Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Blaðsíða 4
24 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982. DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982. 25 íþróttir íþróttir íþrótt íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Lokastaðan í 1. deild — og markhæstu leikmennirnir Úrslit í 14. og lokaumferðinni í 1. deild íslands- mótsins í handknattleik karla urðu þessi. Valur —Þróttur 18—30 KR—KA 33—20 HK—Fram 13—18 FH—Vikingur 15—16 Lokastaðan í mótinu var þannig. Víkingur 14 12 0 2 315- -239 24 FH 14 10 1 3 338- -311 21 Þróttur 14 10 0 4 315- -280 20 KR 14 9 1 4 314—291 19 Valur 14 6 0 8 281- -284 12 Fram 14 3 1 10 276- -326 7 HK 14 2 1 11 249- -284 5 KA 14 2 0 12 262- -335 4 Markahæstu leikmenn i deildinni. Alfreð Gíslason, KR, 109/28 Kristján Arason, FH, 97/49 Siguröur Sveinsson, Þrótti, 91/18 Þorbergur Aðalsteinsson, Vík. 78/13 Friðjón Jónsson, KA, 72/14 Páll Ólafsson, Þrótti, 64/5 Ragnar Ólafsson, HK, 63/27 Egill Jóhannesson, Fram, 59/21 Sigurður Sigurðsson, KA, 53 Brynjar Harðarson, Val, 51/24 Hannes Leifsson, Fram, 50/2 -hsim. Þeir skoruðu mörk Víkings Mörkin 315, sem Vikingar skoruöu í leikjunum fjórtán á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum, voru skoruö af ellefu leikmönnum. Skiptust þannig milli þeirra. Þorbergur Aðalsteinsson 78/13 Páll Björgvinsson 47/7 Ólafur Jónsson 41 Sigurður Gunnarsson 35/13 Guðmundur Guðmundsson 31 Steinar Birgisson 30 Óskar Þorsteinsson 18/6 Árni Indriöason 15/3 Hilmar Sigurgíslason 11 Heimir Karlsson 7 Einar Magnússon 2 -hsím. Minningarsjóður um JónGunnlaug Foreldrar Jóns Gunnlaugs Slgurðssonar, sem fórst í bilslysi viö Fáskrúðsfjörö sl. fimmtudag, þau Sig- urður Jónsson og Rakel Viggósdóttir, hafa ákveðiö að stofna minningarsjóð um son sinn. Skipulagsskrá sjóðsins er i undirbúningi en sjóðurinn á að stuöla að því að Vikingur eignist iþróttahús á íþróttasvæði sínu við Hæðargarð. Foreldrar Jóns Gunnlaugs lögðu 20 þúsund krónur sem stofnfé I sjóðinn. Hann mun bera nafn Jóns Gunnlaugs. Jón Gunnlaugur Sigurðsson lék um langt árabil í meistaraflokki Víkings. Varð íslandsmeistari með Víking 1975 og lék i íslenzka landsliðinu. Foreidrar hans komu með Ifk hans að austan á laugardag, skömmu eftir úrslitaleik FH og Víkings í Hafnar- firði. Allir ieikmenn meistaraflokks Víkings nú, stjórnarmenn og eldri leikmenn, sem urðu íslands- meistari með Jóni Gunnlaugi, voru á flugvellinum og félagar hans úr meistaraliðinu 1975 báru kistuna úr flugvélinni í líkbílinn. Ajax skoraði 9! Úrslit í úrvaisdeildinni i Hollandi í gær urðu þessi. Maastricht—AZ ’67 Haarlem—RODA, Kerkrade NEC, Nijmegen—Utrecht Feyenoord—Deventer Tilburg—PSV Eindhoven PEC Zwolle—NAC Breda Twente—Sparta de Graafschap—Groningen Ajax—Den Haag Staða efstu liöa. 0—4 1—0 1—0 2—0 0—1 1—2 1—0 1—3 9—1 PSV 24 18 2 4 59—23 38 Ajax 24 17 3 4 87—34 37 AZ’67 24 15 4 5 52—28 34 Feyenoord 24 11 9 4 47—39 31 Utrecht 24 13 4 7 40—28 30 MIKILL BAR- ÁTTULEIKUR —sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Víkings, um úrslitaleikinn. Bjóst frekar við þessum úrslitum, sagði Geir Hallsteinsson „Þetta var erfiður, sterkur og harður leikur. Mikil barátta og ekki fallegur handknattleikur, sem cr eðlilegt í svo mikilvægum leik," sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Vikings, eftir að liö hans hafði sigrað FH i Hafnarfirði og orðið islandsmeistari þriðja áríð i röð. ,,Eg átti alitaf von á jöfnum leik, taugaleik. Já, ég