hátíðina. Edduverðlaimin í ár hlutu: • Englar alheimsins sem mynd ársins. • Friðrik Þ. Friðriksson fyrir leikstjórn í Englum alheims- ins. • Ingvar E. Sigurðsson sem leikari ársins í aðalhlutverki í Englum alheimsins. • Björk Guðmundsdóttir var valin leikkona ársins í aðal- hlutverki fyrir leik sinn í Myrkradansaranum. • Björn Jörundur sem leikari í aukahlutverki í Englum al- heims. • Margrét Helga Jóhannsdótt- ir sem leikkona í aukahlut- verki í Englum alheimsins. • Baltasar Kormákur fagverð- laun fyrir handrit að mynd- inni 101 Reykjavík. • Hilmar Örn Hilmarsson og hljómsveitin Sigurrós fag- verðlaun fyrir tónlistina í Englum alheimsins • Kjartan Kjartansson fag- verðlaun fyrir hljóðblöndun í Englum alheimsins, Myrkrahöfðingjanum og 101 Reykjavík. • Silfur Egils fékk verðlaun sem besti sjónvarpsþáttur- inn. • Erpur Eyvindsson sem besti sjónvarpsmaður ársins. • Fóstbræður fyrir besta leikna sjónvarpsefnið. • Síðasti valsinn sem besta heimildarmyndin. • Heiðursverðlaun akademí- unnar féllu Þorgeiri Þor- geirsyni í skaut og var það Björk Guðmundsdóttir sem afhenti honum þau. • Tilnefning til Óskarsverð- launa á næsta ári: Englar alheimsins. Leikfélagið Fljúgandi fisk- ar: Medea eftir Evrípídes í þýð- ingu Helga Hálfdanarsonar. Leikgerð: Inga Lísa Middleton, Þórey Sigþórs- dóttir og Hilmar Oddsson. Leikstjóri: Hilmar Odds- son. Leikmynd og búningar: Sonný Þorbjörnsdóttir. Tónlist: Jonathan Cooper. Lýsing: Alfreð Sturla Böðvars- son. Frumsýnt í Iðnó föstudaginn 17. nóvember. Medea er sjálfsagt einhver magnaðasti harmleikur sögunn- ar. Fljúgandi fiskar fara þá leið- ina í uppfærslu sinni, sem eðli- legt verður að teljast, að leggja áherslu á tímaleysi atburðanna. Um er að ræða hjónadeilur og uppgjör vegna framhjáhalds og skilnaðar. Hversdagslegt efni nú á dögum, og jafnvel þótt upp- gjörið sé hrikalegra og skelfi- legra en Ilestir þekkja, þá eru samt sífellt að berast fréttir af ástríðuglæpum og voðaverkum á borð við þá sem sagt er frá í hinu forna leikriti Evrípídesar. Jason hefur sem sagt haldið fram hjá henni Medeu, og er þegar leikritið hefst nýkvæntur annarri konu. Medea situr eftir í sárum og telur sig órétti beitta, enda hafði hún fórnað miklu fyr- ir Jason, þar á meðal myrt bróð- ur sinn og svikið föður sinn. Eina leiðin sem hún sér til að rétta sinn hlut er hins vegar ógæfuleg, nefnilega að fremja ennþá verri glæp en Jason. Hún lætur sér ekki nægja að myrða bæði hina nýju eiginkonu Jasonar og föður hennar, Kreon konung, heldur tekur hún einnig líf barna sinna tveggja, og skilur Jason eftir einan með þjáningu sinni og sorg. Þótt Jason hafi vissulega rofið heitorð sitt og þar með brotið gegn réttum lögum og siðum, er réttlæti Medeu engu Jason og Medea: Skiinaður þeirra endar með blóði drifinni hefnd. að síður svo dýru verði keypt að það snýst upp í skelfinguna eina. Það er Þórey Sigþórsdóttir sem leikur Medeu og Valdimar Örn Flygenring fer með hlutverk Jasonar, ásamt því að koma fram í styttri hlutverkum tveggja konunga, Kreons og Egeifs, sem báðir eru örlagavaldar í sögunni. Leikurinn sjálfur sætir kannski ekki neitt gífurlegum tíðindum. Þórey leikur Medeu af krafti og sannfæringu, og gerir það óneitanlega glæsilega, en flutningur textans er samt frekar upphafinn og eintóna, sem gerði það að verkum að undirritaður þurfti a.m.k. að hafa nokkuð fyr- ir því að halda athyglinni á köfl- um. Valdimar Örn Flygenring fer hins vegar létt með að gæða þennan forna texta h'fi og tilfinn- ingum, og þótt Jason sé kannski svolítið tætingslegur og hvers- dagslegur í meðförum Valdimars þá hentar það vel til þess að færa söguna nær nútímanum. Valdimar er einnig flottur í hlut- verki Kreóns konungs. Leikux að ljósi og skuggum Það er hins vegar öll umgjörð sýningarinnar, sem hvað mest- um tíðindum sætir. Stundum var alveg á mörkunum hvort Iðnó gæti heldur talist leikhús eða kvikmyndahús meðan sýningin stóð yfir. Lifandi myndum er varpað á þrjá hvíta veggi svið- myndarinnar, og samspil leiks og mynda er greinilega bæði þaul- hugsað og ákaflega vel heppnað. Inn í þetta fléttast svo tónlist eftir Jonathan Cooper, sem er falleg, seiðandi og grípandi, og magnast eftir því sem dramatík- in í sýningunni gerist hrikalegri. Leikur að ljósi og skugga er einnig áberandi, oft með greini- legri tilvísun í blómatíma þýskra kvikmynda á þriðja áratug ald- arinnar, til dæmis þegar Kreon konungur stígur fram á sviðið ásamt voldugri skuggamynd sinni. Fleiri tilvísanir eru í kvik- myndasöguna, eins og þegar Egeifur konungur birtist Medeu í bláu ljósi eins og vera utan í geimnum, sem passar vel við óvænta og furðulega innkomu hans í atburðarásina. Beiting lit- aðra ljósa er annars öll hin glæsilegasta, og stundum ótrú- legt að sjá hvernig einfaldri leik- myndinni er gerbreytt með ljósa- notkuninni einni. LEIKLIST Guðsteinn Bjarnason skrifar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.