Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1982, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 9. JUU1982. vað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina Hestamannamót nmtanir Rall áHúsa- Allir biladellumenn sem vettlingi geta valdið munu verða á Húsavík um helgina, en þar fer fram keppni í raili og rallkrossi á vegumBifreiða- íþróttaklúbbs Húsavíkur. Rallkeppnin hefst klukkan 6 á laugardagsmorgun og er þetta önnur keppnin til Islandsmeistaratitils sem haldin er á þessu ári. Hin fyrri var haldin í Borgamesi, og sigraði Omar Ragnarsson þar. Að þessu sinni verður ekin um 400 kílómetra leiö frá Húsavík, um Reykjaheiði, og niður að Mývatni. Áætlað er að keppninni verði lokið um klukkan 17. Um kvöldið verður ball á Hótel Húsavík, þar sem verölaunaafhending fer f ram. Að sunnudeginum verður keppni í rallkrossi og verður það í fyrsta sinn sem keppt er í þeirri grein utan Reykjavíkursvæðisins, á móti sem gefur stig til Islandsmeistaratitils. Norðlendingar hafa þegar tilkynnt þátttöku 10 bíla i keppninni enda er búiztviðspennandikeppni. ÖEF ur á Vindheimamelum og dansleikir í Argarði, Miðgarði og Húnaveri. Inngangs- eyrir á hestamannamótið er 350 krónur en ókeypis yfir böm yngri en tólf ára. Nóg verður þvi um skemmtanir á Lands- mótinu 1982 en auðvitað munu keppnis- hestamir draga að sér mesta athygli manna. Eru um 500 hestar skráðir í marg- víslegar keppnir. Kappreiðavöllurinn á Vindheimamelum er prýðisgóöur og þar má búast við spennandi keppni. -SKJ ðff mannleg grímmd i einum „Eg er 26 þumlungar á hæð, vel vaxinn og svara mér prýðilega, en samt kann að vera aö höfuðið sé heldur stórt í samanburöi við annan vöxt. Hárið er ekki svart, heldur rauðleitt, mjög strítt og þykkt, strok- ið aftur frá gagnaugunum og enninu sem er mjög breitt, en ekki að sama skapi hátt. Ég er skegglaus, en að öðm leyti nákvæmlega eins og hver annar maður. Eg er sambrýndur. Sterkur er ég, einkum ef ég reiðist. Þegar okkur Jósafat var skipað að glíma liðu ekki nema tuttugu mín- útur þangað til ég felldi hann á bakiö og kyrkti hann. Eftir það hef ég verið eini dvergurinn við hirðina. Þannig hljóðar upphafiö að „Dvergnum” eftir Pár Lagerkvist. Málfríður Einarsdóttir hefur þýtt bókina á íslenzku og kom hún nýlega út hjá Bókaklúbbi AB. Par Lagerkvist fæddist 1981 í Smá- löndunum í Svíþjóð. Lagerkvist var af bændum korninn en faðir hans var dvergi verkamaður. Engu að síður komst Lagerkvist til mennta og stundaði um skeið nám í háskóla. Hann var kosinn í sænsku akademiuna 1940 og hlaut nóbelsverðlaun í bókmenntum 1951. Lagerkvist var alinn upp í kristinni trú en kenningar Darwins höfðu snemma áhrif á hann. Glöggt má sjá á fyrstu ljóðabokum hans og leikritum hversu þungt honum féll harmleikur fyrstu heimsstyrjaldar- innar. Hann hafði alltaf viðbjóö á grimmd og ofbeldi en „Dvergurinn” f jallar einmitt um allt hið versta í mannskepnunni. „Dvergurinn” kom fyrst út á sænsku árið 1944. Skáldsagan segir frá atburöum sem gerast eiga á end- urreisnartímanum. Engu að síður er í bókinni fengizt við að lýsa tilfinn- ingum og atburðum sem erindi eiga til manna á öllum tímum. Dvergurinn sem segir söguna ber sig ævinlega ákaflega mannborlega. lllska hans er alger og á rætur sínar í smæð hans og vanmáttartilfinningu. Hegðun dvergsins snýst jafnan um það að koma illu til leiðar. Hann hik- ar ekki við að fremja morð og steypa fólki í glötun. Allt sem að jafnaði er talið gott og fagurt er viðbjóðslegt í augum dvergsins. Stundum er þó eins og rofi til í hugskoti