Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 20. JUN! 1983. Þverá, Kjarrá: Stórganga kom í ána fyrir nokkrum dögum — og f iskurinn farinn að veiðast Margir stangveiðimenn hafa rennt fyrir lax í Kjarrá og Þverá. En Kjarrá kemur úr vötnum á Tvídægru, Kvísla- vatni og Langavatni og ýmsum fleiri. Fellur hún í Kjarrárdal. I ömólfsdal eru að henni nær óslitin gljúfur og heit- ir þar um skeiö ömólfsdalsá. Eftir aö Utla-Þverá fellur í hana heitir hún Þverá og rennur um Þverárhlíð og nið- ur í Hvítá. Viö reyndum aö afla okkur frétta um veiði þarna um slóðir. „Þetta var allt kolmórautt, eins og stórfljót, er við veiddum,” sagöi Egg- ert Skúlason stangveiðimaður, en hann reyndi ásamt fleiri að veiða í Kjarrá nýlega. „Snjór var um allt, í öllum kvömum og svakalega kalt. Við þurft- um sums staðar að standa á snjósköfl- um til að veiöa. Sá einu sinni líf, en það hefur liklega verið niðurgöngulax. Veiddum á sjö stangir í þrjá daga, en þetta gekk bara ekki þó að við reynd- um mikiö. Við veiddum fram á þriðjudag.” Við höfum frétt aö fyrstu laxamir hafi veiöst á miðvikudag, 4 laxar, og á fimmtudag veiddust6 laxar í viðbót. Fengust þessir laxar í Sel- strengnum, neðsta veiöistaðnum á efra svæðinu. En veiðimennimir sem þessa laxa fengu fóru heim á föstu- dagsmorgun, enda komin mikil flóð í ána. En hvað skyldi vera að frétta af neðri hluta árinnar? Við höfðum sam- band við veiðihúsiö við Helgavatn í gærdag. „Mjög góö veiöi síðustu daga og það eru komnir á land um 112 lax- ar,” sagði Halldór Vilhjálmsson í veiðihúsinu. ,,Sá stærsti sem veiðst hefur ennþá er 18 pund. Það kom mikil ganga í ána fyrir þrem dögum svo að menn eru bjartsýnir. Af efra svæðinu em komnir 11 laxar sem ég veit um en það getur allt breyst því að það er hörkuliö þar við veiðar núna. Fiskur- inn ætti líka að vera á leiðinni til þeirra,” sagði Halldór. G.Bender. VITRETEX önnur eykur endinguna Nýju litakortin okkar hitta alveg í mark Á þeim finnurþú þinn draumalit. Afm VITRETEX Sandmálning er hæfilega gróf til að regn nái að þrífa vegginn og litirnir njóta sin í áraraðir, hreinir og skínandi. Góð ending VITRETEX Sandmálningar er viðurkend staðreynd. Reynslan hefur þegar sannað hana, sem og ítarlegar veðrunarþolstilraunir. Hlutfall verðs og gæða VITRETEX Sandmálningar Jeljum við vera hið hagstæðasta sem býðst á markaðnum og er það líklegasta skýringin á sífeldri aukningu sölunnar,-auk þess auðvitað hve litirnir eru fallegir. Ný litakort á fimm sölustöðum i Reykjavík og fjölda sölustaða út um land allt. £NDING(HVEXtMEÐ VfTRmX w {] Slippfélagið íReykjavíkhf MálningarverksmiÖjan Dugguvogi Sími84255 Vestmannaeyjar Kaupfél. Vestmannaeyja Sauðárkrókur Trésmiðjan Borg ísafjörður Friðrik Bjarnason málarameistari Stykkishólmur Skipavík Akranes Málningarþjónustan. Djúpavatn Fengu 187 silunga á tveimur dögum — en f iskurinn er frekar smár Margir segja að langt sé að fara í góöan silung. Það er töluvert til í þessu. Að minnsta kosti er þetta heil- mikið mál sunnanlands, en þar má þó finna ágætis veiðivötn. En úrvalið mætti svo sannarlega vera meira. Vestan-, norðan- og austanlands eru mörg mjög góð veiðivötn, þar sem hægt er að finna góöan silung. Kannski er um meira að velja