held að betra liðiö hafi sigrað — bezta liðið í mótinu. Að vísu getur slikt lið tapað einum og einum leik. En þeg- ar á heildina er litið tel ég að bezta liðiö hafi oröið íslandsmeistari,” sagði Bogdan ennfremur. Fyrir leikinn samdi hann við handknatt- leiksdeild Víkings um áframhald- andi þjálfun hjá félaginu. Bogdan Kowalczyk verður þvi þjálfari Islandsmeistaranna næsta vetur, fimmta leiktimabilið. Undir stjórn hans hefur Víkingur náð frábærum árangri, þrisvar orðið íslands- meistari og auk þess bikarmeistari og Reykjavíkurmeistari oftar en einu sinni. Bjóst frekar við þessu ,,Ég er ekkert óánægður með þessi úrslit og leikinn. Bjóst frekar við þessum úrslitum fyrirfram. En FH-strákarnir eru ungir og eiga framtíðina fyrir sér,” sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH, eftir úr- slitaleikinn í íþróttahúsinu i Hafnarfirði á laugardag. -hsím. íslandsmeistarar Vikings 1982. Fremri röð frá vinstri: Heimir Karlsson, Óskar Þorsteinsson, EHert Vig- fússon, Páll Björgvinsson, fyrirliði, Kristján Sigmundsson og Guðmundur Guðmundsson. Efri röð: Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri, Ólafur Jónsson, Árni Indriðason, Þorbergur Aðalsteinsson, Steinar Birgisson, Bogdan Kowalczyk, Sigurður Gunnarsson, Hilmar Sigurgislason og Jón Kr. Valdimarsson, formaður hand- knattleiksdeildar Vfkings. DV-mynd Gunnar. --- - = Víkingur íslandsmeistari Guðmundur Guðmundsson gulltryggir Vikingum lslandsmeistaratitilinn 1982, vippar knettinum yfir Gunnlaug Gunnlaugsson, markvörð FH. Staðan 16—14 fyrir Viking og aðeins 100 sekúndur til leiksloka. Frábært mark unga landsliðsmannsins. DV-mynd Gunnar. í einum tvísýnasta úrslitaleik sem háður hefur verið í íslandsmótinu í handknattleik vörðu Vikingar íslands- meistaratitil sinn með þvi að sigra FH 16—15 i iþróttahúsinu í Hafnarfirði á laugardag. Spennan var rafmögnuð allan leikinn og þó mest loka- mínúturnar. Þremur mínútum fyrir leikslok kom Þorbergur Aðalsteinsson Vikingum í 15—14. FH-ingar reyndu ákaft að jafna, Kristján Arason skaut á markið en Ellert Vigfússon, markvörður Víkings, varði glæsilega efst i markhorninu. Vikingar brunuðu upp og Guðmundur Guðmundson komst frír inn úr horninu. Vippaði knettinum yfir markvörð F'H. Frá- bærlega að verki staöið hjá landsliðs- manninum unga og þar með var sigur Víkings í íslandsmótinu í höfn. Staðan 16—14 og aðeins 100 sekúndur eftir. FH gat varla skorað þrjú mörk á þeim tima. FH sótti og þegar 80 sek. voru eftir var dæmt vitakast á Víkinga. Víkingaþjálfarinn Bogdan Kowalczyk mótmælti dómnum ákaft og Gunnlaugur dómari Hjálmarsson vísaði Bogdan til búningsklefanna. Síðan tók Kristján Arason vítakastiö og skoraði, 16—15. Allt á suðupunkti í íþróttahúsinu. Sæmundi Stefánssyni, FH, vikið af velli, rétt á eftir Þorbcrgi hjá Vikingi. FH náði knettinum og brunaði upp. Steinar Birgisson braut á leikmanni FH, sem þó tókst að koma knettinum áfram til Finns Árnasonar. Hann skoraði en Gunnlaugur hafði flautað á brot Steinars „það hvarflaði ekki að mér að FH-ingum tækist að gefa á Finn,” sagði hann eftir leikinn. Þar tók hann jafntefli af FH — liðið fékk aukakasl. Nokkrar sekúndur eftir og FH-ingar misstu knöttinn. Víkingar i sókn, brotiö var á Guðmundi þremur sekúndum fyrir leikslok. Víkingar hirtu ekki um að taka aukakastið. Sigur I mótinu var þeirra — þriðja árið i röð. Iþróttahúsið í Hafnarfirði var meira en yfirfullt er leikur FH og Víkings hófst. Ahorfendur hér og