Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983. 21 Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 20. nóvember 1983. ÁRBÆJARPRESTAKALL. Barnasamkoma í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu kl. 2. öllu eldra fólki i sofnuöinum sérstaklega boðiö til guösþjónustunnar. Samvera og kaffiveitingar Kvenfélags Arbæjarsóknar eftir messu. A samkomunni talar sr. Sigurbjörn Einarsson biskup og Guðrún Tómasdóttir syngur ein- söng, auk annarra dagskrárliða. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL. Barnaguösþjónusta að Norðurbrún 1 kl. 11. Messa á sama stað kl. 2. Sr. Árni BergurSigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Laugar- dagur: Barnasamkoma kl. 11. Sunnudagur: Messa kl. 14 í Breiðholtsskóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasamkoma kl. 11. Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Guðsþjón- usta kl. 14. Organleikari Guöni Þ. Guðmunds- son. Fundur Bræðrafélags Bústaðakirkju mánudagskvöld kl. 20.30. Félagsstarf aldr- aðra miðvikudag milli kl. 14 og 17. Æskulýðs- fundur miðvikudagskvöld kl. 20. Sr. Ölafur Skúlason. DIGR AN ESPRESTAK ALL. Laugardagur: Barnasamkoma í Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Sunnudagur: Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÚMKIRKJAN. Kl. 11. Prestsvígsla. Biskup tsiands, hr. Pétur Sigurgeirsson, vígir guð- fræðikandidat Jón Helga Þórarinsson til prestsþjónustu við Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Dr. Einar Sigurbjörnsson lýsir vígslu. Vígslu- vottar auk hans eru sr. Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum, sr. Bragi Friðriksson prófastur og sr. Bemhaður Guömundsson fréttafulltrúi. Altarisþjónustu annast sr. Þórir Stephensen. Kl. 2 messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Laugar- dagur: Barnasamkoma að Hallveigarstööum kl. 10.30. Sr. Agnes Sigurðardóttir. ELLIHEIMILIÐ GRÚND. Messa kl. 2. Sr. Magnús Guðjónsson biskupsritari messar. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Aðalfundur Félags fyrrverandi sóknarpresta verður að aflokinni guösþjónustu. FELLA- og HÖLAPRESTAKALL. Laugar- dagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2.Sunnudagur: Barnasamkoma í Feliaskóla kl. 11. Guðsþjónusta í Menningarmiðstöðinni við Gerðuberg kl. 2. Sr. Hreinn Hjartarson. FRIKIRKJAN IREYKJAVÍK. Baraa- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. GuðspjaUið í myndum. Barnasálmar og smábamasöngv- ar. Afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin. Sunnudagspóstur handa börnunum. Framhaldssaga. Við píanóið Pavel Smid. Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Altarísganga. Safnaðarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Tekið verður í notkun nýtt altarisklæði og nýr hátíðahökuil sem Hólmfríður Áma- dóttir hefur unnið, en Kvenfélag Fríkirkjunn- ar fært kirkju og söfnuði að gjöf. Eftir messu verður kaffisala í umsjá Kvenfélagsins á Hótel Sögu, til styrktar orgelsjóði. Þar verða tU sölu postulínsvasarnir sem gerðir hafa verið í tUefni 80 ára afmælis Frikirkjunnar á þessu ári. Sr. Gunnar Bjömsson. GRENSÁSKIRKJA. BARNASAMKOMA kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Organleikari Ami Arinbjarnarson. Kvöldmessa með altaris- göngu kl. 20.30. ,,Ný tónlist”. Almenn sam- koma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Æskulýðsfundir á föstudag kl. 17 og kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRtMSKIRKJA. Laugardagur: Basar Kvenfélags Hallgrímskirkju hefst kl. 2. Sunnudagur: Messa kl. 11. Organisti Gústaf Jóhannesson. Bamasamkoma á sama tima. Börnin komi í kirkju og taki þátt í upphafi messunnar. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kvöldmessa með altarisgöngu kl. 17. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur kl. 10.30: Fyrir- bænaguðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum. Miövikudagur 23. nóv.: „Náttsöngur”. Fimintudagur kl. 14.30: Opið hús fyrir aldr- aða. LANDSPtTALINN. Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2. Organleikari dr. Orthulf Prunner. Sr. Amgrímur Jónsson. KÁRSNESPRESTAKALL. Laugardagur: Barnasamkoma í Safnaðarheimilinu Borgir kl. 11.00. Sunnudagur: Fjölskylduguðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 11.00 árd. Heimsókn barna úr Tónlistarskóla Kópavogs. Sr. Arni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA. Öskastund bamanna kl. 11. Söngur — sögur — myndir. Guðsþjón- usta kl. 2. