Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Blaðsíða 36
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 BOÐA YFIRVINNU- BANN í ÁLVERINU „nauðvöm” vegna vinnuálags og óþrifa Yfirvinnubann mun ganga í gildi í Álverinu í Staumsvík á sunnudaginn, samkvæmt samhljóða samþykkt á félagsfundi starfsmanna. Með þessu vilja starfsmenn mótmæla þrifum í kerskála álversins og óeðlilega miklu vinnuálagi. „Þetta er okkar nauðvöm. For- ráðamenn álversins hafa beinlínis kallað á þessi viðbrögð,” sagði Sigurður T. Sigurðsson, varafor- maður verkamannafélagsins Hlífar, í samtali við DV. „Yfirvinna hefur oft farið yfir leyfilegt hámark, sem eru fimm vaktir á tveggja vikna tímabili, en á sama tíma er verið að segja upp starfsfólki. Þetta þýðir aukið álag á þá starfsmenn sem fyrir eru. Það hefur einnig verið básúnað hvaö hér séu góðar mengunarvarnir en samt eru ker látin standa opin, sem er algjörlega bannað, og auk þess er ekki nógu vel staðið að þrifum. Þar að auki hafa samskipti miUi ráðamanna og verkafólks ekki verið góö — ég vil ekki orða það stífar en svo,” sagði Sigurður en benti á að yfirmenn fengju væntan- lega sínar fyrirskipanir að utan. öm Friðriksson, trúnaðarmaður í álverínu, segir að vinnuaðstæður þar séu nú þær verstu sem menn muni eftir. Fyrir utan aö ker séu látin standa opin þá sé sjaldan þrifið rykið af gólfunum og þá helst þegar gestir koma til að skoða verksmiðjuna. „Einu svörin sem við fáum em þau að menn geri það stundum heima hjá sér að taka til og gera fínt þegar gestir koma í heimsókn. En þetta þyrfti aö gerast á hverjum degi,” sagöi öm. Ekki náðist samband við Hagnar Halldórsson, forstjóra Isals, í morgun til að inna hann álits á þessu máli. ÖEF Prófkjör krata fyrir vestan kært Alþýðuflokksfélag Patreksfjarðar hefur kært prófkjör flokksins í kjör- dæminu 6. mars síöastliðinn. Félagið telur að framkvæmd prófkjörsins hafi ekki verið í samræmi við reglur. Kæran verður tekin fyrir á kjördæmisþingi flokksins á Isafirði næstkomandi sunnudag. Kæran mun einnig fara fyrir aðrar stofnanir flokksins. Formaður Alþýðuflokksfélags Patreksfjarðar, Gunnar R. Pétursson, vildi í morgun ekkert ræða við DV um mál þetta. Samkvæmt öðrum heimildum kæra Patreksfirðingar meðal annars vegna þess að kjörgögn bámst ekki meö verulegum hluta at- kvæða. -KMU. Láglaunabætumar: Færrífá ávísun núna Liðlega 25 þúsund einstaklingar sem litlar eöa engar láglaunabætur fengu í desemberúthlutuninni fá ávísun frá : ' .. m . . ♦ LOKI Það er ekki í samræmi við reglur að fella Sig- hvat. fjármálaráðuneytinu nú öðru hvoru meginviðhelgina. Þá fer í póst önnur úthlutun lág- launabóta sem ákveðið var að greiða vegna vísitöiuskerðingu bráöabirgða- laganna. Voru þá greiddar út liðlega 50 milljónir króna og var notast við skattaframtöl frá 1982 — þ.a.e.s. tekjur á árinu 1981 til að finna út hverjir ættu að fá bætur. Stór hluti þeirra sem fengu láglauna- bætur í desember fá ekki núna. Þeir þrír meginhópar sem bætast við eru tekjutryggingaþegar, námsfólk með hærri námsfrádrátt en 5.438 kr, nema það hafi börn á framfæri sínu, svo og einstaklingar með mjög lágar