þar og alls staðar, lágu við hliðarlínur, voru jafnvel inni á leikvellinum. Talið er að þeir hafi verið hátt í 1500 eða miklu fleiri en húsið rúmar. Hundruð urðu frá að hverfa. „Það var á mörkunum að hægt væri að láta leikinn fara fram, það var varla hægt að bjóða leik- mönnum upp á þetta,” sögðu dómar- arnir Gunnlaugur og Óli Olsen. En það var hægt að ljúka leiknum við þessar Sigraði FH16-15 í æsispennandi úrslitaleik á laugardag Bogdan Kowalczyk verðar áfram þjálfari Vlkiag*. erfiðu aðstæður. Ólga eftir leikinn og litlu munaði að kæmi til handalög- mála. Ekki allir sáttir við úrslit leiksins. Víkingar byrjuðu betur Leikurinn byrjaði heldur rólega en Víkingar voru fyrri til að ná valdi á taugunum. Skoruðu tvö fyrstu mörkin, Steinar og Árni Indriðason. Kristján skoraði fyrsta mark FH úr vítakasti á 8. mín. Pál Björgvinsson svaraði strax fyrir Víking, 3—1. Guðmundur Magnússon skoraði fyrir FH, Sigurður Gunnarsson fyrir Víking en síðan jöfnuðu Sæmundur og Valgarð Valgarðsson f 4—4. Fyrri hálfleikurinn hálfnaður. Páll hafði verið mjög virkur í sóknarleik Víkings og þjálfari FH, Geir Hallsteinsson, greip til þess ráðs að láta taka hann úr umferð það sem eftir var leiksins. Víkingar tóku upp sama hátt gegn Kristjáni Arasyni ' skömmu síðar. Greinilegt var, að FH-ingar höfðu búið sig mjög vel undir að taka á móti Þorbergi í sókninni, kynnt sér vel leikaðferðir Víkings. Þjálfari Víkings, Bogdan Kowalczyk, kom með mótleik. Hvíldi Þorberg langtímum saman ii sókninni en lét Sigurð Gunnarsson taka hlutverk hans. Þetta heppnaðist vel hjá Bogdan. FH-ingar áttuðu sig ekki eins á Sigurði, sem skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt á þýðingarmiklum augna- blikum. Lék sinn bezta leik með Vik- ingi frá því hann kom heim sl. haust frá Þýzkalandi. Páll BJörgvInsson hampar bikarnum eftir að Júllus Hafsteln, formaður HSÍ, hafði afhent honum hann. DV-mynd Gunnar. Jafnt var á öllum tölum upp í 7—7, þar sem Víkingar skoruðu á undan. En síðan náðu FH-ingar sínum bezta leik- kafla. Eftir að Kristján Arason hafði jafnað fyrir FH úr vítakasti á 25. mín. — Kristján Sigmundsson hafði varið frá honum víti í stöðunni 4—4 komst FH í fyrsta skipti yfir á 27. mín. Hans Guðmundsson skoraði og síðan kom Kristján FH I 9—7. FH-Iiðið náði knettinum aftur og hafði möguleika á að ná þriggja marka forskoti, en það tókst ekki. Víkingar fengu knöttinn. Guðmundur lék mjög hratt upp, brotið á honum og aukakast. Guðmundur fékk knöttinn og brauzt inn af linu þremur sek. fyrir hálfleiks- lok og skoraði. 9—8 í hálfleik og þetta var þýðingarmikið mark fyrir Víking. Spennan gífurleg Víkingar byrjuðu með knöttinn í síðari hálfleik. Ólafur Jónsson, sem átti stórleik í Víkingsliðinu, bezti maður á vellinum, jafnaði fljótt í 9—9. Víkingar létu ekki þar við sitja. Komust i 10—9 á 34. mín. með marki Páls. Hans jafnaði strax, bezti maður FH eftir að Kristján var tekinn úr umferð. Ólafur kom Víking aftur yfir, Hans jafnaði i 11 —11. Víkingar skiptu um markmann og EUert átti eftir að koma mikið við sögu með snjallri markvörzlu. Á 41. mín. náði Víkingur forustu með marki Sigurðar. Pálmi Jónsson en tvívegis náði svo Ólafur forustu fyrir Víking, en Kristján og Guðmundur Mag. jöfnuðu í 14—14 og tæpar 12 mín. til leiksloka. Mikið jafnræði með liðunum og áhorfendur, sem að miklum meirihluta studdu FH, vel með á nótunum. Víkingsþjálfarinn reyndi ýmislegt til að vega upp á móti að Páll var tekinn úr