Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1982, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1982, Blaðsíða 15
DV. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER1982. 15 Menning Menning Menning Thorvaldsen 1770-1844 Þá hugleiddu þessir sömu menn lista- verk frá 16., 17. og 18. öld, en nú í nýju ljósi. Andsvar við rókókó I sögulegri einföldun er nýklassík oft túlkuö sem andsvar gegn barokk- og rókókólist og þá gjaman visaö til rita safnfræðingsins og fagurfræðings- ins J. J. Winckelmann. Barokklistin, sem ríkt haföi áöur, er í eðli sínu ótvíhverf og „malerísk” þar sem formin ganga hvert inn á annað í dýnamískri hreyfingu. I þessum verkum er línan jafnan hverful og leik- andi og virkar síkvik undir auga áhorf- andans. Barokklistin var því ágætt tjáningarform til aö lýsa tvíræðu inntaki þar sem fjallaö var um dular- fullt ástand, eins og t.d. samruna lífs og dauða. En nýklassíska hugmyndafræöin var mun hlutkenndari (konkret) og fagur- fræöin því oft einfaldari þar sem lista- verkin einkenndust af jafnri og sterkri línuáherslu. Obrotin lína umlék því oft vel aðgreind formin. Þessi áhugi á hinni hreinu línu átti eölilega eftir aö endurvekja gamalt tjáningarform sem mikið var notaö í grísk-rómverskri list.þ.e. lágmyndina. I hinum stórfenglegu barokkhögg- myndum lögöu listamennirnir mikiö upp úr því aö láta listaverkið vera í nánu samspili við umhverfið, þaö rými sem umlék verkið. Áhorfandinn átti ekki aö hafa eitt sjónarhom heldur átti hann aö hafa möguleika á því að ganga umhverfis verkiö og njóta þess frá mörgum hliöum. Hvert sjónarhom hafði nánast sitt inntak. Aftur á móti er þaö greinilegt aö nýklassíska listin, sem grundvallaðist á kyrrlátum, sléttum og oft gljáandi formum, lagði áherslu á aöeins eitt sjónarhorn. 1 þessum myndum var tekin af öll tví- ræöni formsins. Stytturnar voru yfir- leitt einlitar, ljósar og lítið var gert til aö fela efni formsins og ala á sjón- blekkingu. Thorvaldsen Enginn vafi er á aö nýklassíski myndhöggvarinn Thorvaldsen var á sínum tíma talinn stærsti listamaður Norður-Evrópu og naut hann reyndar alþjóölegrar frægöar. Thorvaldsen var fyrst viö nám í Fagurlistaskólanum í Kaupmanna- höfn og hefur hann eflaust kynnst þar myndum listamannsins Sergel (+ 1814) sem tileinkaði sér í fyrstu nýklassískar hugmyndir en sneri sér síðan að natúralískari verkefnum í ætt viö franska myndhöggvarann Houdon, þar sem reynt var eftir megni aö sætta hinar skörpu andstæður milli rókókó og nýklassisma. En þaö var örugglega í Róm árið 1797 sem Thorvaldsen finnur forsendur og módel aö síöari listsköpun sinni. Og áriö 1803 lýkur hann frummyndinni aö verkinu Jason sem gerði hann nánast frægan á einni nóttu. Þar kemur greinilega fram þekking hans á fomri höggmyndalist og við getum vel greint í þessari mynd mótíf eins og Doryphore og Apolló í Belvedere þar sem notaöar eru sömu stell- ingar/hreyfingar handa og höfuös. Styttan af Jason er óvenju skýr og tær í linunni og var tekin sem fullkomnun hins nýklassíska stíls. Hér er ekki lengur að finna einstaklingsbundið raunsæi barokklistamannsins heldur er þaö nú ný sýn sem á uppruna sinn í „ideal fegurö” fomlistarinnar. Mótífið er hetjulegt og háleitt og formið full- komlega hreint og skýrt. Óvenju vel útfærð sýning Sýningin hér á Kjarvalsstööum er óvenju vel uppbyggð og útfærð. Allt er gert til aö nálgast listamanninn frá ólíkum hliöum og sýna fram á þróun og breytingar í verkum hans. I hinu „endurreista Thorvaldsensafni” á Kjarvalsstööum getur áhorfandinn lesiö sig í gegnum teikningar og skissur, sett listamanninn í sögulegt samhengi (þótt mátt heföi gera þennan þátt nákvæmari og skýrari) og síðan barið augum fullunnar styttur meistarans. Þá fylgir sýningunni sér- staklega vel unninn litskyggnuþáttur og fræðandi bók um Thorvaldsen sem lengi mun vitna um þessa ágætu sýningu. -GBK. Jason. Róm 1802—3. Fullunnin i marmara 1828. Hæð 242 cm. Smáauglýsingadetldiner jJ»yerliolti 11 —Sámi 27022. Opidalla virkadagakl.9-22. Iai Laugardagakl.9-14. I Sunnudag'akl. 18-22. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 64., 70. og 72. tölublaði Lögbirtmgablaðsins 1981 á eigninni Hvaleyrarbraut 18—24, Hafnarfirði, þingl. eign Lýsis og Mjöls hf., fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins, Innheimtu ríkis- sjóðs og Útvegsbanka fslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 23. september 1982 kl. 15.30. Bæjarfógetinn i Hafnarf iröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 54., 57. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Þverholt v/Vesturlandsveg, Mosfellshreppi, þingl. eign Heng- ils sf., fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri f immtudaginn 23. september 1982 kl. 16.00. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. ^Dale . Carneeie námskeiðiÖ KYNIMIIMGARFUNDUR þriðjudaginn 21. september kl. 20.30 að Síðumúla 35. Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust. ★ Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staðreyndir. ★ Láta í ljós skoðanir þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenn- ingu. ★ Talið er að 85% af velgengni þinni sé komið undir því hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustað. ★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. ★ Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án óþarfa spennu og kvíða. Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie-nám- skeiöinu. í dag er þitt tækifæri. Uppi. í síma N INNRITUN ^ í SÍMA 52996 GÖMLU DANSARNIR ^ SAMKVÆMISDANSAR O/MVirV V/tlVIIOL//\IVOA\n ^ ROKK — DISKÓDANSAR ^ Ýr NÝTT — DISKÓ — LEIKFIMI r-tf' frá kl. 1—7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.