Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 20
DV. LAUGAKDAGUR 5. MARS1983 ,Áður en hann fór stökk hann inn i krána aftur, þrerf foriáx Allt mitt háskóianám, 8—9 ár, varekkertá viðaðkunnaað fietja fisk fyrirþá á Maldiveyjum. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er uppi á annarri hæö í útvarpshúsinu sem viö köllum venjulegast. Eftir endi- langri annarri hæðinni eru ýmiss kon- ar rannsóknarstofur með tilheyrandi borðum, mæliglösum og slöngum sem ávallt hafa svo sannfærandi áhrif á leikmann. Á jarðhæð er svo heil til- raunaverksmiðja, frystihús og niöur- suða. Ofan á allt þetta leggst síðan dauf fisklykt. Forstjóri Rannsóknastofnunarinnar er Bjöm Dagbjartsson. Við finnum hann að máli á skrifstofu hans, stóru herbergi meö hilluvegg og lágri lengju af skjalaskápum. Á veggjunum er meðal annars upphleypt Islandskort. eftirprentanir af Kjarvalsmálverkum og á bak viö fremur stórt skrifborö situr Björn Dagbjartsson. Hann minn- ir dálítið á bónda, samanrekinn og vin- gjarnlegur. Hann er fæddur og uppal- inn á sveitaheimili, Álftageröi í Mývatnssveit. Hann hefur sótt mennt- un í efnaverkfræði til Þýskalands og matvælaverkfræði til Bandaríkjanna þar sem hann varð doktor. Þá hefur hann kennt íbúum á Maldíveyjum fisk- veiðar og fiskvinnslu. vísi í Bandaríkjunum. Þar eru menn miklu fremur teknir sem heimamenn. I Bandaríkjunum var maðurinn metinn eftir því sem hann gat og vissi. „Held ég hafi gengið alla þjóð- vegi Suður-Þingeyjarsýslu" Við spyrjum hann fyrst um uppvöxt- inn og hvernig það hafi gerst að hann fór útínám. ,,Einhvern veginn lá það beint við upp úr fermingu. Þetta er lítil jörð sem faðir minn á og við vorum sex systkin- in. Það var því ljóst að við myndum ekki öll búa þar. Við komum þar hins- vegar oft og á öllum annatímum árs- ins. Sum koma í sauöburð, önnur í rétt- ir, einhver sér um sláttinn... Maöur er því mjög vel tengdur sveit sinni ennþá. Nú, en að rífa sig að heiman til að fara að stunda nám. Menn setjast í mennta- skóla og í þá daga var það nokkuð ákveðið aö ef maður lauk mennta- skólanámi þá var haldið áfram. Þýskaland og efnaverkfræðin var meira tilviljum. Ég man ekki betur en að við bræður ynnum fyrir okkur á sumrin. Við feng- um ekki námslán eða styrki frá for- eldrum okkar, að minnsta kosti ekki peningalega, enda höföu þeir ekki úr svo miklu að spila. Sumarhýran varð því að nægja. Eitt sumarið, líklega ’53, hafði ég 750 krónur á viku. Á sumrin var ég yfirleitt hjá vegagerðinni, í Þingeyjarsýslu, fyrst sem óbreyttur hjá Pétri í Reynihlíð. Eg held ég hafi gengið alla þjóðvegi Suður-Þingeyjar- sýslu, sjálfsagt oftar en einu sinni. Seinni hluta menntaskólaáranna var ég á vélskóflu hjá vegagerðinni frá Akureyri. Jú, menntaskólaárin voru ánægju- legur tími og þaö á líka viö um háskóla- árin í Þýskalandi. Það lá þó alltaf ljóst fyrir að ég færi heim. I Þýskalandi eru menn alltaf útlendingar. Það er ööru- „Bjór er feikilega góð þýsk afurð" Það munaði ekki miklu að ég hætti strax fyrsta veturinn í Þýskalandi. Þegar ég fór út þá fékkst markið á 5 krónur, það var hinsvegar komið upp í 11 krónur í lok semesters. Eg