umferð. Notaði engan línumann en var með þrjár langskyttur fyrir utan, Þor- berg, Steinar og Sigurð. FH-vörnin lagði ofurkapp á að gæta þeirra og hornin opnuðust. Ólafur nýtti það mjög vel. Þorbergur í sérstaklega strangri gæzlu en þremur mín. fyrir leikslok brauzt hann I gegn. Skoraði sitt eina mark í leiknum, 15—14 og rétt á eftir varði Ellert frá Kristjáni. Guðmundur gulltryggði svo sigur Víkingsog lokunum er áður lýst. Sterkur varnarleikur Leikurinn einkenndist öðru fremur af sterkum varnarleik beggja liða. Þar var ekkert gefið eftir. Markvarzla mjög þokkaleg, snjöll þó hjá Ellert. Talsvert um villur í sóknarleiknum. Skiljanlegt I svo mikilvægum leik. Sigur Víkings byggðist fyrst og fremst á jafnari liðsheild. Þar er hvergi veikur hlekkur. Varla hægt að nefna einn leikmenn öðrum fremur nema hvað Ólafur sýndi allar sínar beztu hliðar. Hreint frábær. Árni bindur vörnina mjög vel saman og hreyfanleiki þar er mikill allan leikinn. Leikmenn í toppþjálfun. FH hefur ungum leikmönnum á að skipa, mjög efnilegum. Kristján er þegar kominn í hóp okkar albeztu leikmanna en þegar hann er tekinn úr umferð riðlast sóknarleikurinn nokkuð. Valgarð átti mjög góðan leik framan af, Hans og Sæmundur traustir allan leikinn en liðsheildin miklu veikari en hjá Viking. FH saknaði Þor- gils Óttars Mathiesen, hins snjalla línumanns, þó svoGuðmundurMagnús- son stæði eftir atvikum vel fyrir sinu. Ungu FH-ingarnir stóðu vel fyrir sínu þó þeir yrðu að lúta í lægra haldi fyrir snjöllu Víkingsliði. Flestir sammmála því að Víkingur sigraði verðskuldað í mótinu. Geysilega sterkt lið. Frábær árangur Víkingur sigraði eins og áður segir þriðja árið i röð á íslandsmótinu. Árangur liðsins þessi þrjú ár er hreint frábær. Liðið hefur leikið 42 Ieiki í þeim, sigraði í 39, gert eitt jafntefli og tapað 2 leikjum. Hlotið 79 stig af 84 mögulegum á þessum þremur íslandsmótum. Aðeins tapað fimm stigum í þrjú ár. Frábær árangur og hreint ótrúlegur þegar litið er á árangur þess liðs, sem var í öðru sæti á mótinu, sem nú var að Ijúka. FH tapaði sjö stigum á þessu íslandsmóti. Mörk FH í leiknum á laugardag skoruðu Kristján 6/3, Hans 3, Guðm. Mag. 2, Valgarð 2, Sæmundur 1 og Pálmi 1. Mörk Víkings skoruðu Ólafur 5, Sigurður 3, Steinar 2, Páll 2, Guðmundur 2, Árni 1 og Þorbergur 1. Dómarar eins og áður segir Gunnlaugur og Óli Olsen. FH fékk fjögur vítaköst í leiknum. Nýtti þrjú. Víkingur fékk ekkert vítakast i leiknum. Sex sinnum var leikmönnum FH vikið af velli. Hans og Valgarð tvívegis, Kristjáni og Sæmundi. Fimm sinnuin var Víkingum vikið af velli, Árna tvívegis, Hilmari, Steinari og Þorbergi. -hsím.' Páskar í Nú œtlum við hjá Flugleiðum að bjóða þér í spennandi íerð. Áíangastaðurinn er Chicago við Michiganvatn. Þar er að íinna saíaríkustu steikur vestursins, írœgar byggingar eins og Wrigley'shúsið, Sears Tower og Baha'ihoíið, írá- bœrar verslunarmiðstöðvar eins og Woodíield Shopping Mall, sem er rétt utan við borgina. Dvalið verður á Holiday Inn hótelinu allar nœtumar sjö. Brottfarir verða viku- lega á sunnudögum, sú fyrsta er páskaíerð 4. apríl. Verðið er ekki síður spenn- andi en áíangastaðurinn og inniíalið er flugíar, gisting, flutningur til og írá flugvelli, kynnisferð um borgina og íslensk íararstjóm. Að auki er möguleiki á ýmsum skoðunarferðum m.a. siglingu um Michiganvatn. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi Verð írá 5.970 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.