tekjur. Þannig getur verið að eiginmaður sem fékk sendar bætur í desember en hafði þó góðar tekjur árið 1981 fái ekkert núna en eiginkona hans, sem litlar tekjur hafði þá, fái ávísunina í staöinn. Sú upphæð sem greidd verður út í dag nemur 22,8 milljónum króna og fer hún til 25.400 einstaklinga en 38 þúsund einstaklingar fengu senda greiðslu í desember. -kip. íslenski fáninn dreginn að húniifyrsta skiptióhínu ný/a skipi. OV-mynd GVA NYTT HAFSKIP: RANGÁ Hafskip eignaðist í gær þetta skip. Það hefur hlotið nafnið Rangá og á ai sigla á Norðursjávaráætlun á móti Selánni. Skipið er keypt af norska fyrirtæk inu Fred Olsen á rúmlega 3 miiljónir dollara. Það er systurskip Selárinnar og Skaftárinnar, sem reynst hafa Hafskipi vel. ÖU eru skipin svonefnd fjölhæfn isskip. DS Dæmdurfyrir ofhátt verð á ýsuflaki Jón Sigurðsson, kaupmaður í versluninni Straumnesi í Breiöholti, var síðastliðinn þriðjudag dæmdur i Sakadómi Reykjavíkur til að greiða sekt, fimm þúsund krónur, fyrir að hafa þann 19. apríl í fyrra selt ýsuflak á verði sem var tólf af hundraði hærra en leyfilegt var. Dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Kaupmaðurinn var talinn hafa brot- ið gegn verðlagslögum og ákvöröun Verðlagsstofnunar með því að selja ýsuflak á verði sem svarar 27 krónum, hvert kíló, meðan leyfilegt verð var rúmar24krónur. Dóminn kvað upp Haraldur Henrýs- son sakadómari. Verjandi kaupmanns- ins var Sveinn Snorrason hæstaréttar- lögmaður. -KMU. Unnar kjöt- vörurhækka í verði Unnar kjötvörur, svo sem pylsur, kjötfars og fleira þess háttar, hækka í verði í dag. Verðhækkunin er á bilinu 20,6—23,9%. Er þetta vegna þeirrar verðhækkunar sem varð á kjöti i upp- hafi mánaöarins. Kjötfarskilóið fer nú úr 55,50 krónum í 67,70 krónur. Kíló af pylsum hækkar úr 86,90 krónum í 104,80 krónur. " DS Nærfjörutíu árekstrará fimm tímum Um f jörutíu árekstrar urðu í Reykja- vík á tímabilinu frá klukkan 16.30 fram til kl. 22 í gær. Nær allir árekstrarnir voru minni háttar og orsakavaldurinn var í flestum tilvikum gríðarieg hálka, sem myndaðist í höfuðborginni seinni partinnígær. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík urðu alls 45 árekstrar í gærdag. A meðan árekstrarbylgjan stóð yfir fóru lögreglumenn nánast beint úr einum árekstriyfiríannan. -JGH Vinnuslys í Glit: Klemmdist áfingrum Vinnuslys varð í leirbrennslunni Glit við Höfðabakka 9 á níunda tímanum í gærkvöldi. Atvik voru þau að ungur starfs- maður fyrirtækisins var að mylja leir og vildi þá svo óheppilega til að hann klemmdist á fingrum er hann lenti með finguma á milli tveggja valsa, sem eru við mulningsvél. Að sögn eins starfsmanns fyrirtækis- ins í morgun er maðurinn ekki eins mikið meiddur og leit út fyrir í gær- kvöldi en hann var samt enn á Borgar- spítalanum í morgun. -JGH Áreksturá Höfðabakka Harður árekstur varð rétt viö Höfða- bakkabrúna laust eftir hádegið í gær. Lentu þar tveir bílar, Toyota og Ford Escort, saman með þeim afleiðingum að kona úr Toyotunni var flutt á slysa- deild. DV er ekki kunnugt um hve meiðsli hennar eru mikil. JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.