Dagur - 19.12.2000, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUK 19. DESEMBER 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Spá deilum vegna
stefnubreytmga
George W. Bush, sem tekur við forsetaembættinu í Washington 20. janúar
næstkomandi, Colin Powell, verdandi utanríkisráðherra, og Dick Cheney
væntanlegur varaforseti.
Colin Powell sagður
boða fækkun banda-
rískra hermanna á
Balkanskaga og hert
viðskiptabann gegn
írak.
Það hefur legið fyrir lengi að
Colin Powell yrði utanríkisráð-
herra ef George W. Bush taeki
við völdum í Hvíta húsinu, og nú
hefur það verið staðfest. I eins
konar stefnuræðu sem Powell
hélt þegar skipun hans í emb-
ættið var tilkynnt, lagði hann
áherslu á þann mikla ávinning
sem það hefði í för með sér fvrir
Bandaríkin að knýja alþjóðavæð-
inguna áfram.
Fréttaskýrendur telja að í svör-
um Powells við spurningum
fréttamanna hafi ýmislegt komið
fram sem gefi til kynna verulega
breyttar áherslur í utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna við for-
setaskiptin í janúar. Þannig lagði
Powell mikla áherslu á hið um-
deilda eldflaugavarnarkcrfi sem
kennt er við „stjörnustríð" og þar
með að íjármunum yrði næstu
árin varið til að smíða varnar-
vopn frekar en sóknarvopn.
Hann spáði erfiðum viðræðum
við bandalagsþjóðirnar í NATO
um þessa stefnubreytingu.
Herinn frá Kosovo?
Powell gaf einnig f skyn að hann
myndi leggja áherslu á að minn-
ka kostnað Bandaríkjanna af
friðargæslu í Kosovo og Bosníu,
en þar eru nú alls um 11.300
bandarískir hermenn. Stjórn-
málaskýrendur telja að ríkis-
stjórn Bush leitist við að kalla
verulegan hluta bandarísku her-
mannanna heim en láta alþjóð-
Iegar lögreglusveitir taka við
hlutverki þeirra.
Eins munu repúblíkanar segja
sem svo að ef Evrópusamband-
inu sé alvara með því að stofna
sérstakan e\TÓpskan her, þá sé
kjörið að senda þær hersveitir til
Balkanskagans - að sjálfsögðu á
kostnað Evrópuríkjanna. Þetta
veldur þeim áhyggjum sem ótt-
ast að samstarfið innan NATO
bíði alvarlegan hnekki. Eins og
einn bandarískur sérfræðingur
orðaði það: Ef NATO á ekki að
sinna slíkri friðargæslu lengur,
hvað á það þá að gera?
Or\'ggisráðgjafi Bush, Condo-
leezza Rice, hefur áður mælt
ákveðið íyrir því að Evrópumenn
létti byrðum af Bandaríkjunum
vegna varnarmála álfunnar. Slík-
ar hugmyndir hafa valdið evr-
ópskum ráðamönnum áhyggj-
um.
Rice hefur lagt á það áherslu
að bandarísk stjórnvöld verði að
hugsa um þjóðarhag í þröngum
skilningi þegar ákvarðanir séu
teknar um aðgerðir eins og til
dæmis í Kosovo. Hún hefur
gagnrýnt Clintonstjórnina fy'rir
að grípa til aðgerða sem kunni
að vera réttlætanlegir út frá
hagsmunum alþjóðasamfélags-
ins eða frá mannúðarsjónarmið-
um, en það sé ekki hið sama og
að þær þjóni þjóðarhagsmunum
Bandaríkjanna sem eigi að vera
meginforsenda slíkra ákvarðana.
ViH efla refsiaðgerðir
Ekkert bendir til þess að ný rík-
isstjórn Bandaríkjanna muni
fallast á að draga úr efnahagsleg-
um refsiaðgerðum gegn Saddam
Hussein og Irak. Það var sem
kunnugt er George Bush eldri og
Colin Powell sem stjórnuðu
Persaflóastríðinu gegn Irak fyrir
áratug eða svo. Ein umdeildasta
ákvörðun þeirra var að hætta
átökunum áður en Saddam
hraktist úr embætti. Bush og
Powell töldu líklegt að einræðis-
herrann myndi missa völdin í
kjölfar stríðsins, en svo varð
ekki.
Powell sagði á blaðamanna-
fundinum að hann teldi nauð-
synlegt að setja nýjan kraft í
refsiaðgerðirnar gegn Saddam
og halda áfram að cinangra
hann. Leiðtogar sumra ríkja í
Evrópu hafa hins vegar lagt til að
undanförnu að dregið verði úr
viðskiptabanninu á írak. Stefna
Powells í þessu máli kann því
h'ka að kalla á ágreining við
suma bandamenn Bandaríkj-
anna í Evrópu.
Þingið heimilar Netanyahu framhoð
JERUSALEM - Þingið í ísrael sámþykkti við
fyrstu umræðu frumvarps að aflétta takmörkun-
um á það að Benjamín Netanyahu biði sig fram
sem forsætisráðherra ríkisins, en það samþykkti
var hins vegar lítils virði í ljósi þess að hann hafði
sjálfur lýst því yfir að hann myndi ekki bjóða sig
fram á grundvelli slíkrar undanþágu. Undanþág-
an sem gengur undir nafninu „Bibi - frumvarpið"
til heiðurs Netanyahu, gerir ráð fýrir að í sérstök-
um forsætisráðherrakosningum geti menn boðið
sig fram án þess að þeir séu þegar þingmenn.
