Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 1
Festi Grindavík: „Bœjarstjóri að klóra yfir eigin mistök’’ — sjá bls. 3 — sjánánarábls.4 SNATI, BESTI VINUR MANNSINS Það eru ekki allir sem reiða með sér snyrtimennskuna i þverpokum. Svo verður að minnsta kosti seint sagt um þann sem skutlaði hund- skepnunni sinni ipoka eftir að hún yfirgaf hérvistina, væntanlega södd lífdaga, og henti henni siðan i brotajárnshaug Sindra-stáls i Sundahöfn. Að sögn starfsmanna þar er oft ógeðsleg aðkoma á vinnusvæðið eftir helgar þegar byrja þarf að hreinsa burt ruslapoka með matarleifum, fatnaði og öðru drasli sem fólk hefur ekki nennt að fara með alla leið á öskuhaugana. Þó keyrði viðskilnaðurinn á Snata um þverbak. Lögregl- an kom starfsmönnum til hjálpar og fjarlægði hræið. ÓEF/DV-mynd Bjarnleifur. 7 Kvöldvorrósarolía: Er hún svarið við menni nga rsj úkdómum? — fólk jafnvel læknast afkrabbameini með notkun olfunnar Sala á kvöldvorrósarolíu hefur aukist mjög mikið hér á landi síöustu mánuðina og telja margir sig hafa fengið bót á ýmsum sjúkdómum með því að taka hana inn. Olían er unnin úrblóminukvöldvorrós semvex villt víða um heim. I fræjum hennar er sjaldgæf fjölómettuö fitusýra, gamma-linólensýra. Hún er talin lykilefni viö framleiöslu á efnaflokki í likamanum sem nefnist prostaglandin. Ojafnvægi í prosta- glandin-framleiðslu líkamans er tal- ið geta valdið mörgum sjúkdómum, þetta ójafnvægi megi leiðrétta með notkun á kvöldvorrósarolíu. Ekki er ljóst hversu margir hér á landi nota kvöldvorrósarolíuna aö staöaldri en miðað við sölumagn á síöasta ári hlýtur að vera um mikinn fjölda að ræða. Fólk hefur talið sig fá lækningu við liðagigt, offitu, asma og jafnvel krabbameini. Æðahnútar hafa lika horfiö vegna notkunar á olí- unni, að áliti viðkomandi. Einnig tel- ur fólk sig yfirleitt styrkjast mikið, andlega og líkamiega, ef það notar kvöldvorrósaroh'u. Sjúkdómar sem olían hefur verið notuð til að lækna eru meðal annars hár blóöþrýstingur, kransæðasjúk- dómar, blóðtappar, ofnæmissjúk- dómar og margir fleiri. Jafnvel þyk- ir sannað að notkun kvöldvorrósar- ohu eyði eöa dragi úr timburmönn- JBH um. sja nanar á bls. 24-25 FURDUFISKUR VIÐ ÍSLAND Surtlusystir heitir furðufiskurinn á myndinni. Talið er að innan við tíu slíkir hafi veiðst í heiminum. Skip- verjar á íslenskum togara fengu hann í vörpuna um síðustu helgi. Fyrir framan vel tennt ginið er ljós- færi sem fiskurinn notar til að gabba aðra fiska upp í sig. Myndin er af hrygnu en hængurinn þykir ekki merkilegur. Hann er örlítill og lifir fastur við hrygnuna á næringu úr æðum hennar. -KMU/DV-mynd: Bjarnleifur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.