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, organleikari Jón Stefánsson. Sóknamefndin. Litla leikfélagið í Garðinum: Frumsýning á Spansk- fíugunni íkvöld Litla leikfélagiö í Garðinum frumsýnir í kvöld, föstudag kl. 20.30, hið vinsæla leikrit, „Spanskfluguna” eftir Amold og Bach meö söngtext- um eftir Böðvar Guðmundsson. Leikstjóri er Guðrún Ásmunds- dóttir. Hún þekkir þetta leikrit mjög vel því hún setti það upp þegar það var sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1970 en það gekk þar í tvö ár og alltaf fyrir húsfylli. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún vinnur að uppsetningu á leikriti með áhugaleikhópi og sagöi hún í stuttu spjalli viö DV aö hún hefði haft mjög gaman af aö vinna með hinum áhugasama hópi í Garðinum. „Hann hefur kennt mér meira á þessum tíma en ég gat kennt honum,” sagði Guðrún. Litla leikfélagið í Garðinum er með mjög harðsnúið lið og er jafnan mikil gróska í starfsemi þess. Þaö setur upp þrjú leikrit á ári — á sama tíma og atvinnuleikhús hér setja upp fimmleikrit. Reikna má með góðri aðsókn aö „Spanskflugunni” í Garðinum eins og annars staðar þar sem þetta skemmtilega leikrit hefur verið sýnt. Frumsýningin verður í kvöld, eins og fyrr segir, en önnur sýning verður á sunnudaginn. -klp- Bókasýning íAmts- bóka- safninu Þýsk-íslenska félagið á Akureyri opnar bókasýningu í Amtsbókasafn- inu í dag. Eru þarna sýndir um 250 titlar og eru allar bækurnar fengnar frá samtökum bókaútgefenda í Þýskalandi og fyrir milligöngu Þýsk- íslenska félagsins. -klp- Líf og land: INGUNN EYDAL MEÐ SÍNA FYRSTU MÁLVERKASÝNINGU Á morgun kl. 14 opnar Ingunn Ey- dal málverkasýningu að Kjarvals- stöðum. Eru á sýningunni rúmlega 40 málverk, flest unnin á þessu ári. Ingunn nam grafík við Myndlista- og handíðaskóla tslands auk annars myndlistamáms. Hefur hún tekið þátt í um 50 grafíksýningum hér heima og erlendis. Eiga opinberar stofnanir í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Finnlandi og á Islandi verk eftir hana. Þetta er fyrsta (málverka)-einka- sýning Ingunnar Eydals og er hún haldin í tilefni þess aö hún hlaut starfslaun Reykjavíkurborgar 1983. Sýningin stendur til 4. desember og er opin daglega frá 14—22. Lokað er kl. 17—19 opnunardaginn. Aðgangur aðsýningunnierókeypis. -klp- ...................- Ráðstefna um þjóðarvandann Samtökin Líf og land efna til ráðstefnu á Hótel Borg næstkomandi Hér sjást nokkrir þeirra aðila sem munu halda erindi á ráðstefnu Lífs og lands um þjóðarvandamálin um helgina. DV-myndS. laugardag í því skyni að hrinda af stað þjóðammræöu um þann alvar- lega vanda sem Islendingar eiga nú við að glíma á mörgum sviðum. Ráðstefnan, sem hefst klukkan 9.30, verður meö nýstárlegu sniði þar sem blandað verður saman erindaflutn- ingi og yfirheyrslum. Meðal þeirra sem flytja erindi og verða yfirheyrðir eru forsætisráð- herra, Steingrímur Hermannsson, og Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra. Að loknum erinda- flutningnum fara fram pallborðs- umræður. Öll erindin sem flutt verða á ráðstefnunni veröa gefin út í sér- stakri bók, „Þjóð í kreppu”, sem i verður til sölu á ráðstefnunni. Ráðstef nan er öllum opin. SþS „Draumur f höfðinu” Athyglisverð sýning hjá Stúdentaleikhúsinu „Við getum sagt að þetta sé tilraun til kynningar á nýjum bókum því þetta eru allt bækur sem eru að koma út eöa hafa komið út að undanfömu,” sagöi Arnór Benónýsson, sem er leik- stjóri á mjög athyglisverðri sýningu sem Stúdentaleikhúsið frumsýnir á sunnudaginn kl. 20.30 í Félagsheimili stúdenta við Hringbraut. „Sumir kaflar úr bókunum eru færðir í leikform, það er lesið upp úr öðrum, fluttar smásögur og ljóð og tónlist tengir dagskrána síðan saman,” sagði Arnór. Að sýningu þessari standa á milli 20 og 30 manns en flytjendur eru 13 talsins. Kynnt veröa verk eftir Berglindi Gunnarsdóttur, Birgi Svan Símonar- son, Einar Má Guömundsson, Einar Kárason, Gyrði Elíasson, Isak Haröarson, Kristin Sæmundsson, Kristínu Bjamadóttur, Olaf Hauk Símonarson, Pál Pálsson, Sigmund Emi Rúnarsson, Steinunni Sigurðar- dóttur, Vigdísi Grímsdóttur og ÞórarinEldjárn. Leikmynd gerði Sigríöur E. Sigurðardóttir, lýsingu annast Einar Bergmundur og tónlist er í höndum JóhannsG. Jóhannssonar. -klp- Kristján Franklin Magnússon í hlutverki sinu sem byggt er á kafla úr bókinni „Beðið eftir strstó” eftir Pál Pálsson, sem Stúdentaleikhúsið sýnir á sunnudaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.