Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 112.TBL. —74.og10.ARG.—MIÐVIKUDAGUR 16.MAI 1984. Albert smakkar kókómjólk í fyrsta skipti „Þetta er bara helv... gott,” sagði Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra þegar hann smakk- aði kókómjólk í fyrsta skipti í gær. Var honum afhent ein pelaferna af kókómjólk að loknum ríkis- stjómarfundi í gærmorgun þar sem undirrituð var samþykkt um verð á kókómjólk, mangósopa og jóga. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra fékk einnig einn pela af kókómjólk og likaði vel. Ekki kom fram hvort Jón hafði bragðað drykkinn áður. -DV-myndir E.ö. Þrjú álver og kísilmálmver Straumsvík—Eyjafjörður—Þorláks- höfn—Reyðarfjörður A næstu vikum standa iðnaðar- ráðherra og samninganefndir í stór- iðjumálum í ströngu. Funda með Alusuisse eftir viku, með Alcan í júni og Alcoa í júlí, þar sem jafnvel tvö- földun álversins í Straumsvík og ný álver í Eyjafirði og í Þorlákshöfn verða til umræðu. Elkem-menn og Ðeiri koma út af kísilmálmveri. „Það er í myndinni núna að ræöa við Alusuisse um 50% stækkun í Straumsvík '88 og aftur 50% ’90—’91. Ef Alcan-forstjórunum líst á Eyja- fjaröardæmið þarf að hafa eitthvað fyrir Alcoa og þá hef ég Þorlákshöfn i huga. Það bíða þrjár virkjanir fullhannaöar syðra,” segir Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra. „Þetta er allt mikið mál og núna, þegar menn eru famir að tala af viti um orkuverð sem nægi fyrir fram- leiðslukostnaöi orkunnar, kemur þetta allt til álita. En þetta er margra ára verkefni og ljóst að fyrst þarf að gera flókna samninga vel úr garði og síðan líða ár þangað til ný álverrísa. En það má þó hugsa sér aö hraða þessu, það kæmi jafnvel tfl greina að semja viö þá um allt saman, bæði orkuframkvæmdimar og álverin, þótt viö höfum ekki hugsað okkur þann hátt á hingað tfl,” segir ráðherrann. -HERB. Le'itar að hvflustað Jesú Krists - bis. 10 pHBB HnBBBH Spaghetti, lasagna og Chiliconcarne - bls. 6-7 ea Islenskt andrúmsloft í Vín - bls. 34

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.