Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983. í tengslum við söfnunina: SÁÁ heldur sex kynn- ingarfundi —á fjórða þúsund gjafabréf hafa boríst SAA gangast á morgun fyrir kynn- ingarfundum víöa um land í tengslum viö söfnun samtakanna sem nú stendur yfir. Fundir verða klukkan 15 á eftir- töldum stööum: Fjölbrautaskólanum í Keflavík, Heppuskóla Höfn í Homa- firöi, fundarsal Mjólkurfélags Borg- firðinga í Borgamesi, Tryggvaskála Selfossi og Félagsheimili Patreks- fjaröar. Klukkan 17 er svo fundur í Festi íGrindavík. Kynnt verður starfsemi SAÁ vítt og breitt og ennfremur landssöfnuninn. Aö sögn Valdimars Jóhannessonar, sem stjórnar söfnun SAÁ, hefur hún gengið mjög vel og hafa á fjóröa þús- und bréf borist. Einkum hafa heimtur verið góöar utan af landi. Valdimar sagði aö fólk væri hvatt til aö gera góö skil því aö þaö væri mikil vinna aö vinna úr sendingunum og koma þeim í banka. Yfirleitt sagöi hann fólk bregö- ast vel viö, meö fáeinum undantekn- ingum. Valdimar var spurður hvað hæft væri í því aö aðgangsharka væri meiri en góöu hófi gegndi, einkum í sam- bandi við símhringingar. Bar hann þaö algerlega til baka og sagöi hér aðeins á ferð neikvæðar raddir. „Þaö er kurteislega fariö aö þessu og eingöngu notaöir símar hjá Frjáisu framtaki. Það eina sem verið er aö gera er aö Veðurtil útivistar Veður ætti ekki aö spilla útivist landsmanna um helgina. Samkvæmt spá Veöurstofunnar veröur hæg aust- an- eöa norðaustanátt ríkjandi. Frost- laust verður víðast hvar. Ekki ætti þó að spilla aö klæöa sig í regnfatnað því aö sunnanlands má búast við smárign- ingu meö köflum en slydduéljum um noröanvert landíö. -KMU. hvetja fólk til aö senda bréfin sem fyrst inn til aö auövelda úrvinnslu,” sagöi Valdimar. Kynningarfundirnir, sem haldnir eru á sunnudag, eru byrjunin á 30 funda röö sem veröur á næstunni. Aö sögn Valdimars hafa fundir af þessu tági verið mjög vel sóttir, fólk væri áhugasamt og lengdust fundirnir oft vegna fjölda spurninga sem gestir heföu fram aö bera. -PÁ Slökkviliðið i Reykjavik var með æfingu á svæði sinu rétt hjá Nauhólsvik eftir hádegið igær. Var verið að æfa að slökkva i olíubruna. Kveiktu þeir i oliu og myndaðist við það kolsvartur reykjarmökkur. Um tima varð að hætta æfingunni þar sem Fokkervél var að koma inn til lendingar og lagði mökkinn yfir flug- brautina sem hún ætlaði að lenda á. Æfingunni var siðan haldið áfram og viðkomandi flugbraut ekki not- uð meira á meðan á æfingunni stóð. JGH/D V-mynd S. Kvöldvorrósarolía allra meina bót? Stórfrétt Dagblaösins/Vísis fimmtu- daginn 10. mars var aö í ákveönum búöum í Reykjavík fengist efni sem kallast kvöldvorrósarolia sem „hefur verið notað til aö bæta eöa lækna m.a. gigt, liðagigt, háan blóðþrýsting, of hátt kólesteról í blóði, kransæðasjúk- dóma, blóötappa í æöum, margs konar taugaveiklun, geðveiki (þ.á m. geð- klofasýki), heila- og mænusigg, psori- asis, exem, ýmiss konar ofnæmis- sjúkdóma, augnþurrk, offitu, drykkju- sýki, timburmenn og margt fleira. Auk þess er nú veriö aö reyna kvöldvor- rósarolíu viö mörgum fleiri sjúkdóm- um, þ.