var því búinn með sumarhýruna þegar ég fór heim í leyfi í febrúar. Ef ég hefði ekki haft gott upp í Vestmannaeyjum þá, þá veit ég ekki hvaö hefði orðið. En þá lenti ég í. heldur góðri vertíð í Vest- mannaeyjum, meðan vertíðir voru og hétu. Námslán á þessum tíma finnst mér að hafi verið fremur góð þó erfitt sé að gera sér grein fyrir því. Þetta eru nokkrir tugir króna sem veriö er að borga aftur núna. Þýskaland var fremur ódýrt land, sérlega ef maður bjó á stúdentagörðum. Þama var mikið af Islendingum. Stuttgart var arkitektaborg. Það voru ellefu stúdent- ar þama í arkitektúr sem núna em flestir meiriháttar stórveldi í bygg- ingaiönaðinum. Jú, stúdentalíf er alltaf stúdentalíf. Bjór er feikilega góð þýsk afurð og menn skemmtu sér auðvitað þarna líka. A tímabili áttu margir stúdentar vespuhjól og fóm með þau á sínar „stambúllur”. Þegar átti að fara heim settust tveir á hjólið og þá var stefnan ekki alltaf alveg rétt. Eitt sinn lögðu tveir í hann og fóm meðal annars á móti einstefnuakstri. Bílar flautuöu og lögreglan setti á þá merki um að stoppa. Það hreif ekki og lögreglu- þjónninn skaut viðvörunarskoti upp í loftið með byssu sinni. Ekki brá land- anum sem sat aftan á meira en það að hann sagði bara: „Hann hitti ekki.” Eg man líka eftir einum sem var rekinn út af krá og þótti allillt. Áður en hann fór stökk hann inn á krána aftur, þreif forláta stól, snaraðist með hann á bakinu aftan við félaga sinn á hjólinu og reið í burtu frá bölvandi þjónunum. Mér þótti slæmt að koma á einn uppáhaldskjallarann fyrir tveimur árum og sjá að hann var orðinn lélegt diskótek. Þá var hún Snorrabúð stekkur,” segir hann og brosir. „Það kostaði líka lítið að leigja sér saman rúgbrauð nokkrir félagar og fara til dæmis í skíðaferð til Sviss eða Austur- ríkis. En menn urðu að stunda sitt nám — til aö hrökklast ekki heim eftir þrjú fjögur bjórsemester. Þeir sem voru samtíða mér voru þó alvarlegir menn en það gengu allavega sögusagn- ir um þá sem áður höfðu stundaö nám í nágrenninu. Vestmannaeyjar sérheimur Síldina stundaði ég frá Vopnafirði tvö næstu Þýskalandssumurin og var í verksmiðjunni mest, líka á plani. Eftir reynsluna í Vestmannaeyjum og síld- ina á Vopnafirði fann ég að ég vildi afla mér þekkingar á þessu sviði. Loka- verkefni mitt í Þýskalandi var rann- sókn á síldarlýsi. Eftir heimkomuna vann ég tvö ár í Vestmannaeyjum. Þar stundaði ég meðal annars einfaldar efnafræðimæl- ingar og rannsóknir fyrir Fiskiöjuna og Fiskimjölverksmiðjuna auk margs annars. Núna þegar ég lít til baka er það ef til vill það besta sem ég hef lært, að komast inn í öll almenn fiskvinnslu- störf eins og þau voru unnin. Það var afskaplega góð reynsla fyrir það sem ég starfa nú. Það er með Vestmanna- eyjar eins og suma aðra staði, annað- hvort ermaðurVestmannaeyingureða ekki. Þetta er sérheimur. Ennþá sé ég, 16—17 árum seinna, fólk yfir þrítugt og hugsa: „Þennan kannast ég við, ætli hannséekki úrVestmannaeyjum.” Frá Vestmannaeyjum víkjum við talinu aö Maldíveyjum, en þar starfaði Björn um tíma á vegum Sameinuðu þjóðanna. — Er eitthvað likt með Vestmanna- eyjum og Maldíveyjum? „Vestmannaeyjar