hans en aldrei lengi í senn. Dvergurinn gegnir stöðu hirðfífls hjá fursta nokkrum. Furstinn er slægvitur, grimmur og elskur að ýmsum ósóma. Alþýðan í ríki furst- ans er ofurseld valdi hans og líf smá- mennanna er herfilega aumt. Ange- líka dóttir furstans er ef til vill helzti fulltrúi sakleysis og góömennsku í „Dvergnum” enda hatardvergurinn hana meira en flesta aðra. „Dvergurinn” er mögnuð lýsing á illsku og grimmd. Sé miðað við útlit- ið í heimsmálunum í dag hefur „Dvergurinn” engu tapað af gildi sínu. Eins og vænta mátti er þýðing Mál- fríðar Einarsdóttur á „Dvergnum” prýðileg. Fáir Islendingar sem drepa niður penna um þessar mundir Kinverskt ijóö Karis Kvarans. FéJagar í nýstofnuðu Listmálara- félagi Islands sýna nú að Kjarvals- stöðum. Meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni eru margir af þekktustu listmálurum landsins en félagar í listmálarafélaginu eru 21 talsins. Sýning listmálarafélagsins hefur fengið ákaflega góða dóma.Á henni er að finna olíumálverk, alkrýlmyndir og blýantsteikningar. Sýningu listmálarafélagsins lýkur nú á sunnudagskvöld, en þangað til er hún opin frá klukkan 14 til 22. Félagar í Listmálarafélagi Islands eru: Agúst Petersen, Bragi Asgeirs- son, Einar Baldvinsson, Einar Hákonarson, Einar Þorláksson, Elías B. Halldórsson, Guðmunda Andrésdóttir, Gunnar öm Gunnars- son, Hafsteinn Austmann, Hrólfur Sigurðsson, Jóhannes Jóhannesson, Kari Kvaran, Kjartan Guöjónsson, Kristján Davíðsson, Sigurður Sigurðsson, Sigurður Örlygsson, Steinþór Sigurðsson, Svavar Guðna- son, Valtýr Pétursson, Vilhjálmur Bergsson og ÞorvaldurSkúlason. -SKJ Málfríöur Einarsdóttir hefur þýtt „Dverginn" og er málið á bókinni vandað og fagurt. D V-mynd. Ragnar Th. virðast komast jafnfætis Málfríði í málsnilld. Tveir snillingar hafa lagt hönd á plóginn þar sem „Dvergurinn” er annars vegar. Frásagnarlist Lager- kvists er hrifandi og mikill fengur að því að Málfríður skuli hafa tekið að sérþýðinguáverkihans. -SKJ ILARA- IÚKA KLÚBBURINN: Bæði á föstudags- og laugar- dagskvöld mun hljómsveitin Pass leika fyrir dansi en auk þess mun diskóió dynja. Klúbburinn er opinn frá kl. 11.30—3.00. HOLLYWOOD: Dansinn dunar fram til 3 undir dúndrandi diskóteki, bæði föstúdag og laugardag. Ogsíðpilsin sviptust.... GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður í diskó- tekinu um helgina frá klukkan 10—03, það er diskósalur 74, tónlistin úr safni ferðadiskó- teksins. Grétar býður alla velkomna og óskar gestum góðrar skemmtunar. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi í öðrum sal hússins öll kvöld helgarínnar. LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu dansamir. Valgerður Þórisdóttir syngur við undirleik hljómsveitar Rúts Kr. Hannesson- ar. HREYFILSÚSEÐ: Opið laugardagskvöld, gömlu dansamir. HOTELBORG: Diskótekið Dísa sér um diskó- snúninga bæði föstudags- og laugardags- kvöld. Sunnudagskvöld verður hljómsveit Jóns Sigurössonar meö tónlist af vönduöu tagi sem hæfir gömlu dönsunum. ÖÐAL: I Oðali verður allt í gangi um helgina eins og vanalega.