Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 89. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÓSTUDAGUR 13. APRÍL1984. 75 ára kona fluttá sjúkrahús í Reykjavík: Vítamínumbúðir innihéldu eitur —konan er á batavegi og frekari dreifing efnisins stöðvuð Á Landspítalanum í Reykjavík liggur nú 75 ára kona úr Hafnarfirði, Ásbjörg Ásbjömsdóttir, eftir að hafa neytt bórsýru í þeirri góðu trú að hún, væri að taka inn C-vítamín. Bórsýra flokkast undir eiturefni og má mest selja 20 grömm af því í einu og ekki til inntöku, en hún fékk 100 grömm. Það var fyrir liðlega hálfum mán- uði að hún keypti tvö 50 g glös af C- vítamíndufti í Apóteki Norðurbæjar í Hafnarfirði. Að ven ju leysti hún duft- ið upp í vatni og tók þannig inn eina teskeið í vatnsglasi tvisvar á dag. Skömmu eftir að hún fór að nota lyfin fór hún að kenna slappleika og hitakasta: ,,Ég hef alltaf verið hraust og ég vildi ekki trúa því að ell- in væri að koma yfir mig svona allt í einu svo ég fór að leita skýringa,” sagði Ásbjörg, er DV ræddi við hana á Landspitalanum í gær. Hún sagöi að þetta duft hefði verið öðruvísi en það duft sem hún átti að venjast því það leystist svo illa upp.En í fyrstu hafi hún haldið að þetta gæti verið önnur tegund af C-vítamíni. Þó hafi þessar vangaveltur sínar og tengdadóttur sinnar leitt tii þess að hún hafi falið tengdadóttur sinni að kaupa C-vítamínduft í öðru apóteki. Þegar þær hafi borið efnin saman hafi tengdadóttirin fariö með torkennilega efnið í apótekið. Af númeri á miða glassins hafi lyfja-. fræðingur þar rakið blöndun efnisins og hafi þá komið í ljós að það var bór- sýra. Sagði hún að lyfjafræðingurinn hefði þá þegar haft samband við heimilislækni sinn (Ásbjargar) sem brugöist hefði skjótt við og komið sér inn á landspítalann strax á þriðju- dagsmorgun. I gærmorgun fékk Ásbjörg enn hitakast en sagðist þó vera að hress- ast. Að sögn lækna er hún ekki í hættu. Rannsókn hefur leitt í ljós að ekki mun meira af þessu efni hafa komist í umferð. -GS. Vigdisi Finnbogadóttur, forseta is- lands, var vel fagnað er hún kom í Svenska Teatern í gsrkvöldi. A myndinni sjást forsetar islands og Finnlands, finnska forsetafrúin og íslensku forsætisráðherrahjónln auk annarra i heiðursstúku leik- hússins. Finnlandsheimsókn for- setans er fram haldið i dag og er m.a. farið tii Turku og Alandseyja i dag. Sjá nánari fréttir og myndir af forsetahelmsókninni á bls. 2. DV-símamynd Loftur. — sjáeinnigábaksíðu MILLI. BJÓR- FLOSKUR fluttar meðáhöfnumog farþegum á síðasta árí Á síðasta ári voru fluttar inn lög- lega rúmlega 1,3 millj. bjór- flöskur eða um 500 þúsund lítrar af bjór, samkvæmt upplýsingum toll- gæslunnar. Hér er um að ræða bjór sem farmenn, flugliðar og ferða- menn hafa heimild til að koma með inn í landið. Þetta magn svarar sex flöskum af bjór á hvert mannsbarn i landinu. „Þetta sýnir að stór hluti þjóðarinnar kýs að neyta áfengs öls og stór hluti þjóöarinnar neytir þess nú þegar,” segir Jón Magnús- son varaþingmaöur Sjálfstæðis- flokksins sem í dag mun mæla fyrir frumvarpi um að heimiiaö verði að seija og brugga áfengt öl hér á landi. Jón benti á að til viöbótar þessu magni kæmi síðan ölgerðar- efnið og ólöglegur innflutningur sem allir viti að er til staöar, þannig aö neyslan væri töluverð nú þegar. Taldi hann þessar tölur sýna að betra væri að framleiða þetta magn hérlendis og heimila sölu þess en aö flytja það inn með þessumhætti. -OEF. REmm HÉR Athugaðu hvortþú ' þarft fesgteraugu % Hin nýja deiid í Hagkaupi þar sem neytandinn prófar sjálfur lesgieraugu þau er hann ætlar að kaupa. DV-mynd EÓ. Hagkaup hef ur sölu á lestrargleraugum: — „mikil mistök ef þetta verður stöðvað,” segir Hagkaup Lögregluaðgerðir yfirvofandi Hagkaup hefur ákveöið að hefja steinn Júlíusson, lögfræðingur félags sölu á lestrargleraugum þrátt fýrir optikera, í samtali við DV, þannig að mikla andstööu optikera og augnlækna lögregluaðgerðir eru yfirvofandi í og í morgun var opnuö í versluninni Hagkaup. sérstök deild með þessum gleraugum. Alþingi samþykkti nýlega lög sem Sam Bjuwin, framkvæmdastjóri setja strangar reglur um verslun með GRETT i Svíþjóð, selur svona gler- gleraugu, þau hafa hins vegar ekki enn augu þar og hefur verið Hagkaupi inn- verið birt í Stjómartíðindum en fyrr en anhandar í þessu máli. Hann sagði í þaöverðuröðlastþauekkigildi. samtali við DV að hér væri eingöngu „Þeir eru að stofna til lögbrota fyr- um aö ræða gleraugu fyrir fólk sem irfram og um leið og lögin hafa verið tapað hefur sjón vegna aldurs en flest- birt verðúr þetta stöðvaö,” sagði Þor- ir sem komnir eru yfir fertugt þurfa gleraugu til að sjá nálægt sér, svo- I deildinni í Hagkaupi prófar neyt- nefnd lesgleraugu. andinn sjálfur sjóndepru sína ó þar til „Er við fórum af stað með þetta í geröu spjaldi og velur sér styrkleika Svíþjóð mættum við mikilli andstöðu gleraugnanna samkvæmt því. optikera sem reyndu allt til að stöðva okkur nema heiðarlega samkeppni,” „Við erum stoltir yfir því að geta sagði Sam, en þar eru gleraugu þeirra boðið fólki gleraugu á þessu verði. yfir þrefalt ódýrari en lesgleraugu sem Margir hafa ekki keypt sér sh'k gler- optikerarselja. augu vegna verðsins á þeim og það I Hagkaupi munu gleraugu þessi væru mikil mistök að banna þetta,” kosta 595 kr. á móti 1800—3000 kr. sem sagði Gísli Blöndal í Hagkaupi í slík gleraugu kosta í gleraugnabúðum samtaliviðDV. hérlendis. -FRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.