á m. parkinsonsveiki.” Stór fyrirsögn er á forsiðu og þar segir m.a. aö fólk læknist af krabba- meini viö notkun olíunnar og inni í blaöinu er meira en blaösíöa til aö upp- lýsa ágæti þessa efnis. Hver er tilgangurinn meö svona blaöamennsku? Aö vekja athygli á DV og selja blaöiö? Auglýsing fyrir þá sem selja umrædda vöru? (NB. Munið aö kaupa zink-töflur, þær kosta aöeins kr. 75,10 pr 100 st.) Eða er þekkingarstig þeirra manna sem standa aö útgáfu Dagblaðsins/Vísis slíkt aö þeir raun- verulega trúi þessu s jálfir? Aö vekja upp falskar vonir hjá fólki sem haldiö er alvarlegum og jafnvel banvænum sjúkdómum er illa gert og getur valdiö svo miklum skaða aö ekki er hægt aö ætla aö blaöamennirnir geri þaðviljandi. Prostaglandin er hópur efna sem gegna stjórnunarhlutverki í líkaman- um. Iikaminn myndar þessi efni úr fjölómettuðum fitusýrum og gerir þaö eftir þörfum og, eins og segir réttilega í DV, þá hafa verið leiddar líkur aö því aö sumir sjúkdómar stafi af misvægi í framleiðslu þessara efna og aö e.t.v. megi hafa áhrif á gang þeirra meö því aö breyta framleiðslu viðkomandi prostaglandins. Hér er um aö ræöa mjög flókiö stjómunarkerfi, sem menn raunar þekkja lítiö, en þekkingin hefur þó fariö vaxandi á undanförnum árum og vonir standa til aö hana megi nota innan fárra ára til að hjálpa í vissum sjúkdómum. Enn er þó langt í land. Þaö sem Dagblaöiö/Vísir raunar heldur fram er aö allir ofantaldir sjúk- dómar stafi af því aö þaö skorti gammalinoleicsýrur (sem er virka efniö í kvöldvorrósarolíunni aö sögn blaösins) og þá megi lækna einfaldlega með því aö taka inn viökomandi efni og af fréttinni má ætla að því meira sem inn er tekið því betra. Hiö sanna er aö þaö hefur aldrei veriö sýnt fram á aö nokkur sjúkdóm- ur stafi af skorti á gammalinoleicsýru og þess vegna eru litlar líkur á því að aukin inntaka hafi áhrif til lækninga. Líkaminn er mjög flókinn og í honum eru þúsundir stjórnunarefna sem hann myndar eftir þörfum, þótt stundum bregöi út af. En til aö geta bætt úr því verður aö þekkja bilunina (ástæöu sjúkdómsins) og vita hvemig hægt er að beina starfseminni aftur inn á rétta braut. En aöeins í því tilfelli, þegar um skortsjúkdóm er aö ræöa, t.d. vítamín- skort, batna sjúkdómar viö inntöku viðkomandi efnis. Aö gera því skóna aö eitt ákveöiö efni lækni nær alla sjúk- dóma er álíka og aö halda því fram aö gera megi viö allar bilanir á bil meö því aö hella á hann smurolíu, og því meiri olíu sem hellt er á bílinn því beturgangihann. Þorvaldur Veigar Guðmundsson læknir. é 860blaðsíöna glæsilegur vor- og sumarlisti! I þessum vandaöa pöntunarlísta frá Grattan Internationai er að finna á 860 blaösíðum næstum allt sem hugurinn girnist, og margt á frábæru verði. HRAÐPÖNTUNARÞJONUSTA: Afgreiðslufrestur pantana er aðeins 3 vikur. * Glœsilegur tískufatnadur * barnafatnadur * dömu- og herra- fatnadur * skór * búsáhöld * vefnaðarvörur * sportvörur * hús- gögn, heimilistœki, * úr, klukkur og skartgripir * hljóm- flutningstœki og hljóðfœri * teppi og dúkar * tjöld, viðlegubún- aður, garðáhöld og margt, margt fleira. llar vörur á einumstad og á gódu verdi. r Kötlufellsmonðið íHæstarétti: Reyndi að byrla manni sínum eitur Mál ákæruvaldsins gegn Björgu Benjamínsdóttur var flutt fyrir Hæsta- rétti síöastliðinn þriöjudag. Búast má viö dómi í næstu viku. Björg var í undirrétti dæmd í 16 ára fangelsi fyrir aö hafa orðið eiginmanni sínum aö bana meö því aö hella yfir hann bensíni, þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu, og kveikja í. Gerðist þetta í íbúö aö Kötlufelli 11 í janúarmánuði áriö 1981. Viö yfirheyrslur hefur B jörg játaö aö hafa lengi hugsaö um að fyrirfara manni sínum. Hún hafi talið þetta einu leiðina til aö losna úr hjónabandinu. Hún hefur ennfremur viöurkennt aö hafa áöur reynt að bana manni sínum, sumariö 1980, er hún blandaði aceton- efni í vínglas hans. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.