Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Blaðsíða 3
^Oagur-Βmtmt
Fimmtudagur 8. maí 1997 -15
LÍFIf> I LANDINU
Allar á
sjukrahúsin
Pær Sigurveig Gísladóttir, Ásdís
Pétursdóttir og Freygerður Sig-
ursveinsdóttir eru allar að ljúka
fyrsta ári í hjúkrunarfræðum í
Háskólanum á Akureyri. Þær
munu allar vinna á sjúkrahjús-
um í sumar.
„Ég verð að vinna á sjúkra-
húsinu á Seyðisfirði, ég er það-
an,“ segir Sigurveig. „Ég hef
unnið þar meira og minna síð-
an ég var sautján ára þó ég hafl
líka unnið í sjoppu, sfld og
loðnu, í sundlaug og við hitt og
þetta.“
Ásdís: „Ég verð að vinna á
Landspítalanum í sumar, það
var tiltölulega auðvelt að fá þá
vinnu. Við vinnum í sjúkrahða-
störfum þessi ár með náminu
og það er mjög gott að kynnast
því.“
Freygerður: „Ég hef verið að
vinna á handlækningadeildinni
á FSA í vetur með náminu, aðra
hvora helgi, og verð þar í sum-
ar. Ég var búin að bíða lengi til
að komast inn á spítalann
hérna og loksins gekk það.“
Freygerður segist hafa unnið
meira og minna á sjúkrahúsum
síðan 1991, aðallega í Ólafs-
firði. -mar
? tt&y/,
Hjúkrunarfræðinemar fara á Sjúkrahúsið.
„Það er ekki um neitt að ræða fyrir okkur, jú bæjarvinnan og að passa,"
segir Elísabet Björgvinsdóttir, 14 ára, og Lilja Guðmundsdóttir, 15 ára.
Viljalíka
skúra
„Maður er farinn að leita en
þetta er erfitt. Við höfum sótt
um hjá McDonald’s og á Hrafn-
istu. Við höfum ekki fengið svar
en eigum að hringja til að vita
hvort við fáum vinnu. Það er
ekki um neitt að ræða fyrir okk-
ur, jú bæjarvinnan og að
passa,“ segja Elísabet Björg-
vinsdóttir, 14 ára nemandi í Ár-
bæjarskóla, og Lilja Guðmunds-
dóttir, 15 ára nemandi í Breið-
holtsskóla, þar sem þær sitja í
blíðunni á Austurvelli og sleikja
ís.
Elísabet og Lilja hafa fram
að þessu bara unnið í unglinga-
vinnunni hjá borginni og önnur
þeirra reyndar í nokkra daga á
fasteignasölu hjá pabba sínum.
Það er allt. Þær hafa engin
ákveðin störf í huga fyrir sum-
arið og sækja aðallega um hjá
stóru fyrirtækjunum í borginni,
til dæmis Hagkaup, 10-11 og
fleiri fyrirtækjum þar sem íjöld-
inn sækir um. Þær vonast jafn-
vel til að fá vinnu á kassa í stór-
verslun en vilja líka allt eins
skúra. -GHS
„Ekkert gaman að standa í roki og rigningu og reita arfa,“ segja vinkon-
urnar Harpa Ingólfsdóttir og Ásta Þorsteinsdóttir.
Vinnu-
mennska í
sveit
„Ég fer bara í bæjarvinnuna
eða eitthvað svoleiðis. Ég held
ekki að ég fari að leita mér að
neinu öðru,“ segir Harpa Ing-
ólfsdóttir, 16 ára nemandi í Ár-
bæjarskóla, þar sem hún var á
labbi í miðborg Reykjavíkur
með vinkonu sinni, Ástu Þor-
steinsdóttur, 16 ára.
Ásta er þegar búin að fá
sumarvinnu og verður vinnu-
maður í sveit í Borgarfirðinum.
Hún hefur þegar verið þar áður
í fjögur sumur og þekkir því vel
til allra hátta og er þegar farin
að hlakka til að fara þangað
aftur.
Vinkonurnar segja að krakk-
ar séu almennt farnir að leita
sér að vinnu og labba milli fyr-
irtækja og telja það „ekkert
gaman að standa í roki og rign-
ingu og reita arfa.“ -GHS
Sumarvinna er útivinna, annað er
ekki alveg ekta.
Ungir ungling-
ar fá allir vinnu
„Ég veit ekki hversu margir eru
búnir að sækja um en síðasti
skráningardagur hjá 14 og 15
ára er í dag (í gær),“ sagði Jón-
ína Laxdal en hún sér um
sumarstörf fyrir unglinga Akur-
eyrarbæjar.
Ekki verður unnt að útvega
öllum unglingum 15-17 ára
störf en þeir eru að sögn Jónínu
dugleg við að útvega sér vinnu
annars staðar. „Krakkar á aldr-
inum 14-15 ára sem sækja um
fá hins vegar allir vinnu hjá
okkur, hluta af sumrinu eða í
sjö vikur.“ Þetta hefur að sögn
Jónínu mælst vel fyrir. „Þessi
eldri byrja þá á morgnana og
eru í þrjár og hálfa klukku-
stund, yngri hópurinn byrjar
klukkan eitt á daginn og vinnur
til ijögur.“
Bærinn getur útvegað um
helmingnum vinnu á aldrinum
15-17 ára og er það svipað
hlutfall frá ári til árs.
Langflestir
hjá
borgnmi
Langstærstur hópur ungs fólks
leitar eftir sumarvinnu hjá
Vinnumiðlun Reykjavíkur enda
rekur borgin vinnumiðlun fyrir
fólk allt frá 13 ára aldri, fyrst
gegnum Vinnuskólann og svo
fyrir 17 ára og eldri hjá Vinnu-
miðlun skólafólks. Oddrún
Kristjánsdóttir, forstöðumaður
Vinnumiðlunar Reykjavíkur-
borgar, segir að horfurnar virð-
ist töluvert bjartari en í fyrra.
Vinnumiðlunin býður einkum
störf á vegum ýmissa borgar-
fyrirtækja, íþrótta- og tóm-
stundaráðs, ÍTR, Gatnamála-
stjóra og Veitustofnana auk
þess sem styrkur er veittur til
fyrirtækja og bænda til að ráða
ungt fólk. Þá er ungt atvinnu-
laust fólk á aldrinum 17-19 ára
í starfsnámi á vegum Hins
hússins.
Frestur til að sækja um sum-
arvinnu á vegum Vinnumiðlun-
arinnar rann út um síðustu
mánaðamót og eru nú um
1.900 einstaklingar á skrá. Þó
má búast við brottfalli. í fyrra
fengu 2.480 vinnu hjá borginni,
þar af tæplega 1.500 á vegum
Vinnuskólans. -GHS