ídiskótekinu veröa þeirAs- mundur Ásgeirsson og Dóri. SIGTÚN: Diskótek verð ur bæði kvöldin. SNEKKJAN: Hljómsveitin Mars mun halda uppi f jörinu á föstudags- og laugardagskvöld. Matsölustaðurinn Skútan er opin sömu kvöld. ÞORSKAFFI: Þar mun dansinn duna um helgina. Á neðri hæð er diskótek en á efri hæö- inni skemmtir Dans'bandið gestum staðarins. Húsið opnað kl. 10. LEKHÚSKJALLARINN: Þar verður lokað til ágústloka. SIGLINGAKLÚBBURINN KÖPANES, KOPAVOGI: Bátaleiga fyrir almenning er á þriðjudögum frá kl. 16—22 og miðvikudögum frá kl. 16—20 og fimmtudaga frá kl. 16—22. Tilkynningar Kór öldutúnsskóla heldur tónleika í Norræna húsinu laugardag- inn 10. júli kl. 16.00. Á efnisskránni er fjöldi laga allt frá 16. öld til okkar daga, m.a. flytur kórinn eitt lag á kínversku, „Söng blaðber- ans’’ eftir Nie Er, og eitt verk verður frum- ■flutt, „Dúfa á brún” eftir Þorkel Sigurbjöms- son. Um miðja næstu viku heldur kórinn í tón- leikaferð til Hong Kong og Kína. Stjórnandi Kórs öldutúnsskóla er Egill Friðleifsson en undirleikari er Þorkell Sigurbjömsson. Jass í Stúdentakjallaranum á sunnudagskvöld klukkan 21.00. Fram koma: Pétur Grétarsson, trommur, Friðrik Karlsson gítar, Tómas R. Einarsson bassi. KFUM og KFUK: Kaffisala verður í félagshúsinu við Holtaveg sunnudaginn 11. júlí milli klukkan 3 og 6. KOrgelleikur í Dómkirkjunni Sunnudaginn 11. júlí kl. 18 leikur Marteinn H. Friðriksson á orgel Dómkirkjunnar í Reykja- vik. Aðgangur er ókeypis. 21 Dansleikur í Aratungu með Brimkló. Á laugardagskvöldið mun hljómsveitin Brim- kló skemmta liöinu sem mætir í Aratungu. Miklar mannbreytingar hafa átt sér stað í hljómsveitinni svo i dag skipa hljómsveitina: Ragnar Sigurjónsson, Haraldur Þorsteinsson, Arnar Sigurbjörnsson og Guðmundur Bene- diktsson. Ert þú einmana leitandi að lífshamingju? Biðjum fyrir fólki til frelsunar og lækningar. Hverfisgata 43, Reykjavik. Opiö frá kl. 18—22, símaþjónusta 21111. Ferðalög Útivist Dagsferðir sunnud. 11. júlí a. Kl. 8.00 Þórsmörk. 4 tíma stanz í Mörkinni. Verð250kr. b. KI. 13.00 Tröllafoss og nágr. Létt ganga fyrir alla. Verð 100 kr. c. Kl. 13.00 Esja (Þverfellshorn), með bezta útsýni yfir sundin blá. Verö 100 kr. Brottför frá BSI, benzínsölu. Frítt f. böm m. fullorðnum. Sjáumst. Helgarferðir 16.—18. júlí a. Tungufellsdalur — Línuvegur — Þjérsár- dalur. Glæný leið. Margt að skoða. Tjaldað í fallegum skógi í Tungufellsdal. b. Laxárgljúfur — Hrunakrókur. Einhver fal- legustu árgljúfur landsins. Stutt bakpokaferð. Göngutjöld. Sumarleyfisferðir. a. Þórsmörk. Dveljið viku i friði og ró í Bás- um. Odýrasta sumarleyfið. b. Hornstrandir IV. Hornvík — Reykjafjörður — Hombjarg — Ðrangajökull — Bjarnar- f jörður. 3 dagar í Reykjafirði. c. Eldgjá — Strútslaug — Þórsmörk. 8 dagar. 26. júlí — 2. ágúst. Ný bakpokaferð. 2 hvildar- dagar. d. Hálendishringur. 11 dagar i ágúst. e. Borgarfjörður eystri — Loðmundarfjöröur. 9 dagar. 4.—12. ágúst. Uppl. og farseðlar á skrifst., Lækjarg. 6a., s. 14606. Sjáumst. Ferðáfélagið Útivist. Frá Ferðafélagi íslands Sumarleyfisferðir: 1. 16.—23. júU (8 dagar); Lónsöræfi. Gist í tjöldum. Gönguferðir frá tjaldstað um ná- grennið. 2. 16,—21. júU (6 dagar): Landmannalaugar — Þórsmörk. Gönguferð með svefnpoka og mat. Gist í húsum. 3. 16.—21. júlí (6 dagar); Hvítárnes — Þver- brekknamúU — Hveravellir. Gönguferð. Gist ihúsum. 4.17.—23. júU (7 dagar): Gönguferð frá Snæ- felU til Lónsöræfa. Gengiö með aUan viðlegu- útbúnaö. 5. 17.—25. júU (9 dagar): HoffeUsdalur — Lónsöræfi — Víðidalur — Geithellnadalur. Gönguferð m/viðleguútbúnað. Uppselt. 6. 17,—22. júU (6 dagar): Sprengisandur — Kjölur. Gist í húsum. 7. 23.-28. júU (6 dagar): Landmannalaugar — Þórsmörk. Sama tilhögun og í ferð nr. 2. 8. 28. júU — 6. ágúst (10 dagar): Nýidalur — HerðubreiðarUndir — Mývatn — Vopnafjörð- ur — Egilsstaðir. Gist í húsum og tjöldum. Fólk er minnt á að velja sumarleyfisferð timanlegá. Farmiðasala og allar upplýsingar á skrifstof- unni, Oldugötu 3.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.