eru náttúrlega hátækniþróað þjóðfélag. Á Maldív- eyjum var fólk að hefja vélbátaútgerð. Þetta voru aldamótin miðað við Vest- mannaeyjar. Þama var eitt frystihús og nýfarið á hausinn. Þeir stóöu við byrjun á nútimafiskiönaði og fengust við að sólþurrka saltfisk. Mitt hlutverk á Maldíveyjum var að kenna meðferð á saltfiski sem leiddi til minna taps, minni skemmda. Ég var auðvitað ekki betur fallinn til starfsins en 16—20 þúsund Islendingar nema hugsanlega betri í ensku og vissi meira um hagi útlendinga. Þeir Maldívbúarfengu þaö sama greitt fyrir blautan, illa saltaöan og úldinn fisk og ljómandi góöan fisk. Þarna var enginn verðmunur gerður eftir gæðum. Eg reyndi að útskýra fyrir þeim hvemig ná mætti betri gæðum gegnum verðflokkun. Allt mitt háskólanám, 8—9 ár, var ekkert á við að kunna að fletja fisk fyrir þá á Maldíveyjum. Þó að fólkið þama sé svolítið fmmstætt þá finnur það undir- eins hvort menn kunna eitthvað fyrir sér. Menn halda langa og lærða ræðu um næringarfræði og ýmislegt sem þeir bera ekki minnsta skynbragð á en ef maður getur sýnt þeim hvernig taka á dálk úr fiski þá skilja þeir þaö.” Tölvuúr og kassettutæki — Hvað fannst þér lærdómsríkast við feröina? „Ferðin var öll lærdómsrík, ekki síst að því leyti að nú veit ég hvað þróunar- laréi er. Tekjur á íbúa voru þama innan- við 200$ á ári. Meöalaldur fólks var til skamms tíma 46 ár og þriðja hvert bam dó innan við ársgamalt. Maður hafði bara lesið um svona hluti áður, en þarf nú ekki að láta segja sér hvað þróunarland er. Viö hjálpum þessu fólki best með því aö kenna því að hjálpa sér sjálft. Japanir vom þarna með annan fótinn. Maldívbúar veiða aðallega túnfisk og Japanir keyptu hann nú á frystiskipum við skipshlið. Fólkið var ekki vant að fá mikið í aðra hönd. Ef vel veiddist þá gerði það ekkert í viku. Japanir þurftu því að finna eitthvað fyrir fólkið til að eyða peningunum í. Þeir fundu að minnsta kosti tvo hluti,” segir Björn og brosir, „tölvuúr, eins og þú ert með á hand- leggnum og kassettutæki. Þannig voru Japanir búnir að hrinda af stað neyslu- þjóðfélagiþarna.” — Hvernig fékkstu þetta starf? „Góður kunningi minn hjá FAO í Róm er nokkuð háttsettur í fiskiðnað- ardeild. Hann spurði hvernig mér litist á og ég sló tiL Þetta virtist paradís á jörð. Ferðamannastraumurinn var þó mikill og vaxandi þannig að fólk er fariö aö lifa mikið á túrisma. Jú, þetta er ævintýralöngun að fara í svona ferð fyrst og fremst. Mér finnst rétt að breyta til ef tækifæri bjóðast. Ég vil breyta til sem oftast og víkka sjóndeildarhringinn. Innan viss ramma er þetta nauðsynlegt á ekki minna en fimm ára f resti. ” Vildi ekki missa af sauð- burðinum fyrir nokkurn pening — Hver eru helstu áhugamál þín? „Eg get sagt að ég hef geysilega mikinn áhuga á öllu sem er að gerast í kringum mig. Eg er til dæmis alæta á ! dagblöö — les þauhelst öll daglega. Þá | les ég heilmikið faglegt efni. j Bókmenntir og ljóð og þess háttar hef ég því miöur ekki lesiö lengi. Ég geröi það áður og kunni til dæmis úrvalsljóö Það hriktir ei Texti: Sigurdur G. Valgeirsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.