Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 96. TBL. — 74. og 10. ARG. — FIMMTUDAGUR 26. APRIL1984. MUNNINUM LOKAÐ MED VÍRBINDINGU — M jög trygg aðferð til að megrast, segir Knútur Bjömsson læknir Fyrstuhand- boltameistarar Gróttu — sjá íþróttir • Snúsnú ísólarhring - sjá Dæmalausa veröldábls. 36 og37 niðriviðað bjargaBoðaGK — sjábls. 2 Aldrei liarðskeyttari — segirJóhanna Tryggvadóttir — sjábls.3 Kranabíll hrellirbrotiega ökumenn — sjá bls. 5 Hundarfæla fráfuglaá Seltjamamesi — sjá bls. 3 • Nágrannaerjur íHjalta- staðaþinghá -sjábls.5 Mikill taugadagur „Urslitin komu mér mjög á óvart. Eg átti alls ekki von á aö sigra,” sagöi Helga Melsteð, 16 ára reykvísk verslunarmær, skömmu eftir aö til- kynnt var í gær aö hún hefði sigraö í Ford-modelkeppninni áriö 1984. Þar meö er Helga oröin fuHtrúi Islands í keppninni Face og the 80’s, sem fram fer í Bandaríkjunum síðar á árinu. Engin smáverölaun eru í þeirri keppni. Sigurvegarinn fær7,5 milljónir islenskra króna og þriggja ára samn- ing hjá Ford-fyrirtækinu við fyrirsætu- störf. Helga starfar í tiskuversluninni Quadro. Hún er dóttir þeirra Hrefnu Þorbjarnardóttur og Gunnlaugs heitins Melsteð hljómlistarmanns. Hún verður 17 ára 1. ágúst næstkom- andi. Þaö var nákvæmlega klukkan sjö í gærkvöldi sem Lacey Ford tilkynnti í boöi sem Vikan hélt á Hótel Sögu að Helga heföi unnið. I ööru sæti varð Margrét Jóhannesdóttir. Og í nógu var að snúast hjá Helgu í gær. „Þessi dagur er búinn að vera mikiil taugadagur. Eg mætti i vinnuna klukkan 9 en vann aöeins í klukku- stund. Eftir þaö fór ég að versla og boröaði svo með hinum stúlkunum í hádeginu.” sagði Helga Melsted, 16 ára verslunarmær, sem sigraði íFord- modelkeppninni Eftir það fóru þær allar í hár- greiðslu til Sólveigar Leifsdóttur hár- greiðslumeistara. Síöan lá leiöin upp aö Hótel Sögu þar sem úrslitin voru til- kynnt. — Gastu nokkuð boröaö í hádeginu vegna spennu? „Svona rétt aðeins. Lét mér duga að fá súpu, enda var ég ekk- ert svöng,” sagði Helga og brosti. -JGH „Þetta er mjög trygg aðferð til aö megrast,” sagöi Knútur Björnsson lýtalæknir um þá megrunaraðferð að binda munn viökomandi saman með vírum. „ Vírar eru settir á milli tanna í efri gómi og neðri gómi þannig að alls ekki er hægt að opna munninn. Fólk getur þá einungis neytt fljótandi fæðu,” sagði Knútur. Hann kvaðst hafa fengist viö slikar aögerðir í áratug. „Þetta hefur farið mjög í vöxt á síðustu árum og sér- staklega á síöasta árL Stundum eru margir i mánuði viraöir saman. Núna bíða sex manns eftir vír um. ” Knútur sagði að einkum væri um mjög feitt kvenfólk aö ræöa, upp undir eða yfir eitt hundrað kíló að þyngd. Mjög lítið væri um að karl- menn óskuðu eftir virbindingu. „Fólk sem biður um þetta er búið að reyna allt. Otal megrunarkúra. Þannig /oka viramir munninum. Aðeins fíjótandi fæða kemst inn fyrir. Það hefur jafnvel lagst inn á sjúkrahús á sérstakt megrunarfæði. Þetta er siðasta þrautaráðiö,” sagði Knútur. Vírbinding virðist örugg til að fækka aukakílóum. „Mjög fljótlega missir fólk þyngd, jafnvel 15 kíló á fyrsta mánuði. Eg er nýbúinn að hafa dömu sem var með vírana í 4—5 mánuði. Hún léttist mn 35 kíló, úr 105 niður í 70. Það er mjög algengt að fólk missi 15 til 20 kiló,” sagði Knútur. Hann sagði aö fólk hefði vírana í einn til tvo mánuöi og jafnvel upp í hálft ár. örfá dæmi væru þess að fólk hefði ekki enst út sólarhringinn. „Það fyrsta sem ég læt fólk gera er að kaupa sér litla töng svo að það geti klippt vírana í sundur þurfi það til dæmis að kasta upp eða þoli ekki vírana,” sagði læknirinn. -KMLi. Goðinntók Helga Melsteð á sigurstund i ölstofunni á henni á myndinni eru hinar stúlkurnar sem kepptu til úrslita i keppninni. Talið frá vinstri; Svava Grimsdóttir, Halldóra Hermannsdóttir, Guöný Benediktsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Margrét Jóhannesdóttir, en hún varðíöðrusætiikeppninni. ___ ... . „ . „ DV-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.