heldur en hér sunnanlands, a.m.k. koma öllu skemmtilegri veiöisögur utan af landi, um meira aflamagn og stærri fisk. Svo eru það líka margir Sunnlendingar sem fara gagngert út á land til að komast í góðan silung. A Norðurlandi má t.d. finna með fjörum góðan og vænan sjóbirting. Menn geta skroppið á kvöldin og veitt í soðið, án þess aö þurfa alltaf að kaupa veiöileyfi. Hægt er að lenda í mokfiski á góöum degi. Það er ekki spurt um aldur, allir geta veitt sem vilja. Það er bara að eiga stöng og spún og kunna síðan að kasta fyrir sjóbirtinginn því að hann getur tekið hvenær semer. Eitt er það vatn sunnanlands sem VEIÐIVON Gunnar Bender lítið hefur verið rætt og ritaö um, en það er Djúpavatn á Reykjanesi, vestur af Kleifarvatni og er Sveifluháls á milli. Vissirðu um vatnið? Nei, ekki ég heldur, nema að litlu leyti, hef þó reynt að komast að vatninu nokkrum sinnum að vetri til. En það gekk ekki, fann ekki vatnið. Frá Reykjavík til Djúpavatns eru um 35 km. Farinn er Krísuvíkur- vegur aö Vatnsskarði sem er norðan við KJeifarvatn. Þar er farið af aðal- vegi á braut sem liggur um skarðið vestur fyrir Sveifluháls og meðfram Það var margt um manninn við Eiiiðaárnar á föstudagskvöidið. Þá veiddi Birgir Hrafnsson fallegan lax, um 8pund. DV-mynd G. Bender. honum aö vestan. Þetta var áður gömul þjóöleið um Sveifluháls, frá Krísuvík til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, lá yfir Sveifluháls um Ketilstíg, sem kenndur er við Ketil, djúpa og bratta kvos vestan í háls- inum. Sveifluháls er móbergshryggur, hæstur um 397 m, en þetta er bara fyrir landkönnuðina okkar. Að sumri til er akleiðin að vatninu fær öllum bílum, þó þetta sé nú kannski ekki lúxusvegur. Djúpavatn var talið fisklaust hér í eina tíð, en sleppt hefur verið bleikju í vatnið og laxbirtingum var sleppt fyrir einum þrem árum. Nú sfðast fyrir nokkrum dögum slepptu félagar úr Stangaveiði- félagi Hafharfjarðar um 2500 urriða- seiðum úr Laxá í Mývatnssveit. Við höfðum samband við Þórð Einarsson, formann Stangaveiðifélags Hafnar- fjarðar, en hann renndi fyrir fisk ír Djúpavatninýlega. Hvemig gekk veiðin hjá ykkur? „Heldur tregt hjá okkur, fengum saman 13 fiska um 250 gramma. Nokkrum dögum áður en við vorum fengu félagar úr Stangaveiöifélaginu 187 fiska, þá stærstu um tvö pund. Þeir fengu þessa veiði á tveimur dögum.” Nú eru þiö með Hlíðarvatn og Kleifarvatn, hvað er að frétta þaðan? „Ur Hliðarvatni eru heldur litlar aflafréttir, hollin hafa veriö að fá þetta 20—30 fiska sem er lítið, það er svo kalt ennþá. A virkum dögum er veitt á 10 stangir en um helgar á 8. Eg veit ekki um neinn fisk sem hefur veiðst í Kleifarvatni núna í sumar. Við ætlum núna í kringum 17. júní að leggja net í vatnið og ganga úr skugga um fiskinn. Við höfum sett um 16 þúsund urriðaseiöi í vatnið í gegnum árin,” sagði Þórður Einarsson að lokum. Þaö má segja aö hafnfirskir veiöimenn séu frekar í silungnum en laxinum, hafa þrjú vötn á móti einni laxveiöiá, en Flókadalsá í Borgarfirði hafa þeir á leigu með keflvískum veiðimönnum. Eitthvað er víst lítið um veiðileyfi í Djúpavatni og Hlíðarvatni, eníKleifarvatneralllafhægtaðrenna G. Bender.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.