Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Blaðsíða 17
DV. FÖSTUDAGUR18. MARS1983
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Les
Slys:
Oft upphaf
langrar raunasögu
3665-9904 skrifar:
Ég fór aö leiöa aö því hugann, þar
sem ég dvel um stundarsakir á endur-
hæfingardeild Borgarspítalans viö
Grensásveg, hvaö viö eigum gott sem
teljum okkur vera heilbrigö og hraust.
Þetta ættum viö öll að vita en fá okkar
leiða aö því hugann fyrr en eitthvað
bjátar á hjá okkur sjálfum eða ein-
hver jum náskyldum.
Þaö líður varla sá dagur aö viö heyr-
um ekki eöa sjáum í f jölmiðlum aö slys
hafi orðiö hér eöa þar. Fólk hafi slasast
alvarlega en sé ekki í lífshættu. Svo
mörg eru nú þau orö. En það er oft upp-
haf langrar raunasögu þeirra sem hlut
eiga að máli, um þaö vitum við hin
mest lítiö.
Þaö hefur veriö mér ómetanleg lífs-
reynsla aö kynnast því sem fram fer
hér á Grensásdeild. Eg veit að hér fá
margir bót meina sinna en ég veit líka
aö margir veröa þeirrar gæfu ekki aö-
njótandi. Þaö eru til sár sem aldrei
gróa.
Viö sem erum (teljum okkur vera)
heilbrigð og hraust ættum að íhuga
þetta vel. Taka okkur smáfrí frá lífs-
gæöakapphlaupinu. 'Það hefur lagt
marga í rúmiö. Það verður ekki allt
keypt fyrir peninga þó vissulega séu
þeir snar þáttur í lífi okkar. Þaö er
meðal annars eitt sem kostar enga
peninga. Þaö er aö bera virðingu fyrir
sínu eigin lífi og ekki síst annarra. Þaö
kostar ekkert.
Hér á Grensásdeild er unniö frábært
starf af frábæru starfsfólki sem allt
gerir sitt besta til aö öörum líði vel.
Það gefur mikið af sjálfu sér viö þetta
starf og hlýtur aö launum ævilangt
þakklæti frá þeim sem hjálpaö er.
Mig langar aö béina þeirri spurningu
til borgaryfirvalda hvenær ljúka eigi
sundlaugarbyggingu þeirri sem byrjaö
var á hér viö Grensásdeild.
Þaö trúir því víst enginn fyrr en
hann sér það með eigin augum hvaö
sund er stór þáttur í endurhæfingu sem
hér fer fram. Vill ekki einhver þing-
maöur Reykvíkinga þrýsta hér vel á og
ná sér í prik fyrir næstu kosningar?
Að endingu vil ég þakka öllu starfs-
fólki hér á Grensásdeild hjálpina og
megi gæfan fylgja ykkur.
Marianna Friðjónsdóttir, st jórnandi þáttanna um geöheilbrigöismál sem sýndir voru í s jónvarpinu á dögunum.
Sjónvarpsþættir um geðheilbrigðismál:
„MEÐ ÞEIM ER UNNIÐ
GEGN FORDÓMUM”
Erla Kristjánsdóttir skrifar:
Þessi var fínn var yfirskrift
greinarkorns „í gærkvöldi” fimmtu-
daginn 24. febrúar síðastliðinn.
Höfundur hennar viröist hafa oröið
fyrir miklum vonbrigöum með heil-
brigðisþættina sem sýndir hafa verið
í sjónvarpinu aö undanförnu og þá
sérstaklega þáttinn kvöldiö áöur sem
fluttur var á undan Dallas þættinum
og fjallaöi um heilbrigðismál. Kvart-
aöi vesalings maöurinn um aö þeir
heföu verið þurrir og staölaöir. Einn-
ig virðist orðaval í þættinum hafa
fariö ögn í taugarnar á honum aö
ekki sé nú talað um grímuklædda
sjúklinga í iöjuþjálfun sem trúlega
hafa ruglað hann eitthvaö.
Eitthvaö var hann líka gramur út í
stjórnanda þáttarins fyrir móðgandi
athugasemd hans um áhuga fólks
fyrir vandamálum Ewing fjölskyld-
unnar og baö menn aö líta sér nær.
Ja, hérna. Aumingja maðurinn
(greinarhöfundurinn) hefur sest
fyrir framan sjónvarpiö til þess að
slappa af og sjálfsagt átt von á
skemmtiþætti.
En það fór sem sagt á annan veg
og greinarkornið sem hann sá sig til-
neyddan aö skrifa í blaðið sitt daginn
eftir varö lélegur brandari.
Þaö skyldi þó ekki vera aö maður-
inn sé haldinn fordómum í garð geð-
sjúklinga og aðstandenda þeirra aö
ég tali nú ekki um eitthvað sem kall-
ast heilbrigöisstéttir. Það væri
óheppilegt ef svo væri. Gæti gert hon-
um erfitt fyrir síðar ef hann eöa ein-
hver honum nákominn þyrfti raun-
verulega á hjálp aö halda.
Við skulum vona aö til þess komi
ekki. Þó langar mig að benda honum
á aö til er félag sem heitir „Geö-
hjálp”. Það samanstendur af sjúkl-
ingum, aöstandendum og velunnur-
um og þar sem ég er einn þeirra er ég
kunnug félagsmiöstöðinni aö Báru-
götu 11.
Ég ráðlegg manninum að kynna
sér fordómalaust þessi mál og hug-
leiða aö „góðar fréttir eru líka frétt-
ir”.
Þarna er opið hús hvern laugardag
og sunnudag milli kl. 2 og 6 báöa dag-
ana. Rjúkandi kaffi á könnunni og
alltaf einhverjir sem hafa gaman af
að kveöast á eöa bara rabba um dag-
inn og veginn. Þarna ríkir samhugur
og oft er glatt á hjalla eins og vera
ber hjá stórri samhentri fjölskyldu
sem fagnar góðum gestum.
Stjórn Geðhjálpar á heiður skilinn
fyrir vel unnin störf í þágu geösjúkra
og með sjónvarpsþáttum og frétta-
þáttum í blööum er unnið gegn for-
dómum. En betur má ef duga skal.
„Hér á Grensásdeild er unnið frábært
starf af frábæru starfsfólki sem allt
gerir sitt besta til að öðrum líði vel.
Það gefur mikið af sjálfu sér við þetta
starf og blýtur lika að launum ævilangt
þakklæti frá þeim sem hjálpað er,”
segir 3665-9904 meðal annars.
Auglýsing
um upptöku á óskoðuöu kjöti og kjötvörum.
Að gefnu tilefni er vakin athygli á, að skv. ákvæðum laga nr.
30/1966 og reglugerða nr. 45/1972 og 260/1980, er óheimilt aö
bjóða til sölu kjöt og kjötvörur í verslunum eða veitinga-
húsum, nema að undangenginni heilbrigðisskoðun og
stimplun.
Þetta á einnig við um kjöt af hreíndýrum og hvers konar
alifuglum.
Verði vart við slíka vöru í Reykjavík og Seltjarnarnesi verða
þær fyrirvaralaust geröar upptækar.
HeilbrigðiseftirlitReykjavíkursvæðis.
FERMINGAR
KJOLAR
St. 32-40.
Verð: 1.280,00.
Gerð 392, /itir bleikt og biágrænt.
Gerð 384.
Póstsendum
—wnhlí^rfíriJL-
Laugalæk — Síml 3-37-55
^1
— 1» Ll LAI R \ i R E 1 N C9 El Rl Nl IN GAI D ÞRIFILL SF. D Sími 82205