Það sem Netanyahu hins vegar setur fýrir sig er
að ekki er gert ráð fyrir að samhliða forsætisráð-
herrakosningum fari fram almennar þingkosn-
ingar. Hann segist því ekki ætla að taka þátt í kosningum þar sem
einungis er kosinn forsætisráðherra en ekki nýtt þing.
Benjamín
Netanyhu, vill
þingkosningar
Skipta eignum Jiigóslavíu
BRUSSEL - Embættismenn frá Júgóslavíu, Bosníu, Króatíu,
Makedóníu og Slóveníu hófu í gær viðræður um hvernig skipta ætti
milli ríkjanna eignum sem ríkið í gömlu Júgóslavíu átti meðan það
var og hét. Talsmaður Bosníustjórnar sagði að þetta væri fýrsti fund-
urinn þar sem öll ríkin ættu fulltrúa frá því í fyrra og væri þessi f’und-
ur til þess ætlaður að reyna að finna einhverja Ieið áfram í þessu flók-
na og erfiða máli. Talið er að eignir júgóslavneska rfkisins sem enn
eru hægt að nálgast og eru því í þessum potti sem nú er verið að
ræða, nemi um 100 milljörðum Bandaríkjadala. Það er því eftir tals-
verðu að slægjast.
Putin hittir Chretien
OTrAWA - Vladimir Putin forseti Rússlands og
Jean Chreticn forsætisráðherra K;mada hittust í
gær með formlegum hætti til að ræða um af-
vopnun, þróun mála á heimskautasvæðum ríkj-
anna og aukna verslun. Putin, sem er í 3ja daga
opnberri heimsókn í Kanada og Jean Chretien
ætluðu í gær að undirrita yfirlýsingu um nokkur
atriði sem varða hernaðarlegt jafnvægi í heimin-
um. I þessari yfirlýsingu eiga að koma fram hel-
stu viðmiðanir og markmið í þessum efnum sem
ríkin hyggjast þróa í samskiptum sínum - en bæði
ríkin eiga gríðarlega mikið land á heimskauta-
svæðinu. Heimsókn Putins hófst á sunnudag en
til Kanada kom hann frá Kúbu þar sem hann
hafði verið í opinberri heimsókn áður.
Vladimir Putin er
nú I heimsókn I
Kanada þar sem
hann ræðir m.a. við
Jean Chretien
Dómarar skora á hægri öfgameim
VIN - Dómarar og saksóknarar í Austurríki sökuðu í gær Frelsis-
flokkinn um að ógna sjálfstæði þjóðarinnar með því að hafa ólögmæt
afskipti af rannsóknum á málefnum fyrrum formanns flokksins Joerg
Haider.
Um tveir þriðju hlutar dómara og saksóknara í Iandinu undirrituðu
yfirlýsingu þar sem stjórnmálamenn eru hvattir til að virða lögræði í
landinu reyna ckki að beita bolabrögðum til að nýta sér réttarkerfið í
landinu í pólitískum tilgangi.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER
354. dagur ársins, 12 dagar eftir.
Sólris kl. 11.20, sólarlag kl. 15.30.
Þau fæddust 19. desem-
her
• 1910 Jean Genet, franskur tugthúslimur
og rithöfundur.
• 1915 Edith Piaf, frönsk dægurlagasöng-
kona.
• 1937 Jónatan Þórmundsson prófessor.
• 1938 Alfreð Flóki myndlistarmaður.
• 1939 Cicely Tyson, bandarísk leikkona.
• 1944 Richard Leaky, kenískur fornleifa-
fræðingur, mannfræðingur og stjórnmála-
maður.
• 1901 brunnu 12 hús á Akureyri í mesta
eldsvoða sem orðið hafði hér á landi.
• 1969 var samþykkt á Alþingi að ísland yrði
aðili að Fríverslunarsamtökum Evrópu
(EFTA).
• 1972 lauk síðustu ferð manna til tungls-
ins, en þá höfðu þrír bandarískir geimfarar
verið á ferðalagi sínu um borð í geimfarinu
Apollo 17. í tólf daga.
• 1984 samþykkti breska stjórnin að af-
henda Kínverjum Hong Kong að nýju, eins
og Bretar höfðu upphaflega samið um árið
1898.
• 1998 samþykkti fulltrúadeild Bandaríkja-
þings að kæra Bill Clinton forseta til emb-
ættismissis f\'rir að hafa svarið rangan eið
í yfirheyrslum um framhjáhald sitt.
Þetta gerðist 19. desem-
her
• 1821 hófst eldgos í Evjafjallajökli.
Skyrgámur
Litlar líkur eru tii þess að Skyrgámur
geti gengið hús úr húsi og hámað í sig
skyr upp úr heilu keröldunum eins og
hann er sagður hafa gert áður fyrr.
Þráhvggjuna getur hann þó vart
hamið, og því er óþarfi að láta s<
bregða þótt komið verði að tómum
skyrdollum í ísskápum landsmanna
dag.
Jafnvel dyggðin þarf að eiga sér
takmörk.
Montesquieu
Vísa dagsins
Norðanvindur leið um láð
Ijótur einu sinni,
fannst mér þá sem fest á þráð,
flest hér húsakynni.
Páll Ólafsson
Heilabrot
Hvað er það, sem alltaf er framundan en
enginn getur þó séð?
Lausn á síðustu gátu: Kerti.
Vefur dagsins
Sögur af grasrótarhreyfingum í Banda-
ríkjunum og hetjudáðum sem unnar
hafa verið í tengslum við þær ættu að
gleðja einhver hjörtu svona rétt fyrir jól-